Dagblaðið - 05.06.1979, Blaðsíða 34
I
■
\ *
DAGBLADID. ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 1979.
Fyrir framan og utan Pompidousafnið á Signubökkum er jafnan lif og fjör, eins og snemma i vor,
þegar DB-konan Anna Theodors í París tók þessa myndasyrpu. París er stöðug veizla, er haft eftir
Hemingway, þar iðar allt af lifi. Sumir spila, aðrir syngja eða dansa, sumir hetla — margir drekka dálítið
rauðvin — og enn aðrir spúa eldi.
Það er eins gott að einbeita sér — það er betra i svona kúnstum að gripa réttum meg-
in i kyndilinn. I dósina fyrir aftan hygla vegfarendur götulistamanninn.
Götuleikhús er lifandi listgrein í Paris —
eins og reyndar i fleiri borgum Evrópu
— og frægir eru Frakkar fyrir góða lát-
bragðsleikara.
X H
Þessi heiðursmaður var mjög
nálægt tveimur metrum á hæð, þandi
spilakassa og var með apa og ógn-
vekjandi hund I bandi. Þeir eru
ófeimnir við að vekja athygli vegfar-
enda á ýmsum skondnum hliðum
lifsins, boða heimsendi eða nýtt og
bjart líf — eða vinna sér fyrir súpu-
skál, banana handa apanum og hálfu
nauti fyrir hundinn.
<f
Gjörið svo vel, samborgarar góðir,
hlekkjið mig fastan — ég skal vera
laus eftir þrjár minútur. Ef framlög
verða aukin skai ég ekki verða nema
tvær minútur.
i