Dagblaðið - 14.06.1979, Page 3

Dagblaðið - 14.06.1979, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1979 3 Vamaö- arorö BSRB-foríngjarnir Krístján Thorlacius og Einar Olafsson. Hvenær láta þeir málið til sin taka? spyr bréfritarí. . . . til þeirra ungu kvenna sem nú eru nýútskrifaðar úr skólum lands- ins, leiknar og liprar í vélritun: ráðið ykkur ekki til þess starfs.og þá allra sízt hjá hinu opinbera (ríki og bæj- um). í þeirri starfsgrein er ekki til neitt sem heitir að vinna sig upp í starfi. Þið byrjið í 7. lfl., eftir 1 ár fáið þið 8. lfl., þar með er málið út- kljáð, og þó, ef þið væruð ennþá við þetta sama starf eftir 15 ár farið þið í 9. lfl. Þið getið i drottins nafni lifað Raddir lesenda og starfað á neðstu þrepum launa- stigans. Ekki er þetta vegna þess að þið þurfið ekki að vera mörgum góðum kostum búnar, eins og t.d. vel að ykkur í íslenzku, ensku og einu— tveim Norðurlandamálum, geta skrifaðeftir diktafóni o.fl. o.fl. Hver skyldi svo ástæðan vera fyrir vanmati á þessu erfíða og vandasama starfi? Jú, þeirri spumingu er ekki vandsvarað. Það er að starfið er kvennastarf og ekki hægt að bera það saman við karlastarf. Við konur, sem ílengzt höfum í þessu starfi, höfum engin samtök og erum ekki þrýsti- hópur. Spurning: Hvenær ædið þið hjá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja að láta málið til ykkar taka? Kjaradómur, og hvað þið nú heitið allir, og þú, kæri Kristján Thorlacius og aðrir er vilja okkur svo vel; Við höfum ekki heyrt frá ykkur, hve lengi eigum við að bíða? Ein sem hcfur 30 ára reynslu af starfinu. Erfðafjárskattur: Samkvæmt nýjum lögum? G.S. og P.P. skrifa: Við værum yður afar þakklát ef þér gætuð skýrt fyrir okkur í næstu blöðum hvort börn sem erfa foreldra sína þurfa að greiða erfðafjárskatt samkvæmt einhverjum nýjum lögum? Ef svo: Hversu mikinn? Ætlar þú á Hallæris- planið 17. Ólöf Jónsdóttir: Nei, alveg örugglega ekki. Spurning dagsins Hjördis Unnur Jónsdóttir, 13 ára. Nei ég ætla bara að vera heima og horfa á sjónvarpið, annars á ég heima í Grinda- vík, svo ég færi hvort eð er ekki á planið. Þessa spurningu bar DB undir Unnstein Beck hjá borgarfógeta- embættinu í Reykjavík. Hann svaraði því til að árið 1978 hefðu verið sett ný lög um gjaldstiga á skatti af erfðafé. Samkvæmt lögunum ska! greiða 5% af fyrstu 1200 þús. krónunum og síðan hækkar skatturinn um 1% fyrir hver 1200 þús. sem bætast við þar til hlut- fallið hefur náð 10%. Þástendur það ístaðeftir það. í Lögbókinni þinni eftir Björn Þ. Guðmundsson er ítarlegur kafli um erfðafjárskatt. Helztu atriðin, sem þar eru tínd til, eru þessi: ,,Af öllum arfi skal gjalda erfða- fjárskatt í ríkissjóð, hver sem erfingi er. Upphæð skattsins fer eftir skyld- leika við hinn látna. Nánustu erfingjar greiða um 10% í skatt af arfshluta sinum en fjarskyldir erfingjar allt að 50%. Erfðafjárskatt skal greiða af: 1. öllu því, sem nefnist arfur í eiginlegum skilningi, 2. gjafaarft, 3. dánargjöfum, 4. fyrir- framgreiddum arft, 5. verðmætum eignum eða réttindum, er við andlát manns hverfa til erfingja eftir samningi hins látna við annan mann, eða fyrir fjárgreiðslu af hendi hins látna, 6. gjöfum, sem gefnar eru í lifenda lífi, en gefandi hefur áskilið sér tekjur eða not gjafarinnar til dauðadags eða fyrir ákveðið tímabil, sem eigi er á enda runnið á dánar- dægri hans, 7. gjöfum sem gefnar eru á hinu síðasta ári fyrir andlát gef- anda, ef eigur hans hafa fyrir igjafirnar rýrnað um 10% eða meira, 8. af öllum fjármunum, sem gefnir hafa verið eða afhentir í því skyni að komst hjá erfðafjárskatti, 9. af fast- eignum hér á landi, sem falla í arf við skipti, sem fara fram í útlöndum, og sama gildir um skip, sem skrásett eru hér á landi. Undanþegið erfðafjárskatti er tryggingarfé og lífeyrir, sem keyptur er fyrir annan skv. ákvæðum laga eða skv. opinberri fyrirskipun, svo og handrit, bókasöfn, listaverk og minjagripir, sem verðmætir eru fyrir sögu "landsins, listir eða vísindi, ef hlutir þessir eru ánafnaðir eða gefnir opinberum söfnum landsins eða al- þjóðlegum stofnunum.” „Erfðafjárskattur fellur í gjald- daga við andlát arfleiðanda. Hann skal greiddur strax og lokið er skiptum dánarbús, þegar opinber skipti fara fram, en þegar um einka- skipti er að ræða, eða arfur er tekinn án skipta, skal greiða skattinn innan eins árs frá andlátinu.” Halla Eygló Sveinsdóttir, 11 6ra. Nei, ég verð komin upp í sveit þá og þó ég hefði verið heima þá hefði ég ekki farið. Jóna Jónsdóttir, 18 ára. Ég hef ekki ákveðið svar við því núna. Guðmundur Karl Kristmundsson, 13 ára. Nei, ég verð uppi í sumarbústað. Ég hefði heldur ekki farið þó ég hefði verið i bænum. Ég veit heldur ekki hvort krakkar á mínum aldri fara. Smáauglýsingar BIAÐSINS Þverholtitf sími 2 70 22 Opið til kl.10 í kvöld Guðmundur ísidórsson, 12 ára. Nei, ég nenni ekki að fara, ætla bara að vera heima.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.