Dagblaðið - 04.07.1979, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. JULI 1979.
DB á ne ytendamarkaði
V
Sparaði rúmar
7 þúsundir á
magnkaupum
í kjallara Kaupfélagsins á Höfn er
rekinn sparimarkaður þar sem fólk
getur komið og keypt vörur í heilum
pakkningum og faer þá á þeim 10%
afslátt. Guðný notfærði sér þau kjör
þegar hún fór að verzla. AIls mátti
hún verzla fyrir 106.405 krónur
hvenær sem henni þóknaðist. í ferð-
inni sem farin var með DB-mönnum
verzlaði hún fyrir hátt í þá upphæð.
Vörur á venjulegu búðarverði voru
keyptar fyrir 25.438 krónur en í
sparimarkaðnum var keypt fyrir
72.175 krónur. En 10% afslátturinn
lækkaði þar kaupverðið um 7.218
krónur og þurfti því ekki að greiða
nema 64.958 krónur.
Jens Ólafsson, verzlunarstjóri í
kaupfélaginu, sagði að það væfi
furðulega lítið um það að fólk keypti
á sparimarkaðnum, þó menn vissu
hvað hægt væri að spara. Ástæðuna
taldi hann geta verið plássleysi hjá
fólki en þó líklegra þá að fólk áttaði
sig ekki á því hvað hægt væri að
spara. Sumir vildu líka fá þá auknu
Það af vinningsfjölskyldunni sem hcima var. Frá vinstri talið Anna Signý 16 ára, Hildur Árdis 18 ára, Guðný Eva Guðfínna
17 ára og Erna Guðrún 17 ára. Oddný Þóra sem er 19 ára og húsbóndinn á heimilinu, Sigurður Einarsson voru ekki heima.
,,Það eiga nú hvorki meira né
minna en fjórir í fjölskyldunni af-
mæli í mánuðinum þannig að þetta
kemur sér allt mjög vel,” sagði
Guðný Egilsdóttir á Höfn í Horna-
firði. Nafn Guðnýjar kom upp er
dregið var úr aprílseðlum um upplýs-
ingar til samanburðar á heimilis-
hún.
Þó verzlunartúrinn drægist var
Guðný búin að hugsa fyrir honum í
langan tíma áður. Hún hafði farið til
Jens Ólafssonar verzlunarstjóra og
beðið hann að taka frá fyrir sig ýmis-
legt, til að tryggt væri að það hækk-
aði ekki meira. Var þar um að ræða
alls kyns sekkiavöru svo sem hveiti,
sykur og margir pakkar af þvotta-
efni.
Fimm dætur
á þremur árum
Það kom í ljós blaðamanni DB til
mikillar undrunar að Guðný er ein-
,,Ég hef aldrei á ævi minni keypt eins
mikið inn i einu. Þetta dugar mér
vumt fram yfir áramót,” segir
Guðný. DB-mynd Trausti.
þjónustu að geta tekið vöruna verð-
merkta niður úr hillum í þvi magni
sem hentaði hverju sinni.
Jens benti einnig á að sparnaður
væri líka fólginn í því að mikið af
sekkjavörum væri flutt inn beint til
Hornafjarðar og þyrfti fólk þvi ekki
að greiða hærra verð þar en í Reykja-
vík. Ef hins vegar þarf að flytja
vöruna frá Reykjavík leggst á hana
um það bil 40 krónur á kílóið þó það
sé að aukast að framleiðendur taki á
sig flutningskostnaðinn og deili
honum niður á verðið. Slikt væri
vitaskuld mikill munur fyrir fólkið á
landsbyggðinni.
- DS
,,Hvað var það nú aftur fleira scm ég
ætlaði að kaupa?”
kostnaði. Vegna anna hefur verzl-
unartúrnum ekki verið komið í verk
fyrr en í síðustu viku. Guðný kaus þá
að verzla í Kaupfélagi Austur-Skaft-
fellinga á Höfn. ,,Það er eina
verzlunin sem á nóg úrval,” sagði
mitt umboðsmaður blaðsins á Höfn
og sér um að bera það út að hluta.
,,Ég hélt fyrst þegar þú hringdir og
sagðist vera frá Dagblaðinu að það
ætti að fara að finna að við mig,”
sagði hún í gríni. Guðný er gift Sig-
urði Einarssyni sem var önnum kaf-
inn á humarmiðunum úti fyrir Höfn
á meðan DB-menn litu við. Þau
Sigurður og Guðný eiga fimm dætur.
Sú elzta er 19 ára en sú yngsta átti ein-
mitt afmæli um þær mundir scm DB
var fyrir austan, varð 16 ára.
„Sumum gengur illa að skilja það
hvernig ég gat átt fimm dætur á þrem
árum. En ég á nú eina tvíbura,” segir
Guðný. Allar dæturnar nema sú elzta
eru heima í sumar en þrjár þeirra eða
jafnvel fjórar verða að heiman í.vetur
við skólanám. Elzta dóttirin er i
sumar við vinnu á Breiðdalsvík en
hinar fjórar unnu i frystihúsinu á
Höfn.
„Hvor tegundin er nú ódýrari,” hugsar Guöný meö sér.
„ALDRB VERZLAÐ
SV0NA MIKIÐ í BNU”
Vinningshafi aprílmánaðar í verzlunarteiðangri á Höfn í Homafirði
Samanburður á kostnaði við heimilishald:
Miðvikudag 4. júlí kl. 20.30.
Tónleikar: Guðný Guðmundsdóttir og
Halldór Haraldsson leika verk eftir
Þorkel Sigurbjörnsson, Jón Nordal,
Carl Nielsen, Beethoven og Ravel.
Aðgöngumiðar við innganginn, verð kr.
1000.-
NORRÆNA
HÚSIÐ
LANDSMEÐALTAUÐ
24.434 KR. í APRÍL
Eins og áður hefur verið greint frá
var meðaltalskostnaðurinn í apríl-
mánuði lægstur hjá stærstu fjöl-
skyldunum, eða þeim sem eru átta
manna. Að vísu sendu aðeins tvær
átta manna fjölskyldur inn upplýs-
ingaseðla í apríl en meðaltalið af
þeim reyndist 18.873 kr.
Fimm manna fjölskyldan (eins og
vinningshafinn okkar) var með
21.281 kr. í meðaltalskostnað á
mann, fjögurra manna, sex og sjö
manna fjölskyldurnar voru allar með
meðaltalskostnað á 23. þúsundinu.
Dýrast var heimilishaldið hjá þriggja
manna fjölskyldunum eða upp á
26.916 kr.
Ef við lítum á hver meðaltalskostn-
aðurinn reyndist í hinum ýmsu sveit-
arfélögum var hann hæstur á Seyðis-
firði, eða 38.387 kr. á mann. Skýring
fylgdi með þeim seðli þar sem segir
að engin frystikista sé til á heimilinu
og verði því að kaupa í matinn dags-
daglega.
Langlægstur kostnaður var á seðli
úr Mývatnssveit. Með þeim seðli
fylgdi einnig bréf. Þar segir að seðill-
inn gefi ekki rétta mynd af heimilis-
haldinu yfirleitt, því í apríl hafi fjöl-
skyldan ekki verið heima frá 2. i
páskum og til mánaðarloka. Einnig
segir að sá siður sé á hafður að birgja
heimilið upp af mat í september og
október, en þá sendi viðkomandi
ekki inn upplýsingaseðla.
Ef við reiknum út meðaltalskostn-
aðinn yfir allt lan lið án tillits til fjöl-
skyldustærðar kemur í Ijós að hann
er 24.434 kr. á mann. Samsvarandi
meðaltal fyrir marzmánuð var 21.467
kr. Hækkunin varð þvi talsverð og
má búast við að hún verði enn tilfinn-
anlegri nú, eftir nýjustu verðhækkan-
irnar. -A.Bj.