Dagblaðið - 21.06.1979, Page 12

Dagblaðið - 21.06.1979, Page 12
12 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1979. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1979. i 13 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Hjeltnes kastaði kringlu 68 m Norski kringlukastarinn Knut Hjeitnes þcytti kringlunni 68 metra á heimsleikunum i Helsinki í gærkvöld og sigraði eftir harða keppni við Finnann Markku Tuokko, sem kastaði 67.78 metra. Þetta var einn af hápunktum heimsleikanna, sem voru i daufara lagi að þessu sinni. í þriðja Henry Rono keppti aldrei þessu vant á stórmóti í heimalandi sínu, Kenýa, í gær. Sigraði í 3000 m hindrunarhlaupi en náði slökum tíma 8:34.16 mín. næstum hálfri mínútu frá heimsmeti sínu. Bandarisk ólympíumeistarinn Gdwin Moses sigraði í 400 m grindahlaupi á 49.76 sek. og rétt sigraði Daniel sæti í kringlunni varð Juhani Tuomola, Finnlandi, með 63.60 metra. Gunther Lohre, V-Þýzkalandi, sigraði Finnann kunna, Antti Kalli- omaki, í stangarstökki. Stökk 5.50 m en Finninn 5.40 m. Kimmo Pallonen, Finnlandi, varð þriðji með 5.30 m. í Kimiyo, Kenýa, — samveldismeistar- ann. í 100 m hlaupinu sigraði Steve Williams, USA, á 10.30 sek. rétt á undan landa sínum Jcrome Deal. Mest kom á óvart, að Rudy Chapa, USA, sem nýlega sigraðid Rono í 3000 m hlaupi, tapaði á þeirri vegalengd fyrir kenískum hermanni, Gcorge Kamau, sem sigraði á 8:00.85 mín. Þunna loftið í Nairobi á þátt í slökum árangri. 10000 m hlaupi var hörkukeppni. Japaninn Seko sigraði á 28:02.6 mín. rétt á undan Artti Vainio, Finnlandi, 28:04.3 mín og reyndist Japaninn sterkastur á endasprettinum. David Black, Bretlandi, varð þriðji á 28:06.9 mín. og sama tíma fékk Kita, Japan. Sigurvegarar í öðrum greinum urðu • Voker Beck, V-Þýzkalandi, í 400 m grindahlaupi á 49.66 sek. Pirjo Hággman, Finnlandi, í 200 m hlaupi kvenna á 23.79 sek. Hannu Polvi, Finnlandi, í sleggjukasti, 72.18 m. Markku Taskinen, Finnlandi, í 400 m hlaupi á 47.66 sek. Alejandra Ramos, Chile, í 1500 m hlaupi kvenna á 4:13.8 mín. Mary Stewart, Bretlandi, önnur á 4:14.8 mín. Petar Petrsov, Júgóslavíu, í 100 m hlaupi á 10.53 sek. og Philippe Deroche, Frakklandi, í langstökki 7.60 metra. Rivera hættur Gianni Rivera, cinn af beztu knatt- spyrnumönnum ítaliu gegnum árin, til- kynnti i gær i Milano að hann hefði lagt knattspyrnuskóna á hilluna. Hann er 35 ára. Lék 60 landsleiki sem innherji. Þrívegis ítalskur meistari og var í sigurliði AC Mílanó, sem sigraði í Evrópubikarnum 1963 og 1968 — og sigraði einnig tvívegis með liðinu í Evrópukeppni bikarhafa. Rono vann í Nairobi erlenda höfunda, framhaldssögur, popp- korn,tískufréttir,greinar um fróðlegt efni og furðulegt, myndasögur fyrir börnin, get- raunir, heilabrot, draumaráðningar, póstinn landsfræga, pennavinaþáttinn o.fl. Þannig sparar þú þér kr. 3.200 og færð Vik- una senda heim þér að kostnaðarlausu. Vikan flytur efni fyrir alla fjölskylduna: Forsíðuviðtölin frægu, myndasyrpur af mannamótum, smásögur eftir innlenda sem ★ Sérstakir þættir nú: Tilboð þotta gildir út júnimánuð. Áskriftin gildir fró nœstu mánaðamótum og miðast við að greiðast innan mánaðar. Gríptu símann, hringdu i 27022, fáðu samband við áskrifendaþjónustu Vikunnar og pantaðu nýju óskriftina. Áskrifendaeími 27022 X Ævar R. Kvaran ritar um: Undarleg atvik ★ Klúbbur matreiðslumeistara kennir matreiðslu nýstárlegra rétta.Nákvæmar leiðbein- ingar í máli og-mvndum. Allt hráefni fæst í verslunum hérlendis. ★ VON Vikan og Neytendasamtökin taka höndum saman í neytendamálum. ★ Og svo er alltaf plakatið góða í miðri Viku. ★ Jónas Kristjánsson ritstióri prófar víntegundirnar í Á.T.V.R. og gefur beim einkunnir. ★ Mini Krimmi Willys Breinholst. ★ Börnin og við. Guðfinna Eydal, sálfræðingur, ritar greinaflokk um uppeldismál og samskipti barna og fullorðinna yfirleitt. Breiðablik skoraði átta í Sérsambönd og einstök félög innan íþróttahreyfingarinnar efna oft til blaða- mannafunda. Undirritaður hefur ekki kynnzt því fyrr en á tveimur fundum með stjórnarmönnum Frjálsiþróttasambands ís- lands — FRÍ — að vísvitandi blckkingar hafi verið hafðar í frammi. Blaðamönnum bein- línis sagt ósatt um ákveðin atriði, sem þeir spurðu um i sambandi við Landshlaup FRI. Oheilindi þeirra Arnar Eiðssonar, formanns FRÍ, og Sigurðar Helgasonar, útbreiðslu- stjóra, voru alveg óþörf. Þeir þurftu ckkert að fela — en því þá að gera sig seka um slíkt? Nú streyma inn mótmæli — mótmæli, sem ekki hefðu til komið ef blaðamenn hefðu fengið tækifæri til að skýra lesendum sínum rétt frá gangi mála í sambandi við lands- hlaupið. Furðulegur feluleikur. í lok blaðamannafundar FRÍ í fyrri viku spurði undirritaður hvað liði blaðaútgáfu FRÍ í sambandi við landshlaupið. Greinilegt að þeir Sigurður og Örn ætluðu ekkert að minnast á það atriði en á fyrri fundinum var skýrt frá ýmsum tekjuleiðum, sem FRÍ mundi efna til, m.a. blaðaútgáfu. Jafnframt var þá skýrt t'rá að enginn fjölmiðill myndi styrkja FRÍ í sambandi við hlaupið. Örn svaraði spurningu minni á þá leið, að auglýsendur hefðu haft lítinn sem engan áhuga á að auglýsa í FRÍ-blaði og því hefði náðst samkomulag við Morgunblaðið að gefa út sérstakt auglýsingablað FRÍ með Morgunblaðinu — sérútgáfa. Það blað kom út sl. föstudag og var FRÍ til lítils sóma — hrákavinna. í framhaldi af fyrri spurningunni spurði þá undirritaður hvort þar með væri ekki brostin fyrri yfirlýsing um að enginn fjölmið- ill væri á einhvern hátt viðriðinn hlaupið. Örn endurtók þá fyrri ummæli sín og það á sama tíma og miðar með nafni Morgun- blaðsins voru á leið í pósti til sérsamband- anna — miðar, sem líma átti á hvern hlaup- araí bak og fyrir. Það hafa verið óheilindi í sambandi við þetta hlaup frá byrjun, sem skýrir að nokkru framkomu forráðamanna hlaupsins nú á blaðamannafundum FRÍ. Þegar frjáls- íþróttadeild Breiðabliks efndi til maraþon- boðhlaups i samvinnu við Dagblaðið um mánaðamótin september-október í fyrra, kom Jónas Kristjánsson, ritstjóri DB, fram með þá hugmynd að hlaupið yrði eftir hring- veginum kringum ísland. Þá var orðið áliðið sumars — undirbúningur of skammur — að ekki þótti á það hættandi. Hins vegar var þá fastmælum bundið að efna til slíks hlaups í samvinnu við Ungmennafélag íslands næsta vor og hafði Hafsteinn Jóhannesson, hinn ötuli forustumaður Kópavogsfélagsins, for- göngu i því máli við UMFÍ. Þetta komst fljótt í hámæli í Kópavogi. Næst skeður það að FRÍ er allt í einu komið í dæmið með slíkt hringhlaup í sam- vinnu við Vísi. Á fyrri blaðamannafundi FRÍ í vor sagði Sigurður Helgason, sem býr í Kópavogi, að hann hefði gengið með þessa hugmynd um hringhlaup um ísland í magan- um í mörg ár. Ekki hafði þó komið fram — að vitað sé — að Sigurður hafi skýrt nokkr- um manni frá þessari hugmynd sinni fyrr en það var á hvers manns vörum í Kópavogi að UMFÍ ætlaði að efna til hringhlaups. Hug- mynd Sigurðar að hafa Landshlaup FRÍ i samvinnu við Visi fékk hins vegar skjótan endi. Ýmsum héraðssamböndum úti á landi — innan vébanda UMFÍ — sem fannst spónn tekinn úr sínum aski neituðu að taka þátt í landshl-i ipi á vegum FRÍ og Vísis. Þar með var það atriði úr sögunni — en síðar kom Morgunblaðið inn i myndina. Algjör feluleikur FRÍ þó í sambandi við það mál. Landshlaupi FRÍ lýkur á þriðjudag — 26. júní — og við skulum vona að það takist sem bezt þrátt fyrir þann leiðindabrag, sem hlaupið hefur fengið á sig vegna óheilinda forustumanna FRÍ. Fjármál frjálsíþrótta- sambandsins eru í hinni mestu óreiðu — og vonandi kippir landshlaupið þeim lið í lag. Það virðist ekki vanþörf á því að laga einnig aðra liði starfsemi FRÍ — áður en við verðum lakasta frjálsíþróttaþjóð heims. ísland ber nú þann titil í Evrópu, því miður — varð i síðasta sæti meðal fimm slökustu frjálsíþróttaþjóða Evrópu i keppni í Luxem- borg um síðustu helgi. Sorgleg örlög þjóðar, sem eitt sinn átti stóran hóp frjálsíþrótta- manna, sem voru meðal hinna beztu í Evrópu. - hsím. Æf ir markverði framtíðarinnar Markvörðurinn snjalli Þorsteinn Bjarnason, sem leikur með belgíska liðinu La Louviere, situr ekki auð- um höndum, þótt hann sé i fríi heima i Keflavík. Við rákumst á hann á laugardagsmorguninn i suddaveðri úti á velli við að æfa markverði yngri flokkanna úr Keflavikurfélögunum af miklum krafti. „Ég fann nokkuð fyrir því sjálfur, hvað við vorum afskiptir hjá þjálfurunum, sem markið áttum að verja,” sagði Þorsteinn, „og þess vegna langar mig til að veita framtíðarstrákunum hérna dálitla tilsögn, eða eins og tfmi minn leyfir, og vona að það komi þeim að gagni.” Við trufluðum ekki meira við æfinguna, þar sem strákarnir stukku, hoppuðu, köstuðu sér kylliflötum og voru auðvitað látnir grípa knöttinn í loftköstun- um. — emm Þeir sovézku urðu Evrópumeistarar! Sigruðu fsrael í úrslitaleiknum á EM í körfuknattleik Sovétríkin unnu auðveldan sigur á ísrael í úrslitaleik Evrópumeistaramótsins i körfuknatt- leik í Torino á Ítalíu í gærkvöld. Lokatölur 98-76 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 47-38 fyrir Bjami varð í fimmta sæti Bjarni Björnsson, Ægi, komst í úrslit í 200 m skriðsundi á skozka meistaramótinu í Edinborg. Varð þar fimmti á 2:01.93 sek. sem er hans bezti árangur. Bætti árangur sinn um tvær sekúndur. Brynjólfur Björnsson, Á, varð 12. á vegalengd- inni, synti á 2:06.08 mín. í 100 m. flugsundi synti Brynjólfur á 1:04,79 mín. og Ingi Þ. Jónsson, ÍA, á 1:05.03 mín. Ólöf Siguröardóttir, Selfossi, synti 100 m. skriðsund á 1:06.63 mín. en Margrét Sigurðardóttir, UBK, á 1:06.87 mín. í 200 m fjórsundi varð Hugi Harðarson, Selfossi, i 13. sæti á 2:24.83 mín. Ingi synti á 2:27.81 mín. Ingólfur Gissurarson, ÍA, á 2:30.18 mín. og Hafliði Halldórsson, Æ, á 2:37.40 mín. Í 400 m fjórsundi kvenna synti Sonja Hreiðarsdóttir, Æ, á 5:37.3 mín. og Ólöf á 5:50.96 mín. Þóranna Héðinsdóttir, Æ, synti 200 m baksund á 2:40.99 mín. sovézku risana. í riölakeppninni unnu Sovétríkin cinnig sigur á ísrael, þá með 19 stiga mun fyrir þremur dögum. ísrael kom mjög á óvart í keppninni — enginn hafði reiknað með að Ísrael kæmist í úrslit en landið leikur í Evrópukeppninni vegna útilok- unnar í Mið-austur löndum. ísraelsku leikmenn irnir hafa yfir mikilli leikni að ráða — en urðu í gær að láta í minni pokann á öllum sviðum körfuknattleiksins. Erfiðasti mótherji þeirra í úrslitaleiknum var risinn Thachenko, 2.20 m, hæsti maður í keppn- inni, sem skoraði 29 stig. Sovétmenn höfðu mikla yfirburði hvað hæð snerti i gær. Þeir Belov og Tarakanov komu næstir i stigaskorun- inni með 22 -*:g hvor. Þessir þrir leikmenn skoruðu nær öll stig sovézka liðsins — eða 73. Hin 26 stigin skiptust á níu leikmenn. í liði ísrael bar mest á Bercovich, sem skoraði 16 stig — en Yanai var stigahæstur Ísraelsmanna með 18 stig. Silver var með 12 og Menkon 10. Kaplan sex — aðrir færri. Sovézka liðið varð sterkara með hverjum degi á mótinu í Torinó og er nú talið Iíklegt til að hljóta einnig heims- meistaratitilinn. þriðju umferð bikarsins! —og komst Í4. umferð ásamt Fylki, ÍBÍ, Þór, Akureyri og KS Fimm leikir voru háðir í þriðju um- ferð Bikarkeppni KSÍ í gærkvöld víðs vegar um landið — og einn leikur var leikinn úr 2. umferð á Austfjörðum. Eftir leikina í gær verða það Fylkir, Breiðablik, ísafjörður, Knattspyrnu- félag Siglufjarðar, Þór Akureyri, og annaðhvort Þróttur, Neskaupstað, eða Austri, Eskifirði, sem verða í hattinum, þegar dregið verður til fjórðu umferðar keppninnar og liðin úr 1. deild hefja keppni. En lítum nánar á úrslit leikjanna í gær. Austri gegn Þrótti í gærkvöld léku Einherji og Austri leik sinn úr 2. umferð á Vopnafirði á hálum grasvelli, sem engan veginn var í standi til að leika á. Leikurinn var frek- ar jafn en strax á 10. mín. náði Austri forustu með marki Magnúsar eftir hornspyrnu og staðan í hálfleik var 0-1. Á 55. mín. skoraði Sigurbjörn Marinósson annað mark Austra með glæsilegu skoti i bláhornið af 25 metra færi. Á 70. mín. fékk Bjarni Kristjáns- son stungubolta og skoraði þriðja mark Austra. Fimm mínútum síðar skoraði Baldur Kjartansson fyrir Einherja beint úr hornspyrnu. Fleiri urðu mörkin ekki í leiknum. Leikurinn var jafn en Austri nýtti betur færi sín og greinilegt að leik- menn Austra eru að násér á strik. Mun betri en fyrst í vor og ekki öll von úti að þeir haldi sæti sínu í 2. deild. Góður dómari var Jón Sigurjónsson. V.S. Breiðablik með átta Efsta liðið í 2. deild, Breiðablik, vann stórsigur á Leikni úr Breiðholtinu á grasvellinum í Kópavogi. Átta sinn- um hafnaði knötturinn í marki Leiknis án þess leikmönnum 3. deildar-liðsins tækist að skora. Þeir fengu þó tæki- færi til þess — vítaspyrna dæmd á Breiðablik en Ólafur Hákonarson varði. Staðan 4-0 í hálfleik. Hákon Gunnarsson, Sigurjón Rannversson, Vignir Baldursson og Sigurður Grétars- son skoruðu. í s.h. skoruðu þeir Heiðar Breiðfjörð, Ólafur Friðriksson, Gunnlaugur Helgason og Sigurjón Rannversson. Fylkir vann Á Laugardalsvelli léku Reykjavíkur- liðin Ármann og Fylkir og Árbæjar- liðið sigraði 3-1. Staðan í hálfleik 1-0 fyrir Fylki. Mörk Fylkis skoruðu Grettir Gíslason tvö og Ómar Egilsson en Smári Jósafatsson mark Ármanns. Sanngjarn sigur Fylkis, sem lék betur á rennblautu grasinu í Laugardalnum. Leikurinn hófst hálftíma of seint. Svo mikið rigndi að línurnar á vellinum máðust burt. Varð því að kríta völlinn á nýauk þess, sem stefnunni var breytt. Rétt fyrir leikhléið meiddist einn leik- maður Fylkis, Hörður Antonsson, og var fluttur með sjúkrabíl á slysavarð- stofuna. Þór sterkur á Dalvík Þór, Akureyri, vann öruggan sigur á Svarfdælingum á Dalvík — komst í 3-0 áður en Svarfdælir skoruðu sitt eina mark. Úrslit 3-1 eftir 2-0 í hálfleik fyrir Þór. Þórarinn Jóhannsson, fyrrum leikmaður Fram, skoraði fyrsta mark Þórs. Nói Björnsson annað — og í sið- ari hálfleiknum skoraði Zóphónías Árnason þriðja mark Þórs. Björn Frið- þjófsson skoraði eina mark Svarfdæla — og sigur Þórs var sanngjarn. - St.A. ísafjörður áfram ísfirðingar unnu Gróttu, iitla liðið af Seltjarnarnesinu, 2-0 í Bikarkeppni KSÍ á ísafirði i gærkvöldi, en ekki verður annað sagt en ísfirðingar hafi þurft að hafa rækilega fyrir sigrinum. Leikmenn Gróttu ferðuðust með tveimur flugvélum til ísafjarðar og sú síðari var varla lent þegar leikurinn hófst. Taugaveiklun einkenndi leik beggja ,liða í upphafi og framan af var algert jafnræði með liðunum. Á 13. mínútu komst Gunnar I.úðvíksson í gegnum vörn ísfrðinga en var brugðið. Víti! hrópuðu leikmenn Gróttu, en ágætur dómari leiksins dæmdi aðeins.auka- spyrnu. Úr aukaspyrnunni skaut Gísli Gíslason góðu skoti innan á stöng og varnarmenn bægðu hættunni frá. Fimm mínútum síðar fékk Grótta aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi ísfirðinga. Upp úr aukaspyrnunni náði Sigurður Sverrisson knettinum, en Valur—IA íkvöld Hví þessi óheilindi Stórleikur verður í 1. deild í kvöld á Laugardalsvellinum. Þá leika Valur og Akranes, sem voru yfirburðalið í islenzkri knattspyrnu í fyrresumar en hefur ekki gengið eins vel í sumar og reiknað var mcð.llv.tð im það þá má búast við skemmtilegum og tvísýnum leik i Laugardalnum í kvöld. Leikurinn hefst kl. 20.00. Pálmi skoraði Það var Pálmi Jónsson, sem skoraði fyrra mark FH í 2. deildar-leiknum á ísafirði um síðustu helgi, ekki Óttar Sveinsson eins og skýrt var frá hér í blaðinu.Pálmi er beðinn velvirðingar á því — en markið var tekið af honum í öllum fjölmiðlunum. Ta FRI? gróflega var brotið á honum tnnan víta- teigs og vitaspyrna var dæmd. Gísla Gíslasyni var falið að taka spyrnuna, en markvörður ísfirðinga, Pétur Guð- mundsson, varði skot hans auðveld- lega. Allan fyrri hálfleikinn gat varla heitið að ísfirðingar ættu tækifæri og i leikhléi var jafnt 0-0. Strax í upphafi síðari hálfieiks var augljóst að ísfirðingar ætluðu sér sigur og ekkert annað. Þeir náðu fljótlega undirtökunum og sóknarlotur þeirra buldu á vörn Gróttu, sem lét engan bil- bug á sér finna. Að baki vörninni varði Sverrir Hafsteinsson af snilld. Árni Guðmundsson komst í dauðafæri er um 20 mín. voru af síðari hálfleik, en markvörður ÍBÍ varði vel. Aðeins tveimur mín. síðar skoruðu ísfirðingar fyrra mark sitt. Varnarmanni Gróttu var þó grófiega hrint áður en markið var skorað af Andrési Kristjánssyni. ís- firðingar tóku öll völd eftir þetta og oft bjargaðist mark Gróttu á ótrúlegan hátt. Síðara mark ísfirðinga skoraði síðan Gunnar Guðmundsson þegar 8 mín. voru til leiksloka. Ekki er þó gott að segja hvernig farið hefði ef Grótta hefði náð að skora úr vitaspyrnunni í fyrri hálfieik. - SSv. Spennandi á Sigló KS sigraði Tindastól í hörku- skemmtilegum leik á Siglufirði, þar sem Sauðkræklingar skoruðu tvö fyrstu mörkin í leiknum. Staðan reyndar 0-2-fyrir Tindastól í hálfieik. Siglfirðingar tóku hins vegar heldur betur við sér í þeim síðari — skoruðu fimm mörk og sigruðu 5-3. Þó varði markvörður Tindastóls, Ástmar Þorkelsson, vitaspyrnu Siglfirðinga. Mörk KS skoruðu Haraldur Ragnars- son þrjú, Friðfinnur Hauksson og Ólafur Ragnarsson en Örn Ragnars- son, Þórhallur Ásmundsson og Sigurjón Magnússon mörk Tindastóls. St.A. C0SM0S fékk skell Thomas Sjöberg, sænski miöherjinn frægi, sem skoraði gegn Brasiliu á HM í fyrra, lék sinn fyrsta leik i Bandaríkj- unum á sunnudag og skoraði. Hann leikur með Chicago Stings og skoraði þriðja mark liðsins í 3-1 sigri gegn Philadelphia Fury í Chicago. Dcrek Spalding og Hollendingurinn Wim van Hannegan skoruðu hin mörk Chicago- liðsins en Frank Worthinglon (Bolton) eina mark Fury. New York Cosmos fékk skell í Van- couvcr gegn Whitecaps. Tapaði 4-1 en heldur þó forustu í sínum riðli. Franz Bcckcnbauer lék ekki mcð Cosmos vegna meiðsla og fleiri stórstjörnur liðsins eiga einnig við meiðsli að striða. Dallas Tornado sigraði Minnesota Kicks 2-0 en með síðarnefnda liðinu leikur Björn Nordquist, fyrirliði HM- liðs Svía í fyrra, og sá leikmaður í heiminum, sem leikið hefur flesta landsleiki. Þrátt fyrir tapið er Minne- sota efst í sínum riðli. hsím.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.