Dagblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 12

Dagblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 12
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1979. SKYNDIMYNDIR Vandaðar litmyndir i öll skirteini. barna&fjölsk/ldu- Ijösmyndir AUSTURSTRÆTI 6 SIMI 12644 PERMANENT KLIPPINGAR BARNAKLIPPINGAR LAGNINGAR BLÁSTRAR - LITANIR GERUM GÖT Í EYRU SÍMI24596 RAGNHILDUR BJARNADÓTTIR HJÖRDÍS STURLAUGSDÓTTIR ÖSP MIKLUBRAUT 1 HÁRGREIOSLUSTOFAN Lokanir verzlana á laugardögum ísumar Samkvæmt kjarasamningum milli Kaupmannasamtaka íslands og Verzl- unarmannafélags Reykjavíkur skulu verzlanir hafa lokað 10 laugardaga yfir sumarmánuðina frá 20. júní til ágúst- loka. Afgreiðslufólki er því óheimilt að vinna í verzlunum á laugardögum á framan- greindum tíma. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Borgfirðingar! Ferðafólk! JÚNSMESSU- DANSLEIKUR verður haldinn laugardaginn 23. júní í HREDAVATNSSKÁLA Hin vinsœla hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar leikur Nú fara allir til Jónsmessu. HREÐAVATNSSKÁLI 3500 hænur í fjósið f staðinn fyrir 30 beljur — „0g afkoman er betri,” segir gamli bóndinn í Miðhiísum í Garði Torfi sagði að framleiðendur fengju nú hartnær 1000 kr. fyrir eggjakílóið en framleiðslukostnaður væri alimikill því allt byggðist á erlendu fóðri. Kemur tankbíll með korn með stuttu millibili að Miðhúsum með nokkur tonn fóðurs í senn. „Fæturnir eru búnir og ég lét síðustu kýrnar fara í haust,” sagði Torfi Sigurjónsson, 73 ára gamall bóndi í Garðinum, sem nú á gamals aldri tekur þátt í nýjum atvinnurekstri í Garðinum með þvi að koma upp myndarlegu eggjaframleiðslubúi. Hann er búinn að búa í Miðhúsum í Garði i 39 ár hinn 5. júlí nk. en þangað kom hann úr Árnessýslu. Fjósinu hefur verið breytt í hænsnabú og þar eru nú 3500 gaggandi hænur. Um tvö þúsund þeirra eru komnar í varp en um miðjan júlí verða þær allar verpandi. Þrjár stórar lengjur hænsnabúra fylla fjósið og þegar komið er í nánd við fjósið má heyra hverjir íbúarnir eru. heyi, ,,en það fer minnkandi því ég ber minna á en áður.” ,,Það er betri afkoma af hænsnunum en beljunum áður fyrr,” sagði Torfi. ,,Það eru náttúrlega af- föll af öllu og talsvert mikil hjá hænunumensamterþetta betra.” -ASt. Hænsnabúið eiga þeir að jöfnu Torfi, Jóhannes Guðmundsson og Sig- urður Rafnsson. Einn piltur starfar við búið, „tínir egg, þvær, gefur og mokar út,” eins og Torfi orðaði það er hann sýndi DB-mönnum búið. „Afraksturinn er núna hátt ,i 2000 egg á dag og markaðurinn er góður. Mest af framleiðslunni fer í Hagkaup og Vörumarkaðinn í Reykjavík en einnig í smábúðir i Garðinum. Ef markaðurinn heldur áfram að batna þá stækkum við,” sagði Torfi. „Þá þarf að byggja því fleira verður ekki sett í gamla fjósið.” Þar sem áður beljubaul fyllti loftið eru nú 3500 gaggandi hænur. Þær sjá aldrei dags- ins Ijós og hafa aldrei hana augum litið hvað þá heldur meir. Hér er Torfi gamli milli tveggja búrasamstæðna. Hænurnar ætluðu vitlausar að verða þegar Ragnar Th. Sig- urðsson Ijósmyndari smellti af og flash-ljósið gaf meiri birtu en augu þeirra þoldu. „Þetta er allt öðru vísi en áður, bú- skapurinn hér,” sagði Torfi. ,,Ég hafði áður mest 30 mjólkandi í fjósi og annað eins af geldneyti. Nú hef ég bara um 50 kindur og 9 hesta sem notaðir eru til reiðar og einnig aldir til átu,” sagði Torfi. Lengi hefur Torfi heyjaðá mörgum jörðum og gerir enn, m.a. á Útskála- jörðinni. Hann selur nokkurt magn af „Hvað er nú þetta? Eru ekki DB-menn komnir i heimsókn?” hugsuðu þær og störðu einu auga á Ragnar Ijðsmyndara. Sjórall 79: HAFSTEINN 0G RUNÓLFUR TVÖFALDA VÉLAR0RKUNA — verða með tvo 175 hestafla utanborðsmótora á Hafrótinu „Framleiðendumir hafa bætt ýms- um aukabúnaði til styrktar á mótprana og við eigum jafnframt von á sér- stökum skrúfum fyrir rallið. Þeir munu fylgjast náið með frammistöðu véla sinna,” sögðu Hafsteinn Sveinsson og Runólfur Guðjónsson í gær er þeir voru að sækja mótorana. Hér er um að ræða tvo Mariner V— 6 utanborðsmótora og er hvor um sig 175 hestafla. Snúningshraðinn er allt að sex þúsund snúningar. Þeir ætla aftur á Hafrótinu sem þeir sigruðu á í fyrra með einni 200 hestafla vél. Nú hafa þeir sem sagt bætt við sig 150 hestöflum auk þess sem mótorarnir eru léttari til samans en vélin í fyrra. Ásgeir Long flytur inn þessa bandarísku mótora. Óljóst er enn hversu miklum hraða Hafrótið kann að ná með mótorunum en hiklaust má nefna 50 sjómílur. Hafrótið, sem er 22 feta, framleitt af Flugfiski, hefur þegar sannað ótvírætt nægilegan styrkleika sinn eftir krappan dansí stórsjó í sjórallinu í fyrra. -GS. H „Ekki minna en fimmtiu mílur ” gæti Runólfur Guðjónsson verið að segja þar sem hann stendur við annan nýja 175 hestafla mðtorinn sinn ásamt félaga sln- um Hafsteini Sveinssyni. DB-mynd Árni Páll.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.