Dagblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 28
Vélgæzlumenn við Kröflu mótmæla túlkun RARIK á vilja þeirra: Erum f úsir til að lesa af mælunum — neitunin mín ákvörðun en ekki mannanna, segir yf irverkf ræðingur Allir starfandi vélgæzlumenn við Kröflu undirrituðu i gær bréf til raf- magnsveitnastjóra þar sem þeir lýstu jundrun sinni á að ekki skuli hafa verið leitað álits þeirra á að taka á sig aflestur jarðvísindamæla, en jafn- framt látið að því liggja að þeir vildu ekki gera það og synjun til Almanna- arna þar um var byggð á. í viðtali við DB í gær sögðu vélstjórarnir: „Sl. haust, þegar svipað jarð- fræðilegt ástand ríkti á Kröflusvæðinu og nú er, var þess far- „Erum smá en ekki fá” „Skemmtilegri barnatíma”, „Við erum smá en ekki fá” og „Fleiri úti- skemmtanir fyrir börn”, var meðal áletrana á nýstárlegri kröfugöngu, sem farin var með friðsemd frá Hlemmi að dagheimilinu Tjarnarborg í gær, þar sem göngumenn slöppuðu af undir kvikmyndasýningu. Þar voru á ferð- inni krakkar úr nokkrum barnadag- hcimilum borgarinnar að vekja athygli á högum sínum. —GS./DB-mynd Sv. Þorm. H Snorri Sturluson fyrir 90 r „Þessi hugmynd var fyrst rædd árið 1977, að gera klukkutímadagskrá í til- efni af 800. ártið Snorra Sturlusonar,” sagði Ólafur R. Einarsson, formaður útvarpsráðs í viðtali við Dagblaðið, en nú er áformað, að gera 90 til 100 min- útna sjónvarpsmynd um Snorra í sam- vinnu við Norðmenn og Dani. „Endanleg ákvörðun um þátttöku okkar íslendinga liggur hins vegar ekki fyrir ennþá, enn er eftir að ákveða af- notagjöld og auglýsingataxta og eftir því er okkur stakkur skorinn,” sagði Ólafur ennfremur. Það eru þeir Sigurður Sverrir Páls- son og Erlendur Sveinsson sem hafa gert áætlun um kvikmyndagerðina og Jónas Kristjánsson rithöfundur verið> þeim til aðstoðar. „Samkvæmt kostnaðaráætlun þess- ara aðila, er gert ráð fyrir 44 leikurum og kostnaði upp á um 90 milljónir króna,” sagði Ólafur. „Verið er að gæla við þá hugmynd, að hægt verði að hefja upptökur næsta vetur.” -HP. tð á leit við okkur að viðkomandi bakvaktarmaður færi á fætur einu sinni á nóttu, kl. 04.00, og tæki aflestur af jarðvísindamæli. Urðum við fúslega við þeirri málaleitan án sérstakrar greiðslu. Nú viljum við taka þaðskýrt fram varðandi bréf Rafmagnsveitna ríkisins til Almannavarna, að okkar álits var aldrei leitað og höfum við því ekki verið beðnir að taka áður- nefnda aflestra að þessu sinni. Þar sem nú eru gengnar reglulegar „Tvímælalaust hlýtur ríkisstjórnin að koma til móts við launþegahreyfing- arnar,” sagði Ólafur Ragnar Grímsson alþingismaður (AB) í morgun. Hann taldi, að frumvarpi forsætisráðherra hlyti að verða breytt í þá átt. Launþeg- ar hefðu lýst andstöðu við ýmsa þætti frumvarpsins, hvað varðaði vísitölu- málin, kjaramálaráð, peningamaenið, innlánsbindingu í Seðlabankanum og vaktir allan sólarhringinn er af okkar hálfu ekkert því til fyrirstöðu að fylgjast með mælinum.” „Ég tók þá ákvörðun út frá ýms- um rekstrarlegum sjónarmiðum, að þetta væri mál Almannavarna, en ekki Kröfluvirkjunar,” sagði Einar Tjörvi yfirverkfræðingur við Kröflu en hann hafði samband við Dag- blaðið vegna fréttar þess um, að starfsmenn Rafmagnsveitna ríkisins hefðu neitað að fylgjast með jarð- visindamælunum. Hann sagði að bindingu rikisfjármálanna á árinu 1980. í þessum greinum hlyti að vera ljóst að ríkisstjórnin mundi ekki marka stefnu, sem væri í andstöðu við launa- fólk. Málin mundu skýrast nokkuð á rikisstjórnarfundi í dag, þar sem efna- hagsfrumvarpið verður á dagskrá. Al- þýðubandalagsmenn munu þar, form- lega eða óformlega, reifa tillögur, sem þetta væri ekki rétt túlkun þar sem þetta hefði verið hans ákvörðun en ekki mannanna. „Mennirnir hafa aldrei neitað að geraneitt sem ég hef beðið þá um. Ef þeir hefðu verið beðnir að lesa á mælana, þá hefðu þeir gert það,” sagði Einar Tjörvi að lokum. -GAJ/GS. — Meira um Kröflu ábis.23 eru í sama dúr og ályktun meirihluta miðstjórnar ASÍ. í viðtölum við nokkra þingmenn í morgun kom fram, að þeir telja, að úr fáist skorið upp úr næstu helgi, hvort ríkisstjórnin kemur sér saman um frumvarpið eða hvort það verður lagt fram af einhverjum hluta stjórnarliða eingöngu. -HH. fijálst, úháð daghlað FIMMTUD. 1. MARZ 1979. Kauphækk- unfdag Kaup hækkar i dag um 5,9 prósent fyrir launþega sem hafa laun fyrir neðan visitöluþakið en um fasta krónu- tölu fyrir hina efri. Hjá Alþýðusambandsfólki er vísi- töluþakið við 278.680 króna mánaðar- laun og hækkar fólk sem er fyrir ofan þakiðum 19.230 krónur á mánuði. V Hjá félögum í Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja og Bandalagi há- skólamanna er þakið við 280.966 krónur. Hækkunin hjá fólki fyrir ofan þaðer 19.390 krónur. -HH. Varð bráð- kvaddur á slysstað Á mánudagsmorguninn varð árekst- ur á Hafnavegi milli Hafna og Sand- gerðis. Lögreglan kom á staðinn og var að taka skýrslur er ökumaður annars árekstrarbílsins tók að blána. Skipti engum togum að hann lézt í höndum lögreglumanna, sem reyndu þó hjarta- hnoð og aðrar lífgunartilraunir. Maður þessi var á fertugsaldri, en hafði kennt sjúkdóms fyrir hjarta. Hann var einhieypur og barnlaus.-ASt. AB íKópavogi: Meirihluta- starfinu haldið áf ram Alþýðubandalagtð hélt langan og mikinn fund í Kópavogi í gærkvöldi og stóð hann til að verða tvö í nótt. 84 mættu á fundinn. Borin var upp tillaga sem fól i sér tvö atriði, þ.e. að ekki væri hvikað frá núverandi meirihluta- samstarfi og traustsyfirlýsingu á núver- andi bæjarfulltrúa. Tillagan var samþykkt með 48 at- kvæðum gegn 32. Þrír seðlar voru auðir og einn ógildur. Þetta þýðir að öflugur minnihlutahópur er í Alþýðu- bandalagsfélaginu í Kópavogi og tveir af fimm á móti meirihlutasamstarfinu. Einn af minnihlutamönnunum túlkaði þessi úrslit í morgun sem ósigur fyrir Björn Ólafsson, efsta mann á lista Alþýðubandalagsins. -JH. Nýir samn- ingarSóknar Kjarasamningur Starfsmannafélags- ins Sóknar við ríki, Reykjavikurborg og fleiri, var samþykktur á fundi í fé- laginu í gærkvöldi með 192 atkvæðum gegn 122. 11 seðlar voru ógildir. Launahækkunin nemur um 9 til 11%. Eftir samningana lítur launataflan svona út (gamli skalinn innan sviga): Fyrstaár: 164.331 (153.580) eftirlár: 169.446(158.361) eftir 3 ár: 179.031 (163.141) eftir5ár: 181.543 Eftir 5 ár bætast 7% við í sumum starfsgreinum. -HP. Atvinnulausir iðnaðarmenn óhressir með vinnu útlendinga: SEGJA ÞEIR HERNUM STRÍÐ Á HENDUR? — Varnarliðið reynir að f lýta verkefnum til að skapa vinnu „Við munum grípa til frekari að- gerða ef svo heldur fram sem horftr, en á þessu stigi get ég ekki tjáð mig um eðli þeirra,” sagði einn félagi í Iðnsveinafélagi Suðurnesja í viðtali við DB vegna þess að þegar hafa 10 trésmiðir, sem unnu á Keflavíkur- flugvelli misst vinnu sina nýverið og búið er að segja upp 16 til viðbótar. Á meðan færist í vöxt, að sögn við- mælanda, að sérstakir vinnuflokkar hersins taki að sér verk og eru þeir þá sérstaklega fluttir til landsins í þeim tilgangi. Þannig vinnur nú herflokk- ur að innréttingu íbúðarskála í Rock- ville-stöðinni á meðan trésmiðir úr Keflavík ganga atvinnulausir. lðnsveinafélagið hefur mótmælt þessu við utanríkisráðuneytið en án árangurs til þessa. Þá una þeir illa að ófaglærðir íslendingar séu í trésmíða- vinnu hjá varnarliðinu, sem er annar vængur kreppu trésmiðanna. Helgi Ágústsson, nýlega skipaður formaður varnarmáladeildar utan- ríkisráðuneytisins, sagði að deildin hefði í fyrra veitt leyfi til að hermenn ynnu þetta tiltekna verk, en það hafi dregizt af fjármálaástæðum. Þá var atvinnuástand íslendinga gott. Sagðist hann hafa kannað þessi mál og rætt þau við forsvarsmenn varnarliðsins með þeim árangri að þeir væru nú að vinna að því að flýta fyrirhuguðum verkefnum. Líklegast lægi nú þegar fyrir samþykki fjárveit- ingavalds þeirra fyrir talsverðu verk- efni innan tiðar. Fyrrnefndur hermannaflokkur fer héðan strax að loknu verkefninu í Rockville. -GS. Stjórnarfundur um efnahagsfrumvarpið: „K0MIÐ TIL MÓTS VIÐ LAUN- ÞEGAHREYFINGARNAR” — segir Ólafur Ragnar Grímsson

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.