Dagblaðið - 10.05.1979, Side 28
Setur Alþýðubandalagið úrslitakosti?
KAUPHÆKKUN FLUGMANNA
TEKIN AFTUR
— samkvæmt tillögum flokksins
— 3% með lögum, segir Alþýðubandalagið
— 3% með samningum, segir Ólafur
Mikill ágreiningur hefur komið
upp um launamálin milli Alþýðu-
bandalagsins og Ólafs Jóhannessonar
forsætisráðherra. Þingflokkur
Alþýðubandalagsins gekk á fundi
með verkalýðsforingjum flokksins í
gærkvöldi endanlega frá tillögum,
sem voru lagðar fyrir ríkisstjórn um
hádegið í dag.Þar ergert ráð fyrir, að
ríkisstjórnin keyri gegnum Alþingi í
byrjun næstu viku lög, sem gefa
öllum 3% kauphækkun, sem hafa
innan við 380 þús. í mánaðartekjur.
Forsætisráðherra og Framsóknar-
flokkurinn komu sér í gær niður á
tillögur, sem eru ólíkar þessu, að því
leyti að Iaunþegum er ætlað að
„semja” um þessa 3 prósent hækkun
og lofa að ganga ekki lengra í grunn-
kaupshækkunum í ár.
Framsóknarmenn vilja reyna að fá
samstöðu um þetta við forystumenn
helztu launþegasamtaka. Eftir það
verði auðveldara að ráða við minni
hópa, svo sem með sérstökum lögum,
sem stöðvi þá.
í tillögum Alþýðubandalagsins
segir, að sett skuli þak á vísitölu-
greiðslur við 380 þús. króna
mánaðarlaun, sem þýði, að kaup-
hækkun flugmanna verði tekin aftur
og þeir fái ekki meira en margir aðrir.
Alþýðubandalagið vill, að stofnuð
verði sérstök yfirnefnd í verðlags-
málum, sem hafi öll völd um þau og
leyfi ekki verðhækkanir nema vegna
erlendra verðhækkana eða ef
rekstrarstöðvun vofir yfir.
Innan Alþýðubandalagsins er vax-
andi fylgi fyrir því, að flokkurinn
setji stefnu sína í launamálum fram
sem úrslitakosti og fari úr ríkisstjórn,
verði ekki á hana sætzt.
-HH.
frfálst, úháð daghlað
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ1979.
Atvinnuleysi
minnkar
Atvinnulausum mönnum i kaupstöð.
um og kauptúnum landsins hefur
fækkað úr 544. 31. marz í 522 þann 30.
apríl. Flestir eru vitaskuld atvinnu-
lausir í Reykjavík eða 246 en mest
hefur fjölgun atvinnulausra orðið á
Siglufirði. Þar hefur þeim fjölgað úr 6 í
40 á einum mánuði. Á Hólmavík hefur
atvinnulausum einnig fjölgað mikið, úr
10 í 29.
-DS.
Tvennir tvíburaráþr
„ER RÉ
BYRJ
—segirmóðirfjögu
státinna stráka
Katrín með Jóhannes Pál og JCrlstján
Árna á fæðingardeild í geet'. Á minni
myndinni er Gunnar að.koma Gunnari
og Andrési (t.h.) í rúmið í gærkvöld.
DB-myndir: Ragnar Th.
Tjaldanesmálið:
Gögnin
til ráð-
herra
eftirhelgi
„Öll gögn í málinu, sem Réttarvernd
hefur undir höndum verða afhent ráð-
herra, en trúlega verðum við ekki búin
að undirbúa málið fyrir helgi,” sagði
Ellert Guðmundsson, formaður
íslenzkrar Réttarverndar í viðtali við
Dagblaðið í morgun. Eins og fram kom
í Dagblaðinu í gær, bað Magnús H.
Magnússon heilbrigðisráðherra
um að fá gögnin i Tjaldanesmálinu
þegar í stað inn ásitt borð.
,,Við eigum eftir að ljósrita hluta af
gögnunum og raða jsessu upp, en
ættum að geta afhent ráðherra þau
ekki síðar en á mánudag,” sagði Ellert
ennfremur.
Ráðherra mun síðan taka ákvörðun
um frekari rannsókn þeirra alvarlegu
ásakana, sem nokkrar fyrrverandi
starfsstúlkur hafa í frammi um for-
stöðumann heimilisins.
-HP.
Farmannadeilan:
Sáttafundur
Þau gera það ekki endasleppt við fjölgun þjóöar-
innar, hjónin Katrín Andrésdóttir og Gunnar Kristjáns-
son í Reykjavík. Klukkan ellefu að morgni 6. maí ól
Katrín aðra tvíbura þeirra hjóna. Hinir fyrri eru fæddir
7. maí fyrir þrem árum. Á að eiga eina á þriggja ára
fresti?
,,Já, ég er bara rétt að byrja,” sagði Katrín er við
litum til hennar á Fæðingarheimili Reykjavíkur síðdegis
í gær.
Katrín er 25 ára, íþróttakennari að mennt. ,,En ég er
svo gamaldags að mér finnt móðirin eiga að vera heima
hjá börnunum. Það kemur ekki til mála að ég fari út að
vinna,” sagði hún.
Gunnar er fulltrúi í Búnaðarbankanum. „Launin
hrökkva varla til að seðja alla jyessa svöngu munna,”
sagði Katrín.
Nýju tvíburarnir voru 11 og 12 merkur þegar þeir
fæddust en eldri bræður þeirra nokkuð þyngri við
fæðingu eða 13 merkur. Yngri strákarnir hafa þegar
hlotið nöfn þó ekki sé búið að skíra þá formlega. Sá
eldri heitir Jóhannes Páll (ekki í höfuðið á páfanum
heldur eftir afaog langafa) og sá yngri Kristján Árni.
„Ég vissi mánuði áður en hinir fæddust að það væru
tvíburar. En mig grunaði það alltaf með þessa. Nei, ég
kvíði alls ekki fyrir að koma heim. Ef börnin eru heil-
brigð er virkilega gaman að hugsa um þau. Auðvitað
hefði verið gaman að fá eina stelpu en kynið skiptir
engu. Heilsan er fyrir ölluj’ sagði hin ánægða móðir. DS.
ídag
Sáttafundur í farmannadeilunni
hefur verið boðaður kl. 16 í dag og
verður haldinn hjá sáttasemjara Torfa
Hjartarsyni.
Tíu skip hafa nú stöðvazt vegna
verkfallsins, sem hófst fyrir 16 dögum.
Unnið er við losun eða lestun á 11
skipum, en átta skip hafa undanþágu
til losunar á ströndinni og önnur átta
eru á leiðinni til landsins. Tuttugu skip
eru enn erlendis.
Samninganefnd FFSÍ hefur rök-
studdan grun um að verkbann vinnu-
veitenda hafa verið sett í óþökk a.m.k.
tveggja útgerða og vekur athygli á því
að verkfall er ekki sett á til að gera
’einni útgerð kleift að lama samkeppnis-
aðstöðu annarra útgerða.
-JH.
LEIGUBÍLA-
SK0RTURINN
ÚR SÖGUNNI ?
Ný reglu-
gerð um
vakta-
skipti á
leigubílum
gefin
út í gær
„Við áttum fund með ráðherra í
morgun og hann féllst á tillögur
nefndarinnar, og var reglugerðin
gefin út í morgun,” sagði Birgir
Guðjónsson fulltrúi í samgöngu-
ráðuneytinu í samtali við DB í gær en
hann átti sæti í nefnd sem Ragnar
Arnalds samgönguráðherra skipaði
8. marz sl. til að fjalla um þann skort
sem er á leigubílum á vissum anna-
tímum og gera tillögur til úrbóta.
Aðalatriðið í tillögum nefndar-
innar er fólgið í því að undanþágur
frá þeirri reglu að ekki megi hafa
vaktaskipti á bílunum verða
víkkaðar mjög. Þannig er stjórn
stéttarfélagsins nú heimilt að veita
undanþágur frá þessu jyegar ekið er á
sértöxtum á tímabilinu 1. okt. til 1.
mai. Það eru einkum jól og áramót
sem um er að ræða þar. Sama gildir
frá kl. 17 á föstudögum til jafn-
lengdar á sunnudögum.
Birgir sagði, að þetta þýddi að
langflestar hinna rúmlega 600 leigu-
bifreiða yrðu í notkun á þessum
mesta annatíma í stað aðeins hluta
áður. Það eitt nægði þó varla til að
anna mestu eftirspuminni en borgar-
jáðsákvæðið um að skemmtistöðun-
iífc\ væri heimilt að hafa opið til kl.
03 o| að þeim þyrfti ekki að loka kl^
23.30 eins og áður hefur verið, ætti
að hafa það í för með sér að eftir-
spurnin dreifðist á mun lengri tíma.
Er því útlit fyrir að jsetta tvennt,
tillögur nefndarinnar og heimild
borgarráðs þýði að leigubílaskortur-
inn séúr sögunni.
-GAJ-