Dagblaðið - 09.06.1979, Síða 17

Dagblaðið - 09.06.1979, Síða 17
17 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979. BEIRA SEINT EN AIDRB —það tók Francis Coppola 4 ár að f ullgera Vfetnam mynd sína Apocalypse Now sem verðurfrumsýnd íhaust Atriði úr Apocalypse Now. Bandarískar þyrilvængjur gera árás á þorp i Vietnam. Fáir atburðir hafa á undanfömum áratugum markað dýpri spor í banda- riskt þjóðlíf en Víetnam-stríðið. Það er því furðulegt hve til skamms tíma lítið hefur verið fjallað um þennan kafla í sögu þjóðarinnar, t.d. í kvik- myndum, sjónvarpi og bókarformi. Það var ekki fyrr en með Óskars- verðlaunamyndunum Coming Home og síðar The Deerhunter að banda- ríski kvikmyndaiðnaðurinn viður- kenndi Víetnam-striðið sem kvik- myndaefni en áður var það algert bannefni. Að visu komu fram örfáar myndir eins og The Green Berets og The Boys in Company C, sem hurfu fljótlega af sjónarsviðinu. Segja má að Coming Home hafi rutt brautina því í kjölfar hennar fylgdu sjónvarps- myndir eins og Friendly Fire, leikrit (Dispatches) og bækur sem reyndu að kryfja Víetnam-stríðið. Coming Home fjallar raunar um þá hlið stríðsins sem hinn almenni borgari varð mest var við, þ.e. þann fjölda hermanna sem sneru til baka frá Víet- nam líkamlega og andlega sjúkir. The Deerhunter lýsir aftur á móti meira atburðunum í Víetnam. Hættuleg sendiferð Þegar þetta er haft í huga sést hve gífurlegt átak þurfti til þegar Francis Ford Coppola hóf fyrir fjórum árum gerð myndar sem hann sagði að lýsti stríðinu í Víetnam á raunhæfan máta. Þessi fjögur ár hafa verið viðburðar- og lærdómsrík fyrir Coppola því flest hefur farið úr- skeiðis sem áannað borð gat farið úr- skeiðis. Apocalypse Now er lauslega byggð ásögu Joseph Conrads „Heart of Darkness”. Myndin fjallar um Captain B.L. Williard sem fær það verkefni að ráða af dögum með leynd Col. Walter Krutz (Marlon Brando), sem hefur sest að og komið sér upp sínum eigin her, sem samanstendur af innfæddum, dálítið fyrir innan landamæri Kambodíu. Myndin fjallar um þessa sendiför og svaðil- farir sem Williard lendir í á leið sinni upp fljótið til bækistöðva Krutz. Inn í þessa mynd tengist síðan beint og óbeint stríðsrekstur Bandaríkja- manna í Víetnam. Gömul hugmynd Hugmyndin að Apocalypse Now er raunar ættuð fráárinu 1967, þegar John Milius hóf að skrifa handritiö að myndinni en þá var Warner Bros. framleiðandi og George Lucas átti að leikstýra. En efnið þótti of viðkvæmt og öllu drasUnu var stungið undir stól þar sem það lá í nær sjö ár. Þá haði Coppola stofnað nýtt fyrirtæki sem bar nafnið Cinema-7 og átti Apocalypse Now að vera fyrsta mynd þess. Hann hóf undirbúning af fuU- um krafti og leitaði samstarfs við Kvik myndir Baldur Hjaltason svo ákveðið var að kvikmynda myndina utan Bandaríkjanna. Gerðir voru samningar við stórstjörnur á borð við Steve McQueen, Marlon Brando og Gene Hackman. Sakir þess hve lengi dróst að hefja mynda- tökuna og hve áætlaður tími var langur endaði Coppola aðeins með eina stórstjörnu, sem var Marlon Brando. Þess í stað ákvað hann að ráða tiltölulega óþekkta leikara í flest hlutverkin. Þegar kvikmyndatakan hópurinn í miklum vandræðum, m.a. eyðUagði hvirfUbylur nær allar byggingar sem höfðu verið reistar vegna myndarinnar. Kostnaðurinn hlóðst upp enda myndin þegar orðin rúmlega tveimur árum á eftir áætlun og hafði farið þrefalt fram úr fjár- hagsáætlun. F. Coppola hafði sjálfur fjármagnað myndina að mestu leyti en nú varð United Artist að hlaupa undir bagga. Sjálfur segir Ford Coppola um ástæðuna fyrir fjár- festingu sinni: „Vegna þess að ég lagði allt mitt undir þá gat ég verið minn eigin herra.” Raunhæf mynd En nú virðist vera farið að sjá fyrir endann á myndinni. Hin skyndi- lega ákvörðun Coppóla að senda myndina á kvikmyndahátíðina í Cannes í mai sl. vakti mikla athygli, ekki síst fyrir það að um vinnueintak var að ræða, þ.e. þótt Coppola sé búinn að eyða á annað ár í klippingu er hann ekki búinn að gera upp hug sinn um hvemig endirinn á að vera. En Coppola kom, sá og sigraði í Cannes. Hann fór þaðan með helming gullpálmans, sem eru æðstu verólaun hátíðarinnar. Dómar um myndina hafa verið mjög lofsamlegir eins og t.d. í Variety og London Evening Standard þar sem myndinni er lýst sem meistaraverki. En tekur myndinni. Hér kemur margt til. The Deerhunter er búin að ganga mjög vel og spurning er hvort fólk vilji sá fleiri myndir frá Víetnam því margir virðast álita að ef þú sért búinn að sjá eina, þá ertu búinn að sjá þær allar. The Deerhunter hefur fengið mikla gagnrýni fyrir að vera einhæf, túlka aðeins aðra hlið málanna og innihalda sterkan tón kynþáttahatur’s. Apocalypse Now er talin taka efnin frá annarri hlið og gera raunhæfari mynd af ástandinu en aðrar myndir sem gerðar hafa verið um Víetnam-stríðið. Sjálfur segir Coppola: „Apocalypse Now er ekki kvikmynd um Víetnam. Hún er Víetnam.” Myndin er tekin á 70 mm breiðfilmu og við kvikmyndatökuna var beitt sérstakri tækni sem tæknilið myndarinnar hannaði og gefur myndinni aukna dýpt. Kvik- myndatökumaðurinn er ekki af verri endanum enda sótti Coppola hann til ítaliu. Er það Vittorio Storaro, sem m.a. hefur kvikmyndað flestar myndir Fellinis. Ætlunin er að setja myndina í almenna dreifingu í haust ef allt gengur samkvæmt áætlun. Raunar kom fram tillaga um að breyta heiti myndarinnar og kalla hana Apocalypse at Last þar sem svo lang- an tima tók að fullgera hana. Síðan á Tónabíó næsta leik, þ.e. hvernær hún kemur til landsins. Þjónusta Þjónusta Þjónusta Byggingaþjónusta Alhliða neytendaþjónusta NÝBYGGINGAR BREYTINGAR OG VIÐGERÐIR y/ REYNIRHF. BYGGINGAFÉLAG SMIÐJUVEG 18 - KÓP. - SlMI 71730 BÓLSTRUNIN MIÐSTRÆTI 5 ViðgerAir og klæðningar. Falleg og vönduð áklæði. 2 OG Sími 21440, heimasími 15507. [SANDBL'ASTUR hfí MELABRAUT 20 HVAUYRARHOITI HAFNARFIRÐI Sandhlástur Malmhuðun Sandhlásum skip. hús ug slærri maninirki Færanleg sandhlástursta'ki hvcrt á lanil sem er Stii’i'sta fyrirtæki landsins, scrhii-fw i sandblæstri. Fljót ug guð þ jónusta. [53917 LOFTPRESSUR Leigjum Út: Loftpressur, JCB gröfur, Hilti naglabyssur, hrærivélar, hitablásara, slipirokka, höggborvélar og fl. REYKJAVOGUR tœkja- og vélaleiga Armúla 28, sfmar 81665, 82715, 44908 og 44887. BIAÐIÐ

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.