Dagblaðið - 27.09.1978, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1978.
7
Hreinna og ódýr-
ara rafmagn
væntanlegt
— sovézkir og bandarískir vísindamenn vinna saman að
lausninni
Bandarískir og sovézkir vísinda-
menn vinna nú að sameiginlegum
rannsóknum sem munu valda lækkun
á rafmagnsverði í framtíðinni og auk
þess valda minni mengun við raf-
magnsframleiðslu en nú á sér stað.
Mun aðferð þessi koma að gagni hvort
sem rafmagnið verður framleitt úr
kolum, vatnsorku eða kjarnorku.
Fregnir af rannsóknum þessum
koma frá yfirmanni sovézkrar rann-
sóknarstofu í Moskvu og sagði hann
þetta gott dæmi um árangur sameigin-
legra rannsókna Sovétmanna og
Bandaríkjanna. Hafi kurinátta beggja
komið að miklu gagni og hvor um sig
lagt fram sinn skerf.
Hin nýja aðferð byggist á því að
hægt muni vera að vinna meiri raf-
magnsorku með hverflum rafstöðva ef
þeir vinna við meiri hita en nú er al-
mennt gert. Sá ljóður hefur aftur á
móti verið á slíku hingað til að við 600
gráðu hita eyðileggjast hverflarnir
vegna hins mikla hraða sem á þeim er.
Með nýjum aðferðum hefur sovézk-
um og bandarískum visindamönnum
tekist að vinna bug á þessum vanda og
þeir telja að í framtíðinni verði hægt
að vinna rafmagnið með allt að 2700
gráðu hita.
Erlendar
fréttir
Þjóðhöfðingjar þjóta um heiminn þessa dagana sem oftar. Einn er sá sem bezt
mun una sér heima i eigin garði og huga að plöntum slnum. Er það Japanskeisari,
sem hér sést á myndinni vera að kanna hrisgrjónauppskeru sína, sem hann ræktar
i hallargarði sinum.
Jafntefli,
jafntefli,
jafntefli...
26. skákin í heimsmeistaraeinvíginu,
sem tefld var I gær, lauk með jafntefli
eftir aðeins 27 leiki. Þá bauð Karpov
áskorandanum persónulega jafntefli,
sem kom mönnum mjög á óvart. Kapp-
arnir hafa nefnilega ekki yrt hvor á ann-
an i fleiri vikur og vinskapurinn ekki
verið upp á marga fiska. Enn meir kom
þó á óvart, að Kortsnoj skyldi þiggja
jafnteflisboðið. Á sínum tima lét hann
svo um mælt að ef Karpov dirfðist að
segja við sig eitt orð, myndu skammar-
yrðin fjúka í höfuð hans. Eitthvað virtist
honum vera runnin reiðin, þvi jafnteflis-
boðið þáði hann fegins hendi og án
nokkurrar umhugsunar.
Skákin í gær var merkileg fyrir
margra hluta sakir. Karpov beitti nú
enska leiknum í annað sinn í einvíginu
og Kortsnoj svaraði með hollenskri upp-
byggingu, sem ekki hefur sést I einvíginu
til þessa. Skákin varð snemma flókin og
vandtefld, en hvitur virtist þó hafa öllu
betri möguleika. Kortsnoj hristi hins
vegar nokkra bráðsnjalla leiki fram úr
erminni og náði algjörlega að jafna tafl-
ið. Ekki vildi hann þó tefla til vinnings. 1
23. leik fékk hann færi á jafnteflisleið og
ákvað að tefla ekki i neina tvísýnu. Enn
eitt jafnteflið er því staðreynd og hvor-
ugur færist nær heimsmeistaratitlinum.
26. Einvigisskákin
Hvitt: A. Karpov
Svart: V. Kortsnoj
Enskur leikur
1. c4
Karpov og menn hans hafa greinilega
ekki enn fundið vænlega leið gegn
Spánska leiknum hans Kortsnoj og leita
því á önnur mið. Karpov hefur aðeins
einu sinni áður beitt Enska leiknum í
þessu einvigi, í 6. skákinni, sem varð ein
af friðsömustu skákum einvígisins til
þessa.
1, — e5 2. Rc3d6
Kortsnoj er fyrri til að breyta út af 6.
skákinni, en þar varð framhaldið 2. —
Rf6 3. Rf3 Rc6 4. g3 Bb4 o.s.frv.
3.g3f5 4. Bg2
Annar möguleiki er 4. d4l? exd4 5.
Dxd4 Rc6 6. Dd2 ásamt 7. b3 og 8. Bb2.
Karpov er hins vegar rósemdin ein í
þessari skák og kýs að þróa stöðuna á
hægfara hátt.
4. — Rc6 5. d3
Enn sýnir Karpov litil bardagamerki.
Hvassara er 5. e3 ásamt 6. d4, sem löng-
um hefur þótt frekar hagstætt hvítum.
5. — Rf6 6. e3 Be7 7. Rge2 0—0 8.0-0
De8
Einkennandi leikur fyrir þessa upp-
byggingu sem svartur velur. Möguleikar
svarts liggja fyrst og fremst á kóngs-
vængnum og því undirbýr hann komu
drottningarinnar til h5, þar sem hún
tæki virkan þátt I baráttunni.
9. f4!?
Karpov vill fyrirbyggja allar sóknar-
aðgerðir svarts á kóngsvæng, áður en
hann hefst handa á drottningarvæng.
Að sjálfsögðu var 9. Hbl, ásamt b2-b4-
b5 o.s.frv. einnig mögulegt, en þá fengi
svartur sterk gagnfæri á kóngsvæng.
9. — Bd8 10. a3 Hb8!
Athyglisverð hugmynd. í fyrstu gæti
virst sem Kortsnoj væri aðeins að gæta
að b-peði sinu, en fleira býr á bak við.
11. b4 Be6 12. Rd5b5l?
Nú fyrst kemur gildi hins dularfulla
hróksleiks I ljós. Svartur grefur undan
miðborði hvits og nær fótfestu á nokkr-
um mikilvægum reitum.
13. Bb2 bxc4 14.dxc4e4
Biskupinn á g2 fer nú að líkjast há-
vöxnu peði.
15. Rxf6+ 16. Bxf6 Hxf6 17. Hcl a5!
Kortsnoj teflir mjög markvisst. Nú
þvingar hann fram b5, sem gerir það að
verkum að svartur fær óskareit á c5 fyrir
riddarann.
18. b5 Rd8 19. Hf2!
Einkennandi Karpov-leikur. Hann
hefur í hyggju að koma riddara sínum til
d5, en I augnablikinu strandar 19. Rc3?
á 19. — Bxc4. Hann undirbýr því Bg2-
fl, sem valdar c-peðið og riddarinn er
frjáls ferða sinna. Árásargjarnari sálir
hefðu þó eflaust leikið 19. g4!? og reynt
að brjóta biskupnum á g2 leið fram á
vígvöllinn. Heimsmeistaranum hefur
hins vegar aldrei líkað við slíkt „of-
beldi”.
19. —Rb7
Það þarf ekki að taka það fram hvert
þessi er að fara.
20. Bfl Rc5 21.Rc3Bf7 22.Rd5
Báðir riddararnir hafa nú komist á
fyrirheitna staðinn. Sá er hins vegar
munurinn að svartur á frekar auðvelt
með að losa sig við þann hvita...
22. — Bxd5! 23. cxd5
sterkan riddara á c5, sem er mikilmenni
miðað við biskupskrílið á fl. En hvernig
á svartur að bæta stöðu sína? Eflaust
hefur Kortsnoj ekki fundið neina hald-
góða áætlun og kýs því að þvinga fram
jafntefli á stundinni. Sennilega er það
réttmæt ákvörðun. Hvítur gæti t.d. tvö-
faldað hrókana á c-línunni og i ýmsum
tilvikum er möguleiki á skiptamunsfórn
á c5
23. - Rd3! 24. Bxd3 exd3 25. Dxd3
Dxb5 26. Dxb5 Hxb5 27. Hxc7 Hf7!
En ekki 27. - Hxd5? 28. Hb2 Hf7 29.
Hb8+ Hf8 30. Hbb7.
Karpov bauð nú Kortsnoj (en ekki
yfirdómaranum!) jafntefli, sem han þáði
á stundinni. Það er ósköp skiljanleg
ákvörðun, þvi staðan hefur upp á lítið
annaðaðbjóða.
.................................................................................................................................... „„ , ,n,
STÓRVANTAR
BÍLA!
Vegna gífurlegrar
sölu vantar
okkur bíla í sýn-
ingarsal og á útisvœði
Við seljum alla bíla efþeir eru á staðnum!
BÍLASALAN SKEIFAN
SKEIFUNN111, SÍMI84848