Dagblaðið - 21.06.1979, Page 23
Nýtt og margt gott
— í sjónvarpi eftir sumarfrí, að sögn Bjöms Baldurssonar
t-------------\
LEIKRITVIKUNNAR
— útvarp kl. 20.10:
Spuminga-
keppni
frekar
en leikrít
Leikrit fimmtudagsins heitir að þessu
sinni Vogun vinnur og er eftir Sylviu
Hoffman í þýðingu Torfeyjar Steins-
dóttur. Leikstjóri er Friðrik Stefánsson
og með aðalhlutverk fara: Jónas Jónas-
son, Sigurður Grétar Guðmundsson,
Sigurveig Jónsdóttir, Marinó Þor-
steinsson og Helga Harðardóttir.
Vogun vinnur gæti fremur kallazt
spurningakeppni en leikrit. Þarna
keppa tvær fjölskyldur, önnur norð-
lenzk og hin sunnlenzk, undir rögg-
samri handleiðslu Jónasar stjórnanda.
Þetta er stigakeppni, og fólk verður að
gæta vel að orðum sínum, því að sigur-
vegarinn fær hálfa milljón í verðlaun.
Höfundurinn, Sylvía Hoffman, er
fædd í Berlín árið 1938. Móðir hennar
var söngvari og faðir hennar hljóm-
sveitarstjóri. Hún ólst upp i Austur-
Þýzkalandi þar til hún var 17 ára. Þá
fluttist hún vestur á bóginn og-vann
ýmiss konar störf þar eð hún hafði ekki
efni á framhaldsnámi.
Árið 1958 gifti hún sig bandarískum
blaðamanni en skildi við hann 1969 og
býr nú með þremur dætrum sinum í
Frankfurt.
Fyrsta útvarpsleikrit hennar var fiutt
árið 1961, en alls hefur hún skrifað 20
leikrit fyrir útvarp og nokkur fyrir
sjónvarp. Vogun vinnur var frumflutt
árið 1976 en það heitir á frummáli
AchtungChance.
Flutningur leiksins tekur um fimm
stundarfjórðunga.
-ELA.
V ___________________________)
t------------------—\
Fréttaþular-
starfið vinsælt
Fréttaþularstarfið er nær þvi jafn-
'vinsælt og flugfreyjustarfið ef dæma
‘má af umsóknum þeim er bárust um
starfið. Yfir áttatíu manns sóttu um
starfið og eru tveir af þeim sem koma
til greina. Gert verður út um það í vik-
unni hvor þeirra fær starfið eða hvort
það verða báðir. Væntanlega hugsar
fólk sér til Alþingis er fréttaþularstarf-
inu er náð.
-ELA.
V ___________________________t
Eftir liðlega viku hefst sumarfrí sjón-
varpsins og eru sennilega einhverjir sem
hugsa til þess með skelfingu en aftur
aðrir með tilhlökkun.
Margir hafa rætt um útþynnta dag-
skrá þennan mánuðinn en eftir frí er
okkur lofað betra efni. 1 ágústmánuði
byrjar nýr myndafiokkur hjá sjón-
varpinu á sunnudagskvöldum og
nefnist hann „Edward and Mrs.
Simpson”. Fjallar hann um Játvarð 8.
Englandskonung og ástarævintýri hans
með frú Simpson. Játvarður 8. sagði af,
sér eftir miklar sögusagnir um hann og
var honum þá gefin nafnbótinn hertog-
inn af Windsor.
Á þriðjudagskvöldum hefst annar
nýr myndaflokkur og er hann framhald
af dýrlingnum sem sjónvarpið sýndi
okkur í gamla daga. Þó er Roger
Moore ekki með í leiknum.
Að sögn Bjöms Baldurssonar blaða- sumarleyfi sjónvarpsmanna. Og má
fulltrúa sjónvarpsins eigum við von á segja að ekki séseinna vænna.
mörgu nýju og mörgu góðu eftir -ELA.
Hér eru hertogahjónin af Windsor en nýr myndaflokkur i sjónvarpinu mun einmitt
fjalla um þau.
mm....
ananasplit
! Skallí
Lækjargötu 8, Hraunbæ102
Reykjavíkurvegi 60 Hf.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1979.
BÆJARINS
BEZTU
Stutt kynningá því athyglis
verðasta sem kvikmyndahús
borgarínnar sýna
Allt á fullu
LeikstjóH: Ted Kotcheff, gerfl f Bandarfkjunum 1978.
Sýningarstaflur Stjömubfó.
Hér er á ferðinni þokkaleg gamanmynd með dálitlum ádeilubroddi.
Myndin fjallar um millistéttarhjón sem skyndilega þurfa að horfa
fram á atvinnuleysi og eignarmissi. Eins og sönnum smáborgurum
sæmir reyna þau að krafsa í bakkann til þess að halda fengnum hlut
;n allt kemur fyrir ekki. Leiðin út úr þessum ógöngum reynist vera
sú að afia sér peninga með vopnuðum ránum. Oft má sjá skemmti-
lega útfærð atriði, til dæmis er fyrsta ránsferð þeirra hjóna bráð-
jsmellin. Leikur þeirra Jane Fonda og George Segal er með ágætum
;oft á tiðum en myndin í heild nær ekki að gera þessu ágæta efni
inægileg skil, sem það býður óneitanlega uppá.
Einvígiskapparnir
LeHcstjóri: RkJley Scott, gerfl f Bretiandi 1977.
Sýningarstaflur: Háskólabfó.
Þetta er fyrsta mynd leikstjórans Ridley Scott og er hún byggð á
bókinni The Duel, sem Joseph Conrad skrifaði. Myndin fjallar um.
tvo liðsforingja í her Napoleons (1800—1815) og innbyrðis stríð
þeirra sem nær yfir 15 ára tímabil og endar með lokauppgjöri. Með
hlutverk liðsforingjanna fara leikararnir Keith Carradine og
Harvey Keitel og ferst þeim það vel úr hendi. Myndin er mjög falleg
fyrir augað auk þess sem einvígi þeirra félaga eru mjög vel útfærð.
Þessi mynd Ridley Scott hlaut verðlaun í Cannes 1977 sem besta
frumraun leikstjóra en áður hafði Ridley Scott unnið töluvert fyrir
sjónvarp. Þess má geta að nýlega var frumsýnd önnur mynd leik-
stjórans sem ber heitið Alien. Er það „science fiction” mynd og
jhefur hún hlotið góða dóma.
Njósnarinn sem elskaði mig
Leikstjóri: Lewis GHbert, gerfl f Bretlandi 1977.
Sýnkigarstaflur Tónabfó.
Tónabíó býður nú upp á James Bond í fullu fjöri. Það sem Bond
myndir hafa fram yfir myndir um sama efni er hnyttnari texti og
ótrúlega vel útfærð glæfraatriði. Raunar hafa Bond myndirnar yfir
sér ákveðinn lúxus stimpil. Það er engu til sparað enda sjást á hvíta
tjaldinu útfærðar ótrúlegustu hugdettur. Efnisþráðurinn er mjög
ótrúlegur og óraunverulegur enda fær áhorfandinn á tilfinninguna
að framleiðendur myndarinnar séu beint eða óbeint að gera góðlát-
,legt grín að þessu ofurmenni kvikmyndanna. í stuttu máli sagt á-
gætis afþreying ef efnið er ekki tekið of alvarlega.
Endurreisn Christa Klages
LeHtstjóri: Margaretha von Trotta, gerfl f V-býskalandi 1978.
Sýnkigarstaflur: Háskólabfó — Mánudegsmynd
Mánudagsmyndin að þessu sinni er þýsk, ættuð frá árinu 1978,'
þannig að hún er ekki nema um árs gömul. Leikstjórinn er ung
kona, Margaretha von Trotta, sem hefur getið sér gott orð sem
handritahöfundur og aðstoðarleikstjóri m.a. í myndinni Ærumissir
Katrínar Blum, sem sýnd var í Háskólabíói. Eiginmaður hennar er
'leikstjórinn Volker Schloendorff sem hlaut m.a. gullpálmann í maí
'sl. í Cannes fyrir mynd sína Die Blechtrommel eftir samnefndri
sögu GUnter Grass.
ENDURREISN CHRISTA KLAGES fjallar um unga móður er
fremur bankarán til að tryggja fé til áframhaldandi reksturs barna-
heimilis sem hún hafði m.a. tekið þátt í að byggja upp. En sam-
‘starfsfólk hennar vill ekki taka við peningunum og viðurkennir ekki
þetta einstaklingsframtak hennar. Þannig lendir Christa Klages á
jhálfgerðum flækingi og verður utangátta í þjóðfélaginu.
Kvikmyndaþættinum hefur borist fyrirspum ofan úr Breiðholti
'varðandi myndina Pumping Iron. Er beðið um upplýsingar um
myndina og spurt hvort von sé á henni til landsins.
SVAR: Pumping Iron var gerð árið 1976 í Bandaríkjunum og var
leikstýrð af'þeim félögum George Butíer og Robert Fiore. Hér er
'um að ræða hálfgerða heimildarmynd um líkamsrækt og er myndin
'byggð kringum Amold Schwarzenegger, sem er margfaldur sigur-
jvegari í þeirri grein og hefur m.a. hlotið sex sinnum titilinn Mr.
Olympia. Einnig koma fram menn eins og Mike Katz og Lou
Ferrigno sem var handhafi titilsins Mr. America og Mr. Universe.
jSkemmtileg framkoma Schwarzenegger og gott skopskyn hans gefa
myndinni létt yfirbragð. Pumping Iron hefur víðast hvar verið tekið
vel og þó sérlega í Danmörku þar sem hún var sýnd lengi í einu af
minni kvikmyndahúsum Kaupmannahafnar. Kvikmyndaþættinum
er ekki kunnugt um að myndin hafi verið keypt til landsins, en
Pumping Iron er einmitt tilvalin fyrir litla sali eins og t.d. í Regn-
boganum.
Lesendur eru hvattir til að senda kvik-
myndadálki DB línu, hafi þeir áhuga á ein-
hverri vitneskju um kvikmyndir og kvik-
myndaiðnaflinn. Heimilisfangifl er: Kvjk-
myndir, Dagbíaðið, Síðumúla 12, Rvk.