Dagblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 24
24 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979. Veðrið Búizt er við vaxandi sunnan átt um sunnan- og vestanvert landið. Kaldi og síðar stinningskaldi eða jafnvel ailhvass, en suðausdœg gola fyrir noröan og austan. Þykknar upp með rigningu á Suðvesturlandi í kvöld, en verður áf ram þurrt fyrir norðan. Veður kl. 6 ( morgun: Reykjavflc sunnan gola, él og — 5 stig, Gufuskál- ar suöaustan stinningskaldi, snjó- koma og — 6 stig, Galtarviti norðaust- an kaldi, él og —7 stig, Akureyri suð- austan gola, skýjað og —10 stig, Raufarhöfn suðvestan gola, skýjað og —11 stig, Dalatangi hœgviðri, lótt- skýjað og —8 stig, Höfn i Homafirði norðvostan gola, léttskýjaö og —9 stig og Stórhöfði ( Vestmannaeyjum vestan stinningskaldi, lóttskýjað og —5stig. Þórslöfn ( Fœreyjum él á siöustu klukkustund og 0 stig, Kaupmanna- höfn þokumóða og —3 stig, Osló þokumóða og —9 stig, London létt- skýjað og —1 stig, Hamhorg skýjað og —3 stig, Madrid léttskýjað og 1 stig, Lissabon skýjað og 7 stig New York lóttskýjað og 3 stig. Krístin Jóhannesdóttir lézt á Land- spitalanum 22. feb. Hún var fædd 17. ágúst 1895, dóttir Guðbjargar Jóns- dóttur og Jóhannesar Einarssonar sjó- manns að Ási. Árið 1914 réðst Kristin í vist til frú Áslaugar og séra Bjarna Jóns- sonar dómkirkjuprests. Var Kristín hjá þeim í tvö ár, en fór síðan til séra Friðriks Friðrikssonar. Kristin giftist eftirlifandi manni sínum Filippusi Guðmundssyni 23. maí 1919. Eignuðust þau sjö börn auk þess ólu þau upp eina stúlku, Þóreyju Sigurbjörnsdóttur. Kristín verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni i Reykjavík í dag, fimmtudag 1. marz, kl. 3. Laufey Vilmundsdóttir lézt 21. feb. Hún var fædd 1 Vestmannaeyjum 1. júní 1914. Foreldrar hennar voru Þuríður PáMóttir og Vilmundur Friðriksson. Liiufe giftétGísla Þorgeirssyni 29. maí 1937. Figimðust þau tvo syni, Þorgeir og Vilmund. Laufey verður jarðsungin frá Fossvogkirkju í dag, fimmtudag 1. marz kl. 3. Gunnar Skafti Eina-ssoii lézt þriðjudaginn 27. feb. Jóhanna Magnúsdóttir, Óðinsgötu 11, lézt miðvikudaginn 28. feb. á Land- spitalanum. Viöar Þorsteinsson, Kirkjuvogi, Höfn- um varð bráðkvaddur þriðjudaginn 27. feb. Þorsteinn Þorsteinsson fyrrverandi hag- stofustjóri verður jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni föstudaginn 2. marz kl. 2. Ingibjörg Guðlaugsdóttir frá Bildudal verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. marz kl. 3. Karl Óttar Guðbrandsson, Sævar- görðum 20, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 2. marzkl. 3. Margeir Sigurbjörnsson, Leifsgötu 4B, Rvík, lézt í Landakotsspítala miðviku- daginn 28. feb. Siðustu sýningar á Máttarstólpum þjóðfélagsins Nú fer að Ijúka sýningum á hinu kunna leikriti Henrik Ibsen, Máttarstólpum þjóðfélagsins, sem sýnt hefur verið frá þvi um jól á Stóra sviðinu i leikstjórn Baldvins Halldórssonar. Leikrit þetta þykir — eins og raunar leiri lcikrit höfundar — hafa staðizt timans tönn ótrúlcga vd, inn í það fléttast umræða um stöðu konunnar, sem svo mjög hefur vcrið i brennidcpli nú síðustu ár. Með helstu hlutverk í sýningunni fara Erlingur Gisla- son, Guðrún Þ. Stephensén, Margrét Guðmunds dóttir, Briet Héðinsdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Rúrik Haraldsson, Guðrún Þórðardóttir, Hákon Waage og Bjarni Steingrimsson. Næsta sýning á Máttar- stólpunum vcrður i kvöld, fimmtudagskvöld og nasst siðasta sýning veröur á sunnudagsk völdiö kcmur. HÓTEL BORG: Diskótekið Dísa, kynnar óskar og Logi. Vinsældakosning og plötuhappdrætti. HOLLYWOOD: ÁrshátiðS.U.F. SKÁLAFELL: Tizkusýning kl. 21.30. Módelsam- tökin sýna. KLÚBBURINN: Freeport, Póker og diskótek. ÓÐAL: Diskótek. TEMPLARAHÖLLIN: Bingókl. 20.30. SNEKKJAN: Diskótek. ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ: Við borgum ckki, við borgum ekki kl. 20.30 i Lindarbæ. IÐNÓ: Skáld-Rósa kl. 20.30. Rúmrusk miðnætur- sýning i Austurbæjarbiói kl. 23.30. Heims um ból víkur af Litla sviðinu Nú eru aðeins eftir örfáar sýningar á þýzka leikritinu Heims um ból eftir Harald Mueller, sem frumsýnt var á Litla sviðinu um jólin. Leikrit þetta hefur vakið athygli fyrir að vera nærfærnislega og vel samið en þó jafnframt beitt áminning til aðstandenda gamals fólks. Heiti verksins hefur valdið þvi, að ýmsir virðast halda að hér sé um jólaleikrit að ræða, en svo er ekki, efni leiksins er jafn brýnt allan ársins hring. Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Bessi Bjarnason hafa hlotið mikið lof fyrir leik sinn i sýningunni i hlutverkum mæðginanna. Leikstjóri er Benedikt Árnason. Næsta sýning á Heims um ból verður i kvöld, fimmtudagskvöld. NýttHf Almenn samkoma kl. 20.30 i kvöld að Hamraborg 11. Beðið fyrir sjúkum. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn i kvöld kl. 20.30 almenn samkoma. Sýnd verður kvik- mynd frá starfsemi Hjálpræðishersins í Bangladesh. Allir velkomnir. Fíladelfía Almenn samkoma i kvöld kl. 20.30. Ungt fólk talar og syngur. Samkomustjóri Svanur Magnússon. Fíladelfia, Hafnarfirði Vitnisburðasamkoma i Gúttó i kvöld kl. 20.30. Garð- ar og Anna syngja. Jórdan leikur. Allir hjartanlega velkomnir. Grensáskirkja Almenn samkoma verður í safnaðarheimilinu i kvöld kl. 20.30 Allir hjartanlega velkomnir. Halldór S. Gröndal. Basar Færeyska sjómannakvinnuhringsins Hér i Reykjavik er í byggingu sjómannaheimili, sem bygginganefnd Færeyska kristilega sjómanna- heimilisins stendur að, þar sem ráðgert er að gistirými verði fyrir 60 manns og opið öllum sjómönnum, bæði innlendum og crlendum. Byggingin er að rísa i Skipholti, og er nú verið að vinna að annarri hæð hússins. Sjómannakvinnuhringurinn, sem er félags- skapur færeyskra kvenna í Reykjavík, gengst fyrir sin- um árlega basar til styrktar sjómannaheimilinu sunnudaginn 4. marz nk. kl. 3 e. hádcgi, i færeyska sjómannaheimilinu aö Skúlagötu 18. Á boðstólum verður m.a. færeyskar peysur, önnur handavinna, og heimabakaöar kökur. Spilakvöld Rangæingar Þriðja kvöld spilakeppni Sjálfstæðisfélaganna I Rangárvallasýslu verður að Gunnarshólma I kvöld, fimmtudaginn 1. marz og hefst kl. 21. Ávarp flytur Davið Oddsson. Aðalverðlaun fyrir samanlögð 3 kvöld er sólarlandaferð fyrir tvo. Frá Félagi einstæðra foreldra Spiluð verður félagsvist að Ásvallagötu 1, fimmtudaginn 1. marz kl. 21. Kaffi og meðlæti. Myndarleg verðlaun i boði. Gestir og nýir félagar velkomnir. Fyrirtestur 1 Norræna húsinu i kvöld Uno Myggen Ericson, fyrirlestur og kvikmyndasýning um sænskar reviur kl. 20.30. Verið velkomin. Útivistarferðir Vörðufell-Miðfell 2.4. marz. Gist i Skjólborg á Flúðum. Böð og hitapottar. Komið að Gullfossi og Geysi. Fararstjóri Jón I. Bjarnason. Farseðlar á skrifstofunni Lækjargötu 6, simi 14606. Stofna Gigtarfélag á Suðurnesjum 1 undirbúningi er stofnun Gigtarfélags Suðurnesja. Undirbúningsfundur verður í barnaskólanum i Kefla- vík á fimmtudagskvöld kl. 20.30. Stofnfundur félagsins verður síðan haldinn i safnaðarheimili Innri- Njarðvikur á sunnudaginn, 4. marz, kl. 14.00. Þar mætir Jón Þorsteinsson læknir og forystumenn Gigt- arfélags íslands, sem hefur höfuðstöðvar sinar i Reykjavík. Kvenfélag Laugarnessóknar Fundur veröur haldinn mánudaginn 5. marz kl. 20.30 í fundarsal kirkjunnar. Kristinn Björnsson sál- fræðingur talar um barnaárið. Allar konur velkomnar. Kvenfélagið Bylgjan heldur fund i kvöld 1. marz, að Borgartúm i8. í tilefni af barnaárinu kemur Nina Baldvinsdóttir á fundinn Kvenfélag Árbæjarsóknar heldur fund nk. mánudagskvöld, 5. marz, kl. 20.30 i Árbæjarskólanum. Umraíður verða um barnaárið og ýmislegt verður til skemmtunar, Ioks verður kaffi framborið. Húsmæðrafélag Reykjavíkur Fundur verður haldinn i félagsheimilinu Baldursgötu 9, fimmtudaginn 1. marz kl. 8.30. Guðríður Halldórs- dóttir húsmæðrakennari kynnir rétti úr mjólkuraf- urðum. Allir velkomnir. Kvenfélag Hallgrímskirkju Fundur veröur haldinn fimmtudaginn 1. marz kl. 2.30. Aðaffundir Aðalfundur Vörubíl- stjórafélagsins Þróttar veröur haldinn laugardaginn 3. marz nk. að Borgar túni 33 og hefst kl. 14. Dagskrá samkvæmt félags- lögum. Reikningar fyrir árið 1978 liggja frammi á skrifstofu félagsins á skrifstofutíma. Kattavinafélag íslands Aðalfundur Kattavinafélags Islands vcrður haldinn að Hallveigarstöðum laugardaginn 3. marz og hefst klukkan tvö. Dagskrá: Venjulegaöalfundarstörf. önnur mál. Iðjuþjálfafélag íslands heldur aðalfund fimmtudaginn 1. marz kl. 20 á Grens- ásdeild Borgarspitalans. Venjulegaðalfundarstörf. Sjálfsbjörg Suðurnesjum Aðalfundur félagsins verður haldinn i Tjarnarlundi, Keflavík, kl. 2 e.h. sunnudaginn 4. marz. Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar. Skautafélag Reykjavíkur Aðalfundur verður haldinn i Skautafélagi Reykja víkur fimmtudaginn 8. marz kl. 20 í fundarsal Iðnskólans. Læknakvennafélagið Eik tilkynnir Aöalfundur verður haldinn í Domus Medica þriðju- .daginn 6. marz kl. 8.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Knattspyrnufélagið Þróttur Aðalfundur félagsins verður haldinn að Hótel Esju miðvikudaginn 7. marz n.k. kl. 8.30e.h. venjuleg aðal- fundarstörf. Aðalfundur ungmennafélagsins Aftureldingar verður haldinn fimmtudaginn 8. marz kl. 20.30 i Brúarlandi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, laga- breytingar og önnur mál. Skátafélagið Landnemar Aðalfundur verður haldinn fimmtudaginn 8. marz kl. 20.30 i Skátaheimilinu. Venjuleg aðalfundarstörf. Skemmtlfunríir ________ A Kvenfélag Háteigssóknar Skemmtifundur i Sjómannaskólanum þriðjudaginn 6. marz kl. 20.30 stundvíslega. Spilað verður bingó. Félagskonur fjölmennið og bjóðið með ykkur gestum. fT'....... ' Stjófnmðlðfundlr Alþýðubandalagið Akureyri Málfundafélag ABA heldur fund i dag, fimmtudaginn 1. marz kl. 20.30 i Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18. Umræðuefni; Karlaklúbbar o. fl. Guðjón E. Jónsson er málshefjandi um klúbbana. Enn geta félagar bætzt i hópinn. Alþýðubandalagið á Suðurnesjum heldur félagsfund í Tjamarlundi, Kefiavík, mánu- daginn 5. marz kl. 20.30. Fundarefni: 1. Félagsslit vegna breyttrar starfsemi fiokksins á félagssvæðinu. 2. Stofnun samstarfsnefnda Alþýðu- bandsfélaga á Suðurnesjum. 3. önnur mál — Kaffiveitingar og rabb að loknum fundarstörfum. Alþýðubandalag Fljótsdalshéraðs. Almennur félagsfundur verður haldinn á Egilsstöðum mánudagskvöldið 5. marz kl. 20.30. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 3. Kosning i hreppsmálaráð Alþýðubandalagsins. 3. Nefndar- skipan. 4. Fyrirhugaður fundur með þingmönnum. 5. önnur mál. Framsóknarfélag Húsavíkur boðar til almenns fundar um fjárhagsáætlun Húsa- vikurbæjar fyrir árið 1979. Fundurinn verður í fund- arsal félagsins í Garðari kl. 20.30 mánudaginn 5. marz nk. Bæjarfulltrúar fiokksins fiytja framsöguerindi og svara fyrirspurnum. Bæjarstjóri verður á fundinum. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Kópavogur Fulltrúaráð framsóknarfélaganna heldur fund fimmtudaginn 1. marz nk. i Félagsheimili Kópavogs (neðri sal) kl. 20.30. Dagskrá: Fjárhags- áætlun Kópaogs. Mætiðstundvíslega. Grafik í Bókasafni Ísafjarðar Sigurður Þórir heldur sýningu á grafíkmyndum i Bókasafni ísafjarðar um þessar mundir. Sýningin var opnuð laugard. 24. feb. og verður opin á venjulegum opnunartima bókasafnsins og stendur i u.þ.b hálfan mánuö. Myndirnareru allar til sölu. Sigurður Þórir er fæddur 1948 i Reykjavík. Hann stundaði nám við Myndlista- og handiðaskóla íslands 1968—70 og siðan við konunglegu Akademíuna i Kaupmannahöfn frá 1974—78. Þetta er 9. einka- sýning Sigurðar. Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur árshátíð sina i Átthagasal Hótels Sögu nk. laug- ardag 3. marz og hefst hún með borðhaldi kl. 19. Árshátíð Alþýðubandalagsins í Borgarnesi og nærsveitum verður haldin á Hótel Borgarncsi laugardaginn 10. marz. Húsið opnað kl. 19. Boröhald hefst kl. 20. Ræða: Jónas Ámason. Skemmtiatriði og dans. Verð miða kr. 5500. Miðar fást hjá eftirtöldum til miðvikudagskvölds 7. marz: Baldri Jónssyni (s. 7534), Grétari Sigurðssyni, Pálinu Hjartardóttur og Þorsteini Benjaminssyni (s. 7465). Árshátíð Viðeyinga- félagsins . verður laugardaginn 3. marz i Snorrabæ og hefst kl. 19.00 með borðhaldi. Fjölbu vitskemmtiatriði. Að- göngumiðar fást hjá Kristjönu Þórðardóttur, simi 23085, Aöalheiöi Helgadóttúr. simi 37382 og Ástu Gísladóttur, sími 36192. Árshátíð Snarfara, félags sportbátaeigenda, veröur haldin laugardaginn 3. marz í félagsheimilinu að Siðumúla 11,2. hæð, og byrjar kl. 9. Miðar fást hjá E.N. lömpum, sími 84431, Skeifunni 3-B. Colin Porter stjómar diskóteki og skemmtiatriðum. Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur árshátið sína laugardaginn 3. marz í Átthagasal Hótel Sögu. Árshátíðin hefst meö borðhaldi kl. 19 stundvislega. Miðasala og borðapantanir verða i heimili félagsins að Laufásvegi 25 (gengið inn frá Þing- holtsstræti), fimmtudagskvöld 1. marz kl. 20—22. Vestfirðingar í Reykjavík og nágrenni Vestfirðingamótið að Hótel Esju na»ta laugardag 3. marz hefst með borðhaldi kl. 7. Aðgöngumiðar verða seldir í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og að Hótel Esju miðvikudag og fimmtudag milli kl. 2 og 5. Mætið þar með vinum og ættingjum. Átthagafélag Strandamanna Árshátið félagsins veröur laugardaginn 3. marz i Domus Medica. Miðar afgreiddir þar fimmtudag 1. marz kl. 5—7. Prout-Seminar Helgina 3. og 4. marz verður haldið námskeið í and- legri og þjóðfélagslegri hugmyndafræði PROUT. Fyrri daginn verða fiuttir fyrirlestrar um hinn hug- myndafræðilega grundvöll almennt en siðari daginn verða afmarkaðri hagnýt mál rædd. Fyrirlestrarnir munu hefjast kl. 10 f.h. og kl. 14 e.h. báða dagana. öllum er heimil þátttaka og tilkynnist í síma 27050. Námskeiðið verður haldiðað Laugavegi 42, 3. hæð. Kvenfélag Cosialista heldur flóamarkað að Hallveigarstöðum laugardaginn 3. marz kl. 2. Félagar og velunnarar sem vilja gefa muni hafi samband við eftirtaldar konur, Elínu í síma 30077, Laufeyju í sima 12042 og Lilju í sima 13241. Félag sjálfstæðismanna í Laugarneshverfi 1 tilefni bamaársins hefur stjóm félagsins ákveðið að hleypa af stokkunum eftirtöldum umræðuhópum, sem starfa munu fyrri hluta marzmánaðar. 1. Barnið og heimilið. 2. Bamið og skólinn. 3. Bamið og tóm- stundirnar. Stjómin hvetur sjálfstæðisfólk í hverfinu til að taka þátt i starfi hópanna. Vinsamlegast tilkynn- ið þátttöku i sima 82963 (kl. 9—5) fyrir 5. marz. Vestfirðingafélagið í Reykjavík Vestfirðingamót verður haldið laugardaginn 3. marz að Hótel Esju og hefst með borðhaldi kl. 19. Félags- menn mælið ykkur mót meö vinum og ættingjum. - Fjölmennum. Á mótinu verða að venju góður matur, ^ skemmtiatriði og dans. Aðgöngumiðar verða seldir miðvikudaginn 28. feb. og fimmtudaginn 29. feb. Farfuglar Skemmtikvöld verður föstudaginn 2. marz kl. 20.30 í Farfuglaheimil- inu Laufásvegi 41. Félagsvist. Styrktarfélag vangefinna ^preldrar og velunnarar. Flóamarkaður og kökusala verður sunnudaginn 4. marz i nýbyggingu félagsins v/ Stjörnugróf og hefst kl. 14. Munum og hreinum fatnaði sé komið að Bjarkarási. Móttaka daglega frá kl. 9—16. Móttaka á kökum verður laugardaginn 3. marz. Frá Kattavinafélaginu Að gefnu tilefni eru kattaeigendur beðnir að hafa ketti sína inni um nætur. Einnig að merkja þá með hálsól, heimilisfangi ogsímanúmeri. SADKO sýnd í MÍR-salnum MÍR — Menningartengsl íslands og Ráðstjórnar- rikjanna hafa á Iaugard. i vetur sýnt kvikmyndir i húsakynnum sinum að Laugavegi 178. Þessum sýningum verður haldið áfram enn um sinn, og laug- ardaginn 3. marz verður ævintýramyndin um Sadko sýnd. Hún er gerð 1952 og er stjómað af Alexandr Ptúsko. tökurit er eftir K. lsaév, myndataka: Fjodor Provorov, tónlist: R. Korsakov. Rússneskt tal er i myndinni en enskir skýringatextar. Sýuningin hefst kl. 15.00 (kl. 3) og er öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Anglia Fimmtudaginn 1. inarz U. 8.30 hcfur félagifl Anglia, kvikmyndasýningu á Aragötu 14. Eftir sýninguna, vcrfia kaffiveitingar. Anglia fálagar, maetið vel á þessa fyistu kvikmyndasýningu vctrarins. Minningarspjold Minningarkort Barnaspítala Hringsins fást á eftirtöidum stööum: Landspitalanum, Bóka verzlun ísafoldar, Þorsteinsbúð Snorrabraut, Gcysi Aðalstræti, Vesturbæjarapóteki, Garðsapóteki, Breið- holtsapóteki, Kópavogsapóteki, Háaleitisapóteki i Austurveri, Ellingsen, Grandagarði, Bókaverzlun Snæbjarnar og hjá Jóhannesi Norðfjörð. Gengið GENGISSKRANING Farflamanna- Nr. 40 - 28. febr. 1979. fljaWayrir Eining KL 12.00 K~P Sala Kaup Sala 1 Bandaríkjadollar 323,50 324,30* 355,85 356,73* 1 Steriingspund 654,60 656,20* 720,08 721,82* 1 Kanadadollar 270,90 271,60* 297,00 298,76* 100 Danskar krónur 6247,90 6263,30* 6872,69 6889,63* 100 Norskar krónur 6366,25 6381,95* 7002,88 7020,15* 100 Sænskar krónur 7423,25 7441,65 8165,58 8185,82 100 Rnnskmörk 8146,60 8166,70* 8961,26 8983,37* 100 Franskir frankar 7579,20 7598,00* 8337.12 8357,80* 100 Belg. frankar 1105,60 1106,30* 1216,16 1219,13* 100 Svissn. frankar 19406,10 19454,10* 21346,71 21399,51* 100 Gyllini 16183,10 16223,10* 17801,41 17845,41* 100 V-Þýzkmörk 17481,80 17525,00* 19229,98 19277,50* 100 Urur 38,47 38,57* 42,32 42,43* 100 Austurr. Sch. 2388,30 2394,20* 2627,13 2633,62* 100 Escudos 680,60 682,30* 748,66 750,53* 100 Pesetar v 468,20 469,30* 515,02 516,23* 100 Yen 159,83 160,23* 175,82 176,25* • Breyting f ré siðustu skráningu. Símsvari vagna ganglsskráninga 22190.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.