Dagblaðið - 14.06.1979, Blaðsíða 24
A tvinnuleysisbölið enn þungt íBakkagerði:
Betra ad húka heima
Bandalag Ólafs og
þingflokks krata
— athyglisverð staða íkjaramáladeilunum
Liðsmenn Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks hafa tekið sér at-
hyglisverða stöðu í deilunum um,
hvort ráða eigi kjaramálunum til
lykta með lagasetningu. >ar hefur.
myndazt bandalag Ólafs Jóhannes-
sonar forsaetisráðherra og þing-
flokks Alþýðuflokksins annars vegar
og bandalag Magnúsar H. Magnús-
sonar félagsmálaráðherra og helztu
stofnana Framsóknar hins vegar.
í foringjadeilunum i Framsókn
sögðu menn í gær, að Ólafur hefði lagt
undir sig sjónvarpið en Steingrimur
héldi Tímanum. Ólafur sagði i sjón-
varpsþætti i fyrradag, að ekki væri
tímabært að stöðva farmannaverk-
fallið með lögum. Um það leyti, er
þátturinn var fluttur, var Timinn í
vinnslu. Næsta morgun kom feit-
letruð yfirlýsing frá Steingrími i
Tímanum undir fyrirsögninni,,Ríkis-
stjórnin verður að skerast í leikinn”.
Steingrímur itrekaði í DB í gær, að
verkbannið yrði að hindra með
tiltækum ráðum. Steingrímur hefur
helztu stofnanir Framsóknar með sér
í deilunni, en Ólafur er nokkuð
einangraður í flokknum. Ólafur
nýtur hins vegar trausts af þingflokki
Alþýðuflokksins, sem undir stjórn
Sighvats Björgvinssonar og Vilmund-
ar Gylfasonar beitir sér gegn laga-
setningu, hvað sem Magnús H.
Magnússon segir.
-HH.
Dómíir í
Jörgensens-
málinu um
mánaðamótin
Hið svokallaða Jörgensensmál
var dómtekið í Sakadómi Reykjavíkur
á fimmtudaginn, en ennþá verður
nokkur bið á þvi að dómur í málinu
verði kveðinn upp, að því er Halldór
Þorbjörnsson yfirsakadómari tjáði
DB. Er vafasamt að dómurinn sjái
dagsins ljós fyrir mánaðamót.
Halldór kvað dóminn munu ná til
tveggja þátta í þessu stóra máli, fjár-
svik vegna skila á andvirði umboðs-
varnings og bókhaldsbrot. Gjaldeyris-
svikaþáttur þessa mikla máls var niður
felldur 1972.
-ASt.
á atvinnuleysisbótum
/*
—en fara á vertíö annars stadar,segjribúi íþorpinu
„Þaðer ekki heil brú í jk^sum at-
vinnuleysistryggingamálum hér í
Borgarfirði eystra og maður skilur
ekki hvernig þetta getur viðgengizt,”
sagði einn af íbúum Bakkagerðis i
Borgarfirði eystra í viðtali við DB í
gær.
í Bakkagerði voru atvinnuleysis-
dagar í maí 389 talsins og kemur
Bakkagerði næst á eftir Reykjavík,
Siglufirði og Akureyri með fjölda at-
vinnuleysisdaga. Oft í vetur hefur
Bakkagerði verið í þriðja sæti yfir allt
landið hvað fjölda atvinnuleysisdaga
snertir. Samt er þetta smákauptún
með 146 íbúa í þorpinu, en i öllum
hreppnum búa 249, þar af 194 16 ára
og eldri.
,,í verkalýðsfélaginu hér eru að
sögn á annað hundrað manns og
menn virðast komast í félagið með
einkasamtölum við einhvern
stjórnarmanna,” sagði ibúinn, sem
ekki vill láta nafns síns getið.
„Aldrei eru haldnir fundir en
mikill samtakamáttur ríkir um að
koma fólki á atvinnuleysisskrá.
Ganga af því sögur, að menn fái
„lánaðan” tíma hjá öðrum, sem af-
lögufærir eru með vinnutíma, til að
fullnægt sé skilyrðum atvinnuleysis-
tryggingasjóðs um bætur.
Algengt er að bændur vinni hér
smátíma í sláturhúsi að hausti og
komist síðan á atvinnuleysisbætur.
Sögur eru um að bændur hafi syni
sína að nafninu til á launum um tíma,
jafnvel án þess að borga þeim
kaupið, en með því komast þeir.síðan
á atvinnuleysisskrána. Fólk í Bakka-
gerði talar um að ekki borgi sig að
fara annað á vertíð. Betra sé að húka
heima og vera á atvinnuleysisstyrk.”
Enginn fólksflótti hefur verið frá
Bakkagerði nokkur undanfarin ár,
þrátt fyrir hrikalegt atvinnuleysi þar
samkvæmt skrám á sl. ári, en íbúum
hefur fækkað í hreppnum um 60—70
á tveimur siðustu áratugum.
Afkoma fólks er allsæmileg,
margir eiga trillur og stunda sjó en
jafnframt einhvern búskap. Og svo
bæta atvinnuleysispeningarnir af-
komuna. Fólk unir glatt viðsitt.
Lengst af í vetur voru 28 manns á
atvinnuleysisskrá í Bakkagerði. Það
er 15% af öllum íbúum hreppsins en
25^30% af íbúum Bakkagerðis-
kauptúns. Svona hefur þetta
viðgengizt ár eftir ár að sögn. -ASt.
frjálst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR 14. JÚNl 1979.
Handtökumáiið:
Haukur
ogViðar
áfrýja
Haukur Guðmundsson og Viðar
Ólsen sem báðir hlutu fangelsisdóma
vegna handtökumálsins svonefnda
hafa ákveðið að áfrýja dómnum til
Hæstaréttar.
Áfrýjunarfrestur var ákveðinn til 15.
júní og nú hafa þeir Haukur og Viðar
að höfðu samráði við lögmenn sína
ákveðið að áfrýja. Lögmaður Hauks er
Jón Edwald Ragnarsson og lögmaður
Viðars Ragnar Aðalsteinsson.
í framhaldi af því mun Ólafur Stefán
Sigurðsson, setudómari í málinu, senda
málsskjöl til Saksóknara rikisins sem
undirbýr málið af hálfu ákæruvaldsins
fyrir málflutninginn í Hæstarétti. Er
von til þess að málið verði síðan tekið
fyrir í Hæstarétti næsta vetur.
Haukur og Viðar voru einu aðilar
málsins er hlutu fangelsisdóm en aðrir
fengu skilorðsbundinn dóm.
- BH
Engin kaup-
tilboðídag
Sáttanefnd í farmannadeilunni kom
saman til fundar kl. 10 i morgun.
Líklegt þykir að boðað verði til fundar
með yfirmönnum á farskipum og
viðsemjendum þeirra síðdegis. Jón
Þorsteinsson i sáttanefnd sagði í
samtali við DB í morgun að ólíklegt
væri að nefndin legði fram hugmyndir
um kauptölur á þeim fundi. Páll Her-
mannsson, blaðafulltrúi farmanna,
kvað farmannadeiluna i biðstöðu.
Síðdegis verða fundir með undir-
mönnum á farskipum, hásetum og
matsveinum. í gær höfnuðu undir-
menn þeim drögum að kerfisbreytingu
kjarasamnings farmanna sem út-
gerðirnar höfðu lagt fyrir. Verður
samningsgerð í dag á grundvelli hins
gamla launakerfis.
Jón Magnússon, starfsmannastjóri
Einiskipafélagsins, sagði í morgun, að
ekki væri að vænta kauptilboða í dag.
Undirmenn höfðu áður látið í Ijós
bjartsýni um að þau kæmu fram.
-GM.
Átökin um
bráðabirgðalögin:
Magnús H.
undir3:ll
Magnús H. Magnússon félagsmála-
ráðherra hefur orðið illa undir í átök-
um í þingflokki Alþýðuflokksins.
Stefna Magnúsar um að leysa kjara-
málin, meðal annars farmannaverkfall-
ið, með lagasetningu hefur beðið ósigur
á fundum þingflokksins.
Hlutföllin eru 11:3 Magnúsi í óhag,
eins og í ljós kom á þingflokksfundi í
vikunni. Yfirgnæfandi meirihluti þing-
flokksins fylgir þeirri stefnu, að kjara-
samningar séu sem frjálsastir og ríkis-
valdið skipti sér sem minnst af málum.
Þessi afstaða þingflokksins hefur
leitt til þess, að ráðherrar Alþýðu-
flokksins hafa ekki fallizt á tillögur,
sem Steingrímur Hermannsson dóms-
málaráðherra hefur helzt beitt sér fyrir
um lagasetningu í kjaramálum.
- HH
Eigum við ekki að bregða
á leik í góða veðrinu?
t dag fagna Sunnlendingar góðu veðri og viða verður liklega bruðið á leik I dag. Stemmningin er gefin með þessari mynd,
þar sem góðir féiagar, litil telpa og fallegur hundur hennar bregða á leik. — Ég get alltaf náð þér, en ég bít þó aldrei nema í
skálmina þína, gæti hundurinn verið að scgja.
Á litlu myndinni má sjá hversu vcl fer á með þeim félögunum eftir sprettinn. Ljósmynd Magnús Hjörleifsson.
'Á