Dagblaðið - 14.06.1979, Blaðsíða 2
DAGBLADIÐ. FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1979
c
Athugasemd frá
Hjálpræðishemum:
J Einkunnarorð okkar
verður áfram „Blóð og eldur”
G.L. og A.G. skrifa fyrir hönd
Hjálpræöishersins:
Vegna ónógra (rangra) upplýsinga
um skoðun Hjálpræðishersins á
hvítasunnunni i Dagblaðinu föstu-
daginn 1. júní sl. óskum við eftir að
útskýra skoðun okkar á hinum
Heilaga anda og hvítasunnuundrinu
og um nauðsyn þess í lífi sérhvers
kristins manns.
Trúarjátning Hjálpræðishersins, 7.
grein, hljóðar þannig: „Við trúum að
Guðsótti, trú á herra vorn Jesúm
Krist og endurfæðing í hinum
Heilaga anda sé nauðsynleg til þess
að öðlast frelsi.”
Það er ekki hægt að vera án nær-
veru og krafts hins Heilaga anda í
endurlausninni. Sú mesta blessun,;
sem kemur frá Drottni upprisnum, er
nærvera hins Heilaga anda, öllum
mönnum, hvar sem er og hvenær sem
er.
Hinn eilífi andi Guðs hefur alltaf
verið virkur í heiminum. Kenningin
um að Hann „hafi komið” á hvíta-
sunnudag er alls ekki gagnstæð þess-
um sannleika heldur undirstrikar að
Hann, sem hafði verið frá upphafi,
kom þá til mannanna í öllum krafti
sínum. Á þann hátt var andinn
„gefinn” þegar Jesús var dýrlegur
orðinn.” Jóh. 7.39.
Andi Guðs vopnaði, leiddi og vakti
yfir hinum fyrstu kristnu í þjónustu
þeirra. Postulas. 2.4. og 4.29-31.
Hinn Heilagi andi hefur ennþá
sömu áhrif á mannshjörtun og lætur
sig bæði skitpa einstaklinginn og hið
kristna samfélag. Hann kallar ennþá
á, vopnar og setur trúað fólk til þjón-
ustu í hinu kristna samfélagi, því
sjálfu til styrktar. Það kemur skýrt
fram í 1. Korintubr. 12.
Kenning Hjálpræðishersins hefur
ávallt lagt áherzlu á frelsið i blóði
Jesú og á nauðsynina fyrir kraft
Heilags anda í lifi sérhvers kristins.
Einkunnarorð okkar verður áfram
„Blóð og eldur”.
IhVÍTASUNNUGLÐSWÓNUSTA - sjónvarp sunnudagkl. 17.00:
hvítasunnuundriðhefur
ALLTAF ÁTT SER STAÐ
&
—segirÐnar
Gíslason
Vift kollum okkur hvitasunnumenn
. .. na þcss að vift trúum þvi afi hvita-
l.uimuundriö hafi alhaf átt ',aö-
|ckki bara hjá postulunum heldur mum
I þaö alltaf eiga sér staö." sagöi Einar J
I Gislason, en hann mun predika i hvita-
Isunnuguösþjónustunni vem synu
|verðurí sjónvarpinu.
_ ..Þarna má segja aö okkur greim a
Iviö Þjóökirkjuna og Hjálpræöisherinn
|þótt það séu annars ágætis vinir okkar
" . Halldór Gróndal og hans fólk er
W.s r.hvert vmmlU
þessu. .
Viö gerum hins vegar ekkcrt mei.a
mcö hvitasunnuhatiöina cn aðnr
kristnir trúflokkar. Þess. hátiö « fra
þvi á dögum Gamla tesumcntisins cn
jsraelsmenn héldu hana sem uppskeru
hátiö. Þegar kristmn kemur þá s>pin
berast hún og staöfestist einmitt a þcss
ari hátiö," sagöi Einar.
Hann bætti þvl sift aö hvitasunnu
menn yröu mcð ákaflega sandaöa dag-
skrá i þessari guðsþjónustu.
Á samkomunni fer fram skirn.
niðurilýfmgaisklrn cinv o, >
hshasjnnudag og cins og a arinu hwu
eltir aö Þorgeir Ijósvetnmgagoði kvaö
a um jö allir menn skyldu vera kristnir
' ,rua j emn guö, fóöur. son og anda
helgan og þcir skyldu láta skirast: l.n
þar scn Þingsallavatn sar ssokalt lctu
sunnaa og austanmenn sk.rast .
I augarsatni en scslanmenn og norftan
lctu skirast i Reykjalaug i Rcykjadal.
• agft' f'inar aölokuin.
Halldór S-Gröndal. prestur I Gre» I
ássókn. F.inar G.lslason prestur hvlta
sunnumanna segir um llalldór aö hann I
standi n*r hvltasunnumOnnum en aönr |
þjóókirkjuprestar htaó snertir skilning-
inn á hsltasunnuundrinu.
»ú þarft ekki oftar að bregða stækkunargleri yffir litmyndirnar þínar til að
finna Fríðu frænku eða Sigga syndasel.
Glögg mynd er þriðjungi stærri en myndir voru áður fyrr. Hvert atriði
myndarinnar er því einnig þriðjungi stærra og skýrara, gleggra en fyrrum.
Ný framköllunar- og kóperingaraðferð fyrir litmyndir.
Umboósmenn:
Reykjavík: Myndverk, Hafnarstræti 17og
Bókabúðir Braga, Hlemmtorgi og Lækjargötu
Nana snyrtivöruverslun Fellagöröum v/Noröurfell
Árbæjarapótek, Hraunbæ 102
auk fjölda matvöruverslana
Hafnarfjöróur: Sklfan, Strandgötu
Akranes: Verslunín Óðinn
Akureyri: Bókabuöin Huld, Hafnarstræti 97
Bildudalur Kaupfélag Patreksfjarðar, Hafnarbraut 2
Breiödalsvik: Kaupfélag Stööfirðinga
Buöardalun Kaupfélag Hvammstanga
Dalvík: Verslunin Sogn, Goöabraut 3
Djúpivogur: Kaupfélag Berufjaröar
Eyrarbakki: Verslun Guölaugs Pálssonar, Sjónarhóli
Fáskrúöstjöröun Verslunln Þór h.f., Búðarvegi 3
Geröan Þorláksbúð, Geröavegi 1
Hellisandur: Hafnarbúöln Rlfi, Rifsvegi
Hólmavík: Kaupfélag Steingrlmsfjaröai
Húsavik: Skóbúö Húsavfkur
Hveragerði: Kaupfélag Árneslnga útibú
Höfn: Verslunin Silfurberg, Heiöabraut 5
Suðurlandsbraut 20 Sími 82733 22580
Isafjöröur: Nelsti h.f., Hafnarhúsinu Hafnarsfræti 9
Kellavik: Stapafell, Hafnargötu 29
Kópasken Kaupfélag Norður Þingeyinga
Laugarvatn: Kaupfélag Árnesinga
Neskaupstaðun Verslun Hö.skuldarStefánssonar,
Ólafsvik: Verslunin Kassinn, Ólafsbraut
Patreksfjöróun Kaupfélag Patreksfjaröar, Aöalstræti60
Raufarhöfn: Hafnarbúöin h.f., Álfaborg
Reyöarfjöróur: Kaupfélag Héraósbúa
Sandgeröi: Þorláksbúö, Tjarnargötu 1—3
Sauöárkrókur: Bókaverslun Kr. Blöndal, Skagfiröingabraut 9
Selfoss: Kaupfélag Árnesinga, v/Austurveg
Seyöisfjöröun Bókaverslun A. Bogasonarog E. Sigurössonar
Slglufjörðun Verslun Gests Fanndal, Suðurgðtu 6
Stokkseyri: Allabúð
Stykklshólmur: Kaupfélag Stykklshólms, Hafnargötu3
Tálknafjörðun Kaupfélag Tálknafjaröar
Vestmannaeyjar: Stafnes-Miöhús, Bárugötu 11
Þlngeyrl: Verslun Gunnars Sigurössonar, Hafnarstræti 2
Þorlákshöfn: Bóka og Gjafabúðln, Unubakka 4
Ef ekki er umboðsmaóur nálægur, þá má senda filmur i póst til: Gírómyndir'Pósthólf 10 Reykjavík
ÁHÖFNIN Á
WINDRIFT
ÞÁKKAR
FYRIR SIG
Jenny Collingridge skrifar:
Ég undirrituð er formaður á
brezku seglskútunni Windrift sem
fyrir skömmu hvolfdi i fárviðri
skammt frá Vestmannaeyjum.
Bréf þetta skrifa ég til þess að láta í
ljós sérstakt þakklæti mitt og allra
áhafnarmeðlima fyrir þá einstöku
hjálp og gestrisni er við höfum orðið
aðnjótandi af hálfu fjölda íslend-
inga, bæði í Vestmannaeyjum og í
Reykjavík. Einn af félögum okkar
slasaðist illa í þessu sjóslysi og hefur
hann síðan notið frábærrar læknis-
þjónustu og umönnunar á sjúkrahús-
inu í Vestmannaeyjum. Vildum við
því færa læknum og starfsfólki þess
sérstakt þakklæti okkar. Við eigum
vart orð til þess að lýsa þeirri vinsemd
og veglyndi sem alls staðar blasti við
okkur í vandræðum okkar. Maður-
inn minn í Bretlandi naut einnig
ágætrar aðstoðar af hálfu íslenzka
sendiráðsins í London og mér er
ánægja að geta sagt að ég naut einnig
mjög góðrar hjálpar af hálfu brezka
ræðismannsins í Reykjavík.
Sá fjöldi íslendinga, sem veittu að-
stoð sína, er of stór til þess að við
getum þakkað þeim hverjum og ein-
um. Því væri ég yður mjög þakklát ef
þér vilduð birta þetta bréf mitt svo
þeir megi vita hve leitt okkur þykir að
hafa bakað þeim óþægindi og fyrir-
höfn og hve feikilega þakklát við er-
um fyrir frábæra aðstoð þeirra allra.
HVERS VEGNA
EKKI
FULLT NAFN?
Móðir hringdi:
Mig langar til að vekja athygli á
því að hjá Sjúkrasamlagi Reykja-
vikur hefur barn ekki rétt til að halda
fullu nafni á sjúkrasamlags-
skírteinum foreldra heiti það tveimur
nöfnum. Mér finnst það sjálfsagður
réttur að allir geti notað sín fullu
nöfn hvar sem er og hvenær sem er.
En þeir hjá Sjúkrasamlaginu virðast
ekki á sömu skoðun og telja sig ekki
geta orðið við ósk um að skrá börn
með fullu nafni — og það á sjálfu
barnaári.
Starfsmaður hjá Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur hafði eftirfarandi um
máliðaðsegja:
Þetta er ofur einfalt. Á skír-
teinunum er lítið pláss og þegar við
bætíst að mörg böm eru skráð á skír-
teinin, kæmist nafnalistinn ekki fyrir
ef bæði nöfn barna væru skráð. Hins
vegar höfum við auðvitað allt á
hreinu í spjaldskránni hjá okkur.
Sumt fólk hefur spurt okkur hvers
vegna við skráum ekki bæði nöfnin,
en ég hef aldrei orðið var við að úr
þessu væri gert mikið mái.
Raddir
lesenda
Hringið
isíma
27022
millikl. 13
og 15,
eða skrifið