Dagblaðið - 28.03.1979, Side 8

Dagblaðið - 28.03.1979, Side 8
„Málið er það að í lok febrúar var boðið út þetta einangrunarefni fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Þau tilboð sem bárust í tæka tíð voru 14,” sagði Eiríkur Tómasson, aðstoðarráðherra og stjórnarformaður Innkaupa- stofnunar Reykjavíkur, í viðtali við DB. Síðan kvað Eirikur það hafa spurzt að SÍS hefði ekki sent tilboð. Hefði það komið á óvart, einkum af tveim ástæðum. Önnur var sú að þeg- ar síðast var boðið út einangrunar- efni var SÍS með lægsta tilboðið. Hin var sú að sams konar einangrunar- verkefni var boðið út fyrir Hitaveitu Egilsstaða þrem vikum áður en umrætt útboð Innkaupastofnunar. Haft SÍS verið með áberandi lægst boð í báðum tilvikum. „Við nánari könnun kom í ljós,” sagði Eiríkur, „að ekki höfðu verið send útboðsgögn til SÍS, eins og föst venja hefur verið um alllangt skeið. Reyndar átti þetta við öll þau fyrirtæki sem áður hafa fengið út- boðsgögn send reglulega. Þetta sögðu talsmenn SÍS að hefði verið ástæðan fyrir því að þeir sendu ekki tilboð nú. Tvö áðurnefnd tilboð styðja þá fullyrðingu,” sagði Eiríkur. „Rétt er að taka fram að tilboð SÍS, sem barst eftir að önnur tilboð höfðu verið opnuð, var 1.750 þúsund krónum lægra en það tilboð sem lægst hafði borizt áður,” sagði Eiríkur, „og var þá miðað við fob- verð. Með aðflutningsgjöldum og fleiru er munurinn á þessum tveim tilboðum 3—4 milljónir króna. í útboðsskilmálum var tekið fram að heimilt væri að hafna öllum til- boðum sem bærust,” sagði Eiríkur Tómasson. „Þess vegna er að dómi okkar, stjórnarmanna í Innkaupa- stofnuninni ekki grundvöllur fyrir málshöfðun vegna þessa máls.” 4 stjórnarmenn greiddu atkvæði með þeirri aðferð sem viðhöfð var. Þeir eru: Eiríkur Tómasson, Sigurjón Pétursson, Siguroddur Magnússon og Valgarð Briem. Magnús L. Sveins- son sat hjá. Loks sagði Eiríkur að málið hefði orðið að afgreiða á fundi Innkaupa- stofnunar í fyrradag og panta efnið. Að öðrum kosti hefði verið hætta á að skortur hefði orðið á heitu vatni í Reykjavík vegna tafa á fram- kvæmdum. „Við stjórnarmenn Innkaupa- stofnunar Reykjavíkur hörmum að þessi mistök áttu sér stað í fram- kvæmd útboðsins og væntum þess að slíkt endurtaki sig ekki. Við teljum að fyrirtæki, sem lofað hefur verið að fá útboðsgögn, megi treysta því Ioforði,” sagði Eiríkur að lokum. BS. Tían á sýningu Hin nýja DC—10 breiöþota Flugleiða tók litla lykkju á leið sína í gærdag. Flug- stjóri þotunnar ákvað að fljúga lágflug yfir Reykjavík í góða veðrinu og sýna höfuðborgarbúum og nágrönnum hinn glæsta grip. DB-mynd Ragnar Th. Allar vörur til skíöaiökana Atomic skíöi Salomon bindingar Byrjendaskíði á kr. 7.620.- Skíðastafir — hanskar Gleraugu Opið frá kl. 10—12 og 1—6 v. Opið á V laugardögum \ til kl. 4. Sportmarkaðurihn Grensásvegi 50 — Sími 31290 SIS verður að sæta sömu llÍAMim oAkÍk — vinnubrögðum Innkaupastofn tvjuium Ug aUIII unarharðlegamótmælt Steinull hf. mótmælir harðlega aðferðum Innkaupastofnunar Reykja- víkur í útboðsgerð og allri aðferð við kaup á einangrunarefni til Hita- veitunnar. Eftirfarandi bréf var sent forstjóra Innkaupastofnunar Reykjavíkur í fyrradag af því tilefni að ekki var tekið lægsta tilboði i efniskaup sem boðin voru út. Miðvikudaginn 28. febrúar 1979 kl. 11.00 f.h. voru opnuð tilboð í framan- greint útboð yðar nr. 79009/HVR fyrir röraeinangrun vegna Hitaveitu Reykja- víkur. í tilboði þessu tóku þátt 10—12 aðilar víðs vegar að, eins og bókanir stofnunarinnar sýna. 12. þ.m. barst oss frétt um, að Hitaveita Reykjavíkur hefði ákveðið að óska eftir að stofnun yðar pantaði röraeinangrun samkvæmt framan- greindu útboði frá Ecomax í Svíþjóð, sem vér erum umboðsmenn fyrir, enda var tilboð þeirra hagstæðast að þessu sinni. Þá hefur oss verið tjáð, að lagt haft verið fram tilboð frá SÍS v/Elkem i Noregi og harI það verið ca 10% lægra en tilboð vo.t. Hafi formaðurinn óskað þess að þessu tilboði væri tekið þrátt fyrir að það barst 10—12 dögum eftir að tilboð voru opnuð samkvæmt útboði. Þetta hefur framkvæmdastjóri yðar staðfest við undirritaðan í simtali í dag. Þetta eru nýjar aðferðir og ný vinnubrögð á þessu sviði sem vér teljum oss verða að niótmæla og for- dæma. SÍS verður að sæta sömu kjörum og aðrir. Hafi verið um einhver mistök að ræða verða þau vart leiðrétt á þennan hátt. Fjöldi tilboða barst og þau voru opnuð á tilsettum tíma, að viðstöddum þeim sem þess óskuðu. Tilboð vort var valið og óskað eftir að því yrði tekið. Verði fram hjá því gengið sjáum vér ekki annarra kosta völ en leita réttar vors og umbjóðenda vorra með málshöfðun á hendur yður vegna óheiðarlegra aðferða við kaup samkvæmt útboði og brot á íslenzkum staðli um útboðm.a. Undir þetta bréf ritar f.h. Steinullar hf. Axel Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri. -B.S. „Önnur rafvæðing sveitanna” íburðarliðnum: Þriggja fasa rafmagn við tún- fót hvers býlis _ — fyrir8,8milljarða Orkuráð hefur lagt inn á borð hjá iðnaðarráðherra tillögu um „að á næstu 8 árum verði árlega varið fjár- hæð sem að framkvæmdamætti jafn- gildir 1100 milljónum að verðmæti í byrjun þessa árs til að styrkja raf- dreifikerfið í strjálbýli á landi hér. Á rafdreifikerFið að geta flutt rafmagn er nægi til almennra heimilisnota i sveitum, fullrar húsahitunar með raf- magni og búnota hvers konar, svo og til margvíslegra annarra nota, svo sem þjónustu og iðnaðar í strjálbýli.” Verkið á næstu átta árum kostar því 8.8 milljarða miðað við verð i árs- byrjun nú. Samkvæmt tillögunni er lagt til að styrkingin verði með þrífösun, þ.e. að einfasa flutningslínum verði breytt í þrífasa línur á um 65% af heildarlengd dreifikerfisins. Hafa þá 70—80% íbúa sveitanna aðgang að þrífasa rafmagni eins og segir í fréttatilkynningu Orkuráðs. í tillögunni sem nú liggur hjá ráðherra er lagt til „að þannig styrking rafdreifikerfis verði fjármögnuð með óafturkræfum framlögum ríkissjóðs i Orkusjóð sem síðan kosti fram- kvæmdirnar á.sama hátt og rafvæðing sveitanna hefur verið kostuð til þessa.” Þessi styrking rafdreifikerfisins leiðir 3ja fasa raforku að túnfæti hvers bónda. Býli i landinu munu nú um 5000 og þriðjungur þeirra talinn hafa súg- þurrkun. Eftirspurn eftir henni eykst og þvi má gera ráð fyrir að bændur kosti í þriggja fasa heimtaugar í aukn- um mæli frá væntanlegum línum við túnfótinn. Þessi áætlun sem lögð hefur verið fram í tillöguformi var á blaðamanna- fundi Orkuráðs í dag nefnd „önnur rafvæðing sveitanna.” Voru þarna látnar einlægar vonir í ljós um að alþingismenn og stjórnvöld myndu nú samþykkja þessar tillögur þó dýrar séu. -ASt. EINLÍFIESKFIRZKRA PIPAR- OlfdMA ál^lIAA — engarlæsingaráhurðumnýju wVtlNM UUNMtl piparsveinahallarinnar Einlífi eskfirzkra piparsveina er nú alvarlega ógnað nema bæjarstjórinn bregðist hart við og láti setja læsingar á hurðir hinna nýju t'búða í verkamanna- bústaðnum, sem gjarnan er nefnd piparsveinahöllin, þar sem einhleypir karlmenn hafa einkum fest kaup á íbúðum þar. í fyrrakvöld hugðust þeir fjölmenna á fund bæjarstjóra og bera upp vand- ræði sín og höfðu á orði að rifta kaupunum fengist ekki botn í málið, svo annt er þeim um „prívatið”. Innréttingarnar, sem að sögn kunnugra eru hinar vönduðustu, eru framleiddar í trésmiðju Kaupfélagsins á Selfossi og getur fréttaritari DB á Esk-ifirði sér helzt til að læsinga- skorturinn sé af pólitískum toga spunnin. Framsóknarmenn, sem ráði kaupfélaginu, vilji hafa íbúðirnar opnar í alla enda eins og flokkinn. GS/Regína. „Rúm”-bezta verzlun landsins INGVAR OG GYLFI GRENSÁSVEGI3108 REYKJAVÍK, SÍMI: 81144 OG 33530. Sérverzlun með rúm

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.