Dagblaðið - 07.02.1979, Side 11

Dagblaðið - 07.02.1979, Side 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1979. r UPPLÝSINGA- OG FRÆÐSLUSKORTUR — er eitt stærsta mein „kerfisins” >. ■■■ ■ ...... , .* Að undanförnu hafa margir legið yfir skattframtölum sínum, og ýmsir hafa örugglega bölvað í hljóði. Menn hafa bölvað sjálfum sér fyrir að hafa ekki í fyrra gert ráðstafanir til að létta væntanlega skattbyrði sína eða auðvelda framtalsvinnuna, en ekki hafa þeir síður bölvað stjórnvöld- um fyrir flóknar reglur, ónógar upp- lýsingar og ný skattalög, sem sett hafa veriðeftirá. Þeir sem hafa brennt sig á fyrir- hyggjuleysi áður vilja helst ekki lenda aftur i því sama, því brennt barn forð- ast eldinn. En það er auðveldara um að tala en í að komast. Skattskylda — eða ekki Kunningi minn byrjaði að byggja í fyrra. Hann lagði 10 milljónir króna í bygginguna, sem nú er rúmlega fok- held. Eftir síðustu áramót komst hann hins vegar að þeirri niðurstöðu, að húsið yrði öf dýrt fyrir hann, því ef hann ætti að klára húsið myndi það kosta hann svo mikla aukavinnu, að fjölskyldulíf yrði harla fábrotið og hann einungis næturgestur á heimili sinu. Hann fór því á fund nokkurra fast- eignasala, sem urðu sammála um að verðgildi hússins væri nú nálægt 13 milljónum króna. Fasteignasalarnir voru sammála um söluverð hússins, en um annað atriði voru þeir ekki sammála. Þeir voru ekki sammála um hina skattalegu hlið málsins. Maðurinn hafði í fyrra lagt 10 milljónir í bygginguna, en ætlaði nú að selja fyrir 13 milljónir, eins og áður sagði. Mismunurinn er eins og sjá má 3 milljónir, sem stundum hefur verið kallað „gróði”, en er í rauninni aðeins sú hækkun krónutölu sem eðli- leg verður að teljast, því að 1 dag væri byggingarkostnaðurinn 13 milljónir. Fengi maðurinn 13 milljónir i dag gæti hann t.d. keypt sömu hluti og kostuðu 10 milljónir í fyrra, og hefur hann því ekkert „grætt” á bygging- unni. Það er þvi augljóst, að skattlagn- ing væri ósanngjörn. Skortur á upplýsingum Fasteignasalarnir gáfu kunningja mínum tvenns konar ráð. Sumir sögðu, að hann mætti aðeins gefa upp 10 milljóna söluverð en „stela” 3 millj- ónum undan skatti. Ef hann gerði það ekki, fengi hann allt að 2 milljónir í skatt af „gróðanum”. Aðrir sögðu, að nú um áramótin hefðu tekið gildi ný lög, sem gerðu það óþarft að „stela undan” þeirri hækk- un, sem samsvaraði hækkun bygg- ingavísitölu milli ára, og skipti þá aðeins máli, að hann hefði átt húsið yfir áramót, því að skattleysið væri við það miðað, að eignin hefði verið skráð á hans nafn um ein eða fleiri áramót. Þessir fasteignasalar bættu því við, að „gróðinn” væri aðeins 30%, en það væri mikið minna en verðbólgan, og manninum því óhætt að gefa upp allt söluverðið, án þess að þurfa að óttast skattlagningu á næsta ári. Kunningi minn var í vanda. Hann var nánast alveg ruglaður og vissi ekki hverjum hann ætti að trúa, en fannst undarlegt, að mennimir gætu ekki verið sammála. Fasteignasalamir höfðu ekki í höndunum neinar leiðbeiningar um þessi mál — bara Iögin sjálf — en engar nánari' skýringar. Ekki höfðu heldur birst neinar auglýsingar, sem leiðbeindu i þessum efnum, svo vitað væri. morgun! Allt þetta leiddi til þess, að kunningi minn hætti við að selja i bili, en ætlar sér að fá betri upplýsingar, ef þær er einhvers staðar að finna. Fjárhags- skipulagning er ómöguleg Kjallarinn Leó E. Löve hvernig þeir fara skattalega út úr við- skiptum eins og t.d. bilaviðskiptum og húsakaupum. Slíkt er hins vegar illmögulegt að skipuleggja á tslandi, þar sem skatta- í vetur hefur verið mikið um það „Sumir sögðu, afl hann mætti aðeins gefa upp 10 milljóna söluverð en „stela" 3 milljónum und- an skatti. Ef hann gerfli það ekki, fengi hann allt að tveimur milljónum í skatt af „gróðanum"." „Það var ekki hægt að staðfesta, afl maðurinn fengi enga skatta, þrátt fyrir aiit. Það vantaði einhverja reglugerð eða aflrar upplýsingar — og svo gætu lögin sem gilda í dag verið breytt á morgun." . Aífsr íæfstuf í i bákina jkulj yiUasríar 09 kvittaéar a? aiaWkera- KVtTTÚS Z7WW rtm*K m iem‘® •i&Mtö’fS nmrn * *»*'■* 'ZZ -nm'n $ 2jmiu Zmi’U -’&wm 28ÁSÍF7Í -30ái; Vs ISÍF'78 n&mw -26 M'n SKi SK^f s^-orní S!T O. ■ J • 1 c 0 3 0 ■ 2 Cl 9 3 j - U i t': í! > i -í la 5 \ ' ' > 5.0 0 0 ^TTEKID iknvast IKWSTÆDA 1 5 '1 3 rv # * * * 1.2 2 4 1 7 0.0 0 0 * * 1 7 1i.2 2 * 1 3. D 0 0: * *\5 4 2 2 4 3.3 4 4 * * í 1 •;>. t 2 4 * * 1 0 1.1 2 A Ji -k j J ' /< * # * * 3. ■< 6 # * % * 3. 5 -6 Tilkynmð íponsjóðnum toforbusí, ef bókin glatost. Bústofioskipti óskast tílfeyrsní. • SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS Skattstofan á gati Kunningi minn hringdi í skattstof- una, því að þar taldi hann augljóst að hann fengi réttar upplýsingar. Jú, það var staðfest, að sú hækkun á verðmæti hússins, sem mætti rekja til eðlilegrar hækkunar byggingarkostn- aðar væri skattfrjáls samkvæmt nýleg- um lögum, enda ekki um „gróða” að ræða, ef litið er til rýrnandi verðgildis krónunnar. Skattstofan hafði þó fyrirvara á: Það var ekki hægt að staðfesta að maðurinn fengi enga skatta, þrátt fyrir allt. Það vantaði einhverja reglugerð eða aðrar upplýsingar — og svo gætu lögin sem gilda i dag verið breytt á deilt, hvort heimilt sé að leggja á skatta með því að setja lög, sem virki langt afturfyrir sig. Lögfræðilega er slíkt vist heimilt, og vissulega kann það að reynast nauð- synlegt i neyðartilfellum. En gagnvart hinum almenna borgara er slík aftur- virk lagasetning afleit, stefna stjórn- valda og löggjafa ætti þvert á móti að vera sú, að setja lög með gildistöku fram í timann, svo að menn geti áttað sigá hlutunum. Sumir menn — eins og kunningi minn — vilja nefnilega haga fjár- málum sínum að einhverju leyti eftir því hvernig skattalega hliðin kemur út. Þeir vilja með öðrurn orðum vita lögin breytast næstum jafnoft og veðrið — og það er hreint ekki sjaldan. Svo oft breytast reglumar, og svo óljósar eru þær fyrir almenningi, að óafsakanlegt er. Jafnvel starfsfólk skattstofu virðist ekki þekkja reglurn- ar út i æsar, eða vanta upplýsingar. Auðvitað eiga stjórnvöld að beita sér fyrir þvi að út verði gefnar skatta- handbækur með dæmum úr daglega lífinu, svo að menn geti lesið sér til um hin ýmsu atriði og líka fundið dæmi, sem eru hliðstæð þeirra eigin og hagað sérsamkvæmt því. Eins gætu framtakssamir bókaút- gefendur — sem eru svo sprækir fyrir jólin — gefið út handhægar skattaleið- beiningar fyrir almenning. Jákvæð stjórnvöld ... í Danmörku Ég hef oft áður bent á, að almenn- ingi sé of lítill skilningur sýndur á íslandi, að ekki sé nú talað um alúð- legt viðmót frá hinum ýmsu opinberu aðilum. Almenningur er ekki „fræðingar” upp til hópa og þarf að fá skýringar umfram það sem segir í flóknum lögum og reglum. Auk þess þarf al- menningur alltaf töluverðan tíma til að átta sig á hlutunum. Hinn vinnandi maður hefur ekki tök á að setja sig inn lallahluti samstundis. Ég ætla til gamans að greina frá af- stöðu danskra yfirvalda til almenn- ings, þegar „bankabókaleyndin” eða „nafnlausar bankabækur” voru af- numdar í Danmörku fyrir tæpum tveimur árum, en að undanförnu hefur mikið verið rætt um slík mál á tslandi. Það var i ársbyrjun 1977 að ákvörðun var tekin um það, að allar danskar bankabækur skyldu þannig skráðar, að nafnnúmer eigandans kæmi fram. Það var þannig tryggt, að ekki yrðu notuð fölsk nöfn, því að auð- velt er að rekja nafnnúmer. Bankarnir voru auk þess skyldaðir til að gefa skattyfirvöldum upplýsingar um allar innstæður. Auðvitað áttu Danir háar fjárhæðir á nafnlausum bókum. Það vissu allir, bæði löggjafi og skattyfirvöld. Jafnframt var vitað, að sumt það fé, sem á nafnlausum bókum væri, þyldi ekki að koma fram í dags- ljósið, þar sem um væri að ræða svo- kallaða „svarta peninga” eða skatt- svikafé. En það var lika til fé á nafn- lausum bókum, sem ekkert var ólög- legt við nema nafnleysið. Yfirvöld ákváðu því, að 1. október 1977 skyldi verða gildistökudagur nýju reglnanna um afnám nafnlausra bankabóka. Ákvörðunin var sem sagt tekin í ársbyrjun, en gildistakan var 1. október. Frestur þessi veitti mönnum svig- rúm til að taka féð út úr hinum nafn- lausu bókum. En yfirvöldin gerðu meira. Þau létu mánuðum saman birta heilsíðuauglýs- ingar í blöðum, þar sem menn voru minntir á að eftir 1. október yrðu allir bankareikningar að vera skráðir á nafn og nafnnúmer. Þarna stóðu yfirvöld sig vel — dönsk, vel að merkja. Þau voru ekki að hugsa um að ná nokkrum krónum af þeim sem banka- bækurnar ættu. Þau voru heldur ekki að reyna að koma eigendum bókanna á kaldan klaka með öðrum hætti. Nei, sjónarmiðið var að koma á nýrri reglu, reglu, sem gilda á um ókomna framtíð. Þegar svo er, skiptir litlu að hengja einstaklinga, sem hafa misstigið sig lítillega. Hin „föðurlega forsjá” danskra yfirvalda er aðdáunarverð. Það verður gaman að lifa þann dag, sem íslensk stjórnvöld sýna borgurun- um jafnmikinn velvilja og að ofan greinir. Leó E. Löve lögfræðingur.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.