Dagblaðið - 22.06.1979, Page 24

Dagblaðið - 22.06.1979, Page 24
28 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1979. FJÖLTEFLI í FELLAHELLI íslandsmeistarinn í skák Ingvar Ásmundsson teflir fjöl- tefli í Fellahelli á morgun, laugardag kl. 1.30. Allir velkomnir — Takið með ykkur töfl. Skákfélagið Mjölnir. Bakpokar og kUfurvörur Glæsibæ—Sími 30350 Skrifstofustarf Verzlunarmannafélag Suðurnesja vill ráða starfskraft til skrifstofustarfa í fullt starf. Umsóknir sendist til Valgarðs Krist- mundssonar, Lyngholti 11 Keflavík, fyrir l.júlf 1979. Sfl6rnin- SÁLFRÆÐINGUR óskast til starfa við dagvistunarstofnanir Reykjavíkur- borgar. Laun skv. launakerfi borgarstarfsmanna. Gert er ráð fyrir að starfsmaðurinn hafi aðsetur í Sál- fraéðideild skóla í Breiðholti og veitir forstöðumaður hennar nánari upplýsingar um starfið í síma 74050. Umsóknum ásamt afriti prófskírteina og upplýsingum um fyrri störf skal skila til Fræðsluskrifstofu Reykja- víkur, Tjarnargötu 12, fyrir 16. júlí nk. Fræðslustjórinn í Reykjavík Félagsmálastjórinn í Reykjavík Atrank Aðeins nokkur tœki til ennþá — til afgreiðslu strax. SJÓNVARP & RADÍÓ HVERFISGÖTU 82 - SÍMI23611 Annar útsölustaður: Radíóbœr, Ármúla 38 22" frá kr. 442.000.- 26" frákr. 515.000.- m/fjarstýringu Engin flugumferð var á flugvellinum við Stykkishólm er DB-menn höfðu þar viðdvöl fyrír skömmu en þangað er flogið Gmm sinnum i viku. Með blaðamanni DB á myndinni er Jóhann Rafnsson en hann hefur barízt mjög fyrír framgangi þessa flugvall- armáls. DB-mynd Árni Páll Nýr flugvöllur í Stykkishólmi: NAUDSYNLEGUR ÖRYGGISVÖLLUR Nýr flugvöllur var tekinn í notkun í Stykkishólmi um áramótin. DB- menn svipuðust um á flugvellinum er þeir áttu leið um Stykkishólm nýlega. Að sögn Jóhanns Rafnssonar í Stykkishólmi, en hann hefur barizt mjög fyrir framgangi þessa máls, binda heimamenn miklar vonir við aði ferðamannastraumur til Stykkis- hólms aukist til mikilla muna með tilkomu flugvallarins. Völlur þessi, sem hefur verið í byggingu frá 1971, er tæpir 1200 metrar á lengd og er Stykkishólmur því kominn í hóp þeirra flugvalla sem „Fokkerinn” getur lent á. Gamli flugvöllurinn var aðeins um 460 m að lengd og oft ónothæfur sökum aurbleytu. Jóhann sagði að þá væri þessi nýi völlur nauðsynlegur öryggisflugvöllur þvi að allt Vestfjarðaflugið færi þarna yfir. Til Stykkishólms er nú flogið fimm sinnum í viku og sér flugfélagið Vængir um það flug. -GAJ- Portúgalskt hríngnótaskip á siglingu I fslenzkrí landhelgi á leið frá Nýfundnalandi tíl Noregs. DB-mynd RLA Portúgölsk hringnótaskip á siglingu í landhelgi í síðustu viku urðu varðskipsmenn á Tý varir við portúgölsk hringnótaskip sem voru á siglingum i íslenzkri landhelgi. Þegar málið var kannað kom í ljós að hér var um að ræða skip sem verið höfðu á veiðum við Nýfundnaland. Þar var afli lítill sem enginn svo ákveðið var að halda á ný mið. Hringnótaskipin eru á ufasveiðum og eru nú á leið til Noregs, í þeirri von, að fengsælla sé þar um slóðir. .jh. 50 íslenzkir organistar í Evrópuferð Syngja íslenzka sálma við gröf Bachs íLeipzig HÚLLUMHÆI TILEFNI, BARNAARS Nokkrar konur á Patreksfirði hafa tekið sig saman um að láta barnaárið ekki líða fram hjá án þess að þess sé að nokkru minnzt og eitthvað gert fyrir ungviðið í tilefni ársins. Því hefur verið ákveðið að efna til hátíðahalda á laugardaginn og i raun að halda áfram þar sem frá var horfið 17. júní. Skemmtunin verður í og við hið nýja félagsheimili á Patreksfirði og hefst kl. 14 á laugardag með bingói. Síðan verða skemmtiatriði. Dans verður svo fyrir| krakkana frá kl. 20—22 en þá fara allir; út þar sem tendraður verður varðeldur. Þar verður söngur og leikir og húllum- hæið endar með flugeldasýningu á, miðnætti. Þetta ætti að takast vel ef ekki rigniri allt of mikið, en rigning er landlægur ! fylgifiskur útihátíðarhalda hérlendis. -JH. Um þessar mundir eru fimmtíu íslenzkir organistar á kynnisferð um höfuðstöðvar kirkjutónlistarinnar i Evrópu. Haukur Guðlaugsson söng- málastjóri hefur skipulagt ferðina. Er farið fyrst til Leipzig í A-Þýzkalandi og verður Thomasarkirkjan sérstaklega skoðuð og þar hlýtt á fjölda tónleika og verið við guðsþjónustur. Ferðafélag- arnir munu koma til grafar J.S. Bach og syngja þar á islenzku nokkra sé.lma hans og farið verður um slóðir Lúthers, Göthe og Schillers. Þaðan er haldið til Berlínar, Vínar og Salzburgar og hlýtt á messur þar sem fremstu kórar og organleikarar álf- unnar leiða tónlistina og heimsóttir sögustaðir tónlistarinnar, þar sem Beet- hoven, Mozart og Schubert störfuðu. Þátttakendur eru á aldrinum 17—76 ára alls staðar að af landinu, m.a. frá Hofsósi, Haganesvík, Kópaskeri, Hólmavík, Tálknafirði og Djúpavogi. Dæmi eru um það að sveitungar eða kórfélagar hafi boðið organista sínum eða söngstjóra í ferðina til viðurkenn- ingar fyrir langt og gott starf. Biskups- stofa og menntamálaráðuneytið hafa einnig stutt við ferðina og bjóða til sér- stakra tónleika í ferðinni. -GAJ.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.