Dagblaðið - 06.04.1979, Qupperneq 1

Dagblaðið - 06.04.1979, Qupperneq 1
1 5. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979 — 82. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022. Flugmannaverkfallinu af lýst og allir komast í páskaf rí: SAMIÐ í KAPPHLAUPI VIÐ LAGASETNINGUNA —FÍA menn fá einir nýju B-727 þotuna—þaklyf ting á laun f rá 1. aprfl—jafnlaunadeilan fyrir gerðardóm—sameining FÍ og LL manna ekki á dagskrá „Flugmenn samþykktu þetta samkomulag með yfirgnæfandi meirihluta í nótt og hefur verkföllum nú verið aflýst,” sagði Björn Guðmundsson, formaður Félags íslenzkra atvinnuflugmanna í viðtali við DB í morgun. í dag átti að leggja fram frumvarp á Alþingi er bannaði flugmönnum að beita verkfallsvopninu í kjarabaráttu sinni framyfir áramót. Magnús H. Magnússon, Ragnar Amalds og Ólafur Jóhannesson sömdu frumvarpið í gær og var búið að kanna fylgi stjómarandstöðunnar við það og það atriði að gera þær undan- tekningar að unnt yrði að koma því í gegn um þingið og gera að lög- um nú fyrir kvöldið. Virtist ekkert því til fyrirstöðu. Það sem sleit samninga- viðræðunum í fyrrinótt var krafa FÍA flugmanna að fá einir að fljúga nýrri B—727—200 þotu, sem Flugleiðir eiga í pöntun og kemur væntanlega hingað síðla næsta árs. Nú hafa FÍA menn fengið viðunandi vilyrði fyrir því. Þá samþykktu flugmenn að visa svo- nefndri jafnlaunadeilu til gerðar- dóms. Einnig samþykktu þeir tilboð Flugleiða um „þaklyftingu” launa til samræmis við aðrar stéttir í landinu, strax frá 1. apríl, sem gæti þýtt hátt á 3. hundrað þúsund króna hækkun á mánaðarlaun hæstlaunuðu flug- stjóranna. Sameining starfsaldurslista LL og FÍ flugmanna var haldið fyrir utan þetta samkomulag og verður ekki rædd frekar á samningstímabilinu. Bjöm lauk að lokum lofsorði á vinnubrögð opinbents unninganel nd- arinnar í málinu, sem félagsmála- ráðherra skipaði á sínum tíma. í viðtali í Morgunpóstinum í morgun upplýsti Sigurður Helgason, einn forstjóra Flugleiða, að fyrirsjá- anlegt tap af 10 daga páskaverkfalli hefði orðið um 226 milljónir króita, en óreiknað væri hversu mikið skyndiverkföll flugmannanna hefðu kostað að undanförnu. -GS. Niðurstöður skoðanakönnunar Dagblaðsins: Meirihlutinn vill frjálsan afgreiðslu- tíma verzlana Meirihluti þjóðarinnar vill hafa afgreiðslutima i verzlunum frjáls- an. Þetta kom í ljós í skoðana- könnun DB. 57 af hverjumlOOvilja frjálsan. afgreiðslutíma, 34 af hundraði vilja óbreytt kerfi og 9 af hundr- aði em óákveðnir. Meirihlutinn með frjálsræðinu er tiltölulega meiri en þetta á Reykjavíkursvæðinu. Þar eru hlutföllin 2:1. Sjá ftarlega frásögn af niðurstööunum á bls. 12 Reykjavíkurborg: Gunnar Eydal ráðinn Gunnar Eydal lögfræðingur var á fundi borgarstjómar í gær ráðinn skrifstofustjóri Reykja- víkurborgar. Fulltrúar meirihlut- ans greiddu atkvæði með ráðn- ingu Gunnars, en fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins greiddu Jóni G. Kristjánssyni atkvæði sitt. Sjálf- stæðismenn bókuðu mótmæli vegna ráðningar Gunnars, sem sé „pólitískmisnotkun valds”. -JH. Björgunarmenn að störfum f hrfðarkófinu f nótt Peningarnir út íveðurogvind — byggingu íþróttahúss í Kópavogi seinkar — bls. 7 Það var engin aprílsvipur á veðráttunni á Suðurlandsvegi vestan heiðar í gæfkvöldi. Þar festust 10—15 bílar í sköflum er mynduðust af skaf- renningi sem gerði er líða tók á kvöld. Lokaði lögreglan veginum austur við Lögberg og leitað var ásjár björgunar- Kollafjarðarstöðin: Hvítblettaveikin hafðiekki áhrifá seiðamagnið - bls. 6 sveitar Ingólfs um aðstoð við fólkið er I bílunum sat. Ingólfsmenn fóru austur i tveimur fjallabílum og grófu eina 5 bíla úr fönn skammt frá Litlu kaffistofunni. Engan mann hafði sakað og fékk fólkið góða Málið er hryllilegt — rætt við Skúla Pálsson Laxalóni - bls. 13 aðhlynningu í fjallabílum Ingólfs- manna. 'Er þeir voru að ljúka björgunar- starfi sínu komu vegagerðarmenn og stungu leið í gegnum skaflana. Hún lokaðist svo aftur en í morgun var búið að ryðja enn á ný og sáust lítil vegsum- Takið með ykkurþrjá vasaklútaá leiksýninguna - bls. 7 DB-mynd: Sv. Þorm. merki næturævintýrisins sem fólkið í bílunum átti þama frá því um kl. 10 til klukkan eitt í nótt. Einn bill var skilinn eftir — fullur af blómum, túlípönum og páskaliljum. Þóttu þau taka sig vel út í skafrenningi þessarar aprílnætur. -ASt. Niðurskurður loðnuveiðanna: Tökum tölurnar ekki sem heilagan sann- leikaenn—bis.6

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.