Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 10.05.1979, Qupperneq 6

Dagblaðið - 10.05.1979, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1979. Tilsölu hænuungar 2 mánaða ítalir, daggamlir holdaungar. MATTHÍAS EINARSSON TEIG, MOSFELLSSVEIT, SiMAR 66130 OG 66530 Tl söhi I Stykkishólmi Rúmgott hús ásamt bílskúr. Góð eign á góðum stað. Uppl. I síma 93-8192. Megrunartímar á mánudög- um — miðvikud. kl. 9.30 f.h. fyrir þá sem þurfa og viija grennast, áherzla lögð á hollt fæðí og grennandi æf- ingar. Einnig bendum við á staka tíma á laugard. fyrir konur og karla. Við bjóðum upp á æf- ingar til að styrkja, mýkja og slaka á líkaman- um. Kjöroið okkar er: Heilbrigði á sál og líkama. ATH.: Tímar frá morgni til kvölds 4 daga vikunnar. YOGA — HEILSUBÓT Sérlega spennandi með ELLIOTT GOULD KAREN BLACK S^nd kl- TELLY SAVALAS O.FL. 5,8.30 og 11. Danmörk: Kjamorkan i Miklar líkur eru nú taldar á því að látin verði fara fram þjóðaratkvæða- greiðsla um hvort taka eigi upp orku- framleiðslu með kjarnorku í Dan- mörku. Þó er ljóst að slík afgreiðsla verður ekki fyrr en að ioknum umræðum og atkvæðagreiðslu i danskaþinginu. Komið er í ljós að mjög líklegt er að hægt verði að fá hinar nauðsyn- legu sextíu undirskriftir meðal þing- manna en það nægir til að skylt er að grípa til þjóðaratkvæðagreiðslu. Helzta ástæðan fyrir auknum áhuga Dana á kjarnorkunni og þeim hættum sem hugsaniega eru henni samfara koma í kjölfar kjarnorku- slyssins í orkuverinu við Harrisburg í Bandaríkjunum. í Danmörku hefur röddum sem krefjast þess að sænska kjarnorkuverið Barsebáck hætti störfum stöðugt aukizt styrkur. Þykir Dönum það óþægilega nærri sér og þeir vera í mikilli hættu ef eitthvað bæri út af í orkuverinu. Þingmenn Framfaraflokksins hafa lagt fram tillögu um þjóðaratkvæða- greiðslu um kjarnorkuna en ekki er taiið líklegt að hún nái samþykki. Aftur á móti telja menn líklegt að undirskriftirnar sextíu geti náðst að loknum umræðum um málið í danska þinginu. Hinir einu sem lýst hafa yfir andstöðu við þjóðar- atkvæði um málið eru miðdemókrat- ar og íhaldsmenn. ; ' ■ Ilill! :. ; -■ kwxixixixixtx-xssii: ' ■ • xv.;4 •■•. % s Wm *»s'% • sw ' S w s. wWv : .••;s.-.y.. •.• ••••••• ••••••:• ' ■'•■•:•: •■•❖V./.--- . s s"- • . • v>. '•■■•>• N • •• •■•:•••.;: "■• •• • ••' • '•«-.:::;x •:•••• ••••;;:- '• '•;••:• '>'. •••.•:•'! IIIII :: ;••'•■. . ■ IIIliM ••;:;i:Vi :'••••:;:; ..:••:•":••:••• Sifeiíiii . • x. vitíC-'í-. < Xv. .-«.>v*iCs’y:>.•;•;.V'ís; , ' £ . :'■'><• § \ • y •>. fci'- • . i' •'••■V'. ''.>:YÍv •>; '■'•s;i-::':'•:''"'’+•:•«••• '• ■ ■ "■■:■■ ',-.1/,, Vsw- ...... '>.'', •■ ' , V s í VV y %< •s’ > ■' ■> • v> p«;:: ' v llillil ::>:;>>>>:*:•»;• X::;:.::;::;'v: ‘ -• •• .'•• Íllllíliíil Aukning á húðkrabba Að tuttugu til þrjátíu árum liðnum mun húðkrabbamein hafa tekið við af lungnakrabbameini sem algeng- asta krabbameins tilfelli í Danmörku. Að sögn danskra lækna er höfuð- ástæðan fyrir þessari þróun hin mikla dvöl fólks við sólböð á suðrænum ströndum, svo og í Danmörku. Þessar upplýsingar komu fram á ráðstefnu lækna um krabbamein, sem fram fór nýverið í Árhus. Ekki var þó á neinn hátt reynt að gera litið úr þeirri hættu á lungnakrabba sem skapast af sígarettureykingum. Á ráðstefnunni kom einnig fram að of mikil neyzla á mat sem steiktur væri í ýmsum fitutegundum gæti verið varasöm. Vísindamenn munu ekki komnir svo langt í rannsóknum sínum að vitað sé hvaða fitutegundir eða efni í fitu geti valdið krabba- meini. Hingað til hefur tekizt að lækna flesta þá sem fá einhverjar tegundir húðsjúkdóma. Á síðustu þrem ára- tugum hefur aftur á móti orðið þreföldun á fjölda illkynjaðra til- fella af húðkrabba hjá körlum og sexföldun hjá konum. Talið er að um það bii fjögur hundruð manns látist árlega í Dan- mörku af vöidum húðkrabba. Vara sérfræðingar mjög við því að ef taumlaus sóldýrkun haldi áfram, muni dauðsföllum af völdum húð- krabba fjölga mjög. Bretland: Ákæra pillu- framleiðendur þrjú hundruð konur stof na samtök fórnardýra pillunnar Þrjú hundruð brezkar konur ætla að höfða mál á hendur bandarískum framleiðendum getnaðarvarnapillna og krefjast bóta fyrir þann skaða, sem þær telja sig hafa orðið fyrir af völdum framleiðslu þeirra. Hafa konurnar stofnað með sér samtök. Halda þær því fram að á umbúðum utan um pillurnar hafi ekki verið fullnægjandi upplýsingar. um hugsanlegar aukaverkanir, sem fylgt gætu neyzlu þeirra. Þekktur lögmaður í Kaliforniu, Gerald Sterns, hefur tekið að sér málareksturinn. Þykir hann mikill sérfræðingur í bótakröfum gegn stór- fyrirtækjum. Meðal annars var hann lögmaður ættingja þeirra Breta sem fórust í miklu flugslysi við París árið 1974. í viðtali við brezka útvarpið sagði Sterns lögmaður, að samkvæmt bandarískum lögum væri skylt að láta greinargóðar upplýsingar og hugsanlegar aukaverkanir getnaðar- varnapillnanna fylgja með þeim við sölu í Bandaríkjunum. Þannig væri þessu hinsvegar ekki farið í Bretlandi og hefðu framleiðendurnir einnig látið hjá líða að vara brezkar konur við af sjálfsdáðum. Um það bil sextíu eða sjötíu af hundraði þeirra brezku kvenna sem neyttu pillunnar munu nota bandarískar pillur. Formaður samtaka kvennanna sem telja sig hafa orðið fyrir skakkaföllum af neyzlu þéirra fékk slag fyrir nokkru. Hin opinbera stofnun, sem fer með málefni fjölskyldunnar i Bretlandi hefur tekið undir þá skoðun að nauð- synlegt sé að fræða fólk um hugsan- legar afleiðingar þes að nota getn- aðarvarnapillur. í álitsgerð stofn- unarinnar segir þó að sú fræðsla eigi fremur að koma frá læknum en framleiðendum. Um það bil þrjár milljónir kvenna í Bretlandi eru taldar taka getnaðarvarnapillur að staðaldri.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.