Dagblaðið - 10.05.1979, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1979.
DB á ne ytendamarkaði
Könnun á kostnaði við
heimilishaldið
Enn reyndist kostnaðurinn meiri á
Stór-Reykjavíkursvæðinu en í
„landsbyggðar”sveitarfélögunum
Við höfum áður reiknað út meðal-
talskostnað við heimilishald i hinum
ýmsu sveitarfélögum, sem við höfum
fengið upplýsingaseðla frá, samfleytt
í sex mánuði og kom þá í ljós að
kostnaðurinn reyndist hærri í
Reykjavík og nágrannabyggðum
heldur en í sveitarfélögum úti á lands-
byggðinni.
Nú höfum við reiknað út meðal-
talskostnað í þeim sveitarfélögum
sem við fengum seðla frá í janúar,
febrúar og marz. Þá kemur aftur í
ljós að Reykjavík, Kópavogur,
Hafnarfjörður og Mosfellssveit eru
með hærri meðalkostnað á mann í
mat og hreinlætisvörum heldur en
nítján önnur sveitarfélög á landinu
samanlagt.
Kostnaðurinn á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu reyndist 23.259 kr. á mann
en í landsbyggðarsveitarfélögunum
var samsvarandi kostnaður 19.277
kr. Þetta kemur talsvert á óvart
vegna þess að á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu eiga menn greiðan aðgang
að svokölluðum stórmörkuðum, þar
sem á að vera hægt að gera mun hag-
stæðari innkaup heldur en í smáverzl-
unum. Einnig er það staðreynd að
vöruverð úti á landsbyggðinni er
víðast hvar hærra heldur en í höfuð-
borginni vegna flutningskostnaðar,
sem leggst á vöruna, sem kannski er
skipað upp í Reykjavík erlendis frá.
Ef við tökum meðaltalstölurnar frá
Reykjavík sjálfri er útkoman hins
vegar dálítið önnur. Þar reyndist
meðaltalskostnaðurinn 22.686 kr. á
mann. Hæstur var kostnaðurinn í
Mosfellssveit eða 26.696 kr. á mann.
Meðaltalið var þannig langhæst í
Mosfellssveitinni þessa fyrstu þrjá
mánuði ársins. Af „landsbyggðar”-
sveitarfélögunum var ísafjörður með
hæsta meðaltalið eða með tæplega 25
þúsund kr. á mann. Bolungarvík og
Patreksfjörður fylgdu fast á eftir,
báðir staðirnir með rúmlega 24 þús-
und á mann. Höfn.í Hornafírði, sem
áður hefur komið „illa út” í saman-
Utboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
byggingu aðveitustöðvar að Glerárskógum í
Dalasýslu. Útboðið nær til byggingarhluta'
stöðvarinnar, þ.e. jarðvinnu, stöðvarhúss,
undirstaða fyrir stálvirki og girðinga.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Raf-
magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavík, frá og með 10. maí 1979, gegn kr.
20.000,- skilatryggingu. Tilboðum skal skila á
sama stað fyrir kl. 10 mánudag 28. maí nk. og
verða þau þá opnuð.
Tilboð sé í lokuðu umslagi merkt „79024
RARIK”. Verki á að ljúka fyrir 1. okt. 1979.
77/ sö/u: VBft.
Renault 4 Van F4 árg. '78
Renault 4 Van F6 árg. '77
Renault 4 Van árg. '75
Renault 4TL árg. '75
Renault 5TL árg. '74
Renault 12TL árg. '77
Renault 12TL árg. '75
Renault 12 station árg. '75
Renault 12TL árg. '72
Renault 12TL árg. '71
Renault 20TL árg. '77
BMW 316 árg. '76
BMW 320 árg. '77
Ford Cortina árg. '74
;l. 2-6.
Kristinn Guðnason
Suðurlandsbraut 20 - Sími 86633.
burði millli staða, kom vel út núna
með tæp 22 þúsund á mann að
meöaltali í þrjá mánuði.
Við viljum enn einu sinni taka
fram að þesar tölur eru aðeins birtar
til þess að fólk geti borið sig saman á
milli landshluta ef það kærir sig um.
Það er ekki verið að ásaka einn né
neinn um „okurverð í verzlunum eða
óhagsýn innkaup”. Þetta eru aðeins
þær tölur sem okkur eru sendar inn á
upplýsingaseðlunum frá hinum ýmsu
stöðum, en ekki einhver algild vis-
indi.
- A.Bj.
Soðið kjöt með grænmeti
Samkvæmt almanakinu á að vera
komið vor. Þá vilja mepn oft fá
vorlega rétti, t.d. það sem kallað er
hvítspað á íslenzku, eða soðið kjöt
með grænmeti. Það má kannski
segja að óþarfi sé að koma með
uppskrift að slíkum rétti, hann kunna
allir að búa til. Enda er þetta heldur
ekki matreiðslukennsluþáttur, —
aðeins komið með tillögur og hug-
mynd gefin um hvað hráefnið í rétt-
inn kostar. En hérna er uppskrift að
hvítspaði sem ætlað er fyrir fjóra:
Um 1 kgsúpukjöt,
vatn,
salt eða annað krydd eftir smekk,
grænmeti (einnig eftir smekk).
Gott er að nota það grænmeti sem til
er á markaðinum hverju sinni. Það
getur sennilega aldrei orðið of mikið
af því í hvítspaðspottinum. Við
getum reiknað með:
1/2 hvítkálshaus,
3-4 stórum gulrótum
1/4 dós af grænum baunum (sjóðist
ekki með)
1—2 rófum
Kjötið er soðið eins og ætti að búa
til kjötsúpu. Grænmetið er hreinsað
og skorið í hæfílega bita og soðið
með kjötinu (í hæfilegan tíma).
Sósan er síðan jöfnuð með hveiti-
hristingi (hveiti og kalt vatn). Gjaman
má bera fram soðnar kartöflur með
hvítspaði en það er samt ekki
nauðsynlegt.
Með því grænmeti sem talið er upp
hér að ofan má reikna með að hrá-
efnið kosti nálægt 1780 kr., eða um
450 kr. á mann. Þá er reiknað með
bl. súpukjöti úr læri, hryggjum og
frampörtum(1069kr. kg).
-A.Bj.
Uppskrift
dagsins
Upplýsingaseðill
tíl samanburöar á heimiliskostnaöi
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlegast sendiö okkur þennan svarseöil. Á þann hátt verðið þér virkur þátttakandi í
upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu
af sömu stærð og yðar.
Kostnaður í aprílmánuði 1979
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö kr.
Alls kr.
m YIKLX
Fjöldi heimilisfólks