Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 10.05.1979, Qupperneq 12

Dagblaðið - 10.05.1979, Qupperneq 12
íSuðurgötu Blómleg starfsemi það sem eftir er árs í sumar mun starfsemi gallerísins vera fjölbreytt og hingað munu koma erlendir myndlistar- og tónlistarmenn með hugverk sín. Sjálfir munu þeir Suðurgötumenn leggja land undir fót og halda til ítaliu en þar hefur þeim verið boðið að sýna í sumar. Siðan er von á nýju hefti af „Svart á hvítu” um mánaðamótin. Goðafræði kvenna DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1979. ....... ........—.... Sumarannir Landshornaflakkari í listinni Þar næst mun hinn kunni bresk- bandaríski myndlistarmaður og ljóð- skáld, Dick Higgins, opna sýningu þann 10. júní. Fyrir þá sem fylgdust með Flúxushreyfingunni var Higgins mikið átrúnaðargoð en hann lærði hjá John Cage og hefur sýnt með fjöldamörgum listamönnum sem nú eru vel þekktir, t.a.m. Diter Rot, Robert Filliou, George Brecht, Endre Tót, Michael Gibbs o.fl. Higgins hefur gefið út mikinn fjölda bóka og bæklinga eftir sjálfan sig og aðra, haldið einkasýningar um allar jarðir og framið uppákomur — en hann var m.a einn af upphafsmönnum slikrar tjáningar. í Suðurgötu mun Higgins sýna grafikseríu og lesa upp úr bók- um sínum. í júli sýnir ungur íslenskur nýlistar- fyrrasumar. Mun Schmidt sýna verk sem hann gerði hér á landi siðastliðið sumar. Náttúra og hljóð í ágúst sýnir íslensk vefnaðarkona, Rúna (Guðrún Þorkelsdóttir), en hún hefur stundað nám í Hollandi. Þar næst kemur portúgalskur nýlistar- maður, Alberto Carnero, en hann þykir standa einna fremstur í þeim listum þar í Portúgal og hefur m.a. verið fulltrúi lands sins á Biennalnum í Feneyjum. Carnero notar náttúruna og fyrirbrigði hennar í verkum sín- um. { þeim mánuði klykkir út ítalski listamaðurinn Mauricio Nannucci en hann þykir mjög efnilegur í heima- landi sínu. Verður hann hér sjálfur með myndband, ýmis hljóð og ljós- myndaverk. Nannucci sýndi m.a. á Feneyjabiennalnum á sl. ári. í sept- ember sýnir breskur myndsmiður, Peter Betani, og síðan tekur við Þessa dagana stendur yfir afmælis- sýning aðstandenda en um hana hefur verið fjallað í DB. Síðan mun bandaríska myndlistarkonan Mary Beth Edelson troða upp með verk sín. Edelson er vel menntuð og þekkt listakona og telja margir hana meðal bestu kvenlistamanna í Bandaríkjun- um. Hún hefur lengi fengist við að kanna ýmiss konar goðafræði, hlut- verk kvenna í henni og tengsl hennar við nútímann. Nýverið framkvæmdi hún helgiathöfn í helgum helli í Júgó- slavíu og hafa ljósmyndir af þeirri at- höfn hennar verið sýndar víða. Hún hefur einnig fjallað um nomabrennur miðalda í formi gjörninga (per- formance), auk þess sem hún gerir klippimyndir. Stendur til að hún vinni verk í nágrenni Reykjavíkur meðan hún dvelur hér og verður það birt í bók um verk hennar sem út kemur á næsta ári. Sýning Mary Beth Edelson opnar 15. maí. Síðan mun ung íslensk grafíklistakona, Edda Jónsdóttir, sýna í Suðurgötunni og á eftir henni sýnir þar íslenskur mynd- listarmaður, Þór Elís Pálsson, sem stundar nú framhaldsnám í Hollandi. Norræna mynd- listarmiðstöðin komin í gagnið Eins og áhugamönnum er eflaust kunnugt var í fyrra stofnuö norræn myndlistarmiðstöð á Sveaborg í Helsinki og nú fyrir skömmu kom forstöðumaður hennar, Erik Krus- kopf, til landsins og hélt erindi um miðstöðina i Norræna húsinu. Kom þar fram að allt frá því að fyrsti nor- ræni Biennalinn var haldinn árið 1939 ólu menn með sér von um að setja mætti upp sérstaka myndlistar- miðstöð fyrir Norðurlönd. Frá 1968 barðist Norræna myndlistarbanda- lagið ákaft fyrir slíku fyrirtæki og loks var miðstöðin formlega opnuð þann 28. júlí 1978 áeyjunni Sveaborg en áður höfðu farið fram miklar um- ræður um það hvar hún skyldi stað- sett. Fékk miðstöðin til umráða fjölda herskála og bygginga frá því á 18. öld og þar starfar Kruskopf nú ásamt skrifstofustúlku og ritara. Samræming sýninga Starfsemin hefur verið furðumikil frá byrjun. Eitt af mikilvægustu verkefnum norrænu myndlistar- stöðvarinnar er að skipuleggja og samræma sýningarstarfsemina á Norðurlöndum. Samnorræn högg- myndasýning var haldin við opnun og fer hún nú um öll Norðurlönd. Miðstöðin tekur þátt í öðrum sýning- um, m.a. með norrænum þátttakend- um í Feneyjabiennalnum. Sýnd hafa verið verk sænskra málara, dönsk grafik, norskar teikningar og fyrir skömmu var opnað fyrsta reglulega sýningarhúsnæði miðstöðvarinnar, „Strandkasemen” á Sveaborg. Verður það um 5Ö0 fermetra á stærð og í fimm sölum og verða þrír þeirra notaðir eingöngu fyrir myndlistar- sýningar. í fremsta salnum verður veitingasala en fimmti salurinn verður notaður fyrir mynda- og kvik- myndasýningar. Tekur hann u.þ.b. 100 manns í sæti. Þar mun nýstofn- aður kvikmyndaklúbbur hefja starf- semi innan skamms. Nú stendur yfir á vegum miðstöðvarinnar fundur um skrásetningu listaverka á Norður- löndum, m.a. með það fyrir augum að koma allri norrænni myndlist inn á tölvukerfi, til hagræðingar fyrir áhugamenn, safnafólk og fræði- menn. Ókeypis aðstaða Nýnæmi er að fimm vinnustofum fyrir myndlistarmenn hefur verið komið fyrir á Sveaborg. Ætlunin er að vinnustofumar verði opnar mynd- listarmönnum frá öllum Norðurlönd- um. Einn myndlistarmaður frá hverju landanna á að geta verið þar samtímis, minnst 2 mánuði en mest i eitt ár. Vinnustofurnar eru stórar og rúmgóðar en af ýmsum stærðum og allar eru þær með eldhúskrók eða eldhúsi. Vinnustofurnar eru allar í sama húsi og þar verður sameiginleg setustofa. Er þetta ókeypis aðstaða fyrir myndlistarmenn en sjálfir verða þeir að sjá um kostnað við ferðalög til og frá staðnum. Þetta eru fyrstu samnorrænu vinnustofurnar fyrir myndlistarmenn á Norðurlöndum og er ekki að efa að þær eiga eftir að koma að góðu gagni. -AI Ljóðskáldió og myndlistarmaðurinn Dick Higgins við bakstur. t tilefni af tveggja ára afmæli sinu óg til að kynna starfsemina næstu mánuði kölluðu aðstandendur Gallerísins við Suðurgötu til fundar i vikunni. Kom þar fram að frá þvi í apríl 1977 hafa 30 sýningar verið haldnar að Suðurgötu 7, auk þess sem uppákomur ýmiss konar og tón- listarflutningur hefur farið þar fram. Mary Beth Edelson framkvæmir gjörning er kallast „Að virkja orku eldfuglsins”, maður, Hannes Lárusson, en hann hefur stundað framhaldsnám í Kanada. Síðan er Planstudio Siep- mann aftur á ferð en þeir sýndu ljós- tnyndir í galleriinu í fyrrahaust. Nú munu þeir fremja hér gjörninga. Þar á eftir kemur breski listamaðurinn Peter Schmidt en hann ávann sér mikla hylli með fingerðum vatnslita- myndum er hann sýndi í galleríinu í þýskur vídeó-listamaður, Wolf Kahlen, en hann er talinn með þeim bestu í sínu fagi í heimalandi sínu. 'Hér sýnir hann ljósmyndir en ætlar að vera hér með vídeó seinna á árinu. Létu þeir Suðurgötumenn þess getið að fjöldi annarra beiðna lægju fyrir um sýningarhald en vegna pláss- leysis verði ekki hægt að sinna þeim öllum. -AI Skihagerðarvél Skiltagerðarvél fyrir plast til sölu ásamt fylgivélum og lager af efni. Gott tækifæri fyrir þann sem vill skapa sér sjálfstæðan atvinnurekstur. Tilboð sendist í pósthólf 113 210 Garðabæ fyrir 15. þ.m. Heimsborgarinn Tryggvi Tryggvi Ólafsson fær góða dóma í dönskum blöðum DB hafa borist fréttir af sýningu sem Tryggvi Ólafsson myndlistar- maður hélt í apríl í Gallerí Mag- stræde í Kaupmannahöfn. Voru þar málverk og klippimyndir til sýnis. Sýningunni var vel tekið af dönskum gagnrýnendum. Rýnir blaðsins Land og folk segir m.a.: „Tryggvi Ólafs- son er fyrst og fremst maður með sterka málaraeiginleika. Liturinn og formið er ávallt það sem mestu máli skiptir í myndinni. Innihaldið verður að lúta þessu tvennu. Aðferðir hans við að byggja upp myndirnar geta minnt á popplistina, með einföldun hennar á lit og linum og áhersluna á útlínuteikningu teikniseríanna. En manni kemur einnig í hug málari eins og Matisse. Tryggvi Ólafsson er mál- ari sem gerir tilraunir en hann er einnig málari sem vinnur vísvitandi á grundvelli gamallar hefðar í mynd- list. M.a. þess vegna eru myndir hans svo auðskildar. Þessi sýning er full af Tíðindi af myndlist sjónrænum gæðum.” Pierre Liibecker, gagnrýnandi Politiken, segir m.a. „(Tryggvi) virðist hafa hæfileika sem eru að þróa hann yfir i heimsborgara. Þetta stafar ekki ein- göngu af stíl hans, sem skyldur er popplist og enn nýtur alþjóðlegrar hylli, heldur vegna afstöðu hans til mannlífsins . . . Hann nær að hafa áhrif á áhorfandann, fær hann til að hugsa sig um og taka afstöðu. En það er engin ástæða til að halda að mynd- list hans sé áróðurskennd eða bók- menntalegs eðlis. Hún nærist af sjón- rænum áhrifum, margræðum sjón- rænum áhrifum og hún öðlast gildi sitt í hinni hreinu myndrænu gleði.” Svo mörg voru þau orð. -AI Fjórar hliðar á Tryggva Ólafssyni. hREvrLL Sími 8 55 22

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.