Dagblaðið - 14.03.1979, Side 12

Dagblaðið - 14.03.1979, Side 12
12 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1979. I Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþró Óli lóh. dreif Hauka til sigurs gegn FH —skoraði 10 mörk í síðari hálfleik er Haukar unnu upp 7 Ólafur Jóhannesson skaut FH-inga i kaf i Hafnarfirði i gærkvöld. Hann var maðurínn á bak við ótrúlegan sigur Hauka gegn FH, ótrúlegan því að FH núði i upphafi siðari hálfleiks sjö marka forustu 15—8 og virtist stefna i auðveldan sigur FH. En Ólafur Jóhannesson var á öðru máli — hann skoraði 10 mörk i síðarí hálfleik og sýndi stórkostlega takta. Allt ætlaði vitlaust að verða í Hafnarfirði, stemmningin gifurleg, eins og alltaf þegar erkifjendur Hafnarfjarðar eigast við og þegar Haukar stóðu uppi sem sigurvegarar fögnuðu þeir innilega og tolleruðu Ólaf Jóhannesson — já, Óli Jóh., var maðurinn á bak við sigur Hauka. Það var hörkuleikur í Hafnarfirði, leikur skemmtilegra marka, skemmtilegra tilþrifa en einnig ótrúlegra mistaka. Furöulegt ■ hvað hinir leikreyndu leikmenn FH brotnuðu við mótlætið, hvað liðið féll FH sigraði Hauka íl.deild kvenna FH nálgast Fram óðum í efsta sæti 1. deildar kvenna. i gærkvöld sigraði FH lið Hauka 14—12 i Hafnarfirði, eftir að Haukar höfðu haft yfir í leikhléi, 8—6. FH komst yfir i byrjun síðarí hálfleiks, 9—8 og sigur Hauka varstaðreynd — 14—12. markaforustu FH saman. Fyrri hálfleikur var lengst af mjög jafn en eins og áður í vetur þá brotnuðu Haukar í lok fyrri hálfleiks. Haukar höfðu yftr 8—6 en lokakafla fyrri hálfleiks var ekki heil brú í leik Hauka og FH-ingar skoruðu sjö mörk i röð — komust í 13—8. Og í upphafi siðari hálfleiks juku FH-ingar enn for- skotið og hinir fjölmörgu áhorfendur í Hafnarfirði bjuggust við enn einum sigri FH gegn Haukum, Ólafur Jóhannesson, einn minnsti maðurinn á vellinum, var á öðru máli. Hann er ekki hár í loftinu, né mikill um sig, — nei, ekki mikill fyrir mann að sjá hann Óli Jóh. En þessi litli leikmaður hefur ótrúiega snöggar hreyfingar, kvikur og erfitt að henda reiður á honum. Útsjónarsamur og prímus mótor í spili Haukanna. Snilli hans fór að segja til sín, snjöll mörk og Haukar söxuðu óðum á forskot FH. Þegar 13. mínútur voru til leiksloka höfðu Haukar, með Óla Jóh. í fararbroddi jafnað metin, 19—19. í kjölfarið komu þrjú mörk FH og áhorfendur héldu að nú væri bólan sprungin eins og svo oft áður þegar lið er að vinna upp forskot — nær stundum að jafna en vantar herzlumuninn. FH komst í 22—19, en Haukar jöfnuðu 23—23 og síðan 24— 24. Þeir létu þar ekki staðar numið því þeir komust yfir í fyrsta sinn í leiknum, 25—24, og síðan 26—24 og sigurinn blasti við. Og sigur varð það — 27—25. Fögnuður Haukanna mikill, bókstaf- lega dönsuðu stríðsdans á fjölum íþróttahússins í Hafnarfirði. Þeim Dodge B200/B300 1978 Eigum til afgreiðslu í þessum mánuði fáeina Dodge B200/B300 sendibíla árgerð 1978 á afsláttarverði. Dodge B200 er 6 cyl., beinskiptur mð vökva- stýri. B300 Maxivan er sjálfskiptur, 6 cyl. með vökvastýri. Hér er einstakt tœkifœri til að eignast gott atvinnutœki á hagstœðu verði. Tryggið ykkur bíl strax í dag — á morgun verða þeir e.t.v. uppseldir. Sölumenn Chrysler-sal, sími 83454 & 83330. ® Vökull hf. Ármúla 36. Símar 84366 - 84491 Umboðsmenn: Sniðill hf. Óseyri 8, Akureyri. Simi 22255 Bílasala Hinriks, Akranesi. Sími 1143 Friörik Óskarsson, Vestmannaeyjum. Simi 1552 Óskar Jónsson, Neskaupsstað. Simi 7676 hafði tekizt hið ómögulega — að vinna upp stórt forskot FH. Haukar hafa því betur í innbyrðisviðureignum félaganna í vetur — hafa unnið þrisvar, gegn tveimur sigrum FH. Ólafur Jóhannesson skoraði flest mörk Hauka, 10, 2 víti — öll mörk hans komu í síðari hálfleik. Hörður Harðarson 8, Sigurður Aðalsteinsson, Þórir Gíslason, Jón Hauksson og Andrés Kristjánsson 2 mörk, Ingimar Haraldsson 1 mark. Geir Hallsteinsson var markhæstur FH-inga með 8 mörk, 2 víti, Guðmundur Magnússon og Janus Guðlaugsson 4, Viðar og Guðmundur Árni, 3 hvor, Kristján Arason 1 mark. Hörður Hilmarsson, dró fyrir Stjömuna og hann dró upp nafn bikar- meistara Vildngs. Þungur róður þar fyrir Stjörnuna. DB-mynd Hörður. STJARNAN FÆR BIKAR- MEISTARA VÍKINGS — í8-liðaúrslitum Stórlið 1. deildar, Valur og Víkingur sluppu hvort við annað þegar dregið var i bikarkeppni HSÍ i gær. Fulltrúar allra félaganna voru mættir í bikar- dráttinn, svo og flestra fjölmiðla — en háværar raddir hafa veríð um að bikar- keppni HSÍ hafi verið nokkurs konar leynimót og enginn vitað af því. Móta- nefnd bauð því fulltrúum blaðanna að vera viðstaddir og er greinilegt að svo lengi lærirsem lifir. Bikarmeistarar Víkings fá Stjörnuna úr 2.'deild og ætti leiðin að verða greið í undanúrslit fyrir Víkinga en Stjarnan hefur að undanförnu verið í mikilli sókn í 2. deild. íslandsmeistarar Vals fengu Fram og er þar á ferðinni stór- leikur 8-liða úrslitanna. En bikardrátturinn varð: FH — Fylkir Stjarnan — Víkingur ÍR — Þór, Ak/Ármann Fram — Valur í 2. flokki var einnig dregið og Víkingur mætir þar Þrótti en FH leikur annaðhvort við Fram eða ÍR. Jafnt í Eyjum — Þróttur og Þór skildu jöf n, 16-16 Þórarar úr Eyjum sluppu í gær- kvöld rneö skrekkinn i 2. deild íslands- mótsins er þeir gerðu jafntefli við Þrótt, 16—16 i Eyjum. Þórarar voru nefnilega fimm mörkum undir i leikhléi — 11—6 en með mikilli baráttu í vörn og snilldarmarkvörzlu Sigmars Þrastar í markinu tókst Þórurum að ná fram jafntefli, 16—16 — sanngjörn úrslit og stemmingin í Eyjum var gífurleg þegar Þórarar voru að vinna upp forskot Þróttara i síðarí hálfleik. Annars var viðureign Þórara og Þróttar viðureign tveggja snjallra markvarða. Sigmars Þrastar í marki Þórara og Sigurðar Ragnarssonar í marki Þróttara. Báðir vörðu af stakri snilld. Sigmar Þröstur var snjall í síðari hálfleik en þá náðu Þórarar upp sterkum varnarleik, og sannaðist enn einu sinni að markvarzlan og varnar- leikurinn haldast iðulega í hendur. í fyrri hálfleik var ekki heil brú í leik Þórara. Hvað eftir annað misstu þeir knöttinn klaufalega og Þróttarar án Konráðs Jónssonar, markakóngs síns, gengu á lagið. í leikhléi höfðu þeir yfir fimm mörk, 11—6. En það var sem nýtt lið Þórara væri inn á í síðari hálf- leik. í stað deyfðar var baráttan í al- gleymingi og Þórarar, vel studdir af áhorfendum, söxuðu óðum á forskot Þróttar. Þeim tókst að jafna, 14—14 og komust síðan yfir í fyrsta sinn, 15—■ 14. En Þróttur svaraði með tveimur mörkum, 15—16. Síðasta orðið átti svo Þór — jafntefli, 16—16, sanngjörn úr- slit. Menn dagsins voru markverðirnir. En einnig var Andrés Bridde sterkur hjá Þór. Hann ásamt Hannesi Leifs- syni skoraði 4 mörk, Ásmundur og Böðvar 2 hvor. Einar Sveinsson átti góðan dag hjá Þrótti, skoraði 5 mörk, Páll Ólafsson 4, og Árni Einarsson 3. FÓV. IR vann UMFN —96-95 íBikarnum ÍR sigraði i gærkvöld Njarðvíkinga i þríðja sinn i röð i Hagaskóla og tryggði sér með sigri sínum sæti í úr- slit Bikarkeppni KKÍ — mætir annaðhvort Fram eða KR i úrslitum. ÍR-ingar sigruðu Njarðvíkinga 96—95 i hörkuleik en ÍR-ingar þorðu vart að fagna fyrr en búið var að fara vendilega yfir leikskýrsluna — að fenginni reynslu. Það var hörkuleikur í Hagaskóla og ÍR-ingar fögnuðu mjög sigri sinum. Þeir eygja ekki möguleika í úrvals- deildinni, hafa því lagt allt sitt í Bikar- inn. Og Njarðvíkingar hafa oftar en einu sinni lýst því yfir að markmiðið væri að vinna Bikarinn — í gærkvöld varð sá draumur að engu i Hagaskóla en Njarðvíkingar standa í harðri baráttu i úrvalsdeildinni og eygja þar góða möguleika. Lokamínútur viðureignar ÍR og UMFN voru æsispennandi. Þegar 44 sekúndur voru eftir haföi ÍR eitt stig yfir, 92—91. Jón Jörundsson skoraði tvívegis úr vitum fyrir ÍR, öryggið sjálft og hinum mistókust sjaldan vítin. Brynjar Sigmundsson náði að svara fyrir UMFN, 94-93. En bróðir Jóns Kristinn lék sama leikinn og Jón. Hann skoraði tvívegis úr vítum, aftur komst ÍR í þrjú stig yfir, 96—93. Njarðvíkingar svöruðu umsvifalaust, Ted Bee var þá að verki. En sekúnd- urnar tifuðu og ÍR-ingum tókst að halda knettinum lokasekúndumar — ÍR-sigur í höfn og fögnuður ÍR-inga mikill. Jón Jörundsson var stigahæstur ÍR- inga með 24 stig, Stewart 23, Kolbeinn Kristinsson 14, Kristinn Jörundsson 12 og Sigmar Karlsson 11. Hjá UMFN var Ted Bee langstigahæstur, með 39 stig. Gunnar Þorvarðarson skoraði 19, Geir Þorsteinsson 18. kynnt -s Sigurlás Þorleifsson, miðherji Eyja- manna og markakóngur þeirra undanfarin ár, tilkynnti í gær félagaskipti yfir í Víking Ekki að efa að Sigurlás verður Víkingum mikill styrkur, markheppinn leikmaður, eldfljótur og fylginn sér. Sigurlás er fjórði leikmaðurínn, sem í vetur hefur tilkynnt félagaskipti yfir i Viking. Áður höfðu gengið I raðir Víkinga landsliðsmaðurínn Hinrik Þórhallsson, úr Breiðabliki, Halldór Árnason úr Austra og Ómar Torfason úr ÍBÍ. En úr röðum Vikinga hurfu þeir Viðar Elíasson er gekk aftur i raðir Eyjamanna og Jóhann Torfason er leikur i Sviþjóð i sumar. Mikill fjöldi leikmanna hefur í vetur tilkynnt félagaskipti — nánast um sprengingu að ræða. Um 70 leikmenn hafa tilkynnt félagaskipti i vetur, fleiri en nokkru sinni fyrr. Flestir leikmenn hafa gengið i raðir Skagamanna, fimm, ogsíðan Víkinga. Segja má því að straumurinn liggi til þessara félaga. Skagamenn fengu miðherja sinn aftur, Sigþór Ómarsson, og ásamt honum úr Þór kom Sigurður Lárus- son. Þá tilkynnti Völsungurinn Kristján Olgeirsson félagaskipti yfir i ÍA. Tveir ungir leikmenn úr Breiðabliki, tilkynntu C-stigs námskeið sem samsvarar II. stigi fyrri námskeiða, verður haldið 16.—19. marz nk. Námskeiðið er miðað við 20 þátt- takendur og verða umsóknir teknar til greina í þeirri röð sem þær berast. Nauðsynlegt er fyrír þá sem lokið hafa I. stigs námskeiði (Samkv. eldri námsskrá) að sækja þetta C-stigs námskeið (II. stig), eru því þjálfarar sem lokið hafa eldra I. stigi hvattir til að sækja þetta námskeið. Einnig eru þau félög sem ráðið hafa þjálfara sem lokið hafa eldra I. stigi, til starfa, hvött til að senda þá á fyrrgreint námskeið. Allar upplýsingar eru veittar á skrifstofu KSÍ sími 84444, og skal þátttaka tilkynnt þangað. Helgina 2.-5. marz sl. hélt Tækninefnd KSÍ A-stigs þjálfaranámskeið. Námskeið þetta er eins konar forstig miðað við fyrri námskeið I. II. og III. stigs. Námskeiðið sóttu 12 þjálfarar og tókst það í alla staði vel. Úlfarnir bi á draum S — Úlfarnirsigruði Bikarnum í Liverpool og Everto Úlfarnir bundu enda á bikardraum 3. deildarliðs Shrewsbury á Gay Meadow, velli Shrewsbury i gærkvöld. Úlfarnir sigruðu 3—1 en loka varð hliðum vallaríns talsvert fyrír leikinn og á 19. þúsund manns fylltu litla völlinn i Miðlöndunum. Shrewsbury hafði náð óvæntu jafn- tefli gegn Úlfunum á Molyneux á laugardag og mikil eftirvænting var í Shrewsbury og menn minntust bikar- sigursins gegn Manchester City fyrr í vetur. En Shrewsbury átti aldrei mögu- leika gegn Úlfunum — vöUurinn í Shrewsbury alveg þokkalegur til að leika á og yfirburðir Úlfanna komu i ■ ljós — annað en þegar liðin áttust við i druUunni í Molyneux. Willie Carr náði forustu fyrir Úlfana á 24. mínútu. BUly Rafferty jók forustu Úlfanna á 53. mínútu í 2—0 og á 65. mínútu bættu Úlfarnir við þriðja marki sínu, Peter Daniel skoraði, úr víti eftir að John Richards hafði verið felldur. Átta mínútum fyrir leikslok minnkaði Jack Kaey muninn en aUt um seinan. Bezti árangur Shrewsbury í Bikarnum í 93 árvaráenda. Annars urðu úrsUt á Englandi: 1. deild Liverpool — Everton 1—1 Ipswich — Coventry 1—1 Middlesbrough — Derby 3—1

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.