Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 07.02.1979, Qupperneq 4

Dagblaðið - 07.02.1979, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1979. Ungu hjónin sem fengu mánaðarúttektina fyrir nóvembermánuð eru bæði ættuð utan af landi og fá oft senda „böggla” sem innihalda eitt og annað matarkyns. Því var það að þau voru með sérlega lágan kostnað við heimilishaldið i nóvember. Hann hefur verið enn lægri hjá þeim i desember, þvi þau fóru i jólaheimsókn til ættingja yfir jól og áramótin. DB-mynd Bjarnleifur Raddir neytenda Garðyrkjan: Garður granna Nú er svell og snjór yfir öllu en til þess að missa ekki alveg tengslin við áhugasama garðyrkjumenn koma hér smáhugleiðingar frá garðyrkjusér- fræðingi DB, Hermanni Lundholm, garðyrkjustjóra Kópavogs. „Gott samkomulag á milli granna byggist á ýmsum mismunandi at- riðum. Nefna máeftirfarandi: Að gefa sér tíma til að rabba saman í innkeyrslunni. Að láta sér skiljast að ekki sé timi til hangs af því að verzlanir og pósthús eru komin að því að loka. Að neita að gefa honum af sýktum plöntum, sem þú ert að fleygja. Að geta séð af græðlingi af sjald- gæfri jurt. Að geta glaðzt með honum yfir nýju kartöflunum þótt þær séu komnar viku á undan þínum eigin kartöflum. Að láta það vera að montast þótt þínar kartöflur séu komnar á undan hans. Að viðurkenna að tré sem stendur norðan við sólbaðsskýlið þitt standi sunnan við hans. Að dást að stóru tré nágrannans sem þú getur hvort sem er ekki látið hann fjarlægja. Að hjálpast við að hirða limgerðió milli lóðanna. Að samþykkja að fella gerðið vegna nánari samskipta. er sættir Að fleygja heldur grófum og úr sér vöxnum fjölæringum en að gefa þeim sem ekki þekkir til þeirra Að láta sér lynda að börn hafi hátt. Að hugsa um að eldra fólk getur þurft næði. Að láta mótorsláttuvélina eiga sig á matartímum og síðdegis á sunnudögum. Að stökkva ekki upp á nef þér þótt nágranninn fari ekki eins að. Allt tekur enda. Að bjóðast til að hjálpa honum að reisa nýja gróðurhúsið. Eða í annan stað að skipta sér ekki af því. Að láta hjá líða að segja honum frá því að til séu betri gerðir en hans. Að segja honum frá þvi að þú þekkir mann sem einmitt sé mjög hrifinn af sams konar húsi. Að geta lánað hvor öðrum verkfæri. Að fá ekki lánuð verkfærj hvor hjá öðrum. Að reyna að auka áhuga hans á garðyrkjufélaginu. Að láta þér lynda þótt hann hafi önnur áhugamál. Að láta sig varða hvor annan. Að skipta sér ekki af hvor öðrum. Það er ekki alltaf auðvelt að vera nágranni. (Þýtt úr Haven.apríl 1978) Hermann Lundholm. Hakkað kjöt má nota í marga rétti. Liklega eru hamborgararnir lang- þekktastir. Þeir eru dagleg fæða millj- óna manna um allan heim. Hamborg- arar eru líka fljótlegur matur sem hægt er að elda á eða i grilli, sem ku vera heilnæmasta matreiðsluaðferðin. Hérna er uppskrift að,.hamborgurum i sparikjæðum”. Þeir eru svo sannarlega ekki slorlegir á að Uta hamborgararnir þegar þeir eru komnir i „sparifötin”. Hins vegar er þetta nokkuó stór uppskrift, reiknað með 125 g af hakki i hvern borgara og tveir borgarar á mann. Það ætti þvi enginn að vera svangur eftir þessa máltlðina. 1 kg nautahakk 2 stórir laukar 1 egg 150grifinnostur 3 msk. tómatkraftur 3 msk worcestersósa 1 tsk. salt og 1/2 tsk. pipar 8 snciðar beikon öllu (nema beikoninu) er blandað saman. Hakkinu er skipt í átta hluta og búin til buffkaka eða hamborgari úr hverri köku. Beikonsneiöarnar eru festarutan um hverja köku með tannstöngli. Hamborgararnir eru steiktir í ca 10 mín. á hvorri hlið í grillinu eða í mjög heitum ofni (250 ° C) þar til þeir eru brúnaðir. Berið hamborgarana fram meðbökuðum kartöflum og hrásalati. Þetta er rífleg uppskrift því hún er ætluð fyrir fjóra. Hráefnið í réttinn kostar (ef reiknað er með nautahakki úr búð) í kringum 3.316.- kr. eða um 829 kr. á mann. Er þá ekki reiknað með kartöflum eða hrásalati. -A.Bj. Eins og áður hefur verið bent á hér á Neytendasiðunni er gott að dusta snjóinn af trjágrcinunum. Þegar hann blotnar verður hann þungur og getur sligað greinarnar. Þetta er vctrar„stemmningsmynd” sem Bjarnleifur Ijósmyndari tók í Reykjavik á dögunum. Þátttakan í þessari upplýsingamiöl- un hefur verið mjög almenn á öllu landinu. Seðlar hafa borizt frá fjörutiu og átta stöðum á landinu. Það sýnir að fólk um allt land hefur áhuga á að vita í hvað það eyðir peningunum sinum. Almenningur vill svo sannarlega fylgj- ast með verðlaginu eftir fremsta megni þótt þaðséstundum næsta erfitt. - A.Bj. Mánaðarúttektin er happdrætti en ekki verðlaun handa þeim lægstu Til okkar hringdi fullorðin hús- móðir og lýsti undrun sinni yfir vinn- ingshöfunum okkar fyrir nóvember- úttektina. „Það kom fram að þessum ungu hjónum er sendur fiskur og annar matur utan af landi og því er heimilis- bókhaldið þeirra alls ekki raunhæft,” sagði konan. „Bæði mér og mörgum öðrum sem ég hef talað við finnst þetta hreinasta óréttlæti.” Hér er um misskilning að ræða. Greinilega var tekið fram í viðtali við ungu konuna sem fékk úttektarvinn- inginn fyrir nóvembermánuð að heim- ilisbókhald þeirra sýndi ekki „rétta” tölu. Þau þurfa t.d. aldrei að kaupa sér fisk í matinn. — Hins vegar virðist það vera útbreiddur misskilningur að með mánaðarúttektinni séum við að verð- HAMBORGARAR í HÁTÍÐABÚNINGI launa þá sem sýna lægstan kostnað við heimilishaldið. í upphafi var ætlunin að hafa þann háttinn á. Frá því var horfið vegna þess að lítill vandi er að „gleyma" að færa inn tölur, — og einnig ef fólk er þannig í sveit sett að það fái frian mat, verður kostnaðurinn minni. Því höfum við alltaf framkvæmt þetta á þann hátt að við drögum úr innsend- um seðlum. Litið er á mánaðarúttekt- ina sem eins konar umbun fyrir þá fyrirhöfn að senda okkur upplýsinga- seðlana. Úttektin er þvi alls ekki verð- laun fyrir þá lægstu, — heldur eiga allir jafna möguleika á henni, hvort sem þeir eru með háa eða lága búreikn- inga.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.