Dagblaðið - 20.10.1978, Side 12

Dagblaðið - 20.10.1978, Side 12
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1978. ................ ”\ Auglýsing um styrk til framhaldsnáms í hjúkrunarfræði Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) mun að líkindum bjóða fram styrk handa islenskum hjúkrunar- fræðingi til að ljúka M.Sc. gráðu í hjúkrunarfræði við erlendan háskóla. Styrkurinn verður veittur til tveggja árafrá haustinu 1979. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í menntamálaráðuneytinu. Umsóknir þurfa að hafa borist menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík fyrir 15. nóvember Menntamólaráðuneytinu, 16. október 1978. TILBOÐ Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir í tjóns- ástandi: Lada Sport árg. ’78, Lada Topas árg. ’78, Skoda Amigo árg. ’77, Volvo Amason árg. ’66, Ford Capri árg. ’71, Fiat 127 árg. ’74. Opel Rekord, dísil árg. ’73, Mercury Monarch árg. ’75, Saab 96 árg. ’71 Bifreiðirnar verða til sýnis að Melabraut 26 Hafnarfirði laugardaginn 21. okt. nk. kl. 13— 17. Tilboðum óskast skilað til aðalskrifstofu Laugavegi 103 fyrir kl. 17 miðvikudaginn 23. okt. nk. Brunabótafélag íslands. járnamaður Viljum ráða 3 trésmiði og vanan járnamann strax. Uppk í síma 83661. Sljórn verkamannabústaða. Hundasýning Næstkomandi sunnudag 22. okt. gefst einstætt tækifæri / til að sjá marga fallegustu f hunda landsins samankomna á einum stað. Hundaræktarfélag íslands gengst fyrir sýningu á hreinræktuðum hundum, sem jafn- framt er dómsýning. Verður hún haldin í í- þróttahúsinu Ásgarði, Garðabæ og hefst kl. 13 og stendur fram til kl. 18.00. Hundeigendur mæti með hunda sína kl. 12.00. Miðasalahefstkl. 12.30. Dómari er Jean Lanningfrá Bretlandi. Kynnir er Gunnar Eyjólfsson leikari Á milli þess sem dómar fara fram sýna vel- þjálfaðir hundar listir sínar og sýndar verða hlýðniæfingar. Aðgangseyrir kr. 1.000 fyrir fullorðna, kr. 500 fyrir börn yngri en 12 ára, ókeypis fyrir börn yngri en 5 ára. Þetta er sýning fyrir alla fjölskylduna. Framkvæmdanefnd. /■ ALMENNING- URER PAKK Vinur minn, sem er áfengisvamar- fulltrúi, hefur fundið upp pottþétta aðferð til að koma í veg fyrir bílslys og árekstra. Aðferðin er alveg geníal, og einföld eftir því, eins og allar patentlausnir: að banna bíla. „Mér er algerlega hulið af hverju stjórnvöld hafa ekki fyrir löngu bannað þennan stórhættulega skaðvald,” sagði hann þegar við pjökkuðum Miðbæinn um daginn i lemjandi rigningarsudda, „enda er svo komið að yfirgnæfandi meirhluti almennings notar bíla í tíma og ótima og þjösnast á þeim, jafnvel upp um fjöll, sér og öðrum til stórhættu og fjörtjóns.” Ég reyndi að finna einhver rök gegn vini mínum en þá mátaði hann mig endanlega og bætti við: „Þessi hug- mynd hefur auk þess ýmsa aðra kosti: Ef bílar yrðu bannaðir, þyrfti t.d. ekki skilizt af hverju vinur minn starfar sem áfengisvarnarfulltr. fyrir al- menning. Hugmyndir hans á því sviði eru viða lika genlal: aö banna áfengi, en ekki að bæta vínmenninguna, — að banna bila, en ekki bæta umferðar- menninguna. Ég bíð bara eftir því að vinur minn verði kosinn í Umferðar- ráð Reykjavíkurborgar til að hafa vit fyrir almenningi: Auðvitað á að banna almenningi sem flest. Almenningur er pakk og óferjandi rumpulýður sem á að meðhöndla eins og hvern annan glæpaskríl, enda sýna dæmin, að hann er svo stórhættulegur, að strax eftir að fer að skyggja á kvöldin, er ekki þorandi að hleypa honum innfyrir búðardyr, heldur verður að afgreiða hann gegnum lúgur, á sama hátt og þegar rándýrum Sædýrasáfnsins er gefið kjöt milli rimla. fyrst voðinn vís. Vonandi eignumst við fleiri alþingismenn og ráðherra sem þora að hafa vit fyrir þessum bölvuðum almenningi sem er alltaf veikur og til vandræða. Hvernig væri t.d. að lögleiða að almenningur megi ekki vera fáklæddur í kulda til að koma i veg fyrir að hann fái kvef. Lögreglan gæti þá sektað alla þá sem gengju jakkalausir og á skyrtunni í kulda; ég tala nú ekki um þá sem eru fáklæddari og fara i spillingarvilpur eins og hitaveitulækinn. Slíka striplinga bæri að fangelsa og skylda þá til að kaupa fjóra alfatnaði hjá SlS eða KRON og yrðu þeir síðan að ganga í fötunum í refsingarskyni. Síðan er bráðnauðsynlegt að banna sælgæti svo almenningur fái ekki skemmdar tennur og þar á eftir erlend tímarit, svo almenningur skaðist ekki að leggja vegi og hægt yrði að loka platstofnun eins og Bifreiðaeftirliti ríkisins. Auk þess myndi heilsa almennings stórbatna við alla hreyfinguna sem kæmi i stað bílanna, t.d. þess almennings sem þyrfti að ganga daglega frá Hafnarfirði til Reykjavikur í vinnuna.” Ég vil taka það fram að ég og vinur minn erum alls ekki almenningur, það eru hinir, aðrir og þessir. Síöan þetta samtal átti sér stað hefur mér loksins Islenzkir alþingismenn hafa löngu gert sér þetta Ijóst og leggjast nú í auknum mæli á almenning eins og ungapúddur sem verða að vernda litlu, gulu ungana undir vængjum sínum og hafa vit fyrir þeim. Almenningur, þetta hræðilega fyrirbæri, sem er svo hættulegur að hann er vis með að fara sér að voða ef hann fær að reykja i leigubílum; að ég tali nú ekki um ef hann fengi að kaupa sér bjór og spjalla í bróðerni við náungann. Þá væri nú af klámi og erlendum orðum sem þar er að finna og spilla tungunni. En allra öruggast væri þó að banna almenningi að lesa dagblöð svo hann komist ekki úr jafnvægi við að lesa æsandi fréttir eða fái andfélagslegar hugmyndir. Já, það er margt sem er hægt að gera fyrir þennan almenning til að bjarga honum frá bráðum voða. 1 einlægni, ykkar Gunnlaugur Sveinsson. LÍV ítrekar áskorun VR: AFTURKALLIÐ EKKIUPPSÖGN LAUNALIÐA „Því skorar sambandsstjórnin á öll aðildarfélög sambandsins að hverfa ekki frá uppsögn kaupgjaldsákvæða samninganna en búa sig heldur undir að standa fast að framgangi þess rétt- •lætismáls að verzlunar- og skrifstofu- fólk fái með samningum viðurkennd hliðstæð kjör og aðrir sem sambærileg störf vinna,” segir i niðurlagi ályktunar sambandsstjórnar Lands- sambands verzlunarmanna. Fundur i sambandsstjórninni var haldinn sl. laugardag. Kjarasamningum verzlunarmanna var sagt upp að því er tók til kaupliða þegar „febrúarlögin” voru sett. ASÍ mæltist til þess að verzlunarmenn tækju aftur þá uppsögn. VR hefur þegar tjáð sig um málið. Synjar það tilmælum ASl. Auk þess gaf VR vinnuveitendum frest til 9. nóvember næstkomandi að hefja viðræður, ella yrði gripið til ráðstafana sem ekki voru nánar skýrðar hverjar yrðu. 1 ályktun Landssambandsins er þess vænzt að skriður sé nú um það bil að komast á viðræður og samninga- tilraunir. -BS.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.