Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 09.06.1979, Qupperneq 2

Dagblaðið - 09.06.1979, Qupperneq 2
2 /■ Skylda að af- nema verk- fallsréttindi Páll H. Árnason, Vestmannaeyjum, skrífar: Ég held að varla fari hjá því að flestum íslendingum hafi ofboðið stjómleysið og öfuguggahátturinn í okkar litla þjóðfélagi á undanfömum vikum. Þjóðfélagi sem hefir í sér fólgin öll skilyrði til friðsæls, göfugs og þróttmikils daglegs lífs. Vilji er allt sem þarf Vilji, knúinn manndáð, dreng- skap, festu og óeigingirni. En þegar slíkan vilja vantar, skapast tóm í ein- staklinginn og þjóðlífið. Tóm, sem brátt fyllist af óþurftarkindum, óseðjandi síngirni, rótleysi og lífs- leiða, því lögmálið er óbrigðult: ann- að hvort aftur á bak, ellegar nokkuð á leið. Er hægt að auglýsa öllu meira siðleysi en nú er gert, með kröfum hátekjuhópa, sem landsfeðumir gefa, með ólögum, vald til að fara í hráskinnaleiki með fjöregg þjóðar- innar, atvinnuvegina. Meira öfug- mæli hefir ekki verið uppfundið en þegar talað er um helgan verkfalls- rétt. Verkfallakúgun Beiting þessa réttar sýnir sig að vera ætíð söm og jöfn, að þvinga með ofbeldi fram óraunhæfar kröfur. Það hafa heyrzt ádeiluraddir um eftirgjöfina í flugmannadeilunni. Hvað orsakaði þá eftirgjöf annað en verkfallakúgun sem búið var að beita og átti að margfalda yrði ekki samiö. Blasir ekki svipuð saga við hjá yfir- mönnum farmanna og mjólkurfræð- ingum og víðast hvar sem verkfalls- vopni er beitt. Svo er verið að masa um „frjálsa samninga” undir verk- fallssvipunni. Hverjir stjórna annars íslenzku þjóðfélagi? Eru það samtök bændanna eða ríkisvaldið sem stjórna ófremdarástandinu í mjólkurmálum? Nei, það eru nokkrir tugir mjólkurfræðinga, sem i ímynd- aðri hagsmunabaráttu hika ekki við að valda vinnuveitendum sínum og þjóðfélaginu í heild tugmilljóna tjóni, m.a. með því að þvinga vinnu- veitendur til að stórminnka við sig mjólkurvöruneyzlu, sem líklegt er að haft varanleg áhrif, að nokkru. Verkfallsrétt fyrir silfurpeninga Svipaður er verknaður farmanna í þeirra fölsku hagsmunastreitu. En ríkisstjórnin stritast við að sitja og þegir þunnu hljóði í lengstu lög, enda margyfirlýst stjóm launþega og verk- falla, en ekki þjóðarheildarinnar. DÁGBLÁÐIÐ. LAUGARDÁGUR 9' JÚNÍ 1979. Frá Reykjavlkurhöfn. Bréfntari vill afnema verkfallsrétt launamanna og skirskotar m.a. til kjaradeilu farmanna og atvinnu- rekenda máli sínu til stuðnings. DB-mynd Sv.Þ. Jafnvel gekk hún svo langt að selja BSRB aukinn verkfallsrétt fyrir þrjá silfurpeninga og það varð henni mikill þyrnir í augum þegar aðrir riftu þeim gjörðum. Þannig leikur hún sér að því fjöreggi sem henni er trúað fyrir. Ég hélt, og held, að það sé ein af grundvallarskyldum hverrar ríkisstjómar að beita sér gegn öllum þvingunaraðferðum á þjóðfélagið. Allsherjar kjaradómur Þess vegna álít ég ótviræða skyldu allra sannra landsfeðra að afnema öll verkfallsréttindi, það er bara nauð- vörn fyrir sjálfstæði þjóðarinnar, því þeir spara ekki að róa öllum árum eins i barka stéttanna sem skut — og þjóð að beita þrælatökum sámm — að þvinga fleiri (og smærri) krónur í sinn hlut. Það yrði óbrotgjam minnisvaröi sérhverri ríkisstjóm er skipaði fastan kjaradóm til umfjöllunar og úrskurð- ar allra kjaradeilna. Til hans gæti hver sérréttindahópur er teldi sig í einhverju hlunnfarinn snúið sér með klögumál sín og fengið leiðréttingu, dæmdist það rétt vera. Slíkt framtak ætti að gerast á fyrsta stjórnarári, svo nokkur reynsla fengist fyrir lok kjör- tímabils. Hygg ég að sú stjóm þyrfti ekki að kvíða kosningaúrslitum. „Ekki sér hann sína menn —svo hann ber þá líka” Helgi Tryggvason skrifur: Þessi vísuorð, sem ég heyrði fyrr- um af vömm ræöumanna, ætla ég vera sögð í gðmlum rímum þá sem sáust lítt fyrir í bardaga og börðu hvern sem fyrir varð sem óðir æru. Það er einmitt þetta sem Magnúsi Jóhannssyni dósent hefur orðið á í grein sinni i Mbl. 15. febr. sl.: „Víta- mín og náttúrulyf.” Hann tekur munninn fullan þegar hann nefnir náttúrulyfin og formælir þeim niður fyrir allar hellur, svo sem þegar hann segir orðrétt í greininni: ,,En hvað þá með náttúmlyfin, hvaða kröfur em gerðar? Því er fljótsvarað. Kröfurnar em yfirléitt litlar sem engar. Verk- smiðjurnar sem framleiða þessar vörur em yfirleitt vanbúnar varðandi hreinlæti og framleiðslueftirlit, hrá- efnin em ódýr, kostnaður við gæða- eftirlit og rannsóknir er enginn og lokaframleiðslan er síðan seld dýru verði o.s.frv.” Hér hlýtur Magnús að vera að beina geiri sínum til þeirra erlendu framleiðenda sem íslenzkir innflytj- endur hafa aðallega skipt við undan- farið árabil og til þessa dags og hann þykist vilja vernda þjóðina fyrir framvegis. En hvílíkur er sá harði dómur sem hann kveður í sömu andrá yfir heil- brigðis- og lyfjavöldum íslands, fyrir að hafa látið líðast að þessi lélegu og heilsu-hættulegu efni, sem hann lýsir þannig í grein sinni, flyttust til lands- ins nú mörg undanfarin ár — einmitt frá þessum framleiðendum erlendum sem hann finnur allt til foráttu fyrir svikastarfsemi. Erlendir framleiðendur þessara næringaraukaefna, hvað segja þeir við framburði M. Jóh. um þá og þeirra störf? íslenzk þjóð þarf að sjá það sem þeir hafa fram að færa um sín störf og starfsaðstöðu og opinbert eftirlit. Ýmislegt fróðlegt er þegar fyrir hendi og þarf að birtast íslenzk- um lesendum. Að lokum í dag: Fyrir mörgum árum skrifaði þekktur læknir háðs- lega grein um það að lesið var á fundi Náttúrulækningafélagsins, sem Jónas Kristjánsson læknir stóð fyrir, sá ágæti heilsubótafrömuður, úr, grein eftir hinn fræga Kellogg. Og til- efni háðsins var það að ólærður maður í læknisfræði á þeim tima, bara veðurfræðingur, eins og getið var um í greininni, tók að sér þennan lestur, rétt eins og leikmaður hefði þarna hrifsað til sín læknishlutverk með því að lesa upp grein eftir lækni! Hvar er hjólið? Móðir hringdi: Ég vil beina því til foreldra að þeir aðgæti hvort i fórum barna þeirra sé að finna reiðhjól sem þau ekki eiga. Hjólið sem um er að ræða var tekið við Sundhöllina við Barónsstíg laugardaginn 2. júní á milli kl. 16.30 og 17.30. Þetta er blátt drengjareið- hjól af Chopper gerð. Ég mælist til þess að hjólinu verði skilað réttum eiganda. DB tekur við upplýsingum um týnda hjólið. /

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.