Dagblaðið - 14.03.1979, Side 10

Dagblaðið - 14.03.1979, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979. mmiABw fijálst'áháð daghlað Útgefandi: Dagblaðið ht. Framkvnmdaatj&H: Svelnn R. Eyl&Hason. RHatj6H: J6na> KristjAnaaon. FrAttaatjárí: J6n Blrglr Páturaaon. RHatjámarfultriU: Haukur Helgaaon. SkrtfatotuatjóH ritatjámar Jóhannea RsykdaL iþráttlr Hallur Sknonaraon. Aðatoðarfréttaatjórnr Atll Stslnarason og Ómar VaktL marason. Menningarm&l: Aðototalnn Ingötfsson. Handrit: Asgrimur Pktoson. Btoðamsnn: Anna Bjameson, Asgalr T6masson, Bragl Slgurðsson, D6ra Stafánadáttlr, Gtosur Slgurða- son, Gunnlaugur A. Jönaaon, Halur Halsaon, Halgl Péturaaon, Jónaa Haraldaaon. Ótatur Gairaaon, Ótofur Jðnaaon. Hönnun: Guðjðn H. PHsson. L ðamyndir Aml PHI Jóhannaaon, BjamlaHur BJamtoHaaon, Hðrður Vlhjáknaaon, Ragnar Th. Slgurða- son, Svsinn Þormóðsson. Skrtfatofuatjðri: Ótofur EyjðHsaon. Gjaldkori: Prákin PoriaHaaon. Sökiatjöri: Ingvar Svalnsaon. DraHlng- aratjðrt: Már E.M. HaHdóraaon. RHatjðm Slðumúla 12. Afgralðata, áskrtttadeild, auglýalngar og skrifstofur Þ vertrohl 11. Aðataknl blaðakta ar 27022 (10 Knuri. Aakrift 3000 kr. á mánuði ktnantonda. I lausaaöki 1S0 kr. akitakið. Setnkig og umbrot Dagbtoðlð hf. Sfðumúla 12. Mynda- og plötugarð: Hllmk hf. Slðumúla 12. Prantun: Arvakur hf. SksHunnl 10. Ekki enn fallin Oft hefur verið hrópað úlfur, úlfur — í spám manna um lífdaga ríkis- stjórnarinnar. Nógu oft til þess, að fólk er hætt að trúa, þótt nú sé enn einu sinni sagt, að ríkisstjórnin sé fallin. Óneitanlega er hún núna nær því að falla en nokkru sinni áður. Forsætisráðherra neyðist til að leggja efnahagsmálin fyrir alþingi sem sitt eigið frumvarp, ekki frumvarp ríkisstjórnarinnar. í dag lítur svo út, sem frumvarpið muni aðeins njóta stuðnings minnihluta á alþingi, þingmanna Framsóknarflokks og Alþýðuflokks. Alþýðubandalag og Sjálfstæðisflokkur geta ekki fallizt á frumvarpið. En málin er ekki svona einfalt. Frumvarpið verður væntanlega borið upp á alþingi lið fyrir lið. Þá hlýtur Alþýðubandalagið að fallast á alla liði þess nema verðbótakaflann. Þar við bætist, að Sjálfstæðisflokkurinn getur fallizt á suma liði þess, til dæmis hugsanlega verðbóta- kaflann. Það er því ekki óhugsandi að frumvarpið nái fram að ganga í heild. Hinn möguleikinn er sá, að verðbótakaflinn einn verði felldur. Sennilega mundi það duga ríkisstjórninni betur til framhaldslífs, að Sjálfstæðisflokkurinn hafnaði verðbótakaflanum. Erfitt er að sjá, að Alþýðubanda- lagið geti setið áfram í ríkisstjórn á verðbótakafla, sem knúinn hefur verið í gegn með atkvæðum Sjálfstæðis- flokksins. í hamagangi síðustu daga hefur komið í ljós djúpstæður klofningur í Alþýðubandalaginu milli ráðherra þess annars vegar og Lúðvíks Jósepssonar og Ólafs Ragnars Grímssonar hins vegar. Þar hafa hinir síðarnefndu reynzt sterkari vængurinn. Hvað eftir annað hafa ráðherrar Alþýðubanda- lagsins sýnt sáttfýsi í ríkisstjórninni. Hvað eftir annað hefur flokkur þeirra síðan rekið þá öfuga til baka með ný fyrirmæli. Þyngstu sporin gengu ráðherrar Alþýðubandalagsins í gær, þegar þeir voru sendir af fundi framkvæmda- stjórnar, þingflokks og verkalýðsmálaráðs flokksins á ríkisstjórnarfund til að lýsa algerri andstöðu við verð- bótakaflann, sem þeim hafði láðst að gera fyrirvara um á fundum ríkisstjórnarinnar um helgina. Enn er mögulegt, að stjórnarflokkarnir nái með sér samkomulagi um þennan kafla á næstu dögum, áður en til atkvæðagreiðslu kemur á þingi. Þar með gæti ríkisstjórnin verið áfram við völd, — um sinn. Ekki er líklegt, að Sjálfstæðisflokkur vilji hefja viðræður við Framsóknarflokk og Alþýðuflokk um myndun nýs meirihluta á alþingi. Miklu trúlegra er, að flokkurinn sækist eftir nýjum kosningum. Lúðvík Jósepsson og sterki armurinn í Alþýðu- bandalaginu eru einnig óhræddir við kosningar. Þar af leiðandi er spurningin sú, hvort Framsóknarflokkurinn og einkum Alþýðuflokkurinn leggi út í kosningar einmitt núna. Þessir flokkar hafa verið að tapa fylgi að undan- förnu. Raunar má segja, að flótti sé brostinn í kjós- endalið Alþýðuflokksins. Þess vegna mætti ætla, að flokkurinn reyndi fremur að semja, en standaand- spænis nýjum kosningum. Dæmið er einnig unnt að hugsa á hinn veginn. Ráða- menn Alþýðuflokksins gætu hugsað sem svo, að síð- búin festa flokksins gæti endurheimt kjósendur, sem studdu flokkinn í síðustu kosningum. Á þessu stigi er aðeins unnt aö hugleiða mögu- leikana, eins og hér hefur verið gert. Hreina spá er ekki unnt að leggja fram. En Ijóst er þó, að ríkisstjórnin þarf ekki að vera fallin, þótt hún hangi núna aðallega saman á ósamlyndinu! Kampútsea á valdatímum Rauðu Khmeranna: Helvíti á jörðu — að því er f ram kemur í skýrslu Sameinuðu þ jóðanna — ástandið hefur batnað eftir að Víetnamar steyptu stjóm Poi Pots Valdataka Rauðu Khmeranna í Kampútseu í apríl 1975 var upphaf helvítis á jörðu, þar sem a.m.k. 100 þúsund manns létu lífið, að því er segir í skýrslu Sameinuðu þjóðanna um ástandið i Kampútseu. Einn þeirra milljóna Kampút- seumanna, sem neyddur var til þess að yfirgefa heimabæ sinn og vinna nauðungarvinnu á lands- byggðinni lýsti því að á göngu sinni til sveitar hefði mátt sjá barnslik á u.þ.b. 200 metra fresti. Flest þeirra höfðu dáið af magaverkjum, sem or- sökuðu ofþurrkun líkamans. Borgirnar voru tæmdar í þessari útrýmingarherferð. Samkvæmt upplýsingum læknis var barnadeild sjúkrahúss nánast breytt í almenningsgröf, þar sem enginn sá um að gefa börnunum mat. Rauðu Khmerarnir ráku lækna og hjúkrunarfólk burt af sjúkra- húsunum og þeir sem nýlega höfðu gengizt undir aðgerð dóu vegna þess að enginn sinnti þeim. Ástandið hefur batnað eftir að stjórn Pol Pots var steypt Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um mannréttindi hefur haft þessa skýrslu til meðferðar, en skýrslan er unnin á vegum stjórna Ástralíu, Bretlands, Kanada, Noregs og Bandaríkianna. Særður thailenzkur hermaður eftir átök við landamæri Kampútseu. HAGBITAR Það má með nokkrum sannindum segja, að vart hittast hér á landi tveir menn úr sömu starfsgrein, að þeir geri ekki samsæri gegn þjóðfélaginu. Á íslandi hefur myndazt sérstætt þjóðfélag, sem byggist á lauslegu sambandi hagsmunahópa, sem skekja vopnin framan í hver annan og ekki sizt framan í samnefnara hópanna, stjórnvöld landsins. 1 hverjum hópi ná þeir völdum, sem hæst láta og mest krefjast. Sá, sem hefur yfirsýn yfir þjóðarhagsmuni, er beinlínis fatlaður í baráttu um völd- in. Hóparnir eru búnir að hlaða um sig grjótgarða, og fundir fara í yfir- boð og í að sannfæra viðstadda um ágæti málstaðarins. Gagnrýni má ekki heyrast, hún slævir baráttuvilj- ann. En hóparnir eru í raun veikir, þótt stjórnvöld séu hrædd við þá. Finnbogi rammi lét kasta út síðasta mörsiðrinu úr Borgarvirki. Umsátr- inu var þá aflétt, því féndur hans töldu hann hafa gnægð matar. Verðbólgan (af innlendum toga) er á vissan hátt mælieining fyrir vopna- brakið. Hún er jafnframt mælieining á sóun þjóðarverðmæta og mælir einnig á vissan hátt þá orku, sem fer i innbyrðis átök. Þeir aðilar, sem kynda þessa elda eða sóa verðmætum á annan hátt, eru hælbítar á hagvöxt- inn eða „hagbítar”. Hverjir eru hag- bítarnir? Hagbítar allra landa sameinizt? Verðbólgan er lúmskt tæki til að kollsteypa frjálsu markaðshagkerfi, enda hafa stjórnmálaspekúlantar af þýzkum heimspekiskóla frá siðustu öld fyrir löngu komið auga á það. Efnahagslegt volæði er kjörinn jarð- vegur fyrir byltingar og sýnir í reynd fram á veikleika opins hagkerfis. Lúddarnir hér á landi hafa auk þess barið haus við stein og neitað að viðurkenna staðreyndir um fiski- skipaflota og afrakstursgetu ís- lenzkra fiskstofna. Lúddarnir og útsendarar þeirra hafa einnig unnið markvisst gegn þeim hagstjórnartækjum, sem jafnað geta þær sveiflur, sem stafa frá sjáv- arútvegi. Með gífurlegri offjárfest- ingu í fiskiskipum og öfugum rekst- urskostnaði hefur tekizt að bíta drjúgt af íslenzkum hagvexti. í „Fiskiskiptaáætlun I” (Fram- kvæmdastofnun ríkisins, desember 1977) stendur orðrétt: „Sóknin í is- lenzka þorskstofninn var árið 1975 fimm sinnum meiri en hagkvæmasta sókn, þar af var sókn íslendinga um sjötíu prósent”. Nú er auk þess fyrir- sjáanlegt að þorskaflinn verður næstu ár hundrað og fimmtíu til tvö hundruð þúsund sinnum minni en hann gæti verið ef „jafnstöðuafli” væri tekinn og það vegna ofveiði. Það er nú aldeilis borgaður dálagleg- ur skildingur fyrir heimsku. Á þetta eru margir búnir að benda i áravis, og greinarhöfundur er á meðal þeirra. AUar tilraunir til haglýsingar á veið- um benda í sömu átt og að ofan greinir. Fjárfestingar í skipum og reksturs- kostnaöur hefur margfaldazt á sama tíma og aflaverðmæti hafa aukizt litiö og síðan staðið i stað. Stað- reyndin er bara sú, að íslandi hefur verið stjórnað af snillingum, sem kunna ekki þríliðu. Annars afgreiðir Magni Kristjánsson skipstjóri geir- fuglana í íslenzkum sjávarútvegs- málum i ÞjóðvUjanum 4. marz sl. með ágætri grein. Magni segir: „En við verðum að hætta að meta alla óvissuþætti í fiskifræðilegum efnum þeim gráðugustu og ófyrirleitnustu í vil”. Landlægir hagbítar Islendingar reka óhemju ódýran landbúnað, sem á einskonar sam- bland af lifnaðarháttum, fábreytni og offramleiðslu. Niðurgreiðslur og útflutningsbætur munu nema langt í þrjátíu milljarða á þessu ári. Fulltrú- ar landbúnaðarins fjölmenna á fundi til að stappa stáUnu í hver annan og samþykkja tillögur, sem flestar ganga í berhögg við hagsmuni þjóðarinnar. Það er ályktað um, að bæta þurfi stöðu StofnlánadeUdar landbúnaðar- ins og að breyta lausaskuldum bænda i föst lán. Skattleggja skal stærstu búin og leggja á fóðurbætisskatt. Fyrri atriðin fela í sér kröfu um meira fjármagn frá þjóðfélaginu á sama (íma og samdráttur er nauðsynlegur, en seinni atriðin tvö minnkun á arð- semi og í reynd dýrari framleiðslu á hverja framleiðslueiningu. Það er eins og menn rembist við að skegg- ræða um alla aðra hluti en lausnina. -a •m

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.