Dagblaðið - 21.06.1979, Síða 3

Dagblaðið - 21.06.1979, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ1979. 3 Betra er að húka heima en selja slúðursögur 7095—7051 á Borgarfirði eystra hringdi: Fimmtudaginn 14. júní birtist viðtal við íbúa á Borgarfirði eystri, sem ekki vill láta nafns síns getið, um hið ömurlega atvinnuástand. Þar heldur þessi íbúi fram hinum fjar- stæðukenndustu staðhæfingum. Veit þessi íbúi ekki, að það þarf að skila unnum 6 mánuðum til að komast á atvinnuleysisskrá? Á einum stað í viðtalinu segir: „Margir bændur vinna i sláturhúsinu að hausti til að komast síðan á atvinnuleysisbætur”. En vinna kringum sláturtíð stendur í mesta lagi yfir í sex vikur. Þessi íbúi heldur því einnig fram, að menn geti fengið lánaða tíma hjá öðrum, sem aflögufærir eru með vinnutíma. Hvað kallar þessi íbúi að vera „aflögufær með vinnutíma?” Maður sem virinur í 5 mánuði eða meira getur ekki lánað hvorki eirium né neinum vinnutíma sinn. Þetta er fjarstæða. Einnig vil ég geta þess, að ekki er hægt að fá inngöngu í verka- iýðsfélagið með einkasímtali við ein- hvern stjómarmanna. Getur þessi íbúi bent á eitt slíkt dæmi? Hins veg- ar samþykkti stjórn verkalýðs- félagsins að nóg væri að sækja um inngöngu í félagið skriflega og nóg að skila umsókn til stjórnarinnar. Þar er nokkur munur á. Að síðustu skora ég á þennan íbúa að nefna mér dæmi um að bóndi hafi skrifað upp á tíma hjá syni sínum, án þess að greiða honum kaup, til að koma honum á atvinnuleysisstyrk. Hins vegar skal þó segja, að atvinnu- málin á Borgarfirði eru ekki eins og menn gætu kosið sér að væru. En þetta byggðarlag hefur getað leyst sín vandamál án þess að hlaupa með það í fjölmiðla. En eitt má „íbúi” vara sig á: Næst þegar hann klagar í þjóðina. Það er, að hafasínar upplýsingar réttar, frekar en að vera að auglýsa slúðursögur, sem oft myndast vegna illgirni og öfundar. Frá Borgarfirði eystri. / AFMÆUST1LB0Ð FRÁ SONY Núerututtuguárliðinfráþvíað sony framleiddi fyrstamyndsegulbandiö í heiminum. I tilefni afmælisins fáíslenzkirkaupendureftirfarandi tilboö: TRINITRON-PLUS Enginngeturkeppt viö Trinitmn myndlampann — Hann gefurbetri litogskarpariogbjartari mynd BETAMAX SL-8000 mm Oruggasta ogmestselda myndsegulband áheimsmarkaði Varkr. 669.900 Varkr. 1.199.000 NÚ kr. 489.800 Stadgreiðsluverð NÚkr. 869.900 Staðgreiðsluverð BORÐARÞÚ HVALKJÖT? Tómas Tómasson: Nei, mér finnst það vont. Ég smakkaði þaðeinu sinni. Herdís Heiðdal: Já, og mér finnst það alveg ágætt. Ásta Mcyvantsdóttir: Já, þegar ég fæ það gott, er það það bezta sem ég fæ. Japanirnir fá bara alltaf það bezta. Vilhjálmur Arngrímsson: Hrefnukjöt helzt, hvalkjöt finnst mér ekki gott. Bima Kristbjörnsdóttir: Já, ég borða hvalkjöt, mér finnst það ekkert sér- staklegagott en það máborða það. Kr. 515.600 Afborgunarskilmálar Kr. 916.900 Afborgunarskilmálar EF BÆÐITÆKIN ERU KEYPT í SETTI KR. 499.900 + 899.900= SAMTALS KR. 1.399.800 —5 ára ábyrgð á myndlampa — Eigum fyrirliggjandi mikið efni afáteknum Video-spólum JflPIS Lœkjargötu 2 Box 396 Símar 27192 27133 Guðjón Guðmundsson: Já, já, þaðgeri ég og mér finnst það ágætt og það á að leyfa veiðar á hvölum. DB-myndir Árni Páll.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.