Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 14.03.1979, Qupperneq 11

Dagblaðið - 14.03.1979, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979. THA/IAWÞ HOCH/ Borg $OOt<fi4. Fjöldi Kampútseumanna flýði til nágrannalandanna undan ógnarstjórn Pol Pots. auk Alþjóðasamtaka lögfræðinga og Amnesty International. Abdelwahab Bouhdiba frá Túnis var formaður hóps þess er vann að skýrslunni og sagði hann að ástandið hefði breyst mikið til batnaðar í Kampútseu eftir að stjórn Rauðu Khmeranna undir forsæti Pol Pots var steypt að tilstuðlan stjórnar Víetnam. Bouhdiba sagði að fv. stjórn Kampútseu hefði að öllum líkindum hrakið þrjár til fjórar milljónir manna úr borgum landsins út í sveitir, þar sem fólkið var látið vinna nauðungarvinnu. Á innan við fjögurra ára valdatíma tóku yfirvöld i Kampútseu upp ótrúlega harðar refsingar og frelsissviptingu. Mál og ritfrelsi var afnumið. Yfirvöld lögðu hermenn, stúdenta og menntamenn í einelti og töldu þessa hópa tilheyra stjórnar- andstöðunni. öllu hefðbundnu lífi Kampútseumanna var umsnúið, þar á meðal trú manna. Fjöldaaftökur Phim Uon var majór í hernum, en gaf sig fram eftir valdatöku Rauðu Khmeranna. Tveimur dögum síðar var hann valinn sem einn 315 yfir- manna hersins til þess að taka á móti Sianouk prinsi er hann sneri aftur til Kampútseu úr útlegð. En í stað þess að fara til mót- tökunnar voru þeir fluttir saman í vörubíl í burtu og síðan var skotið í hópinn. Aðeins fáir lifðu árásina af og var Phim Uon einn þeirra. Annar maður, Vim Sot Ronnachit greindi frá því að hann hefði verið tekinn 1977 og bundinn í 12 manna hópi af aftökusveitum Rauðu Khmeranna. Meðal annarra voru menn í hópnum úr fjölskyldu Vims. Rauðu Khmerarnir beindu byssum sínum að hópnum en í honum var einn fullorðinn karlmaður, gamalmenni og auk þess konur og börn. Þessi hópur gat séð að aðrir höfðu verið drepnir í kring. Þar á meðal sá Vim föður sinn. Að sögn Vims sögðust Khmerarnir ætla áð taka fólkið af lífi, þar sem það hefði rangar skoðanir. Hópnum var skipað að setjast á jörðina og síðan byrjuðu aftökusveitirnar að berja fólkið með svipum. Vim bjargaðist á þann hátt að yfir hann leið og Khmerarnir héldu að hann væri dauður. Stjórn Pol Pots neitaði öllum á- sökunum um hryðjuverk, bæði almennt og einstökum tilteknum tilfellum. Formaður rannsóknar- nefndarinnar, hr. Bouhdiba sagði hins vegar að skýrsla nefndarinnar væri byggð á persónulegum vitnis- burði mikils fjölda manna. „Magafyllin" fékkst Kampútseumaður nokkur sem ekki þorði að segja til nafns vegna ótta við ógnarstjórn Rauðu Khmeranna greindi frá því að stjómin hefði kallað alla þorpsbúa þar sem hann bjó til fundar við sig þar sem beðið var um skoðanir þeirra á því sem betur mætti fara. Eftir að fjöldi manna hafði lýst yfir stuðningi við þær aðgerðir, sem stjórnvöld hafa gripið til reis Roat Hal, 44 ára gamall maður upp og spurði hvenær menn fengju maga- fylli sína, eða leyfi til þess að heimsækja ættmenni sín. Þremur dögum síðar heinisóttu Khmerarnir fjölskyldu Roat Hals og handtóku 12 úr fjölskyldunni. Allir voru drepnir og siðan voru likin skorin upp og lifrin tekin úr. Þar var komin magafyllin. Dauðarefsing við landf lótta Margir flúðu undan ógnarstjórn- inni til Víetnams eða Thailands. Það var þó hættuspil að reyna að flýja land, því við þvi lá dauðarefsing ef flóttamennimir náðust. Greint er m.a. frá konu nokkurri sem reyndi að flýja. Árið 1975 reyndu sex fjölskyldur í sameiningu að flýja land, en gengu fram á herdeild Rauðu Khmeranna. AUir voru hand- teknir og skotnir.M.a.ióku þeir þessa konu á aftökustaðinn og skutu hana, en hún lifði það af og þegar þeir fóru gat hún risið upp. Hún sá að allir aðrir í fjölskyldunum sex höfðu verið drepnir. Hún slapp yfir landamærin til Thailands, með hendur sínar enn bundnar. Fjölskylda i Kampútseu. Á valdatfma Rauðu Khmeranna var um 100 þúsund manns útrýmt i Kampútseu að því er greinir í skýrslu S.Þ. sem menn neita að horfast í augu við. Kröfur um að fleiri hafi atvinnu en til þarf af því að framleiða ákveðið magn búfjárafurða eru ekkert annað en tilætlunarsemi um atvinnubóta- vinnu á kostnað neytenda og skatt- borgara. Það liggur við, að land- búnaðurinn sé orðinn sýktur af nokk- urskonar andhagfræði eða einhverjum allsherjar strútshætti. Menn gefa sér bara einhverja sull- umbullum forsendur og svo eiga landbúnaðarkontórar að reikna framleiðendum nægilegar tekjur og reikna smjörið ofaní landann. 1 þessum hópi má bara heyrast ein rödd. Vorkunnarverðasta faggrein á íslandi er landbúnaðarhagfræði! Og menn halda virkilega, að fjárfesting- ar í sveitum eigi rætur sínar að rekja til annars en sjávarútvegs. Allir sanngjarnir menn munu viðurkenna nauðsyn þess, að land- búnað eigi aö stunda á íslandi. En það á ekki að stunda of mikinn land- búnað hér, því að arðsemi hans er svo lítil. Annars verður hann meiri hemill á hagvöxt en nauðsynlegt er og stuðl- a^ að landflótta þeirra, sem geta ekki látið þjöðfélagið borga sér fyrir að lifa lifnaðarháttum aðeigin vali. Verkalýðsrekendur margir eru sér- kennilegt sambland af sameignar- sinnum, naivistum og górillum sem þó vilja flestir vel. Þeir hafa komizt til valda með yfirboðum eins og hæstbjóðandi hremmdi geirfuglinn fræga á uppboði Sothebys í London. Þeir sækja umboð sitt til fárra stuðn- ingsmanna og lita á sjálfan sig eins og náttúruöflin. Svo keppast þeir við að senda frá sér yfirlýsingar um flókin efnahagsleg atriði eins og fram komu til dæmis í frumvarpi Ólafs Jóhann- essonar nú fyrir skemmstu. Keppi- keflið er að hafa áhrif á stjómvöld en minna máli skipta efnisatriði. Menn meta reisn sina eftir því, hversu mikið þeir hafa kúgað stjórnvöld landsins til að framkvæma einhverja vitleysu. Allt er þetta gert í góðum tilgangi til að ,,bæta kjör” umbjóðenda sinna. f reynd eru þeir menn farnir að stjórna viðkvæmum efnahagsmálum, sem minnsta þekkingu hafa á þeim. Það er svipað og láta górilluapa stjórna sinfóníuhljómsveit! Niðurstaðan er eðlilega efnahagsleg ringulreið, verð- bólga og lélegur hagvöxtur til tjóns fyrir alla en þó mest fyrir láglauna- fólkið. Þessi saga er ekki bara íslenzk. Það má sýna fram á öfugt hlutfall milli valda verkalýðsrekenda af ofan- greindri gerð og efnahagslegra fram- fara í mörgum löndum Evrópu. Gott dæmi er England. Þar eru nú launa- kjör að meðaltali um helmingi lægri en i Þýzkalandi. Þessi enski sjúkdóm- ur eða uppdráttarsýki, sem er eins og efnahagsleg holdsveiki, hefur borizt til íslands og er smitandi því miður. Áður fyrr var til sjúkdómur, sem kallaður var „enska veikin”. Það var beinkröm í þá daga, en nú er enska veikin af efnahagslegum toga og er einskonar pólitísk beinkröm. Embættismanna- kerfið og stjórn- málamenn Æviráðningar embættismanna í ýmsar lykilstöður em eitt alvariegasta vandamálið, sem stendur í vegi fyrir eðlilegri hagþróun. Verstir eru sumir „málefnaflokksstjórar” svo og „stofnanaforstjórar”, sem hafa klesst sér ofan á heilu atvinnugrein- arnar og sitja þar óhagganlega. Þeir, sem ekki eru stöðu sinni vaxnir, reyna að auka völd sín til þess að geta kúgað menn til að sýna sér tilhlýði- lega virðingu. Það er bæði gömul saga og ný. Margir stjórnmála- og alþingis- menn eru ekkert annað en ölmusu- miðlarar til atvinnureksturs úti á landsbyggðinni, sem ber sig ekki. Allt Kjallarinn Jónas Bjamason er rökstutt með byggðastefnu, sem er í raun andhverfan af arðsemi. Menn slá um sig með dæmum um það, að byggð í einhverjum firðinum megi ekki dragast saman, því að þá sé hún öll í hættu og sjávarþorpið með. Þetta er allt meira eða minna þvættingur. Byggð má víða dragast saman. Sums staðar mega efstu bæir í dalnum missa sín og sums staðar þarf byggð- in ekki að ná svona langt út eftir nes- inu. Á öðrum stöðum má byggð grisjast. Þeir bæir, sem eftir standa, styrkjast ef nokkuð. Menn verða að horfast í augu við kostnaðinn af því að láta fjármagnið renna út í algjöra arðsemisleysu. Byggðastefnan á eftir að verða dýr, þegar allt er tínt til. Hún er að snúast upp í afskræmi sitt eða „landflóttastefnu”. Postular stefnunnar vitna gjarnan í Noreg til að sýna, að aðrar þjóðir setja mikla peninga í byggðamál. Einn ágætur maður sagði um það mál, að byggðastefnan í Noregi væri borin uppi af þremur milljónum manna fyrir sunnan. Á Íslandi vantar þessar milljónir manna til að halda uppi hrikalega dýrri byggðastefnu. Að visu átta menn sig ekki glöggt á því, hvers vegna hagvöxtur hefur ' verið svona góður á fsiandi undan- farna fjóra áratugi þrátt fyrir brjál- semi í byggðastefnumálum. Skýring- in er fólgin i óviðjafnanlegri auðlind, fiskimiðum íslands. Sú auðUnd er nú bara ofmjólkuð og stöðnun í íslenzku efnahagslífi framundan. Land elds og ísa Það eru hinar hrikalegu and- stæður, sem einkenna þetta land. Skammt er frá hjarni til glóðar í ís- lenzkri náttúru. Veiðimannaþjóð býr að stórkostlegum bókmenntum forn- aldarinnar. Lífskjör hafa náð því að verða með þeim beztu í heimi (landið er að siga niður í röðinni), án þess að þjóðin hafi tileinkað sér þau vinnu- brögð, sem eru forsendan fyrir lífs- kjörum nágrannaþjóðanna. Þeir, sem berjast fyrir iðnaði, menntun og hagvexti, eru bara spurðir: „Hvað viljið þið upp á dekk? Höfum við mörlandarnir ekki náð því, sem við höfum, án ykkár?” Það eru til fjöl- margir menn og glettilega pennalipr- ir, sem einkennast af þessari hugsun. Þeir geta t.d. verið dökkhærðir Skag- firðingar, sem áttu þann draum stærstan að verða leigubílstjórar í Reykjavík, eða fyrrverandi bóksalar utan af landi, sem þjást af minni- máttarkennd. Þessir menn átta sig ekki á því, hvernig halda verður á at- vinnumálum i framtíðinni, til þess að búseta verði eftirsóknarverð á þessu ' landi. Það er enginn vandi að lifa sæmilega, meðan gengið er í auðlind og hún tottuð. Svo geta menn lof- sungið þá lifnaðarhætti, sem þeir eru sprottnir af sjálfir, og miklað afrek sín. En það er framtiðin, sem skiptir máli. Dr. Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur. „Lúddarnir hér á landi hafa bariö haus við stein og neitað aö viðurkenna staðreyndir um fiskiskipaflota og afraksturs- getu íslenzkra fiskstofna.” A Kröfur um, að fleiri hafi atvinnu en til ^ þarf af þvi að framleiða ákveðið magn bú- fjárafurða, eru ekkert annað en tilætlunarsemi um atvinnubótavinnu á kostnað neytenda og skattborgara.” ^ „í reynd eru þeir menn farnir að stjórna viðkvæmum efnahagsmálum, sem minnsta þekkingu hafa á þeim. Það er svipað og láta górilluapa stjórna sinfóníuhljómsveit.’ Enska veikin

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.