Dagblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 1
í
i
I
i
5. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNl 1979 - 130. TBL. RIISTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Vildi Pen-
ingagjá
ekki ís-
lenzka
seðla?
Veskimeð40þúsund
krónumfannstþará
bólakaf i og var skilað til
eiganda
Menn spókuðu sig á Þingvöllum um
hvitasunnuhelgina nú eins og svo oft
áður. Að vonum stöldruðu margir við
Peningagjá og nutu þess að horfa á
gljáandi silfurkrónumar okkar liðast
niður í hyldýpið — ef þær þá ekki féllu
flatar á vatnið og flutu, eins og íslenzka
krónan gerir ein mynta í veröldinni að
sögn.
En gamanið kámaði hjá einum gest-
anna við Peningagjá er hann tók að
handleika seðlaveski sitt og svo illa
tókst til að hann missti það í gjána.
Það varð öldugangur á vatnsfletin-
um er veskið skall niður — og nú flaut
ekkert heldur tók það að síga niður á
við. Sá er missti taldi að ekki þýddi að
syrgja veskið þó í þvi væru 40 þúsund
krónur auk annarra verðmæta.
En Guðs náð hefur lengi hvílt yfir
Þingvöllum og daginn eftir komu
þarna að menn sem freistuðu þess að
kafa í gjána þó köld sé.
Og viti menn. Þeir fundu veskið.
Skilvíslega skiluðu þeir því til lögreglu-
yfirvalda á Selfossi. Og litlu síðar var
veskið með 40 þúsund krónunum aftur
í eigandans höndum. Það var engu lík-
ara en Peningagjá hafi ekki viljað ís-
lenzka seðla.
- ASt.
Verkfalls- og
verkbannsmálin:
Bráðabirgða-
lögræddídag
Gert var ráð fyrir í morgun, að
bráðabirgðalög yrðu rædd á ríkis-
stjórnarfundi í dag. Framsóknarmenn
leggja áherzlu á, að slík lög komi til í
vikunni og bindi þau enda á verkfall
farmanna og hindri verkbann vinnu-
veitenda. Alþýðubandalagið hefur
tekið þessum tillögum líklegar en áður,
en í Alþýðuflokknum eru skoðanir
mjög skiptar.
-HH.
John Wayne
látinn eftir
15ára
baráttu við
krabbann
— sjá erLfréttirá
bls.6og7
menntamálaráðuneyti
Geta f riðað
Bemhöfts-
torfuna
ef þau vilja
■ — sjá bls. 5
Lögeða
réttur?
— kjallaragrein
ábls. lOogll
Foringjamir skýra
úrslit skoðanakönn-
unar Dagblaðsins
Foringjar stjórnmálaflokkanna
sætta sig misjafnlega við niðurstöður
skoðanakönnunar DB. Birgir tsleifur
Gunnarsson telur þær bera vott um,
að sjálfstæðismenn hafi náð árangri
við endurskoðun starfs flokksins og
stefnu, sem farið hafi í gang eftir
kosningaósigurinn í fyrra. ,,Ég tel
þetta sýna stuðning við tillögur
Framsóknarflokksins,” segir Stein-
.grímur Hermannsson og vitnar til til-
lagna flokksins í launa- og efnahags-
málum. „Er tapið ekki mér að
kenna?” spyr Vilmundur Gylfason
og segir, að úr því að honum hafi ver-
ið þakkaður sigur Alþýðuflokksins í
fyrra, megi vafalaust kenna honum
um, þegar illa gengur. Svavar Gests-
son dregur mjög í efa, að Alþýðu-
bandalagið hefi tapað jafnmiklu fylgi
síðustu mánuði og könnunin gefur til
kynna. -HH.
— sjábls.8og9
Að hverju skal huga þegar
regnfötin eru keypt?
— Neytendasíðan bls. 4
J