Dagblaðið - 22.06.1979, Síða 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1979.
SKYNDIMYNDIR
Vandaðar litmyndir
i öll skirteini.
barna&fjölsk/ldu-
Ijösmyndir
AUSTURSTRÆTI 6
SIMI 12644
PERMANENT KLIPPINGAR BARNAKLIPPINGAR
LAGNINGAR BLÁSTRAR - LITANIR GERUM GÖT Í EYRU
SÍMI24596
RAGNHILDUR BJARNADÓTTIR
HJÖRDÍS STURLAUGSDÓTTIR
ÖSP
MIKLUBRAUT
1
HÁRGREIOSLUSTOFAN
Lokanir
verzlana
á laugardögum
ísumar
Samkvæmt kjarasamningum milli
Kaupmannasamtaka íslands og Verzl-
unarmannafélags Reykjavíkur skulu
verzlanir hafa lokað 10 laugardaga yfir
sumarmánuðina frá 20. júní til ágúst-
loka.
Afgreiðslufólki er því óheimilt að vinna í
verzlunum á laugardögum á framan-
greindum tíma.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Borgfirðingar! Ferðafólk!
JÚNSMESSU-
DANSLEIKUR
verður haldinn laugardaginn 23. júní í
HREDAVATNSSKÁLA
Hin vinsœla hljómsveit
Þorsteins Guðmundssonar leikur
Nú fara allir til Jónsmessu.
HREÐAVATNSSKÁLI
3500 hænur
í fjósið f staðinn
fyrir 30 beljur
— „0g afkoman er betri,” segir gamli bóndinn í Miðhiísum í Garði
Torfi sagði að framleiðendur fengju
nú hartnær 1000 kr. fyrir eggjakílóið
en framleiðslukostnaður væri alimikill
því allt byggðist á erlendu fóðri. Kemur
tankbíll með korn með stuttu millibili
að Miðhúsum með nokkur tonn fóðurs
í senn.
„Fæturnir eru búnir og ég lét
síðustu kýrnar fara í haust,” sagði
Torfi Sigurjónsson, 73 ára gamall
bóndi í Garðinum, sem nú á gamals
aldri tekur þátt í nýjum atvinnurekstri
í Garðinum með þvi að koma upp
myndarlegu eggjaframleiðslubúi.
Hann er búinn að búa í Miðhúsum í
Garði i 39 ár hinn 5. júlí nk. en þangað
kom hann úr Árnessýslu.
Fjósinu hefur verið breytt í
hænsnabú og þar eru nú 3500 gaggandi
hænur. Um tvö þúsund þeirra eru
komnar í varp en um miðjan júlí verða
þær allar verpandi. Þrjár stórar lengjur
hænsnabúra fylla fjósið og þegar
komið er í nánd við fjósið má heyra
hverjir íbúarnir eru.
heyi, ,,en það fer minnkandi því ég ber
minna á en áður.”
,,Það er betri afkoma af
hænsnunum en beljunum áður fyrr,”
sagði Torfi. ,,Það eru náttúrlega af-
föll af öllu og talsvert mikil hjá
hænunumensamterþetta betra.”
-ASt.
Hænsnabúið eiga þeir að jöfnu
Torfi, Jóhannes Guðmundsson og Sig-
urður Rafnsson. Einn piltur starfar við
búið, „tínir egg, þvær, gefur og mokar
út,” eins og Torfi orðaði það er hann
sýndi DB-mönnum búið.
„Afraksturinn er núna hátt ,i 2000
egg á dag og markaðurinn er góður.
Mest af framleiðslunni fer í Hagkaup
og Vörumarkaðinn í Reykjavík en
einnig í smábúðir i Garðinum. Ef
markaðurinn heldur áfram að batna þá
stækkum við,” sagði Torfi. „Þá þarf
að byggja því fleira verður ekki sett í
gamla fjósið.”
Þar sem áður beljubaul fyllti loftið eru nú 3500 gaggandi hænur. Þær sjá aldrei dags-
ins Ijós og hafa aldrei hana augum litið hvað þá heldur meir. Hér er Torfi gamli milli
tveggja búrasamstæðna. Hænurnar ætluðu vitlausar að verða þegar Ragnar Th. Sig-
urðsson Ijósmyndari smellti af og flash-ljósið gaf meiri birtu en augu þeirra þoldu.
„Þetta er allt öðru vísi en áður, bú-
skapurinn hér,” sagði Torfi. ,,Ég hafði
áður mest 30 mjólkandi í fjósi og
annað eins af geldneyti. Nú hef ég bara
um 50 kindur og 9 hesta sem notaðir
eru til reiðar og einnig aldir til átu,”
sagði Torfi.
Lengi hefur Torfi heyjaðá mörgum
jörðum og gerir enn, m.a. á Útskála-
jörðinni. Hann selur nokkurt magn af
„Hvað er nú þetta? Eru ekki DB-menn komnir i heimsókn?” hugsuðu þær og störðu
einu auga á Ragnar Ijðsmyndara.
Sjórall 79:
HAFSTEINN 0G RUNÓLFUR
TVÖFALDA VÉLAR0RKUNA
— verða með tvo 175 hestafla utanborðsmótora á Hafrótinu
„Framleiðendumir hafa bætt ýms-
um aukabúnaði til styrktar á mótprana
og við eigum jafnframt von á sér-
stökum skrúfum fyrir rallið. Þeir munu
fylgjast náið með frammistöðu véla
sinna,” sögðu Hafsteinn Sveinsson og
Runólfur Guðjónsson í gær er þeir
voru að sækja mótorana.
Hér er um að ræða tvo Mariner V—
6 utanborðsmótora og er hvor um sig
175 hestafla. Snúningshraðinn er allt
að sex þúsund snúningar.
Þeir ætla aftur á Hafrótinu sem þeir
sigruðu á í fyrra með einni 200 hestafla
vél. Nú hafa þeir sem sagt bætt við sig
150 hestöflum auk þess sem
mótorarnir eru léttari til samans en
vélin í fyrra. Ásgeir Long flytur inn
þessa bandarísku mótora.
Óljóst er enn hversu miklum hraða
Hafrótið kann að ná með mótorunum
en hiklaust má nefna 50 sjómílur.
Hafrótið, sem er 22 feta, framleitt af
Flugfiski, hefur þegar sannað ótvírætt
nægilegan styrkleika sinn eftir krappan
dansí stórsjó í sjórallinu í fyrra.
-GS.
H
„Ekki minna en fimmtiu mílur ” gæti
Runólfur Guðjónsson verið að segja þar
sem hann stendur við annan nýja 175
hestafla mðtorinn sinn ásamt félaga sln-
um Hafsteini Sveinssyni.
DB-mynd Árni Páll.