Dagblaðið - 19.06.1979, Page 24

Dagblaðið - 19.06.1979, Page 24
Buízt við bráðabirgðalögum ífarmannaverkfallinu ídag: frjálst, úháð daghlað ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ1979. Tvömorð- málfluttí Hæstarétti Innan fárra daga kveður Hæstiréttur væhtanlega upp dóma i tveimur morð- málum. Annars vegar er um að ræða mál Ásgeirs Ingólfssonar sem ákærður er fyrir að hafa ráðið Lovísu Kristjáns- dóttur bana 26. ágúst 1976. Hins vegar er um að ræða mál Einars Hjartar Gústavssonar sem ákærður er fyrir að hafa ráðið Halldóru Ástvaldsdóttur bana 15. ágúst 1977. Sakadómur Reykjavíkur kvað upp dóm í máli Ásgeirs í marz 1977 og i máli Einars Hjartar í desember 1977. Báðir voru dæmdir í 16 ára fangelsi. Að sögn Björns Helgasonar, hæsta- réttarritara, tekur rétturinn sér venju- legt sumarhlé í kringum næstu mánaðamót og fram til 20. september. Taldi hann allar likur á að dómar yrðu kveðnir upp áður. -GM. Sauðárkrókur: Kosið um áfengisútsölu Um næstu helgi ganga Sauðkrækl- ingar að kjörborðinu og kjósa um, hvort opna skuli áfengisútsölu á staðn- um. Nokkrir áhugamenn um þessi mál gengust fyrir undirskriftasöfnun þar sem farið er fram á að kosning fari fram. AUs rituðu um 90 manns nöfn sín á þann lista. Árið 1974 var kosið um þetta mál en þá var það kolfellt. Þeir er gengust fyrir undirskriftasöfnuninni nú munu bjartsýnir á að þeim takist að koma málinu í höfn og yfirleitt er búizt við tvísýnum kosningum. Á kjörskrá eru alls 1315 mans. -GAJ/TA, Sauðárkróki. Sjórall '79: FimmUárir —4 heltast úr iestinni vegna farmannaverkfalls Nú er ljóst að a.m.k. fimm bátar munu taka þátt í Sjóralli ’79, sem hefst 1. júlí. Hugsanlega kunna fleiri að bætast við fram að þeim tíma, en far- mannaverkfallið hefur sett strik í undirbúning nokkurra áhafnanna. Sýnist nú sem fjórir bátar hafi helzt úr lestinni þar sem ýmis búnaður hefur ekki borizt til landsins á tilsettum tíma. Áhafnir þeirra fimm báta, sem sýni- lega eru klárir, eru: Hafsteinn Sveins- son og Runólfur Guðjónsson, sigur- vegarar úr síðasta Sjóralli og keppa aftur á 22 feta Flugfiskbáti. Gunnar Gunnarsson, sem varð í öðru sæti í fyrra og tekur nú með sér Ásgeir Ásgeirsson á 22 feta Flecter báti. Bjarni Björgvinsson og Lára Magnúsdóttir, sem urðu í 3. sæti í fyrra fara nú á nýjum 23 feta báti frá Mótun hf. Eiríkur Kolbeinsson, Hinrik Morthens og Tryggvi Gunnarsson ætla á 17 feta Flugfiskbáti. Þeir ætluðu með í fyrra en náðu ekki að ljúka undirbúningi fyrir keppni. Þá ætla Ólafur Skagevik og Bjarni Sveinsson úr Vestmannaeyjum á 22 feta Flugfisk- báti. Keppendur komu saman í gærkvöldi til skrafs um nýtt stigakerfi, viðkomu- staði og fjarskiptaþjónustu FR manna, sem þeir eru að fullmóta. -GS. FRÍ hlaupið: Morgunblaðsmiðamir Ókáum- valda dánægju manna Mikillar óánægju gætir meðal ung- mennafélagsmanna í Borgarfirði, vegna þess að hlaupurum i lands- hlaupi FRl hefur verið gert að hlaupa með límmiða eins fjölmiðilsins, Morgunblaðsins, á maganum. „Þetta hafði ekki verið kynnt okkur,” sagði Haukur Júlíusson á Hvanneyri í morgun, en hann er for- maður Ungmennafélagsins Íslendings í Andakílshreppi og Skorradal. „Við fengum styrktarmiða til þess að selja og með fylgdi smá böggull með lím- miðum Morgunblaðsins. Við fengum engin fyrirmæli um hvað átti að gera við limmiðana. Heldur þykir okkur óeðlilegt að bera þessa miða á brjóstinu og gildir einu hvaða fjölmiðill á i hlut. Áður hafði Vtsir verið nefndur í þessu sam- bandi og höfðum við sömu afstöðu til þess. Mér skilst að þessi auglýsing hafi verið seld hæstbjóðanda. Það hafa ekki verið ákveðnar samræmdar aðgerðir ungmenna- félaganna. Um það verður UMSB að taka ákvörðun. Við munum þó ekki skerast úr leik og hlaupa okkar hluta.” Þá ræddi DB við Hauk Ingibergs- son stjórnarmann UMSB. Hann sagði að nokkrir formenn ungmenna- félaganna hefðu haft samband við sig vegna þessa og ekki viljað auglýsa einn fjölmiðil umfram annan. Menn hafa lýst yfir undrun sinni vegna þessará dreifimiða. „Ég býst við því, að margir ungir bændur séu ekki fúsir að hlaupa með þetta merki, sem tengist náið brott- hlaupi nokkurra þingmanna úr þing- sal, rétt fyrir þinglok, þar sem stöðvað var frumvarp landbúnaðar- ráðherra og bændur sviptir tekjum,” sagði Haukur i samtali við DB í morgun. -JH. ► Ýmsum kom það spánskt fyrir sjónir er borgarstjórí vinstri meirihlutans í Reykjavik hóf FRÍ hlaupið með Morgunblaðið á brjóstinu. Og ekki er Úlfar Þórðarson síður merktur. DB-mynd: Hörður. ferðar- merki og Ijósastaur Umferðarslys varð í Engidal í gær- kvöldi, þ.e. á mótum Reykjanesbrautar og Hafnarfjarðarvegar. Lögreglunni í Hafnarfirði var tilkynnt um slysið kl. 20.07. Hafði bifreið verið ekið á um- ferðarmerki og ljósastaur og hún síðan oltið. Skemmdist bifreiðin mikið og ökumaðurinn meiddist eitthvað. Var hann fluttur á slysadeild. Grunur leikur á, að hann hafi verið ölvaður. - GAJ Hann bætti þvi við, að hann væri fyrir löngu kominn á þá skoðun, að ekki þýddi að gróðursetja 17. júní blómin fyrreneftir 17. júní. -GAJ Njósnaskipið méiab — undan Stokksnesi Landhelgisgæzlan fylgdist í sfðustu viku með ferðum sovézka njósnaskipsins Zaporoze, þar sem það var skammt undan Stokksnesi. Er varðskip kom að njósnaskipinu, 35—40 milur undan Stokksnesi, voru tveir litlir bátar við skipshlið og unnu skipverjar við að mála skipið. Þótti varðskipsmönnum ekki vanþörf á, þar sem skrokkur njósnaskipsins var töluvert tekinn að flagna. Zaporoze er eitt fullkomnasta njósnaskip Sovétmanna, en Sovétmenn eiga sex slik skip. - JH 17. júní blómin gróðursett á nýjan leik, þar sem blómabeðin voru orðin eins og malbik eftir hátiðahöldin á Austurvelli. DB-mynd Sv. Þorm. Blómabeðin urðusem malbik „Þetta er alltaf sama sagan. Blóm sjást ekki á Austurvelli og við verðum að gróðursetja allt upp á nýtt. Ég held, að ástandið sé með alversta móti núna,” sagði Thcódór Halldórsson, yfirverkstjóri hjá Reykjavíkurborg, í samtali við DB í morgun um skemmd blómabeð á Austurvelli. „Fólk er ekkert að spekúlera í, hvort það stendur á malbiki eða í blómabeði. Heilu blómabeðin líta út eins og mal- bik,” sagði Theódór. KRATARGÁFU nDJCkiri inc iMFwliiif V m OUO — Vilmundurlautílaegra haldi—Alþýðufíokks- ogAlþýðu- bandalagsmem lögðust gegn atriði íuppkastí að lögunum Yfirgnæfandi meirihluti þing- flokks Alþýðuflokksins samþykkti um miðnættið að gefa ráðherrum grænt ljós til setningar bráðabirgða- laga til að stöðva farmannaverk- 'fallið. Vilmundur Gylfason og nokkrir aðrir lögðust gegn þessu en urðu undir. Þingflokkurinn gerði hins vegar athugasemd við það upp- kast að lögum, sem fyrir lá. Þar var gert ráð fyrir, að farmenn fengju 3% grunnkaupshækkun frá 1. júni og síðan fjallaði gerðardómur um, hvert kaup þeirra skyldi vera frá þcim degi, er bráðabirgðalögin verða sett. Þingflokkurinn vill fella niður úr lögunum þessa 3% kauphækkun frá 1. júni, sem ASÍ-fóik hefur ekki fengið. Útkoman varð hin sama á fundi þingflokks og framkvæmda- stjórnar Alþýðubandalagsins í gær, að þau 3% skyidu felld út. Kaupið, sem gerðardómurinn mun ákveða, skal gilda til áramóta. „Ég geri ráð fyrir því,” sagði Steingrunur Hermannsson dóms- málaráðherra þegar DB spurði hann hvort vænta mætti bráðabirgðalaga til lausnar farmannadeilunni eftir rík isstjórnarfund í dag. Steingrímur kvaðst ekki hlynntur þvi að lögfesta sáttatillöguna sem fram kom um helgina. Formlega er það samgönguráð- herra sem gefa á út bráðabirgðalög i farmannadeilunni. cn hann er er- lendis. Steingrimur Hermannsson sagðist búast við því að félagsmála- ráðherra hlypi í skarðið. Magnús H. Magnússon félags- málaráðherra bætti því við að þjóðin öll yrði að taka á sig skellinn vegna olíuhækkananna og kvað aðgerða að vænta t þeim málum innan fárradaga. -HH/GM.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.