Dagblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR I. MARZ 1979. 23 Þannig séröu, borgarstjóri. Ástin getiu- verið blind. zr Við sjáuni annað fólk aðeins eins og við viljum sjá bað. JMaria vildi krækja i borgar' itjórann og ;>uuð upp á banvæna hanastólsvei/.lu. .. Ökukennsla-æfingatímar. iKenni á japanskan bíl. Ökuskóli og prófgögn ef þess er óskað. Aðstoða við endurnýjun ökuskírteina. Nýir nemendur geta byrjað strax. Jóhanna Guðmundsdóttir, simi 30704 og uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022. H—11354. Ökukennsla — æfingatimar — endur- hæfing. Kenni á Datsun I80B árg. ’78. Um- ferðarfræðsla í góðum ökuskóla. Öll prófgögn ef óskað er. Jón Jónsson öku- kennari, simi 33481. Ökukennsla—æfingatimar. Kennslubifreið Datsun 140 Y árgerð 79, lipur og þægilegur bíll. Kenni allan daginn alla daga. Ökuskóli og prófgögn ef óskað er ásamt litmynd i ökuskirteini. Nokkrir nemendur geta byrjað strax. Valdimar Jónsson, ökukennari, s. 72864. Ökukennsla-æfingatimar. Kenni á Mazda 323, nemandi greiðir aðeins tekna tíma. Engir skyldutímar, greiðslufrestur, útvega öll prófgögn. Ökuskóli ef óskað er. Gunnar Jónasson, sími 40694. Ökukennsla-æfingatímbr. Kenni á Toyotu Mark II 306. Greiðslukjör ef óskað er. Nýir nemendur geta byrjað strax. Ökuskóli og öll prófgögn. Kristján Sigurðsson, sími 24158. Ökukennsla. Get nú aftur bætt við mig nokkrum nemendum. Kenni á Mazda 323, ökuskóli og prófgögn fyrir þá sem þess óska. Hallfríður Stefánsdóttir, sími 81349. 1 xEinkamál Ráð i vanda. Þið sem eruð i vanda stödd og liafið engan til að ræða við um vanda- og áhugamál ykkar. hringið og pantið tima i sínia 28124 milli kl. 12.30 og 13.30 mánudaga og fimmtudaga. Algjör trún aður. 'Skemmtanir l Diskótekið Dollý. Mjög hentugt á dansleiki og í einkasam- kvæmi þar sem fólk kemur saman til að skemmta sér og hlusta á góða tónlist. Höfum nýjustu diskóplöturnar, gömlu dansana, rokk og roll, svo eitthvað sé nefnt. Sem sagt, tónlist við allra hæfi. Einng höfum við litskrúðugt ljósasjóv við höndina ef óskað er eftir. Plötu- snúðurinn er alltaf i stuði og reiðubúinn til að koma yður í stuð. Ath.: Þjónusta og stuð. Diskótekið Dollý. Uppl. og pantanasími 51011 (allan daginn). Hljómsveitin Mayland auglýsin Spilum alla tónlist, höfum t.d. æðislegt Grease-prógram, einnig spilum við gömlu dansana af miklum móð og nýju lögin líka. Mjög sanngjarnt verð. Uppl. i síma 82944 (Fjöðrin), Ómar frá kl. 9—6 í síma 44989 og 22581 eft«r kl. 7. Diskótekið Dísa-ferðadiskótek. Auk þess að starfrækja diskótek á skemmtistöðum í Reykjavik rekum við eigið ferðadiskótek. Höfum einnig umboð fyrir önnur ferðadiskótek. Njótum viðurkenningar viðskiptavina og keppinauta fyrir reynslu, þekkingu og góða þjónustu. Veljið viðurkenndan aðila til að sjá um tónlistina á ykkar skemmtun. Símar 52971 (hádegi og kvöldin), 50513 (fyrir kl. 10 og eftir kl. 18) og 51560. Diskótekið Disa h/f. 1 Kennsla Enskunám I Englandi. Lærið ensku og byggið upp framtíðina, úrvals skólar, dvalið á völdum heimilum. Fyrirspurnir sendist i pósthólf 636 Rvík. Uppl. í síma 26915 á daginn og 81814 á kvöldin. ökukennsla á sama stað, kennt á BMW árg. 78. Skurðlistarnámskeið. Vegna forfajla eru örfá pláss laus á tré- skurðarnámskeiði í marz-apríl. Hannes Flosason, simar 21396 og 23911. I Tapað-fundið i Svart veski (umslag) tapaðist laugardaginn 24.2., einhvers staðar á leiðinni frá Loftleiðum að Hverfisgötu eða frá Hverfisgötu að Miklubraut. Uppl. í síma 86470. Innrömmun i G.G. Innrömmun Grensásvegi 50, simi 35163. Þeir sen. vilja fá innrammað fyrir fermingar og páska þurfa að koma sem fyrst, gott rammaúrval. 1 Þjónusta i Vélritun. Tek að mér vélritun, vönduð vinna. Uppl. í sima 26983. Tek að mér vélritun heima. Uppl. í síma 38541 eftir kl. 7. Húsdýraáburður til sölu, ekið heim og dreift ef þess er óskað. Áherzla lögð á góða umgengni. Geymið auglýsinguna. Uppl. í síma 85272 til kl. 3 og 30126 eftir kl. 3. Loftnet. Tökum að okkur uppsetningar og við- gerðir á útvarps- og sjónvarpsloftnetum, gerum einnig tilboð í fjölbýlishúsalagnir með stuttum fyrirvara. Úrskurðum hvort loftnetsstyrkur er nægjanlegur fyrir litsjónvarp. Ársábyrgð á allri vinnu. Uppl. í sima 30225 eftir kl. 19. Fagmenn. Glerisetningar. Setjum i einfalt og tvöfalt gler, útvegum aHt efni, fljót og góð þjónusta. Uppl. í sima 24388. Glersalan Brynja. Ert þú að flytja eða breyta? Er rafmagnið bilað, útiljósið, dyrabjall- an, eða annað? Viö tengjum, borum og skrúfum og gerum við. Simi 15175 eftir kl. 5 alla virka daga og frá hádegi um helgar. Sprunguþéttingar og húsaviðgerðir. Tökum að okkur alls konar húsaviðgerðir og þéttingar. Uppl. í síma 32044. Málningarvinna. Tek að mér alla málningarvinnu, tilboð eða mæling. Greiðsluskilmálar ef óskað er. Uppl. í síma 76925. Flísalögn, dúklögn, veggfóðrun og teppalögn. Gcri yður tilboð að kostnaðarlausu ef óskað er. Jóhann V. Gunnarsson. veggfóðrari og dúklagningarmaður, sími 31312. Smiðum húsgögn og innréttingar, sögum niður og seljum efni. spónaplötur og fleira. Hagsmiði hf.. Hafnarbraut 1. Kópavogi, sími 40017. í Hreingerníngar 9 Hreingerningastöðin hefur vant og vandvirkt fólk til hreingerninga. Einnig önnumst við teppa- og húsgagnahreinsun. Pantið í dma 19017. Ólafur Hólm. Þrif. Tökum að okkur hreingerningar á íbúðum, stigahúsum, stofnunum ,og fl. Einnig teppahreinsun með nýrri djúp- hreinsivél. Vanir og vandvirkir menn. Uppl. í síma 33049 og 85086. Haukur og Guðmundur. Önnumst hreingerningar á íbúðum, stofnunum, stigagöngum og fleiru. Vant og vandvirkt fólk. Uppl. í síma 71484 og 84017. Gunnar. Hreingerningar-teppahreinsun. Hreinsum íbúðir, stigaganga og stofn- anir. Símar 72180 og 27409. Hólm- bræður. ökukennsla Ökukcnnsla. Gunnar Kolbeinsson, sími 74215. Kenni á Toyota Cressida árg. 78, útvega öll gögn. Hjálpa einnig þeim, sem af einhverjum ástæðum hafa misst ökuleyfið sitt til að öðlast bað að nýju. Geir P. Þormar, ökukennari, simar 83825, 21722 og 71895. Ökukennsla-æfingatimar. Kenni á Datsun 180B árg. 78, sér- staklega lipran og þægilegan bíl. Útvega öll prófgögn, ökuskóli. Nokkrir nemendur geta byrjað strax. Greiðslukjör. Sigurður Gíslason, ökukennari, sími 75224. Ökukennsla—Æfingatimar. Lærið að aka við misjafnar aðstæður, það tryggir aksturshæfni um ókomin ár. Kenni á Mazda 323, nýr og lipur bill. Ökuskóli og öll prófgögn. Helgi K. Sess- elíusson, sími 81349. Ökukennsla-bifhjólapróf-æfingatimar. Kenni á Cortinu 1600, ökuskóli og prófgögn ef þess er óskað. Hringdu i sima.44914 og þú byrjar strax. Eiríkur Beck. Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 - Sími 15105 Krafla: Búizt við hraungosi — landris var með venjulegum hætti í morgun Land reis hratt fram eftir degi við Kröflu, en hægði svo á sér undir kvöldið og hefur risið með venju- legum hraða síðan og þar til kl. 8 i morgun er DB hafði samband við skjálftavaktina. Hins vegar sýna sumir mælar nú að land hefur risið meira en nokkru sinni fyrr en aðrir hafa ekki alveg náð hámarki, sem bendir til að þrýstimiðjan sé að færa sig til. Miðað við aðdraganda Mývatns- elda áður, hafa yfirleitt liðið þrjú ár síðan ókyrrðar fór að verða vart á svæðinu og þar til gos hófust. í þessum mánuði eru einmitt liðin 3 ár síðan ókyrrðar varð vart og undan- farna daga hefur hún hagað sér öðru vísi en áður. Vísindamenn hallast nú meira að því að eldgos sé í aðsigi, ef til vill nú í mánuðinum, og verði það hraungos en ekki öskugos. Jafnframt að ekki sé hætta á sprengigosi. Ef það verður á miðju svæðinu á að vera unnt að sjá fyrir um það með tveggja klst. fyrirvara, en lengri, verði það fjær. -GS. Kötturinn sleginn úr tunnunninyrðra Öskudegi lauk á Akureyri með pompi og pragt eins og hann hófst. Lokahátíð dagsins er sú athöfn að slá köttinn úr tunnunni á Ráðhústorg- inu. Starfsmenn rafveitunnar hafa lengi séð um útbúnað er til þarf og nú hékk tunnan í rana kranabíls. Heldur var seigt í tunnunni í gær og mannfólkið smátt sem á henni lumbraði. Gekk því seint að fá hana til að liðast sundur og fékkst loks að- stoð stærra og sterkara fólks til að gefa henni högg. Tók eitthvað á annan tíma að slá tunnuna sundur og „köttinn” (sem oftast er dauður hrafn) úr henni. Lá ekki alveg ljóst fyrir hver var „tunnu- kóngur” og hver „kattarkóngur” en þá titla fá þeir sem síðustu högg eigaaðtunnuogketti. -ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.