Dagblaðið - 22.06.1979, Síða 1
5. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 22. JUNÍ 1979 -139. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMl 27022.
Farþegar misstu af tollinúm ímorgun
mm tamjf rn II
Fnnofmn lokuQ
vegna kjaradeilu
, Samningar brotnir’
segirBSRB
[, Ólöglegverkfallsað■
gerð' seg/r
fríhafnarstjóri
Fríhöfnin i Keflavík er lokuð vegna
ágreinings BSRB og fjármálaráðu-
neytis um launakjör sumarafleys-
ingamanna á staðnum. Óvíst er með
öllu hvenær verzlunin verður opnuð
á ný.
,,Sú deila sem hér er á ferðinni
hófst með þvi að fyrirsvarsmenn fri-
hafnarinnar réðu 10 starfsmenn til
vinnu með öðrum kjörum en samn-
ingar BSRB gera ráð fyrir,” sagði
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, i samtali við DB í morgun.
Kristján var þá staddur i fríhöfninni
ásamt fleiri fulltrúum bandalagsins.
Kristján kvaö deiluna hafa byrjað í
maí og þá hefði utanrikisráðherra
lýst því yfir að hann vildi hafa samnr
inga BSRB í heiðri. Málinu hefði hins
vegar i gær verið vísað til fjármála-
ráðuneytis, og ráðuneytið hefði þegar
hafnað því að leysa deiluna á grund-
velli kjarasamninga BSRB.
„Samtökin telja hér vera um brot á
lögum um starfskjör launþega að
ræða, brot á iögum um kjarasamn-
inga félagsmanna BSRB og brot á
gildandi kjarasamningum BSRB,”
sagði Kristján Thorlacius. Hann
kvað framkomu valdamanna og
embættismanna í þessu máli minna á
starfsaðferðir atvinnurekenda, inn-
lendra sem útlendra, á fyrstu áratug-
um þessarar aldar.
„Þctta cr deila milli fjármálaráðu-
neytis og BSRB,” sagði Þórður
Magnússon, forstöðumaður friháfn-
arinnar, í samtali við DB í morgun.
Kvaö hann deiluna snúast um vinnu-
tíma sumarmanna.
„Hér er um ólögmæta verkfallsað-
gerð að ræða. Fjármálaráðuneytið
hefur lýst þvi yfir að henni verði
mætt með refsifrádrætti launa,”
sagði Þórðurennfremur.
Hann kvaðst ekki vita hvenær frí-
höfnin yrði opnuð aftur en viðræð-
um yrði væntanlega haldið áfram i
dag.
- GM
Kvíabryggja:
Of knapp-
arfjár-
veitingar
— sjá grein um Kvía-
bryggju á bls. 13
,,Það er náttúrlega ekki rétt, að
fjárveitingar til heimilisins hafi engar
verið að undanförnu. Þær hafa hins
vegar verið knappar og of litlar til að
nægja fyrir rekstri,” sagði Jón
Thors, deildarstjóri í dómsráðu-
neytinu er DB bar undir hann viðtal
er blaðamaður DB átti við forstöðu-
mann og einn fanga á Kvíabryggju
nýlega. Viðtalið birtist i DB í dag.
„Þetta stendur líka til bóta,” sagði
Jón, „og fjármálaráðuneytið hefur
nú síðustu daga leyst úr jseim fjár-
hagsvanda í bili.”
Jón var spurður hvað réði því að
ákveðnir fangar væru sendir á Kvía-
bryggju en ekki eitthvað annað. ,,Við
metum það i hverju tilfelli,” sagði
Jón. „Ferill og fortíð getur verið
mjög mismunandi hjá mönnum sem
hljóta sama dóm og eru aðilar að
sama máli. Þannig gæti verið rétt-
lætanlegt að hafa einn á Kvíábryggju
en ekki annan.” Hann staðfesti, aí
það væru frekar fangar sem treyst
væri er dveldust á Kvíabryggju.
Einnig gæti spilað inn i, að stundum
væri talið óheppilegt, að fangar sem
væru aðilar að sama máli væru vist-
aðir á sama staðnum.
-GAJ.
Olía fæst
f rá Noregi
Bjartmar Gjerde, olíu- og orku-
málaráðherra Noregs, segir i viðtali
sem birt er í Morgunblaðinu í dag,
að íslendingar geti fengið norska olíu
innan tíðar, hugsanlega á verði sem
er allt að helmingi lægra en nú tíðkast
í olíuviðskiptum íslendinga.
Gjerde sagði í samtali við Dag-
blaðið í Osló í gær að hann yrði ekki
undrandi þótt formleg beiðni kæmi
frá íslendingum um kaup á norskri
olíu.
Ráðherrann tók það fram að ef
ísjendingar ætluðu að kaupa olíu frá
öðrum en Sovétmönnum þýddi það
breytingar á oliumóttöku á íslandi og
slíkar breytingar yrðu ekki fram-
kvæmdar á einni nóttu.
- GM / SJ, Osló
ÞEIR höfðu ástæðu til að fagna um stund, þessir kunnu borgarar, Valsmenn og söngvarar, Agúst Bjarnason og Krístinn
Hallsson, á Laugardalsvellinum I gærkvöld. En þeir höfðu ekki ástæðu til þess I lokin — Islandsmeistaramir þeirra lágu fyrír
Akurnesingum I eldfjörugum leik. Sjá íþróttir bls. 14 og!9.
Siæm staða Flugleiða:
Fjöldauppsagnir
skrifstofufólks
— 20% skrifstofu- og stjórnunarfólks sagt upp til viðbótar um næstu
mánaðarmót
Um næstu mánaðamót standa fyrir
dyrum mjög auknar uppsagnir starfs-
fólks Flugleiða, þ.e. starfsfólks, sem
vinnur við skrifstofu- og stjórnunar-
störf. Þegar hefur verið sagt upp um
10% starfsfólks, en samkvæmt
upplýsingum Dagblaðsins er fyrir-
hugað að segja upp 20% til viðbótar,
þannig að alls verður 30%skrifstofu
og stjórnunarfólks Flugleiða sagt upp
störfum.
DB bar jressa frétt undir Jón
Júlíusson framkvæmdastjóra
stjórnunarsviðs Flugleiða og staðfesti
hann að fyrirhugað væri að segja upp
20% skrifstofu- og stjórnunarfólks
um mánaðamótin. Hann kvaðst ekki
geta staðfest að hér væri um 150
manns að ræða.
Jón sagði málið viðkvæmt, þar
sem enn væri ekki búið að ræða vjð
starfsfólkið, en það væri fyrirhugað í
dag og næstu daga.
Að svo stöddu eru ekki fyrirhugað-
ir uppsagnir starfsfólks sem vinnur
við beina framleiðslu, og flugrekstur,
þ.e. flugmenn, starfsfólk tækni-
deildar, sölu og fl.
Það starfsfólk, sem nú lætur af
störfum vinnur bæði hérlendis og
ytra.
-JH
ísland og
flóttamennirnir:
Flóttamanna-
framlag
okkar12
milljónir
— aukaf ramlag til um-
fjöllunar í ríkisstjórn
— sjá fréttir og greinar
um íslandogflótta-
menn á bls. 7
— leiðariábls. 10:
Bjóðum þau
velkomin
ísland hefur um langt árabil lagt
fram fjármagn til Flóttamannahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna auk þess sem
sérstakt framlag hefur runnið til að-
stoðar við flóttamenn í Palestinu.
Samkvæmt upplýsingum Ólafs
Egilssonar, deildarstjóra í utanríkis-
ráðuneytinu, var framlag íslands til
Flóttamannahjálparinnar etlefu
þúsund dollarar í fyrra. Fyrrverandi
ríkisstjórn ákvað síðan á miðju ári,
að veita aukreitis tíu þúsund dollara
til málsins vegna sérstakra tilmæla
Danans Poul Hartling, sem þá var
nýtekinn við embætti framkvæmda-
stjóra Flóttamannahjálparinnar.
Heildarframlag Íslands varð því í
fyrra tuttugu og eitt þúsund dollarar
eða jafnvirði 7,2 milljóna íslenzkra
króna á núgildandi gengi.
í ár er gert ráð fyrir því á fjárlög-
um, að lagðir verði fram fimmtán
þúsund dollarar til Flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna. Ríkis-
stjórnin hefur haft til umfjöllunar
ósk um sérstakt aukafjárframlag. Er
það vegna sérstakra tilmæla Kurt
Waldheim, aðalritara Samcinuðu
þjóðanna, sem ritaði forsætisráð-
herrum aðildarríkja samtakanna bréf
eftir að hann kom úr ferð sinni til
Asíu í maí síðastliðnum. Telur aðal-
ritarinn að neyð flóttafólks sé svo
mikil að þörf sé á sérstökum aðgerð-
um þess vegna.
Framlög íslands til Palestínufiótta-
manna voru í fyrra fimmtán þúsund
dollarar en samkvæmt fjárlögum er
gert ráð fyrir að það verði sautján
þúsund og fimm hundruð dollarar í
ár. Er það jafnvirði 5,2 milljóna ís-
lenzkra króna.
Er þá það upp talið, samkvæmt
upplýsingum Ólafs Egilssonar
deildarstjóra, sem lagt er fram af
opinberu fé hér á landi til flótta-
manna í heiminum. - ÓG