Dagblaðið - 21.06.1979, Qupperneq 7
DAGBLADIÐ. FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1979.
7
Morói fréttamanns sjón-
varpaö um Bandaríkin
—var skotinn í höfuðið af þjóðvarðliðum Somoza einræðisherra þar sem hann lá vamarlaus á jörðinni
Morði þjóðvarðliða Somoza
einræðisherra í Nicaragua á banda-
rískum sjónvarpsfréttamanni var
sjónvarpað um nærri öll Bandaríkin í
gærkvöldi. Á myndinni sést hvernig
þjóðvarðliðar umkringja fréttamann-
inn þar sem hann liggur á jörðinni en
hann síðan skotinn í höfuðið. Gerðist
þetta nærri víglínunni á milli herja
liðs Somoza einræðisherra og skæru-
liða sandinista við höfuðborg Nicara-
gua, Managua.
Svo virðist sem bifreiðarstjóri sjón-
varpsmannanna frá bandarísku ABC
stöðinni ‘hafi einnig verið skotinn til
bana. Var hann færður á brott en
skömmu síðar heyrðist skot að sögn
myndatökumannsins frá ABC sem
slapp heill á húfi úr höndum
þjóðvarðliðanna.
Fréttamaðurinn, Bill Stewart, 38
ára að aldri var búinn að vera í
Nicaragua síðan 10. júní síðast-
liðinn vegna átakanna á milli liðs
Somoza einræðisherra og skæruliða
sandinista.
í gærkvöldi fordæmdi Jimmy
Carter Bandaríkjaforseti morðið á
fréttamanninum. Sagði hann morðið
að vera svívirðilegan verknað, sem
allt siðmenntað fólk hlyti að
fordæma.
Cyrus Vance utanríkisráðherra
Bandaríkjanna sagði í gærkvöldi, að
hann hefði krafizt skýrslu um atburð
þennan af sendiherra Bandaríkjanna
i Nicaragua og einnig frá utanríkis-
ráðherra landsins.
Að sögn kvikmyndatökumannsins
var Bill Stewart að ganga að varðstöð
þjóðvarðliða, þegar hann fékk
skipun um að nema staða, rétta
hendur upp fyrir höfuð en örsköntmu
síðar var hann skotinn til bana.
Bandariskir ríkisborgarar i Nicaragua hafa nær allir verið fluttir á brott. A mvndinni sjást nokkrir þeirra fara um borð í
Hercules herflugvél á flugvellinum við Managua.
Nicaragua:
LÍK HERSHÖFDINGJA
BORK) UM BORGINA
—stríðsaðilar reyna að bæta stöðu sína fyrir vopnahlé
Flóttamenn frá Leon, næststærstu
borg Nicaragua, sögðu frá því i gær-
kvöldi að hún væri nú algjörlega á
valdi skærul ja sandinista. Loka-
bardaginn var að sögn um stjórnstöð
þjóðvarðliða en þegar liðsmenn skæru-
liða tóku hana féll meðal annarra hátt-
settur liðsforingi í her Somoza
einræðisherra. Fögnuðu þeir mjög og
var líkami herforingjans hafður til
sýnis á götum Leon siðast er til fréttist.
í höfuðborg Nicaragua er stöðugt
barizt og virðast bæði sandinistar og
þjóðvarðliðar Somoza einræðisherra
leggja allt kapp á að gera stöðu sína
eins góða og kostur er áður en samtök-
um Ameríkurikja tekst að koma á
vopnahléi.
Svo virðist sem skæruliðar, sem eru
sagðir til muna betur vopnaðir heldur
en í síðustu skærum í september síðast-
Iiðnum, leggi höfuðkapp á að ná borg-
inni Rivas, 35 kílómetrum norður af
landamærum Costa Rica. Sjálfir
segjast þeir hafa tekið úthverfi borgar-
innar en foringi þjóðvarðliðanna sem
verja borgina og umhverfi ber á móti
og segist hafa stöðvað sókn þeirra rétt
við landamærin. Sandinistar hyggjast
að eigin sögn setja á fót bráðabirgða-
ríkisstjórn í Rivas.
Kúbumenn hafa sakað Bandarikja-
menn um að vilja setja á fót falska
friðarsamninganefnd og síðan koma
upp nýrri leppstjórn sinni í Nicaragua.
Segja Kúbumenn að með því geti orðið
nýtt Vietnam í Mið-Ameríku.
FlugrániöíChicago:
Ræninginn lagði
upp i motgun, á-
fangastaður óviss
Júgóslavneskur fiugræningi, sem
styður þjóðernissinna í Serbíu rændi í
gærkvöldi þotu af gerðinni Boeing
727 og neyddi áhöfn hennar til að
lenda á O’Hare flugvellinum við
Chicago. Fimm klukkustundum síðar
var 127 farþegum um borð í vélinni
sleppt, ásamt fimm af áhöfninni. Var
'flugræninginn þá einn eftir ásamt
þrem af áhöfninni.
Ræninginn er sagður vera 45 ára
gamall og hafa verið fundinn sekur
um áform um að ráða júgóslavneska
sendimenn í Bandaríkjunum af
dögum. Kröfur hans eru þær að
félaga hans, serbneskum presti, verði
sleppt úr fangelsi og flogið verði með
þá til Perú í Suður-Ameríku.
Um klukkan fimm í morgun fór
Boeing 727 þotan frá Chicago. Ekki
var kunnugt um áfangastað en að
sögn hafði eldsneyti til þriggja og
hálfrar klukkustundar flugs verið sett
á vélina.
Var presturinn, félagi mannsins,
þá ekki um borð i þotunni. Aftur á
móti var einn lögmanna þeirra félaga
sagður hafa verið um borð.
Deilt um DC-10 flug
Flugyfirvöld í Evrópulöndum með
Sviss í fararbroddi telja að bann banda-
riskra flugyfirvalda við því að DC-10
þotur skráðar í öðrum löndum megi
lenda í Bandaríkjunum, sé brot á al-
þjóðaflugreglum.
Bandaríkjamenn telja aftur á móti
ákvörðun Evrópuríkja um að heimila
DC-10 þotum að fljúga áður en sér-
fræðingar vestra telji að fullu gengið úr
skugga um hvort gallar leynist í vélinni,
mjög vafasama.
Laus staða
Staða ritara I hjá Vita- og hafnamálaskrifstof-
unni er laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist fyrir 25. júní.
Vita- og hafnamálaskrifstofan
Seljavegi 32.
Skrifstofustarf
Verzlunarmannafélag Suðurnesja vill
ráða starfskraft til skrifstofustarfa í fullt
starf.
Umsóknir sendist til Valgarðs Krist-
mundssonar, Lyngholti 11 Keflavík,
fyrir 1. júní 1979. Stjórnin.
Kennaraháskóli Islands
Tilboð óskast í að steypa upp og fullgera að
utan nýbyggingu Kennaraháskóla íslands við
Stakkahlíð.
Verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 1981.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri
gegn 75.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða
opnuð á sama stað, þriðjudaginn 10. júlí kl.
11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006