Dagblaðið - 19.06.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 19.06.1979, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 19rjÚNÍ 1979. leika til úrslita á £M íkörfubolta Síðustu leikirnir í úrslitariAlinum á Evrópu- meistaramótinu i körfuknattlcik voru lciknir i gær- kvöldi. Þá unnu Sovétmenn ítali með 90stigum gegn 84 og Tékkar unnu Spánverja 107-100. Þessi úrslit þýða það, að það verða Sovétmenn og israelar sem leika til úrslita um sigurinn í mótinu, en Tékkar og Júgóslavar, sigurvegarar sl. þriggja ára, lcika um 3. sætið. > ítalir urðu að vinna Rússana í gærkvöldi til að eiga möguleika á einu af verðlaunasætunum. Sovét- menn voru hins vegar í sínum bezta ham og hið frá- bærlega samæfða og vel þjálfaða lið þeirra hafði all-1 an tímann undirtökin gcgn ítölunum og risinn Viadi- mir Tkachenko skoraöi 23 stig t leiknum og var stigahæsti leikmaðurinn. Spánverjar náðu forystunni gegn Tékkum en eftir að aðalmaðurinn í liði þeirra, Llorente, fór útaf vegna meiðsla var aldrei nein spurning um sigurveg- ara þó aðeins munaöi 7 stigum i lokin. Geysilegur áhugi hefur verið fyrir keppninni, sem, fram fer i Tórínó á Ítalíu. Yfir 22.000 manns horfðu 'á leikina tvo i gærkvöldi og sýnir það bezt áhugann. í gærkvöldi lauk einnig keppni í riðlinum þar sem lið frá 7,—12. sæti leika og þar varð rööin þessi.j Pólverjar urðu í 7. sæti, Frakkar áttunda, Grikkir níunda. í 10. sæti komu Hollendingar, Búlgarir 11. og Belgar voru i 12. sæti. Spánverjar og ítalir leika til úrslita um 5. sætið í kvöld. Bezti heimstíminn f árí5000metrunum Tanzaniubúinn Sulciman Nyambui náði bezta timanum i 5000 metra hlaupi i ár er hann hljóp á 13:12.29 mín. á frjálsiþróttamóti sem fram fór í Stokkhólmi í gærkvöldí. Það var mikil keppni i 5000 metra hlaupinu og Svisslendingurinn Markus Ryffel kom rétt á eftir honum í mark á 13:13.32 en heims- met Henry Rono er 13:04.4 mín. V-Þjóöverjinn Thomas Wcssinghagc náði góðum tíma í 1500 metra hlaupinu — hljóp á 3:38.89 og var rétt á undan Finnanum Antti Loikkanen. Renaldo Nehemiah vann 110 metra grindahlaupið á 13:66 sek. en hcimsmet hans er 13.00 sek. Í 1500 metra hlaupi kvenna sigraði Mary Stewart, Englandi, á 4:17.24 mín. Giinter Lohre frá V-Þýzka- landi vann stangarstökkið með stökki upp á 5.45 metra. Christer Garpenborg, Svíþjóð, vann 100 metrana á 10.40 sek. og Marlies Göhr frá A-Þýzka- landivann 100 metra hlaup kvennaá 11.12 sek. Viking með örugga forystu íNoregi Víkingarnir hans Tony Knapp eru ennþá með örugga forystu í norsku 1. deildinni eftir góðan sigur gegn Bodö Glimt um helgina. Þessir leikir voru leiknir þá: Lilleström — Rosenborg Viking — Bodö Glimt Brann — Bryne Valerengen — Hamkan Efstu liö eru nú þessi: Viking Rosenborg Start Bryne 10 10 10 10 0-2 2-0 3-0 3-0 3 0 17-6 17 1 3 17-12 13 2 3 20-9 12 0 4 22-14 12 Á myndinni hér að ofan er Tony Knapp á lands- liðsæfingu hjá íslenzka landsliðinu á meðan hann var hér við stjórn. Ólíkt er hlutskipti hans og Vouri Ilitchev þótt báðir þjálfi þeir Víking. Ólafur Runólfsson, markvörður Þróttar, gripur hér örugglega inn i leikinn i gær. Hann var ekki alltaf jafnöruggur og Þróttarar fengu stóran skell. DB-mynd Sv.Þorm. Frískir Keflvíkingar unnu vonlausa Þróttara 4-0 í 1. deildiimi í gærkvöldi í Laugardal Þrátt fyrir að staðan í hálfleik í leik Þróttar og Keflavíkur væri 0-0 í gær- kvöldi hafði maður það alltaf á tilfinn- ingunni að Keflavik myndi sigra örugg- lega og jafnvel stórt. Það þurfti ekki að biða lengi í siðari hálfleiknum eftir fyrsta marki Keflvikinganna og áður en yfir lauk höfðu þeir skorað fjögur mörk gegn slökum Þrótturum án þess að Þróttur næði að svara fyrir sig. Sigur Keflvíkinga var bæði stór og mjög öruggur. Við þennan sigur hirtu Keflvíkingar toppsæti deildarinnar af KR, sem aðeins hélt þvi i 2 daga og greinilegt er að Keflvíkingar verða á meðal efstu liða enn eitt árið þrátt fyrir sífeldar hrakspár. Leikurinn sjálfur var býsna fjörugur á köflum en siðan komu afar slæmir kaflar og sást þá lítið skylt við knatt- spyrnu oft á tíðum. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en lítið um Staðan í l.deild Úrslit í gærkvöldi: Þróttur — Keflavík 0-4 Staðan i 1. deildinni er nú: Keflavík 5 2 3 0 9—1 7 KR 5 3 1 1 6—4 7 Akranes 4 2 1 1 7—5 5 Fram 4 1 3 0 6—4 5 ÍBV 5 2 1 2 4—3 5 Valur 4 1 2 1 5—4 4 Víkingur 5 2 0 3 7—9 4 KA 5 2 0 3 6—10 4 Þróttur 5 1 1 3 4—9 3 Haukar 4 1 0 3 3—8 2 Markahæstu menn: mörk Sveinbjörn Hákonarson, ÍA 5 Pétur Ormslev, Fram 3 Þórir Sigfússon, ÍBK 2 Gísli Eyjólfsson, ÍBK 2 Ingi Björn Albertsson, Val 2 Gunnar Blöndal, KA 2 Óskar Ingimundarson, KA 2 Sverrir Herbertsson, KR 2 GunnarÖrn Kristjánsson, Vík. 2 Sigurlás Þorleifsson, Vík. 2 Guðmundur Sigmarsson, Haukum 2 hættuleg færi. Bezta færi hálfleiksins fékk Ragnar Margeirsson strax á 2. mínútu en gott skot hans fór í hliðar- netið. Þróttarar léku ágætlega í fyrri hálf- leiknum oft á tíðum — boltinn var lát- inn ganga vel á milli manna og engin áhætta tekin. Vörnin var þó engan veginn örugg og Ólafur Runólfsson í markinu var dálítið óstyrkur, en þó ekkert á við í síðari hálfleiknum því það var misheppnað úthlaup hans, sem færði Keflvíkingum mark á silfurfati á 53. mínútu. Ólafur Júlíusson tók þá aukaspyrnu af um 40 m færi og gaf vel inn í teiginn. Ólafur hljóp út á móti knettinum og ætlaði greinilega að slá hann en tókst ekki betur til en svo að hann hitti ekki boltann, sem sigldi á kollinn á Sigur- birni Gústafssyni, miðverði ÍBK, og þaðan í netið. Strax á næstu mín. fengu Þróttarar sitt bezta færi í leiknum, en Þorsteinn Ólafsson varði skot Baldurs Hannessonar af öryggi. Keflvíkingar gáfu aldrei höggstað á sér i vörninni og að baki varnarinnar varði Þorsteinn Ólafsson allt sem kom á markið Sigurður Björgvinsson, bezti maður vallarins í gærkvöldi, stjórnaði öllu miðjuspili og hann var allt í öllu hjáKeflavik. Það var sending hans fram völlinn, sem var kveikjan að öðru marki ÍBK á 57. mínútu. Herfilegur misskilningur varð á milli tveggja varnarmanna Þróttar og Ragnar Margeirsson not- færði sér það til hins ítrasta — stakk sér á milli þeirra og skoraði örugglega framhjá úthlaupandi markverði Þróttar. Við þetta mark var allur vindur úr Þrótturum og Keflvíkingar tóku öll völd á vellinum. Á 69. mínútu lék Ragnar laglega upp hægri kantinn og gaf vel fyrir markið til Þórðar Karls- sonar, sem skoraði af öryggi framhjá Ólafi. Hvar var vörn Þróttar þarna? Auk Þórðar, sem var dauðafrír í víta- teignum, var Rúnar Georgsson einnig í úrvals færi ef á þurfti að halda. Þarna opnaðist vörnin hjá Þrótti hreint og beint eins og flóðgátt. Eftir þetta mark tóku Suðurnesja- menn lífinu með ró og spiluðu upp á öryggið öllu framar. Þróttarar ógnuðu aldrei marki ÍBK en þess ber þó að gæta að varnarleikur Keflvíkinga var frábær lengst af — engar veilur og leik- menn snöggir að átta sig á þeim mögu- leikum sem gáfust til skyndisókna. Á 86. mínútu komst Ragnar Margeirsson í dauðafæri en skaut hár- fínt framhjá. Þegar svo ein mínúta var komin framyfir venjulegan leiktíma skoraði Kári Gunnlaugsson fallegasta mark leiksins. Þróttarar voru eitthvað að væflast með knöttinn sem barst til Kára rétt utan vítateigs. Kári sendi hann að sjálfsögðu til baka með fallegu skoti efst í fjærhornið án þess að Ólafur næði að verja. Góður endir á sanngjörnum og sannfærandi sigri Keflvíkinga. í kvöld kl. 20 leika Fram og Haukar á efri vellinum í Laugardalnum. Fyrir- fram á að líta virðast Framarar vera mun sigurstranglegri, en þess ber þó að gæta að þeir hafa gert þrjú jafntefli í röð, þ.á m. við Þrótt. Haukarnir unnu sjálfa Akurnesinga í síðasta leik sínum Frjálsíþróttamótin eru nú komin á fulla ferð I Svíþjóð. Lilja Guðmunds- dóttir hefur þrívegis tekið þátt i 800m hlaupum — einu sinni sigrað og tvíveg- is orðið í öðru sæti. Hún átti við lítils háttar meiðsli að stríða í byrjun kcppnistímabilsins en telur nú að hún sé að komast í betri æfingu en undan- farið. Fyrsta hlaup Lilju var í Enköping og þar varð hún önnur á 2:13.4 min. en Nemetz sigraði á 2:10.0 mín. Þá keppti hún fyrir félag sitt í 2. deild og sigraði í 800 m í keppni fimm félaga — hljóp á Þorsteinn Ólafsson varði frábærlega í markinu í gær. Bakverðir ÍBK þeir Óskar Færseth og Guðjón Guðjónsson voru mjög virkir og sömu sögu er að segja um miðverðina Sigurbjörn og Kára. Sigurður Björgvinsson var eins og herforingi í leiknum og stjórnaði öllu spili af röggsemi. Ragnar var hættulegur frammi, en þeir Ólafur Júlíusson og Þórður Karlsson náðu sér ekki vel á strik. Hjá Þrótti stóð vart nokkur upp úr. Halldór Arason, sem lék sinn 100. leik í gær, barðist vel að vanda en allt spil Þróttar var hugmyndasnautt og greini- legt er að liðsandinn er ekki upp á það bezta. Ágætur dómari var Kjartan Ólafsson. og sýndu þá ódrepandi baráttuvilja. Það kann þó að spila inn í að leikið er á grasi í kvöld og Haukarnir hafa ekki verið mikið graslið hingað til. Flest sín stig taka þeir vafalitið á möl- inni á Hvaleyrarholtinu í sumar, en úti- lokað er að spá um sigurvegara i kvöld. 2:15.4 mín. og varð níu sekúndum á undan þeirri, sem varð i öðru sæti. Þar var þvi um enga keppni að ræða. Félag Lilju er efst í keppninni í 2. deild. Þá keppti Lilja i Lidingö og náði bezta tíma sínum í ár eftir hörku- keppni. Bergström sigraði á 2:11.8 mín. — Lilja önnur á 2:12.0 mín. og tvær aðrar stúlkur hlupu á sama tíma. Byrjunarhraðinn í þessu hlaupi var allt- of lítill — eða fyrri hringurinn á 66 sek. Það var því spretthlaup í lokin og keppni mikil. -SSv. Fram—Haukar í kvöld Lilja alltaf í verð- launasætunum —Hefur náð bezt 2.12 mín. Í800 m DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1979. 13 íþróttir Iþróttir Iþrottir Iþrottir Mjög mikil dánægja vegna sífelldra f restana Einherja D Alls voru 15 leikir á dagskrá í 3. deildarkeppninni í knattspyrnu um helgina og urðu sums staðar óvænt úrslit en við skulum vinda okkur strax í leikina. A-riðill Grótta og Ármannsliðið sem fyrir- fram var talið sigurstranglegast í 3. deildinni, léku á KR-vellinum á laugar- daginn og var það hörkuviðureign. Ármenningar sigruðu 3-2, en ekki er gott að segja hvernig farið hefði ef varamarkverði Gróttu hefðu ekki orðið á jafn hrikaleg mistök og raun bar vitni. Strax á4. mín. náði Grótta forystu er Gunnar Lúðvíksson skoraði eftir stungusendingu. En Adam var ekki lengi í Paradís. Á 13. mín. kom saklaus fyrirgjöf fyrir Gróttumarkið. Vara- markvörður Gróttu greip ekki knött- inn, sem barst til Ríkharðs Jónssonar, sem skoraði með fallegu skoti. Eftir markið gerði Grótta harða hríð að marki Ármanns en án árangurs. Á 37. mínútu fékk einn Ármenningurinn dauðafæri, en skaut himinhátt yfir. Mínútu síðar skoruðu Ármenningar á ný ódýrt mark. Miðvörður Gróttu gaf lausa sendingu aftur til markvarðar, sem á óskiljanlegan hátt tókst að missa knöttinn fyrir fætur Bryngeirs Torfa- sonar, sem skoraði 2-1. Síðari hálfleikurinn var slakur, en á 67. mín. skoraði Erlendur Hermanns- son markvörður þriðja mark Ármanns með því að sparka boltanum yfir endi- langan völlinn og yfir markvörð Gróttu. Við mótlætið dró mjög af Gróttumönnum en rétt fyrir leikslok lagaði Gísli Gíslason stöðuna með gull- fallegu marki af 25 m færi. Víðir — Stjarnan 2-2 (2-0). Jónatan lngimarsson kom Víðismönnum á bragðið með góðu marki snemma í fyrri hálfleiknum og skömmu síðar bættu Víðismenn öðru marki við. Kom þá sending inn í vítateig Stjörnunnar. Þorvaldur Þórðarson markvörður sló knöttinn þá beint fyrir fætur Vilbergs Þorvaldssonar, sem þakkaði gott boð og sendi knöttinn í mannlaust markið. Þannig var staðan þar til 8 minútur voru eftir af leiknum. Stjarnan fékk hornspyrnu og upp úr þvögu sem myndaðist á markteaig skoraði Guðjón Sveinsson, fyrrum Haukaleikmaður, mark fyrir Stjörn- una. Á lokamínútu leiksins fékk Stjarnan síðan vítaspyrnu. Guðjón Sveinsson lék þá inn í vítateig Víðis og var brugðið. Ekki voru allir á eitt sáttir um réttmæti dómsins en úr spyrnunni skoraði Guðmundur Yngvason jöfnunarmark Stjörnunnar. Það var einkennandi fyrir leikinn, að leikmenn Stjörnunnar virtust ekki hafa nokkurn áhuga á leiknum og engu var líkara en að þeir væru að framkvæma leiðinlegt skylduverk. Grindavík — ÍK 2-0 (1-0). Þetta var fyrsti leikur Grindvíkinga í 3. deildinni í ár og þeir byrjuðu með ágætum sigri yfir ÍK. Þeir bræður Pálmi og Július Pétur Ingóífssynir skoruðu mörk Grindvíkinga í þessum leik og Grinda- vík vann sanngjarnan sigur. Auk þess áttu þeir þrjú skot í stangir ÍK marks- ins. ÍK byrjaði vel með jafntefli gegn Víði í Garði, en hefur siðan tapað tveimur leikjum í röð og aðeins gert eitt mark i þremur leikjum. -SSv/emm. Briðill: Hekla — Óðinn 1-2 (0-2) Óðinn — í Austurlandsriðlinum í 3. deildarkeppninni krækti í tvö dýrmæt stig á Hellu með sigri yfir heimamönnum í „sandgryfj- unni”, en völlur þeirra Hellumanna er einhver sá allra slakasti, sem sézt hefur það voru mörk frá Jóni Inga Ingimars- syni og Konráð Árnasyni í fyrri hálf- leik, sem tryggðu Óðni sigurinn, en i síðari hálfleik sóttu heimamenn stíft en tókst ekki að skora nema eitt mark undan vindinum. Leiknir — Afturelding 1-4 (0-3). Hvað það var, sem olli þessum stórsigri Aftureldingar vissi víst enginn. Aftur- elding skoraði þrívegis í fyrri hálfleikn- um og hafði í raun tryggt sér sigurinn löngu fyrir leikslok. Leiknismen virkuðu ógurlega slakir eða eins og einn þeirra sagði: „Þetta var gerbreytt lið samanborið við liðið, sem vann Selfoss nokkrum dögum áður”. Vera má e.t.v. að Leiknismenn hafi verið svona sigur- vissir, en þessi sigur Aftureldingar gefur þeim byr undir báða vængi og sigurlíkur þeirra í riðlinum hafa stór- aukizt eftir þennan sigur. Mörk UMFA skoruðu Halldór Björnsson (2), Sig- urður Helgason og Ríkharður Jónsson en Jón Guðmundsson svaraði fyrir Leikni. Þór — Léttir 4-3 (1-3). Þrjú mörk á siðustu 7 mínútum leiksins færðu Þór sigur yfir Létti i Þorlákshöfn. í fyrri hálfleiknum skoraði Léttir þrívegis gegn aðeins einu marki Þorlákshafnar- manna og það stefndi í öruggan sigur Reykjavíkurliðsins. Þórsarar voru þó ekki á því að gefa sinn hlut og hættu ekki fyrr en þeir voru komnir yfir. Það voru mörk frá Stefáni Garðarssyni, Friðrik Guðmundssyni, Kjartani Busk og Ásbergi Ásbergssyni sem tryggðu þeim sigurinn og síðasta markið kom :aðeins hálfri mínútu fyrir leikslok. -ssv. C-riðill: Skallagrímur — Stefnir 5-1 (3-1). Borgnesingar unnu þarna góðan sigur í sínum fyrsta leik í 3. deildinni í ár. Skallagrímur er nú að koma upp með ungt lið — fríska stráka og þeim varð ekki skotaskuld úr því að tryggja sér bæði stigin gegn Stefni. Garðar Jóns- son skoraði 3 mörk, Gunnar Jónsson 1 og Þórður Bachmann 1. Víkingur, Ól. — Bolungarvík 4-0 (1- 0). Þessi stóri sigur Víkinga kom nokk- uð á óvart þar sem Vikingur tapaði stórt fyrir Gróttu í bikarnum og Bol- víkingar stóðu í ísfirðingunum í sömu keppni. Þessi leikur var þó alls ekki eins ójafn og tölurnar gefa til kynna og var sigur Víkings e.t.v. i stærra lagi að þessu sinni. Lítið var um tækifæri í leiknum en Ólsarar nýttu sín færi og það var meira en Bolvíkingar gerðu í þeim örfáu tilvikum, sem þeir komust í námunda við mark andstæðingsins. Erlingur Jóhannsson skoraði eina mark fyrri hálfleiksins, en þrjú mörk á stutt- um kafla gerðu út um leikinn. Fyrst skoraði Guðmundur Guðmundsson þá Jónas Kristjánsson og loks Jóhann Kristjánsson. Víkingarnir gera sér vonir um góðan árangur i 3. deildinni í sumar undir stjórn fyrrum KR-ingsins Björns Árnasonar. -SSv. D-riðill: Svarfdælir — Höfðstrendingar 3-0 (0-0). Þrátt fyrir talsverða yfirburði í fyrri hálfleik tókst Svarfdælum ekki að skora en í þeim síðari skoruðu þeir þrí- vegis. Það voru þeir Björn Friðþjt^fs-' son, Ásgeir Blöndal og Jón Gunnlaugs- son, sem skoruðu mörk þeirra. Þá átti Leiftur og Tindastóll að leika en leikn- um var frestað til 27. júní. -ÞÁ E-riðill: Dagsbrún — Árroðinn 0-1 (0-0). Árroðinn fékk þarna tvö stig á silfur- fati því Dagsbrún átti sigurinn fyllilega skilinn. Talsvert rok var þegar leikur- inn fór fram — líkt og víðast á landinu — og lék Árroðinn gegn rokinu í fyrri hálfleik og gekk lítið. í síðari hálfleikn- um höfðu Árroðamenn vindinn í bakið en Dagsbrún hafði sem fyrr undirtökin í leiknum. Það var því algert reiðarslag fyrir leikmenn Dagsbrúnar þegar Haf- berg Svansson skoraði sigurmark Árroðans á 81. mínútu. HSÞ — Reynir 2-1 (2-0). Þessi leik- ur var mjög jafn og gat farið á hvorn veginn sem var. Jónas Þór Hallgríms- son skoraði bæði mörk Mývetninga í fyrri hálfleiknum en í þeim síðari lagaði Jón Eyjólfsson stöðuna fyrir Reyni, en mikil breyting til hins verra hefur orðið á Reynisliðinu frá í fyrra. -St.A F-riðill: Hrafnkell Freysgoði — Huginn 2-1 (0-0). Þetta var fyrsti leikur Hrafnkels í 3. deildinni í sumar og fyrirfram var liðið nokkuð óþekkt stærð. Huganum hefur hins vegar gengið vel i vorleikjun- um. Ekkert mark var skorað í fyrri hálf- leiknum, en strax i upphafi þess síðari skoraði Ólafur Már Sigurðsson fyrir Hugin. Við markið var eins og leik- menn Hrafnkels tvíefldust og þeir sóttu stíft að marki Hugins. Á 72. mínútu jafnaði svo Hrafnkell loksins og var þar að verki Sigurður Gunnarsson. Á 88. mínútu fékk Hrafnkell hornspyrnu. Sigurður lyfti knettinum vel fyrir mark- ið og upp ur þvögu skoraði Svavar Ævarsson.sigurmark Hrafnkels Hafþór Guðmundsson var góður dómari leiks- ins. Þessi mynd er tekin f leik KR og Akraness fyrir skemmstu og hún sýnir glögglega að ekki þarf 3. deildarleikmenn til að klúðra auðveldum færum, eins og á þessari mynd. DB-mynd Hörður Sindri — Leiknir 2-1 (0-1). Þessi leikur var ein allsherjar endaleysa allt frá upphafi. Leikið var á svokölluðum grasvelli þeirra Hornfirðinga, sem er sandur og gras á víxl. Skurðir eru beggja vegna við völlinn og er það óskiljanleg ráðstöfun að leyft sé að leika á þessum velli. Jens P. Jenssen skoraði fyrst fyrir Leikni og þannig stóð í hálfleik, 1-0. í síðari hálfleik léku heimamenn undan rokinu og tókst þá að skora tvívegis. Ragnar Bogason var þar að verki í bæði skiptin, en Ragnar er frá Djúpa- vogi. Dómgæzlan var fyrir neðan allar hellur í þessum leik. Valur — Einherji frestað. Þá áttu að leika Valur og Einherji en leiknum var frestað og svo virðist sem Aðalbjörn Björnsson frá Vopnafirði hafi upp á sitt eindæmi frestað leiknum, án vit- undar mótanefndar KSÍ. Þessi frestun þykir undarleg þegar það er haft í huga að ás.l. keppnistíma- bili, sótti eitt félag á Austfjörðum um frestun á leik vegna meiðsla leikmanna. Það félag fékk þvert nei við beiðni sinni og var í þokkabót sektað um 25.000 krónur og gert að leika báða leiki sína í sumar á heimavelli mótaðilans. Þetta félag var búið að fá vilyrði mótanefndar fyrir frestun leiksins. Á hvaða forsendum á að fresta leikjum ef ekki vegna meiðsla leikmanna? Á sama tima og neitað var að fresta þessum leik var leik frestað fyrir sunnan vegna landsleiks. Nú þykir mér gaman að vita hvort Einherji verður skikkaður til að borga sekt og leika báða leiki sína á Reyðarfirði? Þegar einn maður ætlar að ráða gangi heils riðils boðar það ekki gott. Ég skora á mótanefnd KSÍ að fylgjast 'betur með landsbyggðinni og láta ekki mann i einu félagi, eins og t.d. hér fyrir austan, ráðskast með málefni heils riðils. Það getur skipt sköpum um úrslit í riðlinum. -St.J. Öster lagði Malmö! - 2-0 á fimmtudag og vann síðan afftur í gærkvöldi og er komið í5. sæti í Allsvenskan „Það var miklu nær að við ynnum 4- 0, en að Malmö skoraði sitt fyrsta mark,” sagði Teitur Þórðarson hjá Öster, er DB sló á þráðinn til hans í morgun. „Þetta var langbezti lcikur okkar á þessu keppnistímabili og sigur- inn yfir Malmö, 2-0, var fyllilega verð- skuldaður. Staðan var 0-0 í leikhléi en i síðari háifleik skoruðum við tvívegis og tryggðum okkur mjög góðan sigur, þvi það eru ekki mörg lið sem koma frá Malmö með bæði stigin.” „Við lékum síðan við Kalmar í gær- kvöldi og unnum nú aftur 2-0. Ég skoraði í hvorugum leiknum, en tel mig «c Teitur Þórðarson hjá Öster og félagar hans eru nú heldur að ná sér á strik eftir slaka byrjun i Allsvenskan og Öster er komið f 5. sæti í deildinni. hafa sloppið þokkalega frá þeim báðum. Þetta er allt saman að koma til hjá okkur eftir heldur brösótta byrjun, en mikil meiðsli leikmanna settu strik i reikninginn hjá okkur fyrst. Við feng- um t.d. hægri bakvörðinn aftur inn í liðið gegn Malmö og það er greinilegt að Öster er að ná sínum fyrri styrk- leika. Við erum nú í 5. sæti í deildinni með 12 stig eftir 11 leiki, en efsta liðið er nú Halmstad með 16 stig eftir jafnmarga leiki þannig að við erum ekki nenia 4 stigum á eftir toppliðinu. Elfsborg var í efsta sæti fyrir leikina í gærkvöldi og lék þá við Halmstad og tapaði 0-1 þannig að þessi lið eru bæði með 16 stig og greinilegt er nú að það verður hörkubarátta um titilinn þetta keppnis- tímabilið. Næsti leikur okkar verður á mánudaginn gegn Hammarby í Stokk- hólmi og það þurfum við að vinna,” sagði Teitur. BÍLASALAN VITAT0RGI Símar: 29330/29331 Camaro Rally Sport árg. ’72, 8 cyl., Volvo 144 árg. ’70, Ijósdrapplitaður, Mazda 1300 árg. ’75, blár, gott lakk, Mazda 616 Coupé árg. ’74, ekinn 43 sjálfsk., brúnsanseraður m/hvitum ný sumardekk, útvarp. Góður bill, 2ja dyra, sumar- og vetrardekk fylgja, þús. Gulur, gott lakk, 2ja dyra. Bíll vinyltoppi, breið dekk, aflveltistýri, skoðaður ’79. Verð 1800 þús. útvarp-segulband. Skoðaður’79. Verð sem stendur fyrir sinu. Toppsölubill loftdemparar. Fallegur og góður bíll 1 2.1 millj. sem vcrður fljótur að fara. Verö 2.2 toppstandi. Verð 3.6 millj. Skipti. millj.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.