Dagblaðið - 09.06.1979, Page 8
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979.
Krossgáta
j) iFegurðar-
s
</)
</>
s
</>
3
(S
</)
B
(/>
U -4 VO 43 u. ct: X Q: u $ O £ X *
u O X X VQ X 45 fí) 4) VD •s: X
vo -4 -x co o: -4 • 43 4 ■4 <4 4) 45 X.
pt h- q; Ci -4 u: 45 V u '4 X X
•> cc VO V o; U V 04 •sc <C c: 4 Qc a;
q: tQ :v o: u o CC vn 4 X X u
- CQ .o cr: X V co q: U X 4) 4 Xj q: U •4
U o ÍC q: •X 4 4 <4 U
Pi <5; o Qc o: 4j 4) X * * o U X
■4 u iv; p: V U; R) c: u X O q:
cj: k U 0 vn S 4) U -- X q: 4 X X 4 X
vo u 4) Ui u X > X 5/ X Q;
• X CC? 0) u \ 45 X
verðlaun
Kínverji vann Gligoric íBled
Á fyrstu áratugum 20. aldarinnar
var mikið lagt upp úr listrænu gildi
skákarinnar. Á öllum helstu skák-
mótum þeirra tíma voru veitt verð-
laun fyrir fegurstu skákirnar, oft
fjölmörg á sama móti. Sá siður að
veita fegurðarverðlaun er enn við lýði
og á að sjálfsögðu sinn þátt í því að
espa skákmenn upp til glæsilegra
afreka. Það er nokkuð mismunandi
hve veitt eru mörg verðlaun á sama
móti og svo er auðvitað mjög mis-
jafnt hvers konar skákir hljóta þau,
því ekki hefur öll dómnefndin sama
smekk. Líklega er algengast að glæsi-
legar fórnarskákir hljóti fegurðar-
verðlaun, enda eru þær við allra
hæfi. Aðrir telja þó einfaldlega að
„best teflda skákin” eða sú „heil-
steyptasta” eigi að hljóta hnossið.
Um þetta má lengi deila, enda eru
þessar skákir allar fagrar á sinn hátt.
Einfaldasta lausnin á þessum
vanda virðist vera að veita mörg mis-
munandi verðlaun, svo sem verðlaun
fyrir fallegustu fórnarskákina, bestu
skákina, heilsteyptustu skákina,
verðlaun fyrir besta endataflið, bestu
lokaatlöguna o.s.frv. Spánverjar
hafa verið mikið fyrir að veita slík
aukaverðlaun og virðist það hafa
gefist vel. E.t.v. freistast skák-
meistarar til að „tefla fyrir fegurð-
ina”, eins og sagt er. Það gerir það
að verkum að skákirnar verða líflegri
en ella og minna um hin hvimleiðu
stórmeistarajafntefli, sem allir áhorf-
endur hata eins og pestina. Önnur að-
ferð til að forðast jafntefli er að
borga keppendum fyrir hverja skák
og þá meira fyrir tap en jafntefli, en
það var m.a. gert á síðasta Reykja-
víkurskákmóti. Ekki má gleyma að-
ferðinni sem felst í styttingu umhugs-
unartímans. Hún virðist þó hafa
þann annmarka að í stað jafntefla
koma afleikir, en ekki fegurð eins og
í fyrstnefnda tilfellinu.
Á Skákþingi íslands hefur löngum
tíðkast að veita ein fegurðarverðlaun
og er vonandi að sá siður leggist ekki
af. Verðlaunaafhending fyrir Skák-
þingið fór fram fyrir rúmum tveimur
vikum og var þá kunngert hvaða skák
var fegurst talin. Dómnefndin, sem
skipuð var þeim Guðmundi
Sigurjónssyni, Guðmundi Ágústsyni
og Margeiri’ Péturssyni, komst að
þeirri niðurstöðu að hinn ungi og
efnilegi Jóhann Hjartarson skyldi
hljóta viðurkenninguna fyrir skák
sína gegn íslandsmeistaranum
Ingvari Ásmundssyni. Ég er fyllilega
sammála dómnefndinni. Jóhann
tefldi þessa skák mjög vel og gaf
hvergi eftir. Segja má að þetta sé
„heilsteyptasta skák Skákþings
íslands 1979”:
Hvítt: Ingvar Ásmundsson
Svart: Jóhann Hjartarson
Sikileyjarvörn.
1. e4 cS 2. Rf3 e6 3. c3 d5 4. e\d5
Dxd5 5.d4 Rc66. Be2
Betra er 6. Ra3, því ef 6. — cxd4?
þá7. Rb5! Dd8 8. Bf4!
6. — Rf6 7. 0—0 cxd4 8. cxd4 Bc7
9. Rc3 Dd6 10. Bg5
Stöður þar sem annar aðilinn hefur
stakt peð á miðborði hafa mikið
verið rannsakaðar, enda eru þær
mjog algengar. Venjulega hefur sá
aðilinn sem situr uppi með veikleik-
ann dágóð sóknarfæri fyrir og
virkari stöðu mannanna. i þessu til-
felli er frumkvæði hvíts þó lítið og
veldur þar mestu slæm staða biskups-
ins á e2, sem væri mun betur stað-
settur á d3, eða jafnvel c4. Á e2
stendur hann einungis í vegi fyrir
hvítu mönnunum og hindrar að hann
geti notfært sér hina hálfopnu e-linu,
með Hel eða De2. Leikur Ingvars er
líklega ekki sá besti í stöðunni. Þekkt
framhald er 10. Rb5 Dd8 II. Bf4 Rd5
12. Bg3 og staðan er i jafnvægi.
10. — 0—0 11. a3 b6 12. Dd3 Bb7.
Svartur hefur leyst byrjunarvanda-
málin á öruggan hátt, en hvítur hins
vegar ekki. Menn hans standa illa til
sóknar og hann á því erfitt með að
finna haldgóða áætlun.
13. Hfdl
Athyglisvert framhald er 13. Hadl
Hac8 14. Dc2!! ásamt Bd3 og Hfel.
16.
13. — Hac814. b4?!
14. Hacl ereðlilegraogbetra.
14. — Had8 15. Hacl Db8!
De3?
Drottningin varð að víkja úr skot-
línu hróksins, en bl var betri reitur.
Svartur á nú skemmtilega leikfléttu í
fórum sínum.
16. — Rg4! 17. Df4 Bxg5 18. Dxg5
Hxd4!
Reiðarslagið. Ef nú 19. Hxd4 Rxd4
20. Dxg4, þá 20. — Hxc3! 21. Hxc3
Rxe2+ og 22. — Rxc3. í ljós kemur
að svartur hefur unnið mann.
Riddarinn á f3 er einnig bundinn í
báða skó vegna — Dxh2+ og mát í
næsta leik.
19. Rb5 h6 20. Dh4 Hxdl+ 21.
Hxdl Rf6 22. Rd6 Hd8 23. Rxb7
Hxdl + 24. Bxdl Dxb7.
Svartur hefur unnið peð og þá er
eftir að vinna úr yfirburðunum. Til
þess þarf þó nokkra tækni, ekki hvað
síst ef tekið er tillit til þess að Ingvar
gefst ekki upp fyrr en í fulla hnef-
ana!
25. Dc4 Dd7 26. Ba4 Re5! 27. Rxe5
Dxa4 28. Dd3 Rd5 29. g3 a5 30. b5 h5
31. Df3?
Freistandi, en ekki fullnægjandi.
Eftir 31. h4 getur hvítur barist áfram
til síðasta blóðdropa.
31, —Rf6!
Ingvar hefur e.t.v. vonast eftir 31.
— f6? 32. Dxh5! fxe5 33. De8+ og
jafntefli með þráskák.
32. Da8+ Kh7 33. Rxf7 Dxb5 34.
h4 Dbl + 35. Kh2
Eða 35. Kg2 De4+ og svartur
vinnur endataflið.
35. —Dfl!
Riddarinn á f6 sér um varnir svarta
kóngsins og því getur drottningin
leyft sér að skreppa í heimsókn inn
fyrir víglínuna. Hótunin er 36. —
Rg4 mát!
36. f3 Df2+ 37. Kh3 Dfl+ 38.
Kh2 Df2+ 39. Kh3 Dgl! 40. Rg5 +
Kg6 41. f4.
Þvingað vegna máthótunarinnar á
hl. Nú nær svartur hins vegar að
þröngva fram drottningarkaupum og
knýja fram sigur, því peð meira í
riddaraendatafli ræður oftast nær
úrslitum.
41. — Dfl + 42. Dg2 Dxg2+ 43.
Kxg2 Kf5 44. Kf3 b5 45. Rf7 Re4 46.
Re5 Rd2+ 47. Ke2 Rc4 48. Rc6 Ke4
49. Rd8 Kd5 50. Kd3 Rxa3 51. Rf7
Rc4 52. Rg5 b4 og livitur gafst upp.
Á miklu skákmóti, sem nú stendur
í yfir í Bled í Júgóslavíu, kom það
talsvert á óvart á fimmtudag, að
Kínverjinn Jingxuan sigraði júgó-
slavneska stórmeistarann Gligoric.
Sigraði í 30 leikjum og hafði ekki
áður unnið skák á mótinu.
Úrslitin í umferðinni, sem var hin
fjórða á mótinu, urðu þau að Ivkov,
Júgóslavíu, vann Sahovic, Júgó-
slavíu. Timman, Hollandi, og Ribli,
Ungverjalatidi, gerðu jafntefli.
Kuzmin, Sovét, vann Barle Júgó-
slavíu. Bent Larsen, Danmörku og
Jelen, Júgóslavíu, gerðu jafntefli.
Cheskovski, Sovét, vann Maran-
gunic, Júgóslavíu, Quinteros,
Argentínu, vann Parma, Júgóslaviu.
Skák Miles, Englandi, og Marja-
novic, Júgóslavíu, fór í bið.
Eftir 4 umferðir var Quinteros
efstur með 3.5 v. Timman og Larsen
höfðu 3 v. Miles 2.5 og biðskák.
Ribli, Ivkovk, Kuzmin 2.5 v. Parma
og Cheskovski 2 v. Gligoric, Jelen og
Marangunic 1.5 v. Jingxuan 1 v.
Barle og Sanovic engan vinning.