Dagblaðið - 16.06.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 16.06.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1979 7 ... .............................................................. Sveitarstjóraskipti í Grundarfirði: „BETRA AÐ HÆTTA AÐUR EN MAÐUR GERIR í BUXURNAR” —segir Ámi Emilsson, fráfarandi sveitarstjóri ...........- ---------------- ,.Ég var ákveðinn í að hætta ein- hvern tíma á kjörtímabilinu og þegar mér bauðst gott starf hér heima í hér- aðinu þá sló ég til. Ég vildi líka hætta þegar hæst stóð og það er betra að Einn sýningargripanna verður þessi Citroen sem er árgerð 1946 og þvi kominn á fertugsaldurinn. Eigandi hans er Valdimar Páls- son. Mynd: Dagur á Akureyri Akureyri: 60 glæsi- vagnar sýndir saman Bílaklúbbur Akureyrar heldur meiri háttar bílasýningu á Akur- eyri nú á 17. júní, sem nokkur undanfarin ár. 50 til 60 bílar verða þar sýndir og verður sýn- ingin fjölbreytt. Þar getur m.a. að líta gamla og virðulega fólks- bíla og mestu tryllitæki bæjarins. Akureyringar státa af mörgum gömlum glæsivögnum enda hafa þeir lengi haft orð á sér fyrir góða meðferð ábílum. - GS FÍBsátt við hærri skattá bensfn- hákana ,,í ljósi fyrirsjáanlegs olíu- skorts í heiminum er ég fylgjandi því að skattleggja eyðslufreka bila meira en eyðslugranna,” sagði Tómas Sveinsson, for- maður FÍB í viðtali við DB i gær. Tók hann skýrt fram að hann væri ekki með þessu að mæla með enn frekari álögum á bíleig- endur, þar sem þessi skoðun sín væri ekki byggð á núgildandi bensínverði. Það væri að mati FÍB allt of hátt miðað við til hvers tekjum af því væri varið. - GS hætta áður en maður gerir í bux- urnar,” sagði Árni Emilsson í samtali við Dagblaðið en hann lét af embætti sveitarstjóra í Grundarfirði fyrir skömmu eftir að hafa gegnt því emb- ætti um níu ára skeið. í sveitarstjórnarkosningunum á síð- astliðnu ári vöktu úrslitin í Grundar- firði talsverða athygli vegna þess að þar bætti Sjálfstæðisflokkurinn við sig fylgi og hélt meirihluta í sveitarstjórn- inni. Árni Emilsson hafði lýst því yfir fyrir kosningarnar að hann mundi láta af störfum sveitarstjóra ef Sjálfstæðis- flokkurinn missti meirihluta sinn. Þessi yfirlýsing Árna var talin meginástæðan fyrir sigri Sjálfstæðisflokksins. Þess vegna kom það mjög á óvart, að Árni skyldi segja af sér nú aðeins tæpu ári eftir kosningarnar. Aðspurður sagði hann að ek.ki væri um neinn ágreining hans að ræða við fiokksbræðurna. Þvert á móti hefði samstarfið gengið mjög vel en hann teldi heppilegra að sami maðurinn gegndi þessu starfi ekki of lengi. ,,Ég held að fólk vilji hreinan meirihluta eins og er hér,” sagði Árni. „Það hlýtur að vera orðið þreytt á þessum rauðgraut.” Hinn nýi sveitarstjóri í Grundarfirði heitir Guðmundur Osvaldsson og er byggingartæknifræðingur að mennt. -GAJ 1 Guðmundur Osvaldsson, hinn nýi sveitarstjóri í Grundarfirði, tekur við leiðbeiningum frá forvera sínum i því starfi, Árna Emilssyni. DB-mynd Árni Páll Kerfisfræðingur Fjármálastofnun varnarliðsins óskar eftir að ráða kerfisfræðing, sem hefur umsjón með tölvuvæðingu á sviði bókhalds og fjármála. Viðskiptafræðimenntun eða hliðstæð mennt- un og/eða starfsreynsla á sviði bókhalds- og fjármálastjórnunar áskilin. Staðgóð kunnátta við kerfissetningu og for- skriftargerð (cobol eða RPG) er nauðsynleg ásamt mjög góðri enskukunnáttu. Umsóknir sendist ráðningarskrifstofu Varnar- máladeildar Keflavíkurflugvelli, eigi síðar en, 25. júní 1979, sími 92-1973. Skrifstofa landlæknis óskar eftir að ráða ritara til starfa nú þegar, góð vélritunarkunnátta áskilin, verslunarskóla- eða stúdentsmenntun æskileg. Umsóknir sendist Skrifstofu land- læknis, Arnarhvoli, fyrir 23. þ.m. Eskfirðingar — Austfirðingar Hef opnað grill- og matsölustað í Hlíðar- skála á Eskifirði. Við bjóðum: Kjúklinga — hamborgara — franskar kartöflur — kótilettur — djúpsteiktan fisk — samlokur — kaffi — kökur — brauð — öl — gos og margt fleira. VERIÐ VELKOMIN Hlíðarskáli Eskifirði Starf í mötuneyti Aðstoðarstúlkur vantar í mötuneyti Hampiðjunnar við Brautarholt. Um er að ræða framtíðarstarf. Allar upplýs- ingar veitir ráðskona frá kl. 2—5, ekki í síma. Hampiðjan hf. STJÖRNUGRÓF 18 SÍMI 84550 Býöur úrval garöplantna og skrautrunna. Opiö virka daga: 9-12 og 13- 21 laugardaga 9-12og13-18 sunnudaga 10-12og13-18 Sækiö sumariö til okkar og flytjió þaö meö ykkur heim. Sjómenn Bjóðwn ennfremur: Teleflex vökvastýri og Benmar sjálfstýringar á mjög góöu verði. önnumst handfæra vínduviðgeröir. Vanir menn. Útgerðarmenn Smíðum hvers konar vindur og spil í minni fiski- báta, svo sem: línu- og netaspil, löndunarspil, rópaspil, bómusvingara. SJÖVÉLARHF. KÁ RSNESBRA U T102 - S/MI43802.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.