Dagblaðið - 11.12.1978, Page 47
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1978.
<§
Útvarp
Sjónvarp
i
Gulli txknimaður, Hjálmar Arnason og Guðmundur Arni Stefánsson veifa hér áður en þeir leggja upp í hina löngu ferð til
Akureyrar.
Á TÍUNDA TÍMANUM - útvarp M. 21.10:
Meira um Akureyrar
ferðina
Á tíunda tímanum er á dagskrá út-
varpsins í kvöld kl. 21.10 og er hann I
umsjá Guðmundar Árna Stefánssonar
og Hjálmars Árnasonar.
1 kvöld og I næstu þáttum ætla þeir
félagar að segja frá Akureyrarferðinni,
sem þeir fóru fyrir rúmri viku.
Heimsókn I Dynheima verður
aðalefni þáttarins og verður rætt við
nokkra unglinga sem starfa í Dynheim-
um i þættinum í kvöld. Auk þess verður
V
rætt viðfulltrúastaðarins.
Dynheimar er dálitið sérstakt veit-
ingahús, þar stjórna unglingarnir öllú,
bæði því að allt fari vel fram og einnig
sjá þeir um dansleiki sem húsið stendur
fyrir.
Diskótek er í Dynheimum og koma
unglingar á Akureyri allt frá 14 til 19
ára þangað til að skemmta sér.
Hvað eru margar tröppur upp að
kirkjunni á Akureyri? Þessá spurningu
lögðu þeir félagar fyrir vegfarendur á
Akureyri og fáum við að heyra svör
þeirra i kvöld.
Til að vera vissir um hvað þrepin voru
mörg gengu þeir Guðmundur og Hjálm-
ar upp og töldu I leiðinni. Þeir komust að
þeirri niðurstöðu að þrepin væru 114.
Þeir félagar breyta síðan snögglega
um umhverfi í þættinum. Þeir gengu á
fólk sem beið eftir strætó á Hlemmi, hér
i Reykjavík, og spurðu það hvers það
óskaði sér helzt.
Fastir liðir eins og leynigestur og topp
5 eru að sjálfsögðu á dagskrá og nú ætla
þeir félagar einnig að lesa upp úr bréfum
en fyrir síðasta þátt fengu þeir hátt i
600 bréf.
Þátturinn er þriggja stundarfjórðunga
langur og minna má á að símatími þátt-
arins er I dag milli kl. ló.OOog 17.00.
-ELA.
/
LEIKLISTARÞÁTTUR—útvarp M. 22.45:
Hvemig starfar Leik
listarskóli íslands?
1 kvöld kl. 22.45 er á dagskrá út-
varpsins þátturinn um leiklist I umsjá
Kristínar Bjarnadóttur. í þættinum I
kvöld ætlar Kristín að fjalla um leiklist-
arnám. Verður i því sambandi rætt um
Leiklistarskóla íslands, starf hans og
eins hvernig náminu er háttað.
Leiklistarskólinn var stofnaður árið
1975, um haustið, og hefur hann nú þeg-
ar útskrifað um 40 nemendur, þó svo að
hann sé bara á fjórða ári.
Rætt verður við Pétur Einarsson
leikara og skólastjóra Leiklistarskólans.
Pétur mun segja frá markmiði skólans
og hvaða möguleikar bjóðast eftir að
námierlokið.
Einnig verður rætt við Karl Ágúst
Úlfsson sem er nemandi í Leiklistar-
í kvöld kl. 21.15 endursýnir sjón-
varpið leikrit Matthíasar iohannessen,
Ófelíu, en það var áður á dagskrá 15.
febrúar 1976. Leikritið er í svart/hvítu.
Leikstjóri er Helgi Skúlason en með
aðalhlutverk fara Helga Bachmann,
Þorsteinn Gunnarsson og Jón Sigur-
björnsson. Leikmynd gerði Snorri
skólanum og er á öðru ári. Verður jafn-
framt þvi rætt við Helgu Thorberg sem
útskrifaðist fráskólanum sl. vor.
Helga ætlar að lýsa hvernig það sé að
vera komin út I atvinnulífið eftir að hafa
setið á skólabekk Leiklistarskólans.
Leiklistarskóli lslands er þrjú ár í
námi og einn vetur í nemendaleikhúsi.
Nemendaleikhúsið hefur staðið fyrir
sýningum á vorin en I fyrra setti
leikhúsið upp þrjú verk.
Fyrsta verk leikhússins í fyrra var
leikritíð Breytingin og átti leikurinn að
gerast I Kína. Annað var síðan Pilsa-
þytur, sem naut mikilla vinsælda, og svo
kom Slúðrið eftir Flosa Ólafsson.
Leiklistarþátturinn er stundar-
fjórðungs langur. -ELA.
Sveinn Friðriksson en upptöku annaðist
Tage Ammendrup.
Leikrit þetta er bæði forvitnilegt og
dálitið óvenjulegt en það fjallar um þær
söguhetjur sem Shakespeare skóp,
Hamlet og Ófelíu.
Meistarinn sjálfur birtist á sviðinu og
þau skötuhjúin álasa honum fyrir örlög
sín. Hann fer að grennslast fyrir um
hvort hann sé þekktur manna á meðal
en þau segja honum að svo sé ekki.
Segja má að það sem vaki fyrir
höfundinum, Matthíasi Johannessen,
með þessu verki sé að sýna fram á að
persónur Shakespeares lifi höfundinn.
Leikrit þetta var tekið upp sumarið
1976 og er það hálftíma langt.
-ELA.
J
r—r--------------------------------
ÓFELÍA—sjónvarp í kvöld kl. 21.15:
Shakespeare, Hamlet og Ófelía
—í íslenzku leikriti sem endurflutt er í kvöld
Verð: 79.200. 57.800.- 51.500.-
Þessi Quartz tölvuúr eru framleidd af stærstu úra-
vérksmiöjum Sviss „Ebauche ”, sett saman af fíelma
Watt h Ltd. Swiss, úr einingum og því auöveld í
viögerú. Þau eru meö vísum og venjulegri skífu, högg-
varin, vatnsvarin og ganga fyrir einni rafhlööu sem
endist ca 12—18 mánuöi. Núkvæmni í gangi er ea 3
mín. + eöa — á ári.
Yfir 50 mismunandi geröirfyrir dömur og herra. Verö
frá kr. 47.500.-1 árs ábyrgö.
Úrframtíöarinnar.
ÚR 0G SKARTGRIPIR JÓN 0G ÓSKAR
LAUGAVEG! 70 SÍMI 24910 PÓSTSENDUM
OPIÐÁ
LAUGARDÖGUM
GÓLF- OG SKRIFBORÐSLAMPAR
•
EIIMIMIG NÝJAR SENDINGAR
LOFTLAMPA
FRÁ SVÍÞJÓÐ OG ÍTALÍU
SENDUM í PÓSTKRÖFU
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJÓS & ORKA
Suöurlandsbraut 12
simi 84488