Dagblaðið - 11.12.1978, Síða 45
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 11. DESEMBER 1978.
45
Fay fyrir
aftan
myndavél-
inaog
framan
Fay Dunaway hefur leikið i mörgum
stórmyndum. Það byrjaði með Bonnie
and Clyde, þar lék hún á móti Warren
Beatty. Siðan komu nokkrar myndir I
viðbót og lék hún þar á meðal á móti
Steve McQueen, móti Jack Nicholson i
Chinatown og Peter Finch í Network.
Fay hefur gengið stjörnustigann og er
nú svo komið að hún getur valið og
hafnað eftir vild. Síðasta mynd Fay var
Network sem Tónabió sýndi nú fyrir
skömmu. í vor var þó hafizt handa við
að kvikmynda fyrir myndina Eyes.
Myndin fjallar um kventizkuljósmynd-
ara og leikur Fay þar eitt aðalhlut-
verkið.
Myndirnar sem fylgja hér með eru
teknar við það tækifæri er Fay bregður
fyrir sig myndavélinni og smellir af en
kvikmyndavélarnar suða allt í kringum
hana.
Eflaust eigum við einhvern tíma eftir
að sjá þessa mynd en hvenær verðum
við að láta tímann skera úr um. Það er
óhætt að segja að Fay fái misjöfn hlut-
verk I kvikmyndum og nú segja erlend
blöðbara: hvaðskyldi hún leika næst?
>tx ouc-r—~x»c:.. . _____zxk
SPÉKOPPAR
Þetta er bók fyrir yngstu les-
endurna eftir Herdísi Egils-
dóttur. Fyrri bækur hennar -
Skessubækurnar - mega heita
uppseldar, og ekki er að efa
að þessar verði jafn vinsældar.
Það liggur við að við mælum
með þessum sögum fyrir fólk á
öllum aldri, en þó fyrst og
fremst fyrir aldursskeiðið 5-8
ára.
ísafold
Bókaverzlun, Austurstræti 10
Bókaútgáfa, Þingholtsstræti 5
^XK~----*K XK Xie.. stw-----Sthr
5ÍK
X
X
IXK---- >f
x
Tízkati í dag
Húfur ímiklu úrvali
Crepe-hanskar
Kven- og barnalúffur
Hárgreiðslan skiptir alltaf mjög miklu
máli hjá kvenfólkinu og allar reyna þær
að vera öðruvisi. Til að vera sem fínastar
fara sumar til hárgreiðslumeistara og
biðja hann að laga á sér hárið.
Aðrar vilja . prófa eitthvað
nýtt, reyna að finna út hvað fari þeim
bezt og eyða jafnvel mörgum tímum
fyrir framan spegilinn í þeim tilgangi.
Enn aðrar láta engan greiða sér nema
tízkuhárgreiðslumeistara, sem að sjálf-
sögðu kostar tiu sinnum meira en
venjulegir hárgreiðslumeistarar. Og ef
maður borgar fyrir sérstaka hárlagningu
er eins gott að fá eitthvað sérstakt. Þessi
unga stúlka á myndinni fékk svo sannar-
lega módelhárgreiðslu en ef þið eru
myndarlegar, gætuð þið kannski sett
ykkar hár svona upp.
ÚRVflL/ KJÖTVÖRUR
OG ÞJÓflU/Tfl
/i/allteitthvaö
gott í matinn
STIGAHLÍÐ 45^47 SÍMI 35645
FRAKKASTÍG13
SÍMAR
10550 og 10590