Dagblaðið - 14.06.1979, Side 23

Dagblaðið - 14.06.1979, Side 23
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1979 23 BÆJARINS BEZTU Stutt kynning á því athygiis- verðasta sem kvikmyndahús botgarinnar sýna Endurreisn Christa Klages 'LeRcslJÓH: Margaretha von Trotta, gerö í V-t>ýskalandi 1978. !Sýnlngarataflun Háakólabifl - Minudagamynd Mánudagsmyndin að þessu sinni er þýsk, ættuð frá árinu 1978,' pannig að hún er ekki nema um árs gömul. Leikstjórinn er ung kona, Margaretha von Trotta, sem hefur getið sér gott orð sem; handritahöfundur og aðstoðarleikstjóri m.a. í myndinni Ærumissir Katrínar Blum, sem sýnd var í Háskólabíói. Eiginmaður hennar er leikstjórinn Volker Schloendorff sem hlaut m.a. gullpálmann i maí sl. í Cannes fyrir mynd sina Die Blechtrommel eftir samnefndri sögu Gtlnter Grass. ENDURREISN CHRISTA KLAGES fjallar um unga móður er fremur bankarán til að tryggja fé til áframhaldandi reksturs barna- heimilis sem hún hafði m.a. tekið þátt í að byggja upp. En sam- starfsfólk hennar vill ekki taka við peningunum og viðurkennir ekki þetta einstaklingsframtak hennar. Þannig lendir Christa Klages á hálfgerðum flækingi og verður utangátta í þjóðfélaginu. Njósnarinn sem elskaði mig 'Lelkitjflri: Lewi. Glbert, gerð I Bredendl 1977. Sýnkigerateflur Tflnebló. ÍTónabíó býður nú upp á James Bond í fullu fjöri. Það sem Bond imyndir hafa fram yfir myndir um sama efni er hnyttnari texti og ótrúlega vel útfærð glæfraatriði. Raunar hafa Bond myndirnar yfir |sér ákveðinn lúxus stimpil. Það er engu til sparað enda sjást á hvíta tjaldinu útfærðar ótrúlegustu hugdettur. Efnisþráðurinn er mjög ótrúlegur og óraunverulegur enda fær áhorfandinn á tilfinninguna lað framleiðendur myndarinnar séu beint eða óbeint að gera góðlát- legt grín að þessu ofurmenni kvikmyndanna. í stuttu máli sagt á- gætis afþreying ef efnið er ekki tekið of alvarlega. Capricorn One Leikstjóri: Peter Hyams, gerð í Bandaríkjunum 1977. Sýningarstaður: Regnboginn. Hugmyndin að baki Capricorn One er nokkuð athyglisverð. Geim- far er sent til Mars og tilkynnt að 3 geimfarar séu innanborðs þótt það sé viðs fjarri sannleikanum. Með tæknibrellum og sjónhverf-j ingum tekst að láta þjóðina trúa þessu þangað til forvitinn blaða-, maður kemst í málið. Upp frá því tekur myndin á sig meira yfir-. bragð hasarmyndar. Þótt Capricorn One fari hægt af stað teksti leikstjóranum að skapa töluverða spennu þegar fer að líða á seinni hlutann. Heildarútkoman verður þvi þokkaleg afþreyingarmyndj með töluverða alvöru að baki. Leikurinn er ekkert sérstakur enf :æknivinnan mjög góð á köflum. i- h h. Pinky Rose drekkur bjórinn sinn með tilþrifum meðan MUlie horfir á. 3konur Leikstjórí: Robert Attman, gerð í Bandaríkjunum 1977. Sýningarstaöur Nýja Bíó. Sannir kvikmyndaunnendur eiga ekki að vera í vandræðum með að jvelja mynd við sitt hæfi núna. Robert Altman býður upp á mjög sérstætt Iistaverk í kvikmyndinni 3 konur. Hann byggir upp sögu- þráðinn á draumi og tekst þannig að rjúfa skilin milli hugarburðar og hverdagslegs raunveruleika. Altman tekst sérlega vel upp í persónusköpun Millie, sem er ein kvennanna þriggja. Leikur er, .allur mjög góður og fékk Shelley Duvall (í hlutverki Millie) m.a.i verðlaunin í Cannes 1977 fyrir besta leikkonuhlutverkið, en hún var I „uppgötvuð” af Altman og hefur leikið mikið í myndum hans. 3, konur ásamt Nashville og MASH hafa verið taldar bestar mynda: Altmans. Lesendur eru hvattir til að senda kvik- myndadálki DB línu, hafi þeir áhuga á ein-j hverri vitneskju um kvikmyndir og kvik- myndaiðnaðinn. Heimilisfangið er: Kvjk- myndir, Dagblaðið, Síðumúla 12, Rvk. Utvarp Sjónvarp Bamadagur útvarpsins í haust: FRAMORGNI TIL KVÖLDS — jafnvel fréttir verða f luttar af börnum og um böm f haust er fyrirhugaður barnadagur hjá útvarpinu í tilefni af alþjóðaári barnsins. Þessi útvarpsbarnadagur mun verða á öllum Norðurlöndum en ekki hefur enn verið ákveðið hvaða dagur það muni verða. Að sögn Gunnvarar Brögu, sem sér um barna- og unglingaefni útvarpsins, mun vera góður vilji fyrir þessum væntanlegum barnadegi hjá hinum ýmsu deildum útvarpsins. Barnaútvarpið mun standa yfir frá morgni til kvölds og mun allt efni út- varpsins snúast um börn og verða flutt af börnum. Jafnvel fréttir verða um börn og fluttar af börnum og ennfrem- ur fréttaaukar. Gunnvör sagði í samtali við DB að á írlandi hefði hún séð sjónvarpsfréttir sem henni þóttu harla merkilegar fyrir þær sakir að í hverjum fréttatíma sæti barn hjá fréttaþul og væri honum til aðstoðar í fréttaflutningi. Sagði Gunnvör að þetta hafi reynzt vel og hefði samband barnsins við þul- inn verið ákaflega eðlilegt og gaman hefði verið að sjá þetta. Kannski eigum við eftir að verða slíks aðnjótandi og væntanlega verður barnadags útvarps- ins beðið með eftirvæntingu. - ELA » Börn eru líka fólk, stendur á skilti þess- arar stúlku, og efast sennilega enginn um það. Eða er það? ELÍN ALBERTS DÖTTIR. LEIKRIT VIKUNNAR - útvarp kl. 20.10: SÚ UÓSA OGSÚ DÖKKA Gæfusmiðir nefnist leikrit kvöldsins og er það eftir Ásu Sólveigu. Gisli Hall- dórsson leikstýrir og með aðalhlutverk fara: Sú Ijósa — Steinunn Jóhannes- dóttir, sú dökka — Saga Jónsdóttir. Flutningur leiksins tekur rúma klukku- stund. Efnisþráðurinn er þessi: Tvær konur, önnur kölluð sú ljósa og hin sú dökka, báðar fráskildar, hafa ibúð saman. Þær hafa ekki farið vel út úr skilnaðinum en ákveða að bjarga sér sem bezt þær geta. Um leið og þær „gera úttekt” á fortið og nútíð verður þeim ljóst að skilnaður kostar endur- mat, bæði ásjálfum sér og öðrum. Höfundurinn, Ása Sólveig, er at' kynslóð yngri rithöfunda, fædd 1945. Hún hefur skrifað nokkur leikrit, bæði fyrir útvarp og sjónvarp, og á sl. ári kom út eftir hana skáldsagan Einkamál Stefaníu. Útvarpið hefur áður flutt tvö leikrit Ásu Sólveigar, Gunnu 1973 og Ef ekki í vöku.þáidraumi 1975. - ELA _______________________________/ Ása Sólveig er höfundur leikritsins I kvöld. PERM ANENT KLIPPINGAR BARNAKLIPPINGAR LAGNINGAR BLASTRAR LITANIR GERUM GÖT I EYRU MÍajll naPAA RAGNHILDUR BJARNAOÖTTIR OllVII &4SKn) HJÖRDlS STURLAUGSDÓTTIR National KALLKERFI Saga Jónsdóttir — sú dökka. Steinunn Jóhannesdóttir — sú Ijósa.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.