Dagblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 27

Dagblaðið - 22.06.1979, Qupperneq 27
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1979. d 31 Utvarp Sjónvarp I MYNDIN - sjónvarp kl. 21.40: m LANH) ER FALLVALT Lánið er fallvalt (Bordertown) nefnist bíómynd sem sjónvarpið sýnir í kvöld kl. 21.40. ____ Myndin er bandarísk frá árinu 1935 og með aðalhlutverk fara Paul Muni, Bette Davis og Margaret Lindsay. Myndin segir frá Johnny Ramirez, sem er lögfræðingur að mennt en kominn af fátæku fólki. Hann hefur glæstar framtíðarvonir, en allt fer í handaskolum er hann klúðrar fyrsta máli sínu sem lögfræðingur og missir réttindi sín. Næturklúbbseigandi hefur augastað á honum og býður honum að verða meðeigandi sinn, sem hann þiggur. Eiginkona næturklúbbseigandans (Betty Davis) hefur líka augastað á honum og gerir allt ul að losna við eiginmann sinn, til að komast nær Johnny. Það fer líka svo að henni tekst það, en þá hefur lögfræðingurinn náð sér í aðra, sem er þó nokkuð ofar honum í þjóðfélagsstiganum. Betty Davis er þó ekki ánægð með þau lok mála og gerir allt tíl að hefna sín á sínum heitt- elskaða. Myndin fær þrjár og hálfa stjörnu. Heba Júlíusdóttir er þýðandi mynd- arinnar sem er um einn og hálfur tími að lengd og svart/hvít. -ELA. Betty Davis og Paul Muni eru hér i hlutverkum sfnum i myndinni Lánið er fallvalt. UROSKUNNIÍ ELDINN—útvarp kl. 20.40: Þaðer ekkert sældarlíf aðvera öskutunna „Við ætlum að fjalla um öskutunnur í þættinum,” sagði Valdís Óskarsdóttir, annar umsjónarmanna þáttarins Úr öskunni í eldinn sem er á dagskrá út- varpsins í kvöld kl. 20.40. Umsjónar- maður auk hennar er Erna Indriða- óttir og er þetta þriðji þáttur þeirra af fjórum. „öskutunnur búa við svo þröngan kost í kjöllurum og enginn gefur þeim gaum, þó eru þær á hverju heimili í bænum,” hélt Valdís áfram. ,,En samt er fleygt í þær hvaða rusli sem er. Þetta er ein fjöl- mennasta stétt landsins en samt enginn gaumur gefinn. Við ætlum að bæta úr því og ræða við menn sem vinna við að tæma öskutunnur og spyrja þá hvort ekki sé eitthvað merkilegt að finna í tunnunum, kannski menn eða eitthvaðslíkt. Einnig ræðum við við tvær konur og spyrjum þær hvað þær gefi öskutunnunum sinum að borða og að síðustu ræðum við við talsmann öskutunnanna um hvernig búið er um öskutunnur og ýmislegt í því sam- bandi. Tónlist verður leikin á milli og Hvað skyldi þessi tunna hafa að geyma? fyrst í þættinum verður fluttur kafli úr leikritinu Nakinn maður og annar i kjólfötum. Svo vonum við bara að fólk hlusti DB-mynd Ragnar Th. á þáttinn og að hann veki það til umhugsunar um öskutunnur almennt.” -ELA GRÆDDUR VAR GEYMDUR EYRIR - sjónvarp kl. 21.15: Gildi og framkvæmd J verðkannana Sigrún Stefánsdóttir fréttamaður á- imt Guðna Kjærbó ritstjórnarfulltrúa á um þáttinn Græddur var geymdur rrir, sem er á dagskrá sjónvarpsins í völd kl. 21.15. í þættinum sem er sá fjórði í iðinni um verðlagsmál verður fjallað um verðkönnum bæði gildi hennar og framkvæmd. Rætt verður við aðila i Keflavík, Borgarnesi, Akranesi og víðar um verð- kannanir sem gerðar hafa verið. Enn- fremur verður rætt við Jónas Bjarna- son fulltrúa Neytendasamtakanna og Magnús Finnsson framkvæmdastjóra Kaupmannasamtakanna. Hverju ætti að breyta og hvernig á að framkvæma verðkönnun, eru meðal annars spurningar sem leitazt verður við að svara að sögn Sigrúnar. Þættirnir um verðkönnun munu halda áfram eftir sumarleyfi sjónvarpsins og er hver þáttur um tuttugu og fimm mín. -ELA. Þorgeir Astvaldsson, umsjónarmaöur f>konrok(k)s. SKONROK(K) - sjónvarp kl. 20.40: GAMALT 0G NÝIT, ÞEKKT 0G ÓÞEKKT ,,í Skonrokki í kvöld verður svipaður fjöldi laga og venjulega, en þetta er næstsíðastí þátturinn,” sagði Þorgeir Ástvaldsson stjórnandi þáttarins. ,,Ég ætla að byrja á lagi með Earth Wind & Fire sem heitir Fantasy. En ég vil taka það fram vegna þáttarins 17. júní, þar sem sýnt var frá hljómleikum þessarar hljómsveitar, að það er ekki að ég sé að trana þeim neitt fram, heldur var ég búinn að taka þennan þátt upp fyrir 17., enda var sá þáttur á- kveðinn með svo stuttum fyrirvara. Ég verð með bæði gamalt og nýtt í þættinum í kvöld og þekkt og óþekkt. Óþekktur náungi en góður, Adrian Gurvitz, verður með eitt lag. Ný en vinsæl hljómsveit, Dire Stratis, verður með sitt vinsæla lag og Doobie Brothers með íagið sitt Minute by minute. Annað vinsælt lag um þessar mundir Girl of my dreams með Bram Tchaikovsky verður einnig og svo tvær ágætar filmur með metsölulögum. Það eru Paul McCartney og Wings með lagið Mull of Kintyre og Queen með lagið Bohemian Rapsody. Nú svo að síðustu verð ég með Boney M. með lagið Hurray Hurray it’s Holy Holli- day.” Skonrok(k)ið er um hálfrar klukku- stundar langt. -ELA. Jeepster 1967 V-6 or til söhi eða I skiptum fyrir mótortijöl. Bilnum gata fylgt: 2 h&singar, mlllikassl og girkassi úr Willys Overland. Upplýs- Ingar í sima 97-7134 i kvöld og nœstu kvöld eftir kl. 20.00.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.