Dagblaðið - 10.05.1979, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. MAl 1979.
Heimili þroskaheftra
að Tjaldanesi
athugasemd við
forsíðufrétt DB
Vilborg Auður Isleifsdóttir mcnnta-
skólakennari skrifar:
Bróðir minn hefur sl. 7 ár verið
vistmaður á heimilinu að Tjaldanesi.
Þar hefur hann notið hinnar beztu
aðbúðar og alúðlegs viðmóts svo
hann vill ógjarnan annars staðar
vera. Af 7 ára kynnum mínum tel ég
heimili þetta vera til fyrirmyndar og
eitt hið bezta sinnar tegundar hér-
lendis. Er það ekki hvað sizt að
þakka hæfni, áhuga og mannúðlegri
afstöðu forstöðumanns gagnvart
skjólstæðingum sínum. Það er
hægara verk að rífa niður en byggja
upp, léttara að rógbera en þægja. En
hér er hogginn sáer hlífa skyldi. Frétt
um gróf misferli og misþyrmingar er
góð söluvara og birtist á forsíðu.
Fregnir um lofsverða viðleitni og
fórnfúst starf í þágu þeirra sem
minnst mega sín lofa ekki skjótfengn-
um gróða. Því mun þetta lesendabréf
mitt ekki lenda á forsíðu Dagblaðs-
ins. En ég leyfi mér samt að vona að
það hafni ekki í ruslakörfu ritstjóra.
Raddir
lesenda
Mjólk í jóla-
umbúðum
— vegna verkfalls
farmanna
Ýmir hringdi:
Undanfarið hefur' töluvert verið
skrifað um rangar dagsetningar á
mjólkurumbúðum frá Mjólkursam-
sölunni. Ég verzlaði í einni verzlun
Sláturfélagsins í morgun (5. maí) og
rakst þar á mjólk í umbúðum frá því
um jól. Mig langar til þess að vita
hvort mjólkin sé einnig frá því um
jólin.
DB hafði samband við eina verzlun
Sláturfélagsins ög fékk þær upplýs-
ingar að mjólkin er ekki frá því um
jólin. Vegna verkfalls farmanna varð
Mjólkursamsalan að grípa til þessara
umbúða, þar sem hún fær ekki aðrar,
og hefur m.a. yfirlýsing um málið
komið í útvarpinu. Ýmir getur því
drukkið þessa mjólk án þess að verða
meint af.
Raddir
lesenda
Hringið
ísíma
27022
milli kl.
13 og 15,
eða skrifið
Tjaldanes I Mosfellssveit.
V. '
DB-mynd Hörður.
Gripið simann
9erið 9Óð
kaup
Smáauglýsingar
B1AD5IN5
Þverholtill sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld
Spurning
dagsins
Hvað finnst þér um
breyttan opnunar-
tíma veitingahúsa f
Reykjavík?
Magnús Vilhjálmsson atvinnubif-
reiðarstjóri: Ég tel breytinguna alveg
sjálfsagða. Þá koma kannski ekki allir
á sama tíma út.
Bjöm Björnsson, útibússtjóri Pósts og
síma: Mér lízt vel á breytinguna. Það
verður minni ös ef allir koma ekki og
faraá samatíma.
Örn Eiðsson íþróttafulltrúi: Mér lízt
prýðilega á hann. Það er ekki nokkur
vafi á þvi að þetta er ein af skynsam-
legri tillögum sem komið hafa fram i
borgarstjórn. Nú vantar bara nætur-
klúbba.
Þórir Ingólfsson nemi: Mer lizt mjög
vel á þetta. Nú verða meiri likur á því
að maður komist inn og lendi ekki i ös.
Steiney Ölafsdóttir sjúkraliðanemi:
Mér likar breytingin ágætlega. Nú gæti
orðið niinni ös og betra að komast inn.
Ingimar Ingimarsson leigubifreiðar-
sljóri: Mér lízt ekki nógu vel á breyting-
una. Nú færist bara aftur um klukku-
tíma sú ös sem er alltaf fyrir utan veit-
ingahúsin þegar lokað er.