Dagblaðið - 18.05.1979, Page 3
íþróttir
S Samvinnan
Skemmtistaðir
Borgarnes
Fundur verður haldinn í Sjálfstæðiskvennafélagi
Borgarfjarðar, að Borgarbraut 4, Borgarnesi, 22. mai
kl. 8.30. Dagskrá: Kosning fuiltrúa á þing Landssam-
bands sjálfstæðiskvenna. önnur mál. Mætiðallar.
Fundur um sjávar-
útvegsmál á Dalvík
Sjálfstæðisfélögin í Norðurlandi eystra efna til fundar
um sjávarútvegsmál á Dalvík nk. sunnudag kl. 14.
Frummælendur verða Matthías Bjarnason alþingis-
maður og Vilhelm G. Þorsteinsson, formaður Félags
ísl. botnvörpuskipaeigenda.
Fermingar
Hólskirkja, Bolungarvík
Fermingarbörn i Hólskirkju Bolungarvik, sunnudag-
inn 20. maí, kl. 11.00. Prestun Séra Gunnar Björns-
son.
STtJLKUR:
Arna Gisladóttir, Holtastig 13.
Áslaug Kristinsdóttir, Hjallastræti 19.
Elisabet María Hálfdánardóttir, Hafnargötu 7.
Fanney Karisdóttir, Miðstræd 3.
Fjóla Kristjánsdóttir, Vitastíg 9.
Guðný Eva Birgisdóttir, Miðdal.
Guðrún Margrét Vilhelmsdóttir, Höfðastíg 18.
Inga Maria Ásgeirsdóttir, Hafnargötu 115A.
Kolbrún Ármannsdóttir, Skólastig 18.
Lilja Björg Halldórsdóttir, Hjallastræti 37.
Maria Elfa Hauksdóttir, Miðstræti 17.
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir, Miðstræti 15.
Sólrún Geirsdóttir, Vitastíg 16.
DRENGIR:
Benedikt Níels Óskarsson, Holtastig 16.
Birkir Hreinsson, Hjailastræti 36.
Friðgeir Halldórsson, Hliðarvegi 18.
Guðbjartur Jónsson, Hjallastræti 34.
Heimir Salvar Jónatansson, Völusteinsstræti 36.
Jóhann Arnarson, Höfðastíg 8.
Júlíus Sigurjónsson, Völusteinsstræti 32.
Kjartan Björnsson, Hreggnasa.
ómar Valdemarsson, Völusteinsstræti 22.
Pétur Hlíðar Magnússon, Völusteinsstræti 3.
Sigurður Bjarki Guðbjartsson, Hliðarstræti 22.
Þorsteinn Ingi Hjálmarsson, Skólastig 13.
Ólafsfjarðarkirkja
Fermingarbörn i Óiafsfirði sunnudaginn 20. mai kl.
1030.
Alda Jónsdóttir, Aðalgötu 44.
Axel Pétur Ásgeirsson, HUðarvegi 51.
Björg Guðjónsdóttir, Kirkjuvegi 16.
Grimur Þórisson, Brekkugötu 19.
Hrönn Pétursdóttir, Aðalgötu 36.
Jóna Björk Elmarsdóttir, Kirkjuvegi 18.
Magnús Albert Sveinsson, ólafsvegi 41.
Margrét Hrönn Svavarsdóttir, HUðanegi 67.
María Bára Hilmarsdóttir, Hornbrekkuvegi 13.
Sigfriður Héðinsdóttir, Ægisgötu 4.
Sigmundur Hannes Hreinsson, Aðalgötu 37.
Sigriður Viðarsdóttir, Túngötu 11.
Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Hrannarbyggð 7.
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, HUðarvegi 65.
Sigurlaug Guðjónsdóttir, Ægisgötu 10.
Sverrir Mjófjörð Gunnarsson, HUðarvegi 23.
Sæbjörg Ágústsdóttir, Gunnólfsgötu 12.
Trausti Kristinsson, Aðalgötu 28.
Trausti Þórisson, Bylgjubyggð 16.
Ólafsfjarðarkirkja kl. 13.30.
Aðalheiður Einarsdóttir, Gunnólfsgötu 14.
Björg Traustadóttir, ólafsvegi 23.
Brynhildur Kristinsdóttir, Ægisbyggð 2.
Eggert Bragason, Ægisbyggð 4.
Hrönn Ásgrimsdóttir, Ólafsvegi 13.
%
SIGTUN: Hljómsveitin Galdrakarlar og Diskótekiö
Dollý.
SNEKKJAN: Diskótek.
ÞÓRSCAFÉ: Hljómsveitin Lúdó og Stefán og diskó-
tek.
LAUGARDAGUR
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Gla»ir og Diskótekið
Dísa.
HOLLYWOOD: Debby Kay með diskótekið.
HÓTEL BORG: Diskótek
HÓTEL SAGA: Ragnar Bjarnason í Súlnasal. Mímis-
bar og Stjömusalir opnir.
INGÓLFSCAFÉ: Gömlu dansarnir.
KLUBBURINN: Sturlungar og Kaktus.
LEIKHUSKJALLARINN: Hljómsveitin Thalia og
Anna Vilhjálmsdóttir.
LINDARBÆR: Gömlu dansamir.
ÓÐAL: Brenda Lec meðdiskótekið.
SIGTUN: Hljómsveitin Galdrakarlar og diskótek.
Bingókl. 15.
SNEKKJAN: Hljómsveitin Meyland og diskótek.
ÞÓRSCAFÉ: Hljómsveitin Lúdó og Stefán og diskó-
tek.
HREYFILSHUSIÐ: Gömlu dansarnir í kvöld.
SUNNUDAGUR
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glassir og Diskótekið
Dísa.
HOLLYWOOD: Debby Kay með diskótekiö. Villi
Þór sýnir klippingar kl. 22.
HÓTEL BORG: Gömlu dansamir.
HÓTEL SAGA. Ragnar Bjamason og hljómsveit i
Átthagasal. Opið á Mimisbar og í Stjörnusal.
KLUBBURINN: Diskótek og fleira.
LEIKHUSKJALLARINN: Hljómsveitin Thalia og
•Anna Vilhjálmsdóttir.
.ÓÐAL: Brenda Lee með diskótekið.
SIGTUN: Lokaö.
SNEKKJAN: Lokað.
ÞÓRSCAFÉ: Hljómsveitin Lúdó og Stefán og diskó-
tek.
Sigurdur Thoroddsen
DB-mynd: Ragnar.
Félag ráögjafarverk-
fræðinga útnefnir
Sigurð Thoroddsen
verkfræðing sem
heiðursfálaga
Á aðalfundi Félags ráðgjafarverkfræðinga 26. apríl sl.
tilkynnti stjórnin að hún hefði einróma útnefnt Sigurð
Thoroddsen verkfræðing heiðursfélaga félagsins. Sig-
urður Thoroddsen er fasddur að Bessastöðum 4. júlí
1903, sonur hjónanna Skúla Thoroddsen ritstjóra og
alþingismanns og Theodóru Thoroddsen. Hann lauk
prófi i byggingarverkfræði í Kaupmannahöfn árið
1927. Árið 1932 setti hann á laggimar eigin verk-
fræðistofu og starfar hún enn sem elzta og jafnframt
stærsta verkfræðistofa landsins, nú sem hlutafélag
undir nafninu Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen
hf. Sigurður átti drýgstan þátt að stofnun Félags ráð-
gjafarverkfræðinga árið 1961 og var formaður þess til
ársins 1967. Þessir drættir úr æviferlisskrá Sigurður
vógu þyngst er stjóm FRV tók ákvörðun um að
heiðra hann sérstaklega en hann hefur vlðar markað
spor i sögu verkfræðingastéttarinnar og þjóðarinnar,
enda nær fjölhæfni hans allt frá ströngustu kröfum
reiknimeistarans til fínustu drátta listamannsins eins
og það mun hafa verið orðað á aðalfundinum.
SKAFTFELLINGUR
Þættir úr Austur-Skaftafellssýslu
Þaö hefði þótt saga til nacsta bæjar fyrir svo sem ára-
tug, ef frést hefði af karlmanni á snyrtistofu. En tim-
arnir breytast, og nú eru karlmcnn sem óðast farnir að
hugsa um útlitið, passa línumar, fá sér krullur í hárið
og jafnvel láta snyrta sig á stofum. Vikan fékk Helga
Pétursson, blaðamann, i lið með sér og lagði leið sina
á snyrtistofu Bentínu til þess að kynna karlmönnum
rækilega, hvaða þjónustu þeir geta notfært sér á
snyrtistofum.
Myndlista- og handiðaskólinn er fertugur um þessar
mundir, og af því tilefni er birt örstutt yfirlit yfir sögu
skólans. Einnig eru myndir af vinnu nemenda annars
árs, en þeir mótuðu gipshöfuð hver af öðrum, og geta
lesendur spreytt sig á að þekkja, hver á hvaöa höfuð.
Knattspyrna
FÖSTUDAGUR
FELLAVÖLLUR
Leiknir — KR, 2. fl. A.kl. 20.00.
BREIÐHOLTSVÖLLUR
IR — Fylkir,4. fl. A.kl. 19.30.
LAUGARDAGUR
Armannsvöllur
Armann — Þróttur, 3. fl. A, kl. 15.30.
Armann — Þróttnr, 3. fl. B, kl. 16.40.
KR VÖLLUR
KR — Leiknir, 3. B. A.kl. 16.30.
ÞRÓTTARVÖLLUR
Þróttur — Ármann, 4. n. A, kl. 13.30.
Þróttur — Ármann, 4. n. B, kl. 14.40.
FELLAVÖLLUR
Leiknir — KR, 4. n.A.kl. 13.30.
Leiknir — KR, 4. 0. B,kl. 14.40.
VlKINGSVÖLLUR
Vikingur — Valur, 4. f! A, kl. 13.30.
Víkingur — Valur, 4. n. B, kl. 14.40.
ÁRMANNSVÖLLUR
Ármann — Þróttur, 5. n. A, kl. 13T30.
Ármann — Þróttur, 5. n. B, kl. 14.30.
Sumarið sem var heitir ný framhaldssaga, sem gerist í
síðari heimsstyrjöldinni. Er sagan ekki sist merkileg
fyrir þær sakir, að höfundurinn, Sarah Patterson, var
aðeins fjórtán ára, þegar hún skrifaði hana.
Þar sem grasið grær og Mafían hlær nefnist grein um
eiturlyfjahring, sem bandarísk yfirvöld Qiga nú i höggi
við. Ævar R. Kvaran skrifar um íslenska huglækninn,
Jónínu Magnúsdóttur. Jónas Kristjánsson skrifar um
Bordeauxvín. Og Guðfinna Eydal, sálfræðingur,
skrifar um slys á börnum í heimahúsum.
Smásaga er eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson. Birtar
eru litmyndir af þrenns konar hárgreiðslu, sem Helga
Jóakimsdóttir sér um, litið er inn á árshátíð starfsfólks
Flugleiöa, og Skúli Hansen, matreiðslumeistari. sýnir
tilreiðslu kryddleginna grísarifja.
400 manns vKS
skólauppsögn Yamaha
Fyrir skömmu var Orgelskóla Yamaha í Reykjavík
slitið. Þetta er sjötta starfsár skólans og var fjölmenni
viö skólaslitin. Skólastjóri er Guðmundur Haukur
Jónsson og kennari með honum Sigurbergur Baldurs-
son.
Kennt er á fjórum stigum og við skólauppsögnina
léku nemendur fyrir gesti. Fjórir luku burtfararprófi i
orgelleik eftir fjóröa stig.
Kvenfélag Keflavíkur
Námskeið í að smyrja brauð verður haldið í Tjarnar-
lundi dagana 21., 22. og 23. maí kl. 8— 10 e.h. Áskrift-
arsimar 1780 og 2393. Kennari Axel Jónsson.
kennslugjald kr. 2500.
Heiðursfélagar Ljósmæðrafélagsins o.fl. fró vinstri: Þórdis Ölafsdóttir, Sigurbjörg J. Jónsdóttir, Jóhanna
Margrét Þorsteinsdóttir, Pólmi Guðmundsson (sonur Jensínu Óladóttur) og Sigriður Pétursdóllir, sonardótlir
Haralds Pélurssonar.
Ljósmæðrafélag
íslands 60 ára
Saga féiagsins og stéttartal Ijósmædra væntanlegt I
haust
Ljósmæðrafélag íslands hélt hátíðlegt 60. afmæli sitt,
jafnframt aðalfundi 1979, að Hótel Esju 2. mai sl. j
Ljósmæður eru fyrsta stétt íslenzkra kvenna i opin-
beru starfi.
t tilefni af 60 ára afmælinu gefur félagið úr ritverkið
Ljósmæður á tslandi sem er stéttartal Ijósmæöra frá
1761—1978 og 60 ára saga félagsins em Helga
Þórarinsdóttir sagnfræðingur hefur skráð. Auk þess :
verður í ritinu ritsmíð, Barnsburður, sem Anna!
Sigurðardóttir hefur skrifað. Er það margvislegur
fróðleikur sem gefur sérstaka þjóölifsmynd. Ritnefnd .
vinnur nú ásamt ritstjóranum, Björgu Einarsdóttur,
kappsamlega aö þvi að ritið geti komiö út í haus.
Á afmælishátiðinni var Haraldur Pétursson gerður
að heiðursfélaga Ljósmæörafélags tslands en sakir
lasleika Haralds veitti sonardóttir hans, Sigríður,
Pétursdóttir, heiðursskjalinu viðtöku.
Fjórar Ijósmæður voru geröar heiðursfélagar á
afmælisfundinum:
Jensina Óladóttir, Bæ i Víkursveit á Ströndum, sem
hefur verið umdæmisljósmóðir í 50 ár.
Jóhanna Margrét Þorsteinsdóttir, hún hefur starfað
sem Ijósmóðir samfellt í 40 ár, bæði í umdæinum og
um árabil á fæðingardeild Landspítalans.
Sigurbjðrg JúHa Jónsdóttir, sem hefur verið starfandi
Ijósmóðir á fjórða áratug og um tíma yfirljósmóðir á
fæðingardeild Landspitalans.
Þórdis Ólafsdóttir, en hún á 40 ára Ijósmóðurstarf að
baki og var í 25 ár gjaldkeri félagsins. Jensina komst
ekki til afmælisfagnaðarins. Hún var bundin Ijós-
móðurskyldum í afskekktu héraði. Sonur JEnsinu,
Pálmi Guðmundsson, tók á móti heiðursskjali móður
sinnar.
Núverandi stjórn Ljósmæðrafélags lslands er þannig
skipuð:
Steinunn Finnbogadóttir formaður, Dóra Sigfúsdóttir
varaformaður, Sigurbjörg Guðmundsdóttir ritari,
Anna Ástþórsdóttir, gjaldkeri, Hulda Þórarinsdóttir,
Margrét Sigmonsdóttir og Sólveig Matthíasdóttir.
FÖSTUDAGUR
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir og Diskótekið
Disa.
HOLLYWOOD: Debby Kay með diskótekið.
HÓTEL BORG: Diskótek.
HÓTEL SAGA: Opið í Stjömusal. Gunnar Axelsson
á Mímisbar. Samvinnuferðir — Landsýn í Súlnasal.
INGÓLFSCAFÉ: Gömlu dansamir.
KLUBBURINN: Hljómsveitirnar Sturlungar og
Kaktus.
LEIKHUSKJALLARINN: Hljómsveitin Thalía og
Anna Vilhjálmsdóttir.
ÓÐAL: Brenda Lee með diskótekið.
Skaftfellingur
Þættir úr Austur-Skaftafellssýslu, er kominn út í
fyrsta sinn. Otgefandi er Austur-Skaftafellssýsla. I rit-
inu eru annálar hreppanna I sýslunni, grein um hlut-
verk sýslufélaga auk Ijóða og þjóðlegs fróðleiks.
VÍKAN, 20 TBL
Samvinnan
3. tbl. á þessu ári er komið út. Forystugrein blaðsins er
um að 500 milljónir barna skorti hreint vatn. Rætt er
við Val Arnþórsson, kaupfélagsstjóra á Akureyri, frá-
sögn er af vestur-íslenzkri konu, önnu Geir, grein er
um Ljóðasafn Sigurðar Sigurðssonar frá Arnarholti,
sögukafli um samvinnufélag á Vopnafirði á nítjándu
öld, sagt frá aðalfundi Samvinnubankans auk þess
sem sögur og krossgáta eru í blaðinu.
Skemmtistaðir höfuðborgarinnar eru opnir til kl. 1
e.m. á föstudag, 2 e.m. á laugardag og 1 e.m. á sunnu-
dag.
KR-VÖLLUR
KR — Leiknir, 5. fl. A,kl. 13.30.
KR — Leiknir, 5. fl. B, kl. 14.30.
KR — Leiknir, 5. fl. C,kl. 15.30.
ÁRBÆJARVÖLLUR
Fylkir — ÍR, 5. fl. A, kl. 13.30.
Fylkir — IR, 5. fi. B,kl. 14.30.
Fylkir — IR, 5. fl. C,kl. 15.30.
VALSVÖLLUR
Valur — Vikingur, 5. fl. A, kl. 13.30.
Valur — Vikingur, 5. fl. B, kl. 14.30.
Valur — Vikingur, 5. fl. C, kl. 15.30.
2. deild
FÖSTUDAGUR
SELFOSSVÖLLUR
Selfoss—Magni kl. 20.
SANDGERÐISVÖLLUR
Reynir — FH kl. 20.
LAUGARDAGUR
ESKIFJARÐARVÖLLUR
Austri — Þór kl. 16.00.
KÓPAVOGSVÖLLUR
UBK-lBt kl. 14.
LAUGARDALSVÖLLUR
Fylkir — Þróttur kl. 14.
Ingi Aðalsteinn Guðnason, Hliðarvegi 18.
Kristin Anna Gunnólfsdóttir, Hrannarbyggð 13.
Kristín Jónina Gisladóttir, Gunnólfsgötu 8.
Lilja ólöf Sigurðardóttir, Hrannarbyggð 19.
Magnús Gunnarsson, Túngötu 9.
Sigrún Konráðsdóttir, Burstabrekku.
Þórleifur Gestsson, Hrannarbyggð 6.
Kvíabekkur
Ferming að Kvíabekk, hvítasunnudag 3. júnf kl 11.00.
Fróðný Pálmadóttir, Karlsstöðum.
Rebekka Cordova, Vermundarstöðum.
Rögnvaldur Axel Sigurðsson, Kviabekk.
Patreksfjöröur
STOLKUR
Anna Berglind Jóhannesdóttir, Aðalstræti 55.
Arnfriður Thorlacius Pétursdóttir, Hjöllum 9.
Bjarnfríður Elin Karlsdóttir, Sigtúni 11.
Björk Kristjánsóttir, Túngötu 18.
Guðrún Lcifadóttir, Hjöllum 11.
Helga Fjeldsted, Aðalstræti 72.
Kristín Elfa Ingólfsdóttir, Urðargötu 22.,
Stefania Heiðrún Árnadóttir, Strandgötu 7.
DRENGIR:
Ari Hafliðason, Mýrum 1,
Árni Þorkelsson, Aðalstræti 79.
Halldór Kristján Snorrason, Aðalstræti 83.
Helgi Rúnar Jónsson, Mýrum 3.
óskar Hörður Gislason, Hjöllum 25.
Páll Rúnar Ólafsson, Brunnum 11.
Ýmislegt
Skósýning.
verður haldin í húsi KFUM og -K að Langagerði 1,
dagana 16.—24. maí. Skósýning þessi er ætluð skó-
kaupmönnum og eru allir skókaupmenn velkomnir.
Fortuna AS Bakkens Skofabrik í Noregi stendur
fyrir sýningunni sem er viðamikil. Jafnframt verða
sýndir skór frá öðrum verksmiöjum í öðrum löndum,
t.d. Finnlandi, Danmörku, Italíu, Austurríki og Finn-
landi.
Sýningin er opin alla daga frá kl. 14—22.
Hreinsunardagur
í Breiðholti
Framfarafélag Breiðholts, lþróttafélagið Leiknir,
Kvenfélagið Fjallkonur, Skátafélagið Hafernir og
Junior Chamber halda almennan hreinsunardag i
Fella- og Hólahverfi laugardaginn 19. mai frá kl. 10
f.h.tilkl. 17. e.h.
Gatnamálastjóri hefur útvcgaðfélögunum poka undir
rusl til að auðvelda fólki að losna við rusl af lóðum
sinum og opnum svæðum ásamt þvi góða framlagi að
sjá um brottfiutning á rusli því er safnast saman. Nán-
ari upplýsingar eru veittar i Fellahelli laugardaginn
19. maí og i síma 72229.