Dagblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ1979.
5
Gisli Kjartansson, formaður Golfklúbbs Borgarness, á golfvelli klúbbsins.
DB-mynd Árni Páll.
Borgames:
r
GOSENLAND GOLF-
ÁHUGAMANNA?
Félagar i Golfklúbbi Borgarness
vinna nú ötuliega að því að byggja upp
glæsilega framtíðaraðstöðu golf-
iðkenda þar á staðnum. Hefur
klúbburinn fengið afnot af hluta
jarðarinnar Hamars sem er skammt
fyrir utan bæinn. Klúbburinn hefur
einnig fengið til umráða húseign þásem
var fyrir á jörðinni en hún er í eigu
bæjarins. Húsið sem er tvílyft steinhús
var talsvert illa farið en er nú sem óðast
að taka á sig mjög glæsilega mynd enda
eru fjölmargir trésmiðir í klúbbnum.
Hefur bæjarfélagið lagt til efnið en
félagar i klúbbnum hafa unnið allar
innréttingar í sjálfboðavinnu. Gera þeir
sér vonir um að í nánustu framtið geti
orðið þarna gistiaðstaða fyrir golfá-
hugamenn, t.d. úr Reykjavík, sem
gætu dvalir þarna yfir helgi og iðkað
íþrótt sína við fullkomnar aðstæður,
sannkallað Gósenland. Á Hamri er níu
holu völlur sem að sögn Gísla Kjartans-
sonar forman'ns Golfklúbbs Borgar-
ness þykir talsvert erfiður yfirferðar og
af þeim sökum spennandi viðureignar.
í Golfklúbbi Borgarness eru nú milli 40
og 50 félagar og hefur þeim farið ört
fjölgandi upp á síðkastið.
-GAJ-
Meðhjálparar
undirbúa
félagsstofnun
Liðlega 30 meðhjálparar og
kirkjuverðir sátu ráðstefnu um málefni
sín dagana 24. og 25. maí sl. Ráðstefna
þessi var haldin fyrir kirkjustarfsmenn
í Kjalarnes- og Reykjavíkurprófasts-
dæmum og var hin fyrsta sinnar
tegundar hér á landi.- Hún hófst i
safnaðarheimili Bústaðakirkju en
fluttist siðari daginn að Hlégarði í Mos-
fellssveit.
Framsöguerindi voru þrjú:
Vígslubiskup, séra Sigurður Pálsson,
ræddi um helgihald kirkjunnar og
umgjörð þess. Helgi Angantýsson,
Dómkirkjunni, flutti erindi um
kirkjuna og meðhjálparann. Kristján
Einarsson, Langholtskirkju, talaði um
þjónustu við einstakar athafnir.
Miklar umræður urðu um þessi
málefni og samþykkti ráðstefnan
ályktun um nauðsyn þess að kirkjan
haldi uppi fræðslu um þennan þátt
kirkjustarfsins.
I lok ráðstefnunnar var kosin fimm
manna undirbúningsnefnd til að undir-
búa stofnun félags meðhjálpara og
kirkjuvarða.
Undirmenn styðja yfirvinnubannið:
Vinna ekki nema ábyrgur
yf irmaður sé til staðar
„Vegna ákvörðunar yfirmanna um
að neita að vinna yfirvinnu á heima-
hafnarsvæði lýsir stjóm Sjómanna-
félags Reykjavíkur því yfir að félags-
menn þess munu ekki vinna þennan
tíma og á þessu svæði við skipsstörf
nema ábyrgur yfirmaður skipsins sé tii
staðar við vinnustjórn,” segir i sam-
þykkt frá félaginu sem DB hefur
borizt.
I samþykkt sjómanna er bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar
harðlega mótmælt. Lýst er furðu á
einróma stuðningi ríkisstjórnar-
flokkanna við þessa aðgerð „þrátt
fyrir fyrri yfirlýsingar og baráttumál,
er þeir komust í þá aðstöðu að geta sett
slík lög,” eins og segir orðrétt.
Loks lýsa sjómenn því yfir að þeir
muni hlíta bráðabirgðalögunum þótt
þeir séu þeim andvigir.
-GM.
70 atvinnulausir
á Akureyri
70 manns eru nú á atvinnuleysisskrá miðlunarskrifstofu Akureyrar á dögun-
á Akureyri en voru um 45 um síðustu um. Heiðrekur sagði að fjölmennasti
mánaðamót. Um mánaðamótin mai- hópurinn á skránni nú væri starfsfólk
júní í fyrra voru 10 manns á at- Efnaverksmiðjunnar Sjafnar sem
vinnuleysisskrá. stöðvazt hefur vegna farmannaverk-
Þessar upplýsingar fékk DB hjá fallsins.
Heiðreki Guðmundssyni á Vinnu-
íslenzka brenni-
vínið sérpantað
til Melboume
— rætt við nýsjálenzka stúlku sem unnið hefurtvo vetur á Patreksf irði
Ástralskar stúlkur hafa mjög sett
svip sinn á Patreksfjörð i vetur, þótt
þeim hafi fækkað nú er komið er
fram á sumar. Enn er í minnum haft
mikið ball og skemmtun er
stúlkurnar frá Ástralíu og Nýja
Sjálandi slógu upp síðla vetrar.
Er DB var á ferð á Patreksfirði
fyrir skemmstu þótti tilhlýðilegt að
heimsækja eina stúlknanna, Barböru
Hickey, en hún er frá Nýja-Sjálandi.
Barbara býr ásamt stöllu sinni í
Stúkuhúsinu svonefnda á Patreks-
firði, en þrátt fyrir heilbrigt liferni
stúlknanna þarf ekki að vera að þar
hafi stúkulíf verið í hávegum haft.
Barbara kom til Patreksfjarðar í
september sl. en ekki var hún þá
:alveg ókunnug, því hún dvaldi einnig
vetrarlangt hér veturinn þar á undan.
Það bendir því til þess að ekki líki
henni vistin illa.
„Ég kom hingað frá Bretlandi í
fyrsta skipti til þess að ná mér i
peninga,” sagði Barbara. „Mér
/annst það gaman að ég kom aftur.
Það var auðvelt því nú þekkti ég
fólkið. Fólkið hér hefur verið mjög
gott við okkur, en ég vinn i
fyrstihúsinu Skildi. Þar unnu 15
stelpur og einn strákur frá Ástralíu
og Nýja-Sjálandi í vetur, auk þeirra
sem unnu hjá öðrum.
ísrael næst
á dagskrá
Það hafa ekki verið vandamái
vegna tungumálsins. Ungt fólk hér
hefur gott vald á ensku, en okkur
hefur gengið aðeins erfiðar við hina
eldri. Ég hef lært tiltölulega litið í
íslenzku. Þó skil ég svolítið, ef hún er
töluð hægt.
og verður þar í sex vikur Hún hefur
ekki hugsað sér að koma hingað aftur
til starfa, því nú ætlar hún að leita
fyrir sér í einhverju sólrikara landi,
t.d. ísrael.
Ekki bjóst Barbara við því að taka
með sér einhvern Frónbúann, er hún
,fer, en slíkt hefur þó komið fyrir hjá
öðrum stöllum hennar. Hún er þó á-
kveðin að koma aftur til íslands í
heimsókn.
Þess má og geta að þeir
Ástralíumenn og Nýsjálendingar sem
verið hafa á Patreksfirði hafa á-
kveðið að koma saman í Melboume
árið 1981 til þess að minnast liðinna
sæludaga. Þá hefur verið ákveðið að
panta til fagnaðarins tvo kassa af
fslenzku brennivíni beint frá Fróni.
Ef að líkum lætur ættu guðaveig-
arnar að hjálpa til við upprifjunina.
Bjórinn í
lögguna
Lögreglan á Patreksfirði vill, svo
sem vænta má, halda uppi skikki á
staðnum. Hún réðst því til inngöngu í
Stúkuhúsið eitt sinn i vetur og l]ar-
lægði nýlagaðan afbragðs bjór frá
stúlkunum. Til þess að fylgja
innrásinni eftir var sett útgöngubann
á stúlkurnar og enginn mátti
heimsækja þær sem var undir 21 árs
aldri.
Útgöngubannið var síðan fellt
niður en ekki fékkst bjórinn góði til
baka. Stúlkunum þótti þetta örlitið
skrítin meðferð, því ekki hafa borizt
fregnir um að brugg hafi verið tekið
af innfæddum á Patreksfirði. En
kannski brugga Patreksfirðingar
ekki? Hver veit.
-JH.
Barbara Hickey frá Nýja Sjálandi.
DB-mynd JH.
Hér í Stúkuhúsinu þurfum við
ekki að borga húsaleigu. Fyrirtækið á
húsið og við njótum góðs af. Liklega
er þetta gert til þess að ná í vinnu-
kraftinn. Við komum í gegnum skrif-
stofu í London og ferðir eru
borgaðar fyrir okkur.
Áður en ég kom hingað hafði ég
aldrei áður unnið við verksmiðjustörf
en miðað við slík störf held ég að
starfið í frystihúsinu séágætt.”
Barbara fer héðan af landi brott í
byrjun ágúst, en þá ætlar hún heim
VIKAN auglýsir:
Söluböm vantar
í eftirtalin hverfi:
HVERF11: HVERFI 3: Fjal/hagi
SeHJarnames Sævarbraut Dunhagi
Lindarbraut Se/braut Ægissíða
Vai/arbraut Skerjabraut Tómasarhagi
Miðbraut Tjarnarbó/ að Dunhaga
Melabrautað Bakkav. Tjarnarstígur ásamt
Skólabrautað Bakkav. bæjunum íkring HVERFI 7:
Bakkavör ásamt bæjunum Víðimelur
íkring HVERFI4: Reynimeiur
HVERFI 2: Frostaskjó/ Elliheimiliö
Látraströnd Granaskjó/ Furumeiur 'W- V
Fornaströnd Sörlaskjó/ Grenimelur
Barðaströnd Faxaskjó/ Hagameiur
Seiströnd Melhagi
Skóiabraut HVERFI 6: Espimeiur
Melabraut Kvisthagi Birkime/ur
Suðurbraut ásamt Hjarðarhagi
bæjunum íkring Fornhagi EBl
-GM