Dagblaðið - 09.06.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 09.06.1979, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979. Krókódílakeppni NHRA: „ Vélin hakkaði skiptinguna í sig” Bill Pryor og Kelly Brown sem spyrntu til úrslita. í startinu byrjuðu báðir bílarnir að spóla og var tvísýnt hvor yrði á undan en svo fór þó að „Over The Hill Gang” grindarbíllinn Browns sigraði. Funny Car f lokkur Það gekk á ýmsu hjá sprenghlægi- legu bílunum svo sem öðrum en þegar tvær umferðir voru eftír voru, svo sem lög gera ráð fyrir, fjórir bílar eftir í keppninni. ökumenn þeirra voru Don Prudehomme, Tom Hoover en hann sigraði í vetrarkeppni NHRA, Raymond Beadle og Gordie Bonin. Þeir Prudehomme og Hoover spyrntu fyrst og tók Snákurinn (viðurnefni Prudehommes) strax for- ystu meðan Funny Corvettan hans Hoovers stóð kyrr og spólaði. En heppnin var með Hoover. Snákurinn lenti á hálum bletti á brautinni og misstí bílinn þversum. Meðan Snákurinn barðist við að rétta bíl sinn af skaust Hoover fram fyrir hann og hélt forystunni tíl enda. Síðan spyrntu þeir Beadle og Bonin. Beadle náði strax góðu forskoti en þegar hann var kominn langleiðina eftir brautinni bilaði skiptingin í bíln- um hans og geystist Bonin fram úr honum rétt áður en bílarnir rufu ljós- geislann í enda kvartmílunnar. Úrslitaspyrnan var því milli Tom Hoovers og Gordie Bonins. Urslitin réðust strax á fyrstu metrum keppnis- brautarinnar þegar Funny Corvettan hans Hoovers byrjaði að spóla. Funny Trans Aminn hans Bonins náði hins vegar góðu gripi og sigraði auðveldlega. Meðaltíminn í fjórum síðustu spyrnun Bonins var 6.82 sek. sem er ekkert til að monta sig af, en i kvartmílukeppnum er aðalatriðið að verða á undan yfir endalínuna og skiptir þá ekki máli þótt tími and- stæðingsins sé betri, ef hann rýfur Ijósgeislannáeftír. önnur stórkeppni bandaríska kvartmílusambandsins (NHRA), Gatomationals, var haldin í Gains- ville í Florida dagana 8. tíl 11. marz síðastliðinn. Veðrið var alveg fyrsta flokks, glaðasólskin og hlýindi alla keppnisdagana. Floridabúar þurfa sjaldan að kvarta undan veðrinu og er jafnt á komið með þeim og Akur- eyringum sem segjast alltaf hafa gott veður. Þessi keppni var sú tíunda í röðinni sem haldin er í Gainsville en þar er öll aðstaða tU fyrirmyndar. Þó má setja út á eitt og það er yfirborð keppnisbrautarinnar, en það er orðið gamalt og sUtið. Áttu margir kepp- enda í erfiðleikum með að ná góðu gripi og misstu þeir bílana oft upp í spól. Forþjappan sprengdi upp, eldsneytistankurinn sprakk f tætlur og logarnir frá eldfimu nitromethan elds- neytinu umluktu bflinn. Aðstoðarmennirnir voru fljðtir tii og slökktu eldinn. Sem betur fer var Tom McEwan með varaeldsneytistank með sér og stuttu seinna hélt hann keppninni áfram. inni að Chrysler bUarnir réðu lögum og lofum í Pro Stock fiokki. Eini bíll- inn sem veitti þeim einhverja keppni var Small Block Camaroinn hans Bill Jenkins. Urslitaspyrnan var milli þeirra Chryslermanna Ronnie Sox og Bob GUddens. Glidden keppti á Ply- mouth Arrow en Sox á Dodge Omni. Báðir voru þeir félagar með Small Block Mo par vélar í bUum sínum. Bob GUdden var ekki á þeim buxun- um að láta í minni pokann og vann hann spyrnuna auðveldlega. Og ekki nóg með það, heldur bætti hann heimsmetið i Pro Stock flokki og fór kvartmUuna á 8.48 sek. Jóhann Kristjánsson Top Fuel flokkur Don GarUts, gamla kempan, keppti nú á heimabraut en þrátt fyrir dyggan stuðning áhorfenda gekk honum ekki vel. Hann rétt náði að komast í aðalkeppnina og í annarri umferð hennar tapaði hann fyrir Bob Bruins og féll úr keppninni. En það voru fleiri góðir bílar sem féllu fljótt úr keppninni og má þar nefna öku- menn eins og Dave Uyehara, Clayton Harris og frú Shirley Muldowney. Fr. Muldowney stóð sig að vanda vel og átti hún besta tíma keppninnar. Fór hún kvartmUunaá 5.89 sek. Þegar tvær umferðir voru eftir voru fjórir sterkir bUar eftir í keppn- inni. ÚrsUtin réðust mikið af heppni, og því hversu hægri brautin var miklu betri tn sú vinstri. Bill Pryor sigraði Johnny Abbott þegar Jet-X Special grindarbUl þess síðastnefnda byrjaði að spóla. Kelly Brown lenti í sömu vandræðum og Abbott þegar hann spyrnti við Bob Bruins. En heppnin var með KeUy Brown því að vélin í bU Bruins hakkaði skiptinguna í bílnum í sig svo að hann komst aldrei brautina á enda. Það voru því ðob Glidden hefur nú þegar tekið mikla forystu í stigakeppni NHRA en hann hefcr sigrað i fyrstu tveimur stórkeppnum keppn- istimabilsins. Það virðist sem öðrum keppendum muni ekki takast að nálgast Plymmann hans, en eina von Chevrolet manna er að Bill Jenkins fái sér Citation og reyni að ná f skottið á honum með þvi móti. Þegar gúmmi- reyknum hafði létt kom I Ijós að það var Gordie Bonin sem stóð með pálmann í höndun- um, sigurvegari í Funny Car flokki. Pro Stock f lokkur Keppendur í Pro Stock bættu aUir tíma sína úr vetrarkeppninni og þar með taUnn sigurvegarinn, Bob Glidden, keppinautum hans til mikUs ama. Það fór eins og í vetrarkeppn- Það var algeng sjón að sjá bilana með logandi afturdekkin, en yfirborð keppnisbrautarinnar var hált og misstu margir keppendanna bila sína upp i spól. Hér sést einn úr Top Fuel flokki, Bill Pryor, með gúmmfrcykstrók á eftir sér.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.