Dagblaðið - 21.06.1979, Side 24

Dagblaðið - 21.06.1979, Side 24
50Víetnamar til íslands? „NÓG KOMIÐ AF LITUÐU FÓLKI” „Ég er algerlega á móti inn- flutningi á Víetnömum og lituðu fólki yfirleitt. Það fellur ekki inn í umhverfið hérna og verður bara til vandræða, eins og reynslan sýnir í nágrannalöndunum,” sagði maður nokkur sem hringdi til blaðsins í gær. Fjölmargir létu í sér heyra vegna hugmynda sem uppi eru um að ísland skjóti skjólshúsi yfir flóttafólk frá Víet- nam. Allir reyndust ákaflega and- vigir hugmyndunum. Voru stóru orðin hvergi spöruð og einn taldi þetta upphaf úrkynjunar kyn- stofns vors. Þá var talað um að nú þegar væri komið meira en nóg af lituðu fólki til landsins. Stuðningsmenn flóttamanna- aðstoðarinnar og hlutlausir létu ekki í sér heyra við DB í gær, en ljóst er að þetta getur orðið mikið hitamál í umræðum manna á næstunni. -ARH fslandogflóttamenn: Ekki rúm fyrir kynþáttafordóma i okkar fítla heimi — segir utanríkisráðherra ,,Ég mun ekki að svo stöddu gefa upp afstöðu mína til hugmyndar Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna um að i hlut íslendinga komi fimmtíu flóttamenn frá Víet- nam,” sagði Benedikt Gröndal utan- ríkisráðherra í viðtali við DB í gær. „Hins vegar er það mín lífsskoðun að öll tortryggni á milli kynþátta og fólks af mismunandi stofnum verði að hverfa. Hvort sem um er að ræða dulda eða opinskáa kynþáttafor- dóma, þá getum við ekki leyft okkur slikt í okkar litla heimi,” sagði Bene- dikt. Málið var kynnt á fundi rikis- stjórnarinnar í fyrradag og aftur á fundi hennar í morgun. Framlög til flóttamanna af opin- beru fé eru samkvæmt fjárlögum í ár 32.500 dollarar eða jafnvirði rúmlega ellefu milljóna króna. Er því fé veitt til Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna fimmtán þús. dollarar og sautján þúsund og fimm hundruð dollarar til flóttamanna i Palestinu. Hjálparstofnun kirkjunnar hefur nýverið varið 44 þúsund dollurum af almennu söfnunarfé sínu til að kaupa tíu tonn af skreið, sem flytja á til flóttamannabúða í Zaire en þar er mikill fjöldi fólks frá Angóla, þar á meðal mörg börn. í íslenzkum krónum er skreiðin talin fimmtán milljóna virði. Nokkrar tafir urðu á sendingu skreiðarinnar til Zaire vegna nýafstaðins farmannaverk- falls. í lok júlímánaðar verða vígð opin- berlega þrjú íbúðarhús i bænum Elvas í Portúgal. Er þetta sameiginleg gjöf frá íslenzka ríkinu og Rauða krossi íslands. í Portúgal er mikill fjöldi fólks sem hraktist frá Angóla er landið losnaði undan yfirráðum Portúgala. - ÓG Prestastefnan á ísafirði: Dýrgrípir kirkj- unnar í hættu? —danskur sérf ræðingur telur að svo sé Á prestastefnunni sem nú stendur yfir á ísafirði hefur einna mesta at- hygli vakið enndi danska fræði- mannsins Ole Willumsen Krog um danskt kirkjusilfur á íslandi. Krog ferðaðist í fyrrasumar um allí ísland og kynnti sér þessi mál. Kom það honum mjög á óvart, hve mikið er um gamla og verðmæta silfurgripi i kirkjum hér á landi. í erindi sínu fjallaði hann talsvert um varðveizlu þessara gripa en hann taldi þau mál i miklum ólestri hér. Sagði hann, að samkvæmt reynslu annarra Evrópu- landa væri aðeins tímaspursmál, hve- nær bófaflokkar tækju að bera sig eftir þesum gripum hér því þeir seld- ust á góðu verði á bófamörkuðum víða í Evrópu. Taldi hann mjög brýnt, að meiri áherzla yrði lögð á öruggari varðveizlu þessara gripa og gaf hann ýmis ráð í því sambandi. Prestastefnuna á ísaFirði sitja nú um 100 manns, og i gær var prestum m.a. kynnt lif, saga og atvinnuhættir á ísafirði. -GAJ Bam dmkkn- arí Svarf- aðardal Tiu ára stúlka drukknaði í Svarfaðardal i gær. Hún var í hópi barna úr Öskjuhlíðarskólan- um í Reykjavík sem er til sumar- dvalar í heimavistarskólanum að Húsabakka. Stúlkan féll i skurð nálægt skólagirðingunni síðdegis í gær og báru lífgunartilraunir á henni ekki árangur. -ARH QNDIN OG MARBENDLAR VID TJÖRNINA Uss, látið hana ekki heyra I ykkur, strákar! Öndin vill heldur rigningarvatnið á gam stéttinni við Tjörnina i Rcykjavik en gruggugt tjarnarvatnið, scm strákarni. virðast vera að skriða upp úr eins og marbendlar. DB-mynd Magnús Hjörleifsson Srjálst, úháð daghlað FIMMTUDAGUR 21. JÚNl 1979, Þjóðverjar undirbúa hákarlaveiöar á stöng áVopnafirði: Ætlaað setja heimsmet Sex Þjóðverjar eru nú staddir á Vopnafirði með mikinn útbúnað með- ferðis, í þeim tilgangi að fara að veiða hákarla á stöng. Hafa þeir meðferðis kvikmyndatökuvélar og köfunarbúr og hyggjast kvikmynda veiðiskapinn ofan- sjávar og neðan. Hlynur Kristjánsson, fréttaritari DB á staðnum, hefur helzt skilið á Þjóðverjunum að einhver stærsti blaðaútgefandi í Þýzkalandi standi á bak við ævintýrið. Mun ætlun Þjóð- verjanna að setja nýtt heimsmet i þessum óvenjulega veiðiskap. Fyrst kom leiðangurinn til Vopna- fjarðar í maí en vegna veðurs og hafíss hurfu leiðangursmenn aftur héim án tilrauna, en eru nú nýkomnir aftur. Hafa þeir leigt sér 9 tonna trillu og stefndu að því í morgun að halda til veiða í dag. -GS. Yfirvinnubann farmanna: „Greini- lega hrein verkfalls- aðgerð” — segir Þorsteinn Pálsson ,,Hér er greinilega um hreina verk- fallsaðgerð að ræða,” sagði Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ, i samtali við DB í morgun um yfirvinnu- bann farmanna. Vinnuveitendasam- bandið hefur lýst því yfir að það telji yfirvinnubannið ólöglegt. Bannið sé brot á bráðabirgðalögunum, brot á lög- um um stéttarfélög og vinnudeilur og brot á samningum. Formælendur farmanna eru á önd- verðum meiði eins og DB hefur þegar skýrt frá. Þeir benda m.a. áað lögmæti yftrvinnubanns við hafnarvinnu og fiskvinnslu í Reykjavík hafi ekki verið dregið í efa. Þorsteinn Pálsson kvað yfirvinnu- bann farmanna ekki sambærilegt vegna þess að í samningum Verkamannasam- bandsins væri yFtrvinnuskylda viður- kennd og sett ákveðin takmörk. Slíku væri ekki til að dreifa í samningum far- manna. Þorsteinn benti á að aðgerðir far- manna fælu ekki aðeins í sér yfirvinnu- bann heldur stöðvun á vinnu aðila utan samtaka farmanna. „Við trúum þvi ekki að óreyndu að þessum aðgerðum verði haldið áfram,” sagði Þorsteinn Páisson og kvaðst telja að ákvörðun um að vísa málinu til félagsdóms yrði ekki tekin fyrr en Ijóst væri hvort farmenn sæju ekki að sér. - GM

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.