Dagblaðið - 22.06.1979, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 22.06.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ1979. 5 Gisli Kjartansson, formaður Golfklúbbs Borgarness, á golfvelli klúbbsins. DB-mynd Árni Páll. Borgames: r GOSENLAND GOLF- ÁHUGAMANNA? Félagar i Golfklúbbi Borgarness vinna nú ötuliega að því að byggja upp glæsilega framtíðaraðstöðu golf- iðkenda þar á staðnum. Hefur klúbburinn fengið afnot af hluta jarðarinnar Hamars sem er skammt fyrir utan bæinn. Klúbburinn hefur einnig fengið til umráða húseign þásem var fyrir á jörðinni en hún er í eigu bæjarins. Húsið sem er tvílyft steinhús var talsvert illa farið en er nú sem óðast að taka á sig mjög glæsilega mynd enda eru fjölmargir trésmiðir í klúbbnum. Hefur bæjarfélagið lagt til efnið en félagar i klúbbnum hafa unnið allar innréttingar í sjálfboðavinnu. Gera þeir sér vonir um að í nánustu framtið geti orðið þarna gistiaðstaða fyrir golfá- hugamenn, t.d. úr Reykjavík, sem gætu dvalir þarna yfir helgi og iðkað íþrótt sína við fullkomnar aðstæður, sannkallað Gósenland. Á Hamri er níu holu völlur sem að sögn Gísla Kjartans- sonar forman'ns Golfklúbbs Borgar- ness þykir talsvert erfiður yfirferðar og af þeim sökum spennandi viðureignar. í Golfklúbbi Borgarness eru nú milli 40 og 50 félagar og hefur þeim farið ört fjölgandi upp á síðkastið. -GAJ- Meðhjálparar undirbúa félagsstofnun Liðlega 30 meðhjálparar og kirkjuverðir sátu ráðstefnu um málefni sín dagana 24. og 25. maí sl. Ráðstefna þessi var haldin fyrir kirkjustarfsmenn í Kjalarnes- og Reykjavíkurprófasts- dæmum og var hin fyrsta sinnar tegundar hér á landi.- Hún hófst i safnaðarheimili Bústaðakirkju en fluttist siðari daginn að Hlégarði í Mos- fellssveit. Framsöguerindi voru þrjú: Vígslubiskup, séra Sigurður Pálsson, ræddi um helgihald kirkjunnar og umgjörð þess. Helgi Angantýsson, Dómkirkjunni, flutti erindi um kirkjuna og meðhjálparann. Kristján Einarsson, Langholtskirkju, talaði um þjónustu við einstakar athafnir. Miklar umræður urðu um þessi málefni og samþykkti ráðstefnan ályktun um nauðsyn þess að kirkjan haldi uppi fræðslu um þennan þátt kirkjustarfsins. I lok ráðstefnunnar var kosin fimm manna undirbúningsnefnd til að undir- búa stofnun félags meðhjálpara og kirkjuvarða. Undirmenn styðja yfirvinnubannið: Vinna ekki nema ábyrgur yf irmaður sé til staðar „Vegna ákvörðunar yfirmanna um að neita að vinna yfirvinnu á heima- hafnarsvæði lýsir stjóm Sjómanna- félags Reykjavíkur því yfir að félags- menn þess munu ekki vinna þennan tíma og á þessu svæði við skipsstörf nema ábyrgur yfirmaður skipsins sé tii staðar við vinnustjórn,” segir i sam- þykkt frá félaginu sem DB hefur borizt. I samþykkt sjómanna er bráða- birgðalögum ríkisstjórnarinnar harðlega mótmælt. Lýst er furðu á einróma stuðningi ríkisstjórnar- flokkanna við þessa aðgerð „þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar og baráttumál, er þeir komust í þá aðstöðu að geta sett slík lög,” eins og segir orðrétt. Loks lýsa sjómenn því yfir að þeir muni hlíta bráðabirgðalögunum þótt þeir séu þeim andvigir. -GM. 70 atvinnulausir á Akureyri 70 manns eru nú á atvinnuleysisskrá miðlunarskrifstofu Akureyrar á dögun- á Akureyri en voru um 45 um síðustu um. Heiðrekur sagði að fjölmennasti mánaðamót. Um mánaðamótin mai- hópurinn á skránni nú væri starfsfólk júní í fyrra voru 10 manns á at- Efnaverksmiðjunnar Sjafnar sem vinnuleysisskrá. stöðvazt hefur vegna farmannaverk- Þessar upplýsingar fékk DB hjá fallsins. Heiðreki Guðmundssyni á Vinnu- íslenzka brenni- vínið sérpantað til Melboume — rætt við nýsjálenzka stúlku sem unnið hefurtvo vetur á Patreksf irði Ástralskar stúlkur hafa mjög sett svip sinn á Patreksfjörð i vetur, þótt þeim hafi fækkað nú er komið er fram á sumar. Enn er í minnum haft mikið ball og skemmtun er stúlkurnar frá Ástralíu og Nýja Sjálandi slógu upp síðla vetrar. Er DB var á ferð á Patreksfirði fyrir skemmstu þótti tilhlýðilegt að heimsækja eina stúlknanna, Barböru Hickey, en hún er frá Nýja-Sjálandi. Barbara býr ásamt stöllu sinni í Stúkuhúsinu svonefnda á Patreks- firði, en þrátt fyrir heilbrigt liferni stúlknanna þarf ekki að vera að þar hafi stúkulíf verið í hávegum haft. Barbara kom til Patreksfjarðar í september sl. en ekki var hún þá :alveg ókunnug, því hún dvaldi einnig vetrarlangt hér veturinn þar á undan. Það bendir því til þess að ekki líki henni vistin illa. „Ég kom hingað frá Bretlandi í fyrsta skipti til þess að ná mér i peninga,” sagði Barbara. „Mér /annst það gaman að ég kom aftur. Það var auðvelt því nú þekkti ég fólkið. Fólkið hér hefur verið mjög gott við okkur, en ég vinn i fyrstihúsinu Skildi. Þar unnu 15 stelpur og einn strákur frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi í vetur, auk þeirra sem unnu hjá öðrum. ísrael næst á dagskrá Það hafa ekki verið vandamái vegna tungumálsins. Ungt fólk hér hefur gott vald á ensku, en okkur hefur gengið aðeins erfiðar við hina eldri. Ég hef lært tiltölulega litið í íslenzku. Þó skil ég svolítið, ef hún er töluð hægt. og verður þar í sex vikur Hún hefur ekki hugsað sér að koma hingað aftur til starfa, því nú ætlar hún að leita fyrir sér í einhverju sólrikara landi, t.d. ísrael. Ekki bjóst Barbara við því að taka með sér einhvern Frónbúann, er hún ,fer, en slíkt hefur þó komið fyrir hjá öðrum stöllum hennar. Hún er þó á- kveðin að koma aftur til íslands í heimsókn. Þess má og geta að þeir Ástralíumenn og Nýsjálendingar sem verið hafa á Patreksfirði hafa á- kveðið að koma saman í Melboume árið 1981 til þess að minnast liðinna sæludaga. Þá hefur verið ákveðið að panta til fagnaðarins tvo kassa af fslenzku brennivíni beint frá Fróni. Ef að líkum lætur ættu guðaveig- arnar að hjálpa til við upprifjunina. Bjórinn í lögguna Lögreglan á Patreksfirði vill, svo sem vænta má, halda uppi skikki á staðnum. Hún réðst því til inngöngu í Stúkuhúsið eitt sinn i vetur og l]ar- lægði nýlagaðan afbragðs bjór frá stúlkunum. Til þess að fylgja innrásinni eftir var sett útgöngubann á stúlkurnar og enginn mátti heimsækja þær sem var undir 21 árs aldri. Útgöngubannið var síðan fellt niður en ekki fékkst bjórinn góði til baka. Stúlkunum þótti þetta örlitið skrítin meðferð, því ekki hafa borizt fregnir um að brugg hafi verið tekið af innfæddum á Patreksfirði. En kannski brugga Patreksfirðingar ekki? Hver veit. -JH. Barbara Hickey frá Nýja Sjálandi. DB-mynd JH. Hér í Stúkuhúsinu þurfum við ekki að borga húsaleigu. Fyrirtækið á húsið og við njótum góðs af. Liklega er þetta gert til þess að ná í vinnu- kraftinn. Við komum í gegnum skrif- stofu í London og ferðir eru borgaðar fyrir okkur. Áður en ég kom hingað hafði ég aldrei áður unnið við verksmiðjustörf en miðað við slík störf held ég að starfið í frystihúsinu séágætt.” Barbara fer héðan af landi brott í byrjun ágúst, en þá ætlar hún heim VIKAN auglýsir: Söluböm vantar í eftirtalin hverfi: HVERF11: HVERFI 3: Fjal/hagi SeHJarnames Sævarbraut Dunhagi Lindarbraut Se/braut Ægissíða Vai/arbraut Skerjabraut Tómasarhagi Miðbraut Tjarnarbó/ að Dunhaga Melabrautað Bakkav. Tjarnarstígur ásamt Skólabrautað Bakkav. bæjunum íkring HVERFI 7: Bakkavör ásamt bæjunum Víðimelur íkring HVERFI4: Reynimeiur HVERFI 2: Frostaskjó/ Elliheimiliö Látraströnd Granaskjó/ Furumeiur 'W- V Fornaströnd Sörlaskjó/ Grenimelur Barðaströnd Faxaskjó/ Hagameiur Seiströnd Melhagi Skóiabraut HVERFI 6: Espimeiur Melabraut Kvisthagi Birkime/ur Suðurbraut ásamt Hjarðarhagi bæjunum íkring Fornhagi EBl -GM

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.