Dagblaðið - 10.04.1979, Side 6

Dagblaðið - 10.04.1979, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979. Skídamenn: Skíóavikugestir Muniö sérréttaseðHinn HÓTEL MÁNAKAFFI Sími 94-3777. ísafirði Uganda: Óvíst er hvort blaða- mennimir fjórir em lífs eða liðnir pFYRIR PASKANA- snitiur og brauðtertur. I Pantanir í síma 16740. Brauðbankinn Laufásvegi 12 — Sími 16740. Verktakar. Palllaus Mercedez Benz 2224 árg. 74 til sölu. Upplýsingasímar, 93—8210,93—8326. Náttfata- markaður Ingólfsstræti 6 Náttkjólar frá kr. 2000.- Sólsloppar frá kr. 3000.- Sokkabuxur á kr. 400.- Peysur og barnafatnaður brjóstahaldarar, yfir- stœrðir í undirfötum og margt margt fleira. Látið ekki happ úr hendi sleppa. Túlípaninn Ingólfsstræti 6. ÍpÖRS §CAFE j STAÐUR HINNA VANDLÁTU The Bulgarian Brothers skemmta Fjölbreyttur matseöill Borðpantanir í síma 23333. ^ í 7—11.30. / " I Enn er ekkert vitað um afdrif fjög- urra evrópskra blaöamanna, sem reyndu að komast til Uganda með því að sigla á litlum báti frá Kenya yfir Viktoríuvatn. Orðrómur er á kreiki um að fjórir hvítir menn hafi verið handteknir í Uganda á föstudags- kvöld og teknir af iífi skömmu seinna. Tveir blaðamannanna eru þýzkir og starfa hjá Stern. Hinir tveir eru sænskir, annar frá Expressen en hinn blaðamaður frá Svenska dagbladet. Vestrænum sendiráðsstarfsmönnum í Kampala, höfuðborg Uganda, hefur enn ekki verið leyft að sjá lík mann- anna fjögurra. Þvi er ekki hægt að segja með vissu, hvort þar sé um að ræða blaðamennina. Ekkert sam- band hefur hins vcgar náðst við þá frá því að þeir yfirgáfu Kenya fyrir helgi. Samkvæmt fréttum sem bárust frá Kampala í gær átti utanríkisráðu- neyti Uganda að hafa tilkynnt að mennirnir fjórir, sem drepnir voru, hafi veriö vopnaðir leigumorðingjar. Það styrkir enn gruninn um að þarna hafi ekki verið um sænsku og þýzku blaðamennina að ræða. Engum erlendum fréttamönnum hefur verið hleypt inn í Uganda það sem af er þessu ári. Það voru hermenn úr liði Idi Aminsá sem handtóku hvitu mennina fjóra ál föstudagskvöld og styttu þeim aldur J Her Amins á nú i vök að verjast o J hefur hörfað út á kaffi- og bnnanaJ ekrur i námunda við Kampala.f Jerry Brown og Linda Ronstadt ferðast saman um óbyggðir Kenya Jerry Brown, ríkisstjóri Kaliforníu, kom flugleiðis til Kenya í gær. í fylgd með honum var rokksöngkonan heims- fræga Linda Ronstadt. Þau hyggja á ferðalag um óbyggðir Kenya næstu daga. Á flugvellinum tók herskari frétta- manna á móti Brown. Hann var meðal annars spurður að því, hvort eitthvað væri hæft í þeim orðrómi að hann hygðist kvænast söngkonunni í Kenya. Ríkisstjórinn kom sér undan því að svara spurningunni beint. ,,Ég vildi gjarnan komast hjá því að velta fyrir mér einkalífi minu. Mestall- ar þær kjaftasögur, sem þið hafið heyrt, eru ósannar,” sagði Jerry Brown. Linda Ronstadt sneiddi hjá frétta- mönnunum og neitaði að svara nokkr- um spumingum. Jerry Brown viður- kenndi — en með nokkurri tregðu þó — að söngkonan hefði komið til lands- ins með sömu þotu og hann. Hann kvaðst vera kominn til að heimsækja vini sína í Kenya og hygðist dvelja þar í landi til vikuloka. Þeir sem skipulögðu óbyggðaferð ríkisstjórans og söngkonunnar, vildu ekkert segja um hvaða leið þau hygðust fara. Þó er fastlega búizt við að þau muni heimsækja Fílhöfðabúðirnar ná- lægt Kilimanjarofjalli á morgun og leggja síðan leið sína til bæjarins Lamu á austurströnd Kenya. Sá bær hefur á síðustu árum orðið afar vinsæll meðttl vestrænna auðmanna. Linda Ronstadt hefur oft verið bendluð við Jerry Brown rikisstjóra að undanförnu. Chicago, Bandaríkjunum Enn finnast fómariömb kynferðismorðingjans Lögreglan í Chicago telur sig hafa fundið þrítugasta og þriðja fómarlamb kynferðismorðingjans John Gacys. í gærkvöld fannst hálfrotnað lík af ungum manni í á einni skammt sunnan við Chicago. Talið er að það sé af fimmtán ára gömlum pilti, sem saknað hefur verið síðan í desember. Ekki er hægt að fullyrða að líkið sé af piltinum, Robert Piest, fyrr en tennur hans hafa verið kannaðar. IJohn Gacy þótti mjög barngóður og brá sér oft í trúðsbúning til að skemmta nágrannabörnunum. 33. fórnarlamb hans fannst i á nærri Chicago í gærkvöld. Það var reyndar hvarf Piests.sem leiddi lögregluna á slóð Gacys. Við hús hans fundust þá fljótlega lík 29 drengja. Þrjú lík til viðbótar.sem fundizt hafa í ám nærri Chicago, eru talin vera af fórnarlömbum morðingj- ans. John Gacy er 37 ára gamall bygg- ingaverkamaður. Hann var tvíkvænt- ur. Að sögn lögreglunnar hefur hann játað að hafa haft mök við 32 drengi á undanförnum sjö árum og síðan kyrkt þá áeftir. Gacy er nú í sjúkrahúsi vegna röskunar á blóðsykri hans, sem 20 daga hungurverkfall olli. Hann er nú á batavegi.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.