Dagblaðið - 14.06.1979, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ1979
Höggdeyfar
fyrirliggjandi
meðal annars í eftirtalda bila:
Að framan:
Audi 100
Bedford sendibíll
BMW
Buick gamli
Chevette gamli
Simca
Benz
Dödge
Fíat 132
Maveric
Comet
Econoline
Land Rover
Moskvitch
Opel
Plymouth
Pontiac
og fleiri.
McPherson
fram-
höggdeyfar:
Datsun 180 B
Mazda
121/616/818/
929 og fleiri
Stýris-
höggdeyfar:
Scania
Volvo
og fleiri
Að aftan:
Audi 100
Buick
Chevrolet
Simca
Benz
Fíat 132
Econoline
Land Rover
Mazda 818
Oldsmobile
Opel
Plymouth
Pontiac
og fleiri
LOAD-A-
JUSTERS:
Höggdcyfar sem eru meö
utan á liggjandi gormum.
Auka burðarþol bílsins
án þess að gera hann
hastan:
Mazda 929
Datsun 180B
Galaxy
Lincoln
Chevrolet
Simca
Skallinn,
-þaó er
staðurinn
Ótal tegundir af ís. Gamaldags ís,
shake og banana-split.
Mjólkurís meó súkkulaöi og hnetum.
Umnrim....
Lækjargötu 8, Hraunbæ102
Reykjavíkurvegi 60 Hf.
HongKong:
Flóttamenn í
hungurverkfall
—Carter ætlar að biðja Brésnef um að stöðva
flóttamannastrauminn frá Vietnam þegar þeir hittast í Vín
Flóttamenn um borð í farskipi
sem er í höfninni í Hong Kong hafa
nú hafið hungurverkfall vegna
aðbúðar sinnar og þess að þeir fá
hvergi hæli. Um borð í skipinu eru
tvö þúsund og sex hundruð manns og
hafa þeir verið þar í meira en fjóra
mánuði. Margir þeirra neituðu að
þorða matarskammt sinn í gær.
Talsmaður yfirvalda í Hong Kong
sagði í gær að þetta fólk væri í raun
betur á vegi statt en margir þeirra
flóttamanna sem í landi væru. Flótta-
menn frá Vietnam eru rúmlega
fimmtíu og þrjú þúsund talsins í
Hong Kong og segjast yfirvöld þar-
ekki geta tekið við fleirum.
Straumur flóttamanna frá
Vietnam og ríkjum í Asiu er orðið
meiriháttar vandamál. Tilkynnt var í
gær að Jimmy Carter Bandaríkjafor-
seti mundi fara þess á leit við Leóníd
Brésnef forseta Sovétríkjanna að
hann beiti sér fyrir að straumurinn
verði stöðvaður. Þeir félagar hittast
í Vín á morgun til að ganga frá hinum
svonefndu Salt II samningum um
takmörkun kjarnorkuvigbúnaðar.
Tilboð óskast í eftirtalda verkþætti við húsið Álfheimar 62-64-66,
Reykjavík.
1. Viðgerð á gluggum.
2. Málun á öllum gluggum, hurðum og körmum. Járnhandrið við
kjallaratröppur á nr. 66, svalahandrið að utan og kant á svalagólfi,
dyraskyggni að utan og innan og bletta austurgafl (horn i suð-
austur).
Tiiboðið ska! miðast við að skaffa alla vinnu og efni og aðstöðu við
framkvæmd verksins.
Ýtarleg vinnuiýsing fæst hjá Sigurði Gunnarssyni, Álfheimum 66,
14. og 15. júní kl. 16.00— 18.00. Tilboðum skal skilað þangað fyrir 1.
júlí.
KEFLAVÍK
IMýr umboðsmaður:
Margrét Sigurðardóttir
Faxabraut 8B — Sími 92-3053.
Bmunm
Frá Kennaraháskóla
íslands
1 19. gr. laga nr. 51/1978 um embættisgengi kennara og skólastjóra
(Ákvæði til bráðabirgða) segir svo:
„Þeir sem við gildistöku þessara laga hafa starfað sem settir kennarar
við skyldunámsskóla 4 ár eða lengur, en fullnægja ekki skilyrðum lag-
anna til að hljóta skipun í stöðu skulu eiga kost á að ljúka námi á
vegum Kennaraháskóla Islands til að öðlast slik réttindi.
Um tilhögun námsins og mat á fyrri menntun og starfsreynslu skal
setja ákvæði i reglugerð.”
1 samræmi við þessi ákvæði hefir menntamálaráðuneytið nú í mai-
mánuði gefið út reglugerð þar sem kveðið er nánar á um nám þetta.
Bréf með reglugerðinni og umsóknareyðublöðum hafa þegar verið
send þeim sem rétt eiga á námi þessu og voru i starfi nú á liðnum
vetri.
Þeir sem telja sig eiga rétt samkvæmt ákvæðum laganna en hafa
ekki fengið bréf um það, eru beðnir að hafa samband við Kennarahá-
skóla Islands, menntamálaráðuneytið eða stéttarfélag sitt sem allra'
fyrst.
Umsóknarfrestur um námiðrennur út 30. júní næstkomandi.
Rektor
Loka-
orustan
um
Managua
hafín
Skæruiiðar Sandinista eru nú
sagðir ráða meginhluta Leon
næststærstu borgar Nicaragua og
jafnframt beita brynvörðum bif-
reiðum gegn þjóðvarðliði Somoza
einræðisherra. Þær bifreiðar eru
skæruliðarnir sagðir hafa tekið
herfangi af stjórnarliðinu.
Svo virðist sem Sandinistar
beini nú öllum sinum kröftum til
að ná völdum i höfuðborg
landsins Managua og fella
Somoza. í fyrradag beindu
skæruliðar áskorun til sinna
manna að sameina krafta sína í
árás á Managua. í áskoruninni
var það kallað — úrslitaorustan.
Ljóst virðist að hundruð
manna hafi fallið í bardögum i
höfuðborginni á undanförnum
dögum. Þeir blossuðu upp af
endurnýjuðum krafti í gærkvöldi.
Tilkynnt var um loftárásir
flughers Somoza á úthverfi borg-
arinnar. — Þetta voru hrikalegar
aðfarir — sagði einn sjónarvotta.
— Þeir skutu á hverfið i fimm
klukkustundir samfleytt. — Bar-
dagar voru rétt við miðborgina í
aðeins um eins kílómeters fjar-
lægð frá aðsetri Somoza ein-
ræðisherra, þar sem hann dvelst í
skotbyrgi.
Á stóru gistihúsi þar skammt
frá, Intercontinental hotel, dvelj-
ast nú ráðherrar í stjórn Sornoza,^
sem flúið hafa heimili sín í út-'
hverfum höfuðborgarinnar. Auk
þess eru þar erlendir blaðamenn
og sendimenn erlendra ríkja.
Þetta lið er nú sagt geta virt fyrir
sér bardagasvæðið og á
síðkvöldum heyrast skothvellirnir
og eldar loga úr rústum húsa.