Dagblaðið - 20.10.1978, Qupperneq 27

Dagblaðið - 20.10.1978, Qupperneq 27
 31 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1978. <S Útvarp Sjónvarp Þá er „Gæfan” að renna sitt síðasta skeið: Claudius keisari i í stað Rudys og Maggíar — Gæfan og gjörvileikinn þótti orðið í þynnsta lagi og óákveðið er um kaup þriðju seríunnar Claudius kelsari 1 öllu sinu veldi. Myndaflokkurinn Gæfa eða gjörvileiki fer nú brátt að syngja sitt siðasta. Næstsiðasti þátturinn verður sýndur á sunnudag. Sagt er að á meðan þátturinn er sýndur í sjónvarpinu tæmist bókstaflega allar götur bæjarins. Kvikmyndahús hafa aldrei fengið eins lélega aðsókn eins og nú á meðan þættirnir hafa verið sýndir. En sunnudagskvöld hafa verið beztu kvöld kvikmyndahúsanna ásamt fimmtudagskvöldum. Helzta umræðuefni manna á meðal þessa dagana er einmitt um Gæfu eða gjörvileika og spyr fólk sig gjarnan að því hvernig þetta endi eiginlega hjá aumingja Rudy. Ekki ætlum við að upplýsa þá spennu, heldur verður fólk að bíða og sjá hvað setur. Heyrzt hefur að verið sé að taka þriðja hluta myndaflokksins og snerum við okkur til Björns Baldurs- sonar, dagskrárfulltrúa hjá sjónvarpinu. Björn sagði að hann hefði heyrt um það að verið væri að taka þriðja hlutann, en ekki bjóst hann við að sjónvarpið tæki þann hluta til sýningar, efnið væri orðið svo útþynnt. Björn sagði ennfremur að fullt væri til af þáttum i sama dúr og Gæfa eða gjörvileiki, en ekki væri fyrirhugað að taka þá til sýningar. En hvað fáum við að sjá i staðinn fyrir þáttinn Gæfa eða gjörvileiki. Björn sagði að nýr breskur mynda- flokkur hæfi göngu sína eftir að Gæfa eða gjörvileiki, væri hætt á sunnudögum, og nefnist sá þáttur I Claudius eða Ég Kládius. Myndin er byggð á sögum eftir Robert Gravs og verða þættirnir þrettán. Ég Kládíus fjallar ,um keisara í Róm og gerist sagan á timabilinu 50 fyrir Krist til 50 eftirKrist. Að sögn Björns eru þetta háalvarlegir þættir sem vakið hafa mikla hrifningu erlendis. Mörg fræg nöfn úr biblíusögum og mannkynssögunni koma fram í þáttunum. Þeir sem vel eru að sér í mannkynssögu ættu þvi að kannast við þessa sögu um keisarann í Róm. Ennþá eigum við eftir að sjá tvo þætti af Gæfu eða gjörvileika svo þau Rudy og Maggie, Kate og Wes, Billy og auðvitað fúlmennið Falconetti eru ekki alveg skilin við okkur á sunnudagskvöldum. -ELA. Vinir okkar úr Gæfu eða gjörvileikia, Rudy ogMaggie. / POPP—útvarp kl. 16.20: Hljómsveitin Steely Dan íPoppi Ég hef hugsað mér að kynna hljóm- sveitina Steely Dan i þættinum,” sagði Dóra Jónsdóttir, umsjónarmaður Popps í dag kl. 16,20. „Steely Dan er byggð upp á tveim söngvurum og laga- smiðum sem fengið hafa aðstoð hjá öðrum tónlistarmönnumsagði Dóra um hljómsveitina. „Þeir hafa gefið út 5—6 hljómplötur. Aðalmennirnir eru þeir Donald Fagen sem spilar á hljóm- borð og syngur og Walter Becker sem spilar á bassa og syngur ennfremur. Steely Dan hefur gefið út fimm hljómplötur. Sú fyrsta kom út i júní L 1972 og nefnist hún Can’t Buy A Trill. 1973 kom út önnur plata þeirra og nefndist hún Countdown To Ecstasy. Þriðja platan Pretzel Logic, kom út árið 1974, fjórða platan Katy Lied, kom út árið 1975, og sú fimmta þ.e. The Royal Scam, kom út 1976. Plöturnar komu því út fimm ár í röð og hafa þær hlotið misjafna dóma. Þeir félagar eru allir amerískir. Dóra Jónsdóttir er starfstúlka hjá tónlistardeild ríkisútvarpsins. Hún hefur séð um föstudagspoppið í sumar og mun halda því áfram í vetur. Þeir sem hlustuöu á þáttinn Óskalög sjúklinga, sl. laugardag hafa eflaust heyrt nýja rödd í þættinum. Það var Dóra sem kynnti lögin I fríi Kristinar Sveinbjörnsdóttur. Kristín mun vera komin aftur, svo Dóra heldur ekki áfram meðóskalögin. Dóra tjáði okkur að sem betur fer væri Poppið ekki i beinni útsendingu. En þar sem tilkynningar taka svo langan tíma á föstudögum er Poppið oft I seinna lagi. Dóra sagðist vona að svo yrði þó ekki í dag. -ELA. Trésmiðir ÍÞriggja til fjögurra manna trésmíðaflokkur óskast í ákvæðisvinnu við uppslátt á undir- stöðum fyrir verksmiðjubyggingu. J. Hinriksson vMavariwttsOi, simar 23520 og 26S90. HÚS gagna vi ka opnar í dag kl.17 GLÆSILEG SÝNING ÍÁG HÚSINU,ÁRTÚNSHÖFÐA ÁG HÚSIÐ ER VIÐ HLIÐINA Á SÝNINGAHÖLLINNI Skoðió nýjungar innlendra framleióenda; húsgögn, áklœói og innréttingar. Opió virka daga kl. 17— 22 Laugardaga og sunnudaga kl. 14—22 20-29október

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.