Dagblaðið - 14.06.1979, Síða 12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ1979
12
d
Iþróttir
Spánverjar einir ósigraðir
Evrópumeistarar Júgóslava í
körfuknattleiknum unnu öruggan sigur
á Tékkum á Evrópumeistaramótinu i
Torinó í gær. Þrettán stiga munur í
lokin fyrir Júgóslava, 97—79 stig.
Júgóslavar töpuðu mjög óvænt á
mótinu fyrir tveimur dögum — biðu þá
lægri hlut fyrir ísrael með einu stigi.
Möguleikar liðsins til að vinna Evrópu-
meistaratitilinn í fjórða sinn í röð eru
þó sæmilegir. í dag leikur Júgóslavía
við Sovétríkin — en lykilleikurinn
verður á sunnudag, þegar Spánn og
Júgóslavia leika.
ttalla hefur einnig möguleika á
meistaratitlinum. Kom ísrael niður á
jörðina í gær og sigraði örugglega 90—
78. Hins vegar töpuðu ítalir fyrir
Tékkum og það gæti reynzt afdrifaríkt.
f gær sigraði Frakkland Grikkland
með litlum mun, 76—74, og Pólland
vann góðan sigur gegn Belgum 110—
84. Spánn er eina liðið i keppninni< scm
ekki hefur tapað leik.
I
MEISE\R4RORKAR
ÍSL4IVDS
matreiða fyrir þig í Vikunnu
í hverri Viku hirtist uppskrift að Þetta er tilkomið með samstarfi
dýrðlegum rétti, nákvæm lýsing á að— Vikunnar ogKlúbbs matreiðslumeistara.
ferð við matreiðsluna og fjöldi litmynda íslenskir matreiðslu meistarar skiptast
sem sýna hráefnið og réttinn á mismun- á um að matreiða og árangurinn birtist
andi stigum matreiðslunnar. t Vikunni vikulega.
Nýr réttur í hverri Viku,
HKLY
Það verða margir leikir á dagskrá i 1. deild á næstun
velli, ÍBV — KR í Vestmannaeyjum og Akranes
að ofan er frá leik KR og Víkings á dögunum. Knött
Bik
Gróttas
gegn leil
Það var viða mikil spenna í bikarkeppni
Knattspymusambands íslands i gær og úrslit tví-
sýn. Niu leikir voru háðir víðs vegar um landið
— einum var frestað en einn gefinn. Skalla-
grímur gaf leik sinn við ísfirðinga en sá leikur
átti að vera í Borgarnesi í gær.
Leik Einherja og Austra, sem vera átti á
Vopnafirði, var frestað vegna bleytu á vellinum.
Reykjavíkurliðin unnu
Þrír leikir voru í Reykjavík og þar kom talsvert
'& óyart, að Leiknír í Breiðholti, sem leikur í 3.
deitd, stgíaðu eitt af efstu liðunum í 2. deild, Sel-
foss. Hvorugt liðið- skoraði mark í venjulegum
leiktíma en í framlengingunni tókst Þorsteini
ögmundssyni að tryggja sigur Leiknis með
þrumuskoti af markteig eftir fyrirgjöf. Það var í
fyrri hluta framlengingarinnar. Aðalmarkaskor-
arar liðanna, Ragnar Ingólfsson, Leikni, og
Sumarliði Guðbjartsson, urðu að yfirgefa völl-
inn í fyrri hálfleik vegna meiðsla.
Á Melavellinum sigraði Ármann Víði Garði 3-
1. Þeir Þráinn Ásmundsson, Viggó Sigurðsson
og Smári Jósafatsson skoruðu mörk Ármanns í
fyrri hálfleik en Víðir skoraði eitt mark í s.h.
Ármann hafði mikla yfirburði i leiknum en gekk
illa að nýta færi sín i síðari háifleiknum.
í Árbænum sigraði Fylkir Grindavik 2-1 í
spennandi leik. Ómar Egilsson skoraði fyrir
Fylki í fyrri hálfleik. Grindavík jafnaði en 10
mín. fyrir leikslok skoraði Hörður Antonsson
sigurmark Fylkis. Þrátt fyrir tapið léku Grind-
víkingar nokkuð vel.
Breiðablik áfram
Breiðablik átti ekki í miklum erfiðleikum með
Stjörnuna úr Garðabæ á grasvellinum í Kópa-
vogi. Þór Hreiðarsson skoraði tvívegis fyrir
Breiðablik í f.h. — annað markið úr víti en Guð-
jón Sveinsson skoraði fyrir Stjörnuna. í síðari
hálfleik gulltryggði Sigurjón Rannversson sigur
Breiðabliks.
Einn leikur var á Austfjörðum. Þróttur Nes-
kaupstað vann Súluna á Stöðvarfirði með 0-2.
Það var skemmtilegur leikur. Þróttur sterkari
aðilinn án þess að skapa sér verulega góð færi.
Sigurður Friðjónsson skoraði en dómari var
Stefán Garðarsson, Þorlákshöfn.
-SJ